SunnudagsMogginn - 06.12.2009, Síða 43
6. desember 2009 43
M
argar ástæðar eru nefndar
þegar rætt er um að Pre-
cious: Based on the Novel
„Push“ by Sapphire, nái
inn á endastöðina á meðan kvikmynda-
verðlaunavertíðin stendur yfir eftir ára-
mótin. Fyrst og fremst er hinni hæfi-
leikaríku Mo’Nique spáð velgengni í
flokknum Besta leikkona í auka-
hlutverki, en þessi „litla“ mynd hefur
vakið feiknaathygli bæði jákvæða og
neikvæða á þeim fáu vikum sem hún
hefur verið í dreifingu í Vesturheimi.
Efnið er harla óvenjulegt en hún fjallar
um vandamál þeldökks undirmálsfólks í
Harlem, þar sem táningurinn Precious
(Gabourey „Gabby“ Sidibe), er fyr-
irferðarmestur. Precious er ófrísk að
öðru barni sínu og ólæs offitusjúklingur
að auki. Hún er sýkt af alnæmi, lætur
sig dreyma um að vera grönn, hvít
stúlka sem á sætan hvítan kærasta.
Óvænt fær hún boð um að setjast á
skólabekk og nýtt tækifæri til að ná
einhverjum tökum á lífinu. Sem sagt
ekki hin dæmigerða, hvítþvegna að-
alpersóna á nokkurn hátt heldur fórn-
arlamb flests þess sem Draumaverk-
smiðjan sniðgengur að öllu jöfnu.
Precious var forsýnd á Sundance-
hátíðinni fyrr á árinu og þá var mikið
rætt um sterk atriði sem fékk áhorf-
endur til að standa á öndinni og sama
er uppi á teningnum núna, þegar
myndin er komin í dreifingu. Það er
einkum lykilatriði myndarinnar með
aðalleikkonunum tveim, Sidibe og
Mo’Nique í hlutverki mæðgnanna.
Frammistaða þeirra var m.a. ástæða
þess að dreifingaraðilar bitust um
myndina, sem endaði í höndum Lions-
gate. (Verður frumsýnd innan tíðar
hérlendis, líklega á vegum Græna ljóss-
ins.)
Myndin er sögð óvenjulega skýlaust
skrifuð með heilsteyptum og trúverð-
ugum persónum sem gefi raunsæja inn-
sýn í fjölskyldulíf almennings í fátækra-
hverfi þeldökkra. Til viðbótar við
offituna, þungunina og ólæsið á Precio-
us við margt annað böl að stríða. Hún
hefir mátt þola kynferðislega og tilfinn-
ingalega misnotkun af foreldrunum,
verið hornreka á jaðri þjóðfélagsins uns
kemur að hinni nýju von sem vaknar
þegar skólagangan hefst.
Precious hefur talsvert verið borin
saman við The Color Purple (’85), eftir
Spielberg, með Ophru Winfrey. Í báðum
myndunum margnauðga feður dætrum
sínum; Báðar hafa myndirnar mátt þola
gagnrýni fyrir að fara ómjúkum hönd-
um um hegðun þeldökkra karla. Hvað
dómharðastur er Armond White, for-
maður Samtaka kvikmyndagagnrýnenda
New York (the New York Film Critics
Circle.) Hann segir myndina fulla af
óskammfeilinni kynþáttamismunun,
þjóðfélagslega „hrollvekju.“ (Í Precious,
er m.a. atriði þar sem stúlkan stelur
fjölskyldupakkningu af djúpsteiktum
kjúklingabitum og úðar þeim öllum í
sig.) Sannkölluð „klansman fantasy“,
segir hann. Það er ekki óvanalegt að al-
varlegir gagnrýnendur sniðgangi mynd-
ir sem þeir telja að sýni of neikvæða
hlið á blökkumönnum.
Sagður stinga höfðinu í sandinn
Þessar raddir eru í minnihluta, m.a. má
lesa grein eftir Latoya Peterson, sem
annast Racialcious.com, þar sem hann
bloggar um krossgötur kynþátta og
poppmenningar og telur White vera úti
á þekju hvað snertir viðhorf hans til
boðskapar Precious. Stingi höfðinu í
sandinn. „Gagnrýni Whites er skrifuð
með þá skoðun að leiðarljósi að það sé
aðeins ein ásættanleg lýsing á lífi og
kjörum þeldökkra, efnalítilla hópa.
Hann fletur út lífsreynslu okkar hinna
þeldökku og ber með því á móti mann-
gæsku okkar.“
Svo mörg eru þau orð frú Peterson og
ljóst að jafn eldfimt efni og Precious
fjallar um er til þess fallið að valda deil-
um. Það sem skiptir mestu máli er að
myndin fjallar á hreinskilinn og trú-
verðugan hátt um kröpp kjör þjóð-
félagshóps sem örsjaldan birtist á hvíta
tjaldinu. Auk Mo’Nique, sem leikur
svarkinn, móður Precious, fara m.a.
þeir ágætu söngvarar, Mariah Carey og
Lenny Kravitz með stór hlutverk í þess-
ari annarri mynd leikstjórans Lees
Daniels (Shadowboxer ’05). Það var
sannarlega tími til kominn að Banda-
ríkjamenn skyggndust inn um sótugar
rúður fátækrahverfa stórborga sinna þó
að sannleikurinn sé ekki sagna bestur.
Fjallað er á hreinskilinn og trúverðugan hátt um kröpp kjör þjóðfélagshóps sem örsjaldan birt-
ist á hvíta tjaldinu. Mo’Nique er spáð velgengni í flokknum besta leikkona í aukahlutverki.
Hin óvæga og eldfima
Dýrmæt: Byggð á sögunni Push eftir Sapphire. Munið þennan óvenjulega titil því þjóð-
félagsádeilu leikstjórans Lees Daniels er spáð velgengni á verðlaunahátíðum í vetur.
Sæbjörn Valdimarsson saebjorn@heimsnet.is
Föstudagur 11.12. kl. 24 Stöð
2 Tyrknesk/þýsk bíómynd frá
2007. Tyrkneskur maður fer til
Istanbúl að finna dóttur fyrrver-
andi kærustu pabba síns. Gestir
RIFF þekkja þessa mynd að
góðu einu undir nafninu Him-
inbrúin og var hún valin ein
besta mynd ársins 2007. Nýj-
asta mynd Faith Akin er gagn-
rýnin á trúarkreddur á borð við
kvenfyrirlitningu sem að óbreyttu
verður eilífur ásteytingarsteinn
og þrándur í götu eðlilegra sam-
skipta þjóða. Mikilvæg, ómiss-
andi og fróðlegt innlegg í um-
ræðuna. saebjorn@heimsnet.is
Fyrir handan –
(Himinbrúin)
(Auf der and-
eren Seite)
Sunnudagur 6.12. kl. 21.05. RÚV
Ný, þýsk/frönsk sjónvarpsmynd
sem vakið hefur mikla athygli og
fengið góða dóma er saga Klars-
feld-hjónanna: Serge, sem var
franskur, og Beate, sem var þýsk.
Þau koma lögum yfir stríðs-
glæpamenn nasista, m.a. Klaus
Barbie, Slátrarann frá Lyon, sem
þau eltu til Suður-Ameríku og
fengu framseldan eftir 12 ára bar-
áttu við yfirvöld. Forvitnileg og mik-
ilvæg. Leikstjóri: Laurent Jaoui.
Aðalleikarar: Franka Potente, Yvan
Attal og Hanns Zischler.
Mannaveiðar –
(La traque)Laugardagur 5.12. kl. 22.35.
Stöð 2 Merk, sannsöguleg mynd
um þeldökkan blökkupilt, Antwone
Fisher, sem fæddist í fangelsi og
ólst upp við afleit kjör. Síðar fór
hann á sjóinn og þaðan í örygg-
isvörslu og var jafnan á ystu nöf
gagnvart umhverfinu. Seint og um
síðir fékk hann stuðning og varð
ljóst hversu miklar hremmingar
hann mátti þola. Antwone hefur nú
komið lagi á líf sitt og hefur skap-
að sér nafn sem handritshöfundur
í Hollywood. Vel gerð af Denzel
Washington og með Derek Luke í
titilhlutverkinu. Ein af myndum árs-
ins 2002. Myndir vikunnar í sjónvarpi
Antwone Fisher
Kvikmyndir
Nýr bæklingur!
www.baendaferdir.is
Sp
ör
eh
f.
s: 570 2790
A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R