SunnudagsMogginn - 06.12.2009, Page 24
24 6. desember 2009
Getur verið að barnið mitt sé lagt í einelti?
Því miður er það svo að börn segja ekki alltaf frá séu þau lögð í einelti og er það oft
sökum hræðslu við gerandann. Þau óttast að ástandið verði enn verra segi þau frá
og eins fyllast þau oft skömm yfir ástandinu. Foreldrar verða því að vera vakandi
fyrir hvers konar breytingum og ummerkjum hjá barninu. Ef barnið á erfitt með að
útskýra skítug og rifin föt, illa farin námsgögn, mar og sár getur það verið merki
um einelti. Eins ef félagsleg hegðun breytist þ.e. ef vinir hætta að leita til
barnsins og ef barnið er hrætt við að fara í skóla eða sækja
félagstarf. Barn sem lagt er í einelti sýnir oft breytta hegðun
á heimili, skapbrestir aukast og eins þunglyndi. Barnið finnur
oftar fyrir líkamlegum kvillum og kvartar oftar undan þreytu.
Hverjir verða fyrir einelti?
Þó að allir geti orðið fyrir einelti er tveimur hópum hættara við því en öðrum,
aðgerðarlausum og undirgefnum börnum annars vegar og ögrandi börnum
hins vegar. Einkenni barna sem falla í fyrri hópinn eru hlédrægni, viðkvæmni
og óöryggi. Strákar í þessum hópi eru ekki líkamlegir jafnokar jafnaldra sinna
og þeim þykir ekki gaman að slást. Börn í þessum hópi eiga fáa eða enga vini
og eiga auðveldara með að umgangast fullorðna en jafnaldrar þeirra. Hinn
hópurinn er ögrandi fórnarlömb eineltis og er 15-20% allra barna sem lögð
eru í einelti. Börn í þessum hópi eru skapbráð og reyna að svara fyrir sig en
verður lítið ágengt. Þau eru gjarnan talin eirðarlaus, klunnaleg og einfaldlega
erfið og fer framkoma þeirra oft í taugarnar á fullorðnu fólki.
H
ann var alltaf svo kátur og fjör-
ugur. Hann var félagslega sterk-
ur og svolítill foringi sem hin
börnin á leikskólanum sóttust
eftir að leika við. Það breyttist allt um leið og
hann byrjaði í skóla,“ segir móðir 12 ára
drengs sem sætir einelti fyrstu fimm ár
grunnskólagöngu sinnar.
Strax í sex ára bekk fer drengurinn að hafa
áhyggjur af hæð sinni, að hann sé of smá-
vaxinn. Hann lítur upp til bekkjarfélaga sem
er bæði stærri og sterkari en hann og fljótari
að hlaupa. Hann ræðir þó um það við móður
sína að sá drengur sé stundum að halda sér
föstum, stíga á tær sér og róta í hárinu á
honum í frímínútum. Móðirin hefur ekki
miklar áhyggjur af því en hlustar samt sem
áður á frásagnir drengsins. Eineltið ágerist
og upp úr áramótum fer móðirin á fund
kennarans til að ræða hvernig taka megi á
málunum. Móðurinni finnst kennarinn ekki
hlusta á sig og gera lítið úr áhyggjum sínum.
Þá ákveður hún að taka sér tveggja daga frí
frá vinnu og vera með drengnum sínum í
skólanum. „Þá hugsaði ég með mér, það er
ekki nema von að honum líði svona illa í
skólanum. Það voru slagsmál úti um allt,
strákarnir börðust stöðugt um völdin og það
ríkti algert agaleysi,“ segir hún um fyrstu
reynslu sína af því að fylgjast með bekknum
en langt því frá þá síðustu.
Einelti af hálfu kennarans
„Hann sagði mér nákvæmlega frá öllu en ég
mátti samt aldrei vita að hann væri hræddur.
Svo þegar hann var kominn í annan bekk
fann ég hvað hann var orðinn hræddur og
kvíðinn því að fara í skólann,“ segir hún.
Hún heldur áfram að mæta skilningsleysi
hjá kennaranum og aðgerðarleysi af hans
hálfu. Á þessum tíma fer drengurinn hennar
að tala um það hversu vondur kennarinn sé
við hann, að hann sparki í stólbakið hjá sér
og töskuna sína og öskri síendurtekið á sig.
Um þetta segir hún. „Ég hafði þá auðvitað
áhyggjur af því að hann hagaði sér mjög illa í
skólanum en þegar ég gekk á kennarann
kannaðist hann ekki við neitt. Sonur minn
var svona ögrandi fórnarlamb sem brást allt-
af illa við, var reiður og með læti og reyndi
að ráðast á gerendurna til baka.“
Seinna fer drengurinn hennar að sækja í
félagsskap gerenda sinna til þess eins að
verja sig og hann hlýðir skipunum þeirra.
Hann óttast mjög að geri hann ekki það sem
þeir biðji hann um taki þeir hann fyrir. Hann
leitast þó aldrei eftir að hitta þá að skóladeg-
inum loknum. „Það var verið að setja húfuna
hans í klósettið, gyrða niður um hann og
bróka hann (lyfta honum upp á nærbux-
unum) ef hann hlýddi þeim ekki,“ segir hún.
Á mjög skömmum tíma er drengurinn
hennar farinn úr hlutverki þolandans í hlut-
verk gerandans og segir móðirin að þá fyrst
hafi martröðin byrjað. Fas hans breytist og
allt í einu áttar móðirin sig á því að þegar
hann stígur út úr bílnum á morgnana tekur
hann upp nýtt „töffaralegt“ göngulag og
reynir með allri sinni líkamstjáningu að
senda frá sér þau merki að ekkert muni bíta
á hann. Drengurinn skilur „töffarahlut-
verkið“ eftir í skólanum og er sami blíði
drengurinn heima fyrir. Skyndilega fer
móðirin samt að merkja skapbresti heima
við sem ganga fljótlega úr böndunum.
„Hann fór allt í einu að taka reiðiköst upp úr
þurru. Þetta var ekki hann. Hann varð bara
trylltur. Fór kannski inn í herbergið sitt og
rústaði það og það var ómögulegt að róa
hann. Svo endaði þetta með því að hann fór
að hágráta og bað okkur um að hjálpa sér og í
verstu tilfellunum kastaði hann upp. Í einu
reiðikastinu tók hann upp hníf og hélt hon-
um við brjóst sér. Ég komst ekki hjá því að
hugsa, þetta er ekki barnið mitt, hann var
svo trylltur,“ segir móðirin. Eftir eitt svona
kastið sem var með því versta hafa foreldr-
arnir samband við barnageðdeild. Þar er
þeim ráðlagt að hafa hann heima daginn eftir
og hlúa vel að honum. Upp frá því leita þau
til sálfræðings og barnalæknis sem vísar
þeim svo áfram til barnageðlæknis og þá
fyrst fara hjólin að snúast.
Betra að vera píndur en að pína aðra
„Sjálfsmyndin hjá honum var orðin að engu.
Hann bað mig oft um að koma með sér í
skólann og ég gerði það stundum. Á þessum
tíma var hann orðinn svo mikill gerandi og
það var þá sem honum leið sem verst. Hann
var orðinn svo uppfullur af kvíða og sam-
viskubiti sem endurspeglaðist oft í því að
hann ældi bara upp úr þurru. Það var eins og
honum þætti betra að þola það að vera pínd-
ur en að pína aðra. Hann fékk svo gífurlega
sektarkennd og maður sá það þarna hversu
mikilvægt það er að gerandinn fái aðstoð,“
segir hún.
Í hlutverki gerandans fer sonur hennar að
taka húfur af skólafélögunum og henda
þeim, kasta snjóboltum í aðra krakka og
jafnvel kaffæra þá. „Hann sagði mér alltaf frá
öllu sem hann gerði. Ef það var ekki hringt
úr skólanum sagði hann mér það á kvöldin
áður en hann fór að sofa. Það var eins og
hann þyrfti alltaf á einskonar syndaaflausn
að halda,“ segir hún um þátttöku sonar síns í
eineltinu.
Þó að drengurinn sé orðinn gerandi sætir
hann enn ofsóknum skólafélaganna sjálfur
og er þá oft brotið mjög gróft á honum. „Eitt
sinn var hann tekinn og brókaður í matsaln-
um fyrir framan alla krakkana og þá var
enginn kennari á staðnum. Þá stóðu reyndar
bekkjarsystkinin með honum því þau skynj-
uðu niðurlæginguna og auðvitað var þetta
bara vont fyrir hann líka,“ segir hún um eitt
minnisstæðasta tilvikið.
Móðirin segir fjórða veturinn þann lang-
versta. Þá tekur hún sér tveggja vikna frí úr
vinnu til að vera með drengnum sínum í
skólanum. „Á þessum tíma var kennarinn
alveg á því að sonur minn væri ómögulegur
og þeim samdi mjög illa. Kennarinn talaði
aldrei við mig af neinum skilningi og ég fékk
að heyra það að sonur minn léki sér að því að
ergja aðra. En auðvitað langaði hann til að
líða vel í skólanum og vildi ekki hafa alla
uppi á móti sér. Þetta voru bara orðnar að-
stæður sem hann réð engan vegin við. Þessi
kennari var ekki slæm manneskja en hafði
einfaldlega ekki nokkra stjórn á bekknum.
Þá leið kennaranum auðvitað illa og missti
stjórn á skapi sínu,“ segir móðirin um stirt
samband sitt við kennara sonarins.
Þegar móðirin er búin að fylgjast með
bekknum í tvær vikur sér hún að það er ekki
allt með felldu. Drengirnir eru mjög erfiðir
og enn í sömu valdabaráttunni og þegar þeir
voru sex ára og stúlkurnar eru uppgefnar á
ástandinu. „Seinasta daginn minn í skól-
anum taka bekkjarsystur sonar míns mig tali
og biðja mig um að vera lengur. Þú veist ekki
hvernig hún er þegar þú ert ekki, sögðu þær
um kennarann og þá fyrst hugsaði ég; hvers
vegna trúði ég syni mínum ekki þegar hann
ræddi við mig um samskipti sín við kenn-
arann?“
Móðirin segist hafa mætt álíka miklu
skilningsleysi hjá skólastjóranum og það er
ekki fyrr en hún leitar til námsráðgjafans
sem henni finnst vera hlustað á sig innan
veggja skólans. „Þegar drengurinn var kom-
inn í fimmta bekk fékk hann loksins nýjan
kennara og ég ákvað að segja honum alla
söguna. Sá kennari var frá upphafi allt öðru-
vísi og var tilbúinn að hlusta og skilja. Hann
tók drenginn strax að sér og varð vinur hans
og vildi greinilega bæta ástandið. Þá fór ým-
islegt að breytast innan bekkjarins en auð-
vitað lagar enginn svona með því einu að
smella fingrum.“
Þegar drengurinn er orðinn gerandi fer
móðirin að fá hringingar frá foreldrum þol-
anda. Foreldrar eins þolandans sýna mikinn
skilning á erfiðleikum þeirra. „Þau hringdu
aldrei reið og ásakandi. Töluðu meira um
hvað þeim þætti þetta leiðinlegt og við gát-
um alltaf rætt málin. Þau buðu mér svo að
koma með drenginn minn í heimsókn og
leyfa þeim að leika sér saman. Við gerðum
það nokkrum sinnum en þröngvuðum þeim
aldrei í aðstæðurnar. Í dag eru þeir mjög
góðir vinir og saman nánast upp á hvern
einasta dag. Það skiptir mjög miklu máli
hvernig rætt er um hegðun barnsins við for-
eldrið. Ef það er sagt að barnið sé hræðilegt
og óþolandi fer foreldrið að sjálfsögðu í vörn
og lokar á frekari samskipti,“ segir hún.
Móðirin segir að sjálfstyrkingarnámskeið
hafi gert kraftaverk og eins samstarfið við
barnageðlækninn. „Sjálfsmynd drengsins
var í molum og við höfum verið að byggja
hana smám saman upp. Maður er náttúrlega
bara svo óþolinmóður og langar bara til að
geta ýtt á takka til að laga þetta. Hann var
svo uppfullur af reiði og honum fannst ger-
endurnir ekki eiga neitt gott skilið frá sér al-
veg heillengi. En með mikilli hjálp er hann
byrjaður að blómstra. Kennarinn hlúir enn
svona vel að honum og í dag þykir honum
alltaf gaman að fara í skólann.“
Móðirin segir það hafa skipt sköpum
hversu mikinn stuðning hún og fjölskylda
hennar nutu frá ættingjum og vinum og seg-
ir það hafa hjálpað þeim líka að leita til
Regnbogabarna. Hún hræðist enn að eineltið
taki sig upp aftur enda aðeins eitt og hálft ár
síðan það stóð sem hæst. Hún er samt sem
áður bjartsýn og þakklát öllum þeim sem
hafa sýnt fjölskyldu hennar skilning og
hlýju.
Ældi vegna kvíða
„Það var verið að setja
húfuna hans í klósettið,
gyrða niður um hann
og bróka hann ef hann
hlýddi þeim ekki.“