SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 06.12.2009, Qupperneq 23

SunnudagsMogginn - 06.12.2009, Qupperneq 23
6. desember 2009 23 E ineltið byrjaði strax á fyrsta degi. Ég gekk inn í bekkinn og mátti ekki setjast hjá neinum. Ég mátti ekki vera í röðinni inn í matsalinn og var útilokuð áður en ég fékk nokkurt tækifæri til að sýna þeim hver ég var. Ég hafði hlakkað mikið til að byrja í skólanum svo þetta voru ansi mikil von- brigði,“ segir Edda Björk Ármannsdóttir um upphaf eineltis sem hún leið hvern einasta dag grunnskólagöngu sinnar. Edda var alin upp í sveit norður í landi og sótti heimavistarskóla frá sjö ára aldri. Hún er elst fjögurra systra og var búin að læra að lesa og skrifa fyrir sex ára aldur. Hún hefur aldrei átt í nokkrum erf- iðleikum með nám en félagstengsl hafa aftur á móti verið henni afar erfið. Þá erf- iðleika tengir hún beint við reynslu sína af einelti í bernsku. „Þetta byrjaði strax af krafti. Ég fékk að heyra það hversu ógeðsleg ég væri og að foreldrar mínir væru jafnvel verri. Það voru lítil atriði eins og að vera ekki valin í liðið í leikfimi eða spilunum þeytt á gólfið ef ég var að leggja kapal. Svo var auðvitað líkamlegt ofbeldi líka og það voru stund- um fimm strákar að sparka í mann í einu,“ segir Edda um eineltið og sársauk- inn í röddinni leynir sér ekki. Edda segir að gerendurnir hafi verið margir en þeir verstu voru fjórir bekkjar- félagar hennar. Edda segir að sér hafi líka þótt sárt hversu mörg börn voru áhorf- endur að eineltinu og skárust aldrei í leikinn henni til stuðnings. Móðir Eddu var kennari við skólann og sagði einn gerandinn ástæðuna fyrir ofbeldinu vera óvild þeirra í garð móðurinnar. „Mamma var aðflutt og ekki úr sveitinni og það var heldur ekkert sérstaklega vel tekið á móti henni. Ég held líka að það hafi ekki tíðk- ast þá að foreldrar berðust fyrir rétt- indum barna sinna innan skólans og þó að hún hafi reynt eitthvað var það alltaf án árangurs,“ segir Edda. Vont að láta sparka í sig en orð meiða líka Það dró ekki úr eineltinu með árunum og ef eitthvað var þá ágerðist það. „Það er vissulega vont að láta sparka í sig og það er ekki langt síðan ég hætti að bera fyrir mig hendur vegna snöggra hreyfinga fólks í kringum mig en orðin meiddu ekki síður. Sjálfsmyndin er auðveldlega brotin þegar maður fær að heyra það ár eftir ár að maður sé fífl, hálfviti og hóra og það virtist engu breyta að ég var topp- nemandi. Ég var full af ótta alla daga og reyndi að forðast strákana eins og ég gat. Vísvitandi stóð ég ekki nálægt tröppu- brún þegar þeir nálguðust til að gefa þeim ekki tækifæri á því að fleygja mér niður. Þessir strákar rændu of miklu frá mér og skemmdu of mikið,“ segir Edda sem er enn bitur út í gerendur sína. Þar sem Edda var í heimavistarskóla var hún sjálfkrafa föst í aðstæðunum og átti sér hvergi griðastað. Hún var í her- bergi með tveimur öðrum stúlkum. Í þau fáu skipti sem hún fékk tækifæri á því að vera ein í herbergi sínu hafði hún gaman af því að grípa í flautuna og æfa sig. Þá var nánast undantekningalaust sparkað í hurðina þar til hún á endanum hætti að læra á hljóðfærið. Stundum reyndi hún að flýja aðstæður og leitaði huggunar til dýranna úti í móa. Oftar en ekki eltu ger- endurnir hana og ýmist spörkuðu þá í hundana eða grýttu steinum í hestana. „Það voru engin takmörk fyrir illskunni. Mig dreymdi lengi vel um að lenda í al- varlegu slysi og fá að fara á sjúkrahús,“ segir hún. Edda ber ekki kala til kennara sinna og segir þá örugglega hafa verið að reyna að standa sig. Hún náði góðu sambandi við þá og átti auðveldara með að ræða við fullorðið fólk þegar hún var barn en jafn- aldra sína. Edda glímdi við þunglyndi mestalla sína grunnskólatíð og áfram fram á fullorðinsár. Hún segir sjálfsvígs- hugsanir hafa verið tíðar lengi vel en er laus við þær í dag. Of mikil ábyrgð að koma með barn í þennan heim Eineltið hætti ekki fyrr en að grunnskóla loknum þegar Edda flutti í bæinn og fór í menntaskóla. „Ég mynda enn ekki auð- veldlega tengsl í dag og á erfitt með að treysta fólki þó að það hafi gengið betur með árunum. Það skilja það allir vel ef bíll með ónýtan gírkassa er óökufær en það er eins og það sé ekki sami skilningur þegar manneskjan er brotin. Einhvern veginn hökti ég samt áfram og er enn með brot- inn gírkassa,“ segir Edda sem hefur ekki enn náð að vinna sig að fullu út úr einelt- inu, nú tuttugu árum síðar. „Svo kemur maður út úr þessu um- hverfi og verður ástfanginn en þorir ekki fyrir nokkra muni að nálgast viðkom- andi. Ég hef kannski forðast náin kynni og meðvitað laðast að óaðgengilegum einstaklingum, stjörnum og jafnvel upp- skálduðum persónum úr sjónvarpsþátt- um. Það er fínt fyrir varnarvegginn minn. Það er ekkert mjög kúl að vera 36 ára en vera enn þá 15 ára inni í sér. Ég á inni hið fullkomna samband og ef það kemur þá er ég til. Ef það kemur ekki þá er ég alveg sátt við vera minn eigin bóhem,“ segir Edda sem vill samt sem áður ekki gera mikið úr sambandsleysi sínu. „Ég sé heldur ekki sjálfa mig fyrir mér sem móður því ég vil ekki að barn gangi í gegnum sama helvíti og ég. Það er of stór áhætta fyrir mig að taka og ég vil ekki taka þátt í því að bera slíka ábyrgð að koma með barn í þennan heim,“ svarar Edda þegar hún er innt eftir því hvort hana langi ekki til að eignast barn sjálf. Edda myndi helst af öllu vilja sneiða hjá því að fara á æskuslóðir sínar þar sem ferðir þangað rifja upp sársauka æsk- unnar. Hún bregður sér þó af og til í sveitina í heimsóknir til ættingja sem hún vill halda sambandi við. Hún forðast allar samkomur þar sem hún gæti átt á hættu að hitta gerendur sína og vill hún ekkert af þeim vita. Finnur fyrir hefndarþrá „Enn þann dag í dag hugsa ég svona þrá- hyggjuhugsanir þar sem mig langar til að hefna mín og ég held að þessi hefndarþrá sé ekki einstök. Ég geng ekki um reið alla daga en það koma dagar þar sem reiðin blossar upp. Það tala margir um það hversu gott það væri fyrir mig að fyr- irgefa en ég sé bara ekki tilganginn í því og mér finnst það bara ekki vera svo ein- falt. Ég held að það sé mikilvægast að fyr- irgefa sjálfri mér fyrir að hafa ekki krafist þess að fara í annan skóla þar sem það var augljóst að þessir strákar voru staðráðnir í að kvelja mig,“ segir Edda Edda gekk menntaveginn eftir að hún flutti í bæinn. Að loknu stúdentsprófi flutti hún til útlanda og dvaldist samtals 6 ár bæði í Ástralíu og Danmörku. Hún lauk svo líffræðiprófi í Danmörku og starfar nú á tilraunastöðinni á Keldum. Hún er í leiðsöguskólanum og hefur gaman af því að ferðast. „Vinnustaðurinn minn og fjölskylda og fáir en góðir vinir hafa verið mér ómetanlegur stuðningur og ég stór- efast um að fólk sem þekkir mig í dag í vinnu og skóla átti sig á því að ég eigi í erfiðleikum með félagsleg tengsl því ég er mjög dugleg að vera ekki feimin. Ég er að taka út menntaskólaárin núna sem allir töluðu um að væru skemmtilegasti tími ævinnar en þá leið mér svo skelfilega og var svo niðurbrotin að fyrir mér var þessi tími barátta. Það urðu líka ákveðin þátta- skil hjá mér fyrir tveimur árum en þá eignaðist ég vini sem hafa reynst mér ótrúlega vel enda vandfundnar vandaðari manneskjur. Systur mínar og börn þeirra hafa einnig verið mér ómældur stuðn- ingur en eineltið skemmdi samband mitt við þær um árabil. Ég er mjög sátt við sjálfa mig í dag og þann stað sem ég er á í lífinu en ég hefði alveg viljað hafa leiðina greiðfærari.“ „Sjálfsmyndin er auðveldlega brotin þegar maður fær að heyra það ár eftir ár að maður sé fífl, hálfviti og hóra,“ segir Edda Björk Ármannsdóttir sem lögð var í einelti í grunnskóla. Morgunblaðið/Kristinn Líður enn fyrir tveggja áratuga gamalt einelti „Það er ekkert mjög kúl að vera 36 ára en vera enn þá 15 ára inni í sér.“ Mismunandi gerðir eineltis Einelti getur birst í margvíslegum myndum. Það getur annars vegar verið sýnilegt og hins vegar falið. Það getur farið fram á opnum vettvangi eins og skólalóðinni eða á æfingum og það getur líka verið rafrænt. Gerandinn er oftast einstaklingur en stundum er um hópeinelti að ræða. Það er mun auðveldara að grípa inn í þegar einelti er sýnilegt en þegar það er dulið. Sýnilegt einelti er til dæmis barsmíðar, meiðandi umsagnir og þegar þolandinn er látinn gera eitt- hvað gegn vilja sínum. Dulið einelti er eflaust það erfiðasta sem þolandinn lendir í. Þá er þolandinn útilokaður úr hópnum. Ekkert er sagt og ekkert virðist gert en hlutirnir gerast samt. Þegar slíkt einelti hefur staðið yfir í lengri tíma telur þolandinn sér trú um að eineltið sé í raun og veru honum að kenna og forðast því vissar félagslegar aðstæður til að komast hjá höfnun. Hvað þurfa börn að vita um einelti? Flestir skólar styðjast við einhvers konar viðbragðsáætlun gagnvart einelti og er þar Olweusaráætlunin bæði algengust og þekktust. Til þess að börnin séu meðvituð um ábyrgð sína í eineltismálum getur bæði verið gott fyrir foreldra að ræða opinskátt við börn sín um einelti og viðbrögð þeirra og eins getur verið gott að gera bekkjar- reglur með hverjum bekk. Þar væru þær grunnreglur hafðar að leiðarljósi að við leggðum ekki aðra í einelti og aðstoðuðum aðra nemendur sem yrðu fyrir einelti. Eins ættum við bæði að bjóða þeim sem væru útundan að vera með í leikjum og láta foreldra eða starfs- fólk skóla vita ef við yrðum vitni að einelti eða fréttum af því.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.