SunnudagsMogginn - 06.12.2009, Síða 38
38 6. desember 2009
Friðrik Pálsson, eigandi Hótels Rangár, í Afríku. Kofastemningin er allsráðandi. Húsgögnin frá Simbabve.
P
hileas gamli Fogg þótti frækinn
að ferðast umhverfis jörðina á
áttatíu dögum. Ekki þótti okkur
Ragnari Axelssyni ljósmyndara
það merkilegt afrek í vikunni þegar við
stungum við stafni í öllum heimsálfunum
sjö – á nokkrum mínútum. Nú halda les-
endur sjálfsagt að ég sé endanlega geng-
inn af göflunum. Svo er ekki. Þetta er í
raun og veru hægt – þannig lagað séð.
Menn þurfa bara að renna austur á Hótel
Rangá, þar hafa nefnilega verið teknar í
notkun sjö nýjar svítur sem eru, eins og
lesendum býður væntanlega í grun, helg-
aðar heimsálfunum. Þessi frumlega hug-
mynd er runnin undan rifjum Björns Er-
ikssonar hótelstjóra en þá Friðrik
Pálsson, eiganda hótelsins, langaði að
innrétta nýju svíturnar samkvæmt til-
teknu þema. „Þegar fyrir lá að svíturnar
yrðu sjö fór ég að velta tölunni fyrir mér.
Ég hugsaði meðal annars um vikudagana
og syndirnar sjö. Það hefði orðið athygl-
isvert þema,“ segir Björn og hlær.
Snemma datt hann þó niður á heims-
álfurnar. „Ég vildi hafa svíturnar per-
sónulegar og einstakar. Hvað er þá betra
en að tileinka þær heimsálfunum? Þemað
greip mig strax og á tveimur andvöku-
nóttum tókst mér að útfæra hugmyndina
í megindráttum og sannfæra Friðrik um
ágæti hennar,“ segir Björn sem er sigldur
maður, hefur komið til 82 landa og allra
heimsálfa nema Suðurskautslandsins.
„Ætli ég hafi ekki varið upp undir
þriðjungi ævi minnar á hótelherbergjum
og hef því ágætan samanburð. Ég hellti
mér bara út í þetta,“ segir Björn sem þáði
ráðgjöf víða að, m.a. frá ungum banda-
rískum hönnuði, Olgu Rei, sem unnið
hefur fyrir hið nafnkunna tímarit Vogue.
Friðrik og smiðirnir sem unnu verkið létu
heldur ekki sitt eftir liggja. Engar teikn-
ingar eru til af svítunum, en ákvarðanir
um útfærslur voru oftar en ekki teknar í
kaffitímum og á stuttum verkfundum.
Blærinn var Birni hugleikinn og ákvað
hann því að nota einvörðungu efni sem
kæmi frá viðkomandi heimsálfu. Þar kom
netið í góðar þarfir. Allt var pantað gegn-
um það. Björn tók heldur ekki það sem
hendi var næst en hann fór gaumgæfilega
gegnum hundruð hluta áður en hann
valdi þá réttu. „Smám saman gekk þetta
upp. Við erum raunar ennþá að nostra við
smáatriði, núna er ég að rita sögu hvers
herbergis fyrir sig og finna viðeigandi
tónlist. Hugmyndin er að fólk fái tónlist-
ina í æð þegar það gengur yfir þröskuld-
inn. Það ætti að fullkomna upplifunina.“
Eiffelturn Íslands
Þeir Rangármenn hafa leitað álits víða og
meðal annars fengið nokkra erlenda
sendiherra í heimsókn. Björn segir þá
undantekningarlaust hafa verið hrifna af
svítunum. „Raunar eru viðtökur á einn
veg. Enginn gestur hefur kvartað ennþá
og yfirleitt er fólk himinlifandi. Talar
jafnvel um að koma fljótlega aftur og gista
í nýrri heimsálfu. Einn gestur gekk svo
langt að kalla svíturnar Eiffelturn Íslands.
Hástemmdara verður hólið varla,“ segir
Björn.
Sem stendur eru heimsálfusvíturnar
aðeins sex, Evrópa er eftir. Björn og Frið-
rik halda að sér spilunum þegar hana ber
á góma en upplýsa að þemað verði ís-
lenskt. „Reyndar er svítan reykvísk eins
og er,“ segir Björn glottandi. „Fokheld.“
Þeir félagar segja verkefnið hafa verið
gríðarlega skemmtilegt en kostað mikla
vinnu. Og því lauk á heppilegum tíma –
„fimm mínútum fyrir hrun“. „Við vorum
að panta húsgögn og aðra hluti í gríð og
erg síðari hluta ársins 2007 og fram á
sumarið 2008 en kláruðum svíturnar rétt
áður en kreppan skall á. Við vorum stál-
heppnir.“
Möguleikar í ferðaþjónustu
Hótel Rangá er fjögurra stjörnu lúx-
ushótel, staðsett mitt á milli Hellu og
Hvolsvallar. Útsýni frá hótelinu er fagurt,
Hekla blasir við til norðurs, síðan er
fjallahringurinn til austurs og norðaust-
urs, í suðaustri trónir svo Eyjafjallajökull
og Vestmannaeyjar í suðri. Hótelið hóf
starfsemi sína fyrir tíu árum en hefur
verið byggt í sex áföngum. Þar er nú 51
herbergi.
Friðrik Pálsson segir hótelrekstur eiga
ágætlega við sig enda þótt hann hafi
„dottið inn í þetta fyrir hálfgerða til-
viljun“. Hann lítur á ferðaþjónustu sem
vaxtarbrodd í íslensku atvinnulífi. Frið-
rik starfaði lengi í sjávarútvegi og segir
margt líkt með þeirri atvinnugrein fyrir
þrjátíu til fjörutíu árum og ferðaþjónust-
unni nú. „Ferðaþjónustan er ung at-
vinnugrein á Íslandi og að mínu viti
hugsa menn ennþá óþarflega mikið um
mikla fjölgun ferðamanna í stað þess að
leggja meiri áherslu á eðlilegan fjölda og
að bjóða upp á stöðugt aukna þjónustu og
gæði sem fólk er tilbúið að borga fyrir. Ís-
lensk ferðaþjónusta á að geta haft góðar
tekjur án þess að hvolfa yfir sig ferða-
mönnum, við þurfum að vanda okkur,“
segir hann.
Að dómi Friðriks ræður grunngerðin á
helstu ferðamannastöðum landsins ekki
við fleiri gesti á stuttu sumri. Nefnir hann
í því sambandi Gullfoss, Geysi, Þingvelli
og Landmannalaugar. „Við verðum að
bjóða upp á fleiri kosti. Eftir kynni mín af
ferðamönnum undanfarin sex ár stendur
eitt orð upp úr: Víðerni. Mikill meirihluti
erlendra gesta kemur hingað til að sleppa
við biðraðirnar og kraðakið sem ein-
kennir heimkynni þeirra. Þeir vilja fara
sinna ferða, frjálsir og óháðir.“
Að dómi Friðriks er landið okkar stöð-
ugt að verða áhugaverðari kostur fyrir
erlenda ferðamenn. „Ísland er gimsteinn
sem ótrúlega fáir vita um. Við munum
aldrei hafa bolmagn til að auglýsa á
stærstu sjónvarpsstöðvum heims eins og
ýmsar aðrar þjóðir, en á netinu getum við
unnið stórvirki og svo verðum við að geta
stólað á orðsporið til að „selja“ landið.
Besta auglýsingin sem við getum fengið
er að þeir sem héðan fara séu ánægðir
með dvölina.“
Þessi pæling tengist gæðahugsun órofa
böndum. „Íslendingar eru ennþá hræddir
við verðlagninguna. Það er að mínu viti
misskilningur, Ísland á að vera dýrt land.
Framtíð íslenskrar ferðaþjónustu hverfist
um gæði og þjónustu. Eftir því fylgir
verðið. Margir ferðamenn greiða fúslega
fyrir gæði.“
Friðrik er afar ánægður með staðsetn-
ingu Hótels Rangár. Það sé hæfilega langt
frá flugvelli en um leið finnist fólki það
vera statt úti í sveit. „Flestir sem sækja
okkur heim eru hingað komnir náttúr-
unnar vegna.“
Friðrik rekur einnig hálendismiðstöð-
ina Hrauneyjar sem oft er nefnd „Dyrnar
að hálendi Íslands“ enda við eitt fjöl-
breytilegasta og eldvirkasta hérað lands-
ins. Hann segir miðstöðina njóta vaxandi
vinsælda en stutt er að fara í dagsferðir og
skoða margar af helstu náttúruperlum
hálendisins. Þar er líka lúxushótelið Hót-
el Háland.
Óþrjótandi afþreying
Erlendir gestir sækja Ísland sjaldnast
heim til að sitja heima á hóteli og Friðrik
segir Hótel Rangá búa svo vel að afþrey-
Umhverfis
jörðina á
nokkrum
mínútum
Hótel Rangá hefur tekið í notkun
nýjar svítur sem helgaðar eru
heimsálfunum. Verkefnið einkennd-
ist af metnaði en allt innviði var sótt
til viðkomandi heimsálfu og nostrað
við hvert smáatriði. Markmiðið var
að hafa svíturnar einstakar.
Texti: Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Ljósmyndir: Ragnar Axelsson rax@mbl.is
Suðurskautið er vitaskuld kuldalegalegasta svítan.
Ferðalög