SunnudagsMogginn - 06.12.2009, Side 27
6. desember 2009 27
voru mjög spenntir og hugsuðu: Mikið
langar mig til að vera með þessari, hún
hlýtur að vera æðisleg í rúminu. Þórir
var aldrei hræddur við mig, hann hafði
verið í námi í Manchester og vissi ekki
hver ég var. Við hittumst fyrst í sam-
eiginlegu kaffiboði. Hann horfði á mig,
fannst eins og hann hefði séð mig áður
og spurði: Ertu að norðan? Nei, svaraði
ég. Það varð þögn í herberginu, enginn
vildi segja honum hver ég væri. Við
sáumst aftur á kökubasar hjá Kristni-
boðssambandi Íslands. Svo eitt kvöldið
gekk ég inn á Blúsbarinn og þar var
minn maður að spila. Ég sat þar allt
kvöldið með stíft augnsamband. Þenn-
an mann ætlaði ég að ná í. Það gekk
eftir. Ég sæki það sem ég vil. Þetta var
árið 1994, við eigum saman dóttur og
erum mjög ánægð með líf okkar.“
Þú leitaðir þér hjálpar þegar þú átt-
ir í erfiðleikum í einkalífi og starfar
við að hjálpa öðrum. Sumum finnst að
þeir séu að viðurkenna að þeim hafi
mistekist ef þeir leita sér aðstoðar hjá
utanaðkomandi einstaklingi.
„Það er eðlilegt og heilbrigt að leita
sér hjálpar. Mér finnst það styrkleiki
fremur en veikleiki. Og þeim sem
koma til mín finnst það líka. Í nánum
samskiptum reynir á fólk. Því sterkari
böndum sem þú tengist manneskjunni
því meira máli skiptir hún þig. Það er
eðlilegt að stundum komist maður í
þrot og þá á maður að leita sér hjálp-
ar.“
Ekkert kynlíf án tilfinninga
Ertu sammála því að kynlíf án ástar
sé innantómt?
„Ég held að það sé ekki hægt að lifa
kynlífi án tilfinninga. Ef maður gerir
það er maður vélmenni. Fyrr í vikunni
var ég að tala við mann sem spurði
heilmargra spurninga og þar á meðal
hvort hann ætti að fara út í skyndi-
kynni. Þetta orð skyndikynni er dálítið
misskilið. Flestir sem leita eftir kynlífi
eru að leita eftir tengslum við aðra
manneskju, en það er alveg óvíst hvort
það leiðir til ástar. Maður getur ekki
lifað kynlífi án kennda eða tilfinninga,
maður hlýtur að finna til hrifningar
eða unaðar yfir góðri snertingu.
Skyndikynni á ekki við ætlun, heldur
útkomu.“
Hefurðu í starfi þínu séð mikla
óhamingju í samskiptum fólks?
„Já, en samt meiri hamingju en
óhamingju. Og ég hef séð hvað fólk er
sterkt inn við beinið. Það kemur mér
endalaust á óvart og
gleður mig. Þegar fólk
hefur opnað á hlutina
ræður það miklu betur
við þá en það sjálft
ímyndaði sér.
Óhamingju sé ég
helst í sambandi við
kynlífsáráttu sem
stundum er talað um
sem kynlífsfíkn. Þar er
yfirleitt um að ræða
karlmenn sem hafa
ekki lært að mynda
fullburða tengsl. Þeir
eru alltaf að leita að
þessari góðu tilfinn-
ingu, sem þeir fá aldr-
ei, og þess vegna sogast
þeir æ meir inn í
óhamingju. Í gegnum
kynlífið leita þeir að
aðdáun og vilja þannig
fá staðfestingu á því að
þeir séu frábærir. Þeir
fá aldrei nóg og eru því
vansælir.“
Hvað er það besta
við starf þitt?
„Það sem mér finnst svo heillandi
við kynverund er að hún snertir kjarn-
ann í okkur, það að vera fölskvalaus,
einlægur og berskjaldaður. Allt þetta er
svo ólíkt því sem hefur verið mest
áberandi undanfarin ár í þjóðfélagi sem
var fullt af sýndarmennsku og upp-
blásnu gervisjálfi. Mér finnst afar gef-
andi að vera í starfi þar sem ég hjálpa
fólki við að eiga fölskvalaus samskipti.
Það eru einmitt slík samskipti sem við
hljótum öll að vera að leita að.“
Jóna Ingibjörg Það er ekki
hægt að vera kynfræðingur
og vera púrítanskur.
Óhamingju sé ég
helst í sambandi
við kynlífsáráttu
sem stundum er
talað um sem kynlífs-
fíkn. Þar er yfirleitt
um að ræða karlmenn
sem hafa ekki lært að
mynda fullburða
tengsl. Þeir eru alltaf
að leita að þessari
góðu tilfinningu, sem
þeir fá aldrei, og þess
vegna sogast þeir æ
meir inn í óhamingju. Í
gegnum kynlífið leita
þeir að aðdáun og vilja
þannig fá staðfestingu
á því að þeir séu frá-
bærir. Þeir fá aldrei
nóg og eru því van-
sælir.
Morgunblaðið/Kristinn