SunnudagsMogginn - 06.12.2009, Page 47
6. desember 2009 47
LÁRÉTT
1. Sér maður k-efni í viðfangsefni. (11)
5. Af hverju eftirmynd af slíkum aðila? (8)
10. Enn hefur klæðin. (9)
11. Sá seinasti drepi ágengan. (7)
12. Spjalla um tré í samtali. (7)
13. Skálar með lofti á Snæfellsnesi. (10)
14. Rómantískar missa tak á kryddi. (8)
16. Rosknar eru líka einhvern veginn erlendar. (7)
18. Hlaupinn í felur í kjarrið. (7)
19. Við veiðidýr semjið þrátt fyrir reiðigirni. (10)
22. Verkstæði sem finnst nálægt snauðum og ein-
földum. (7)
25. Heilsubótarmeðferð er beitt á matjurt. (8)
26. Lemur Hannes 8 fyrir að fækka klæðum. (8)
29. Bara öðruvísi röltandi (8)
30. Stór með bor og sérstakt lyf. (8)
31. Daníel og angistin verða sár. (9)
33. Sjá var fanginn með afla. (10)
34. Ja, greiðinn getur stafað af landinu. (10)
35. Skotvopn leikhússtjóra. (10)
LÓÐRÉTT
1. Sendi augljósan norður og fæ trúverðugan til
baka. (9)
2. Óvitlaust kvæðið dillar að einhverju leyti í
ákveðna átt. (11)
3. Er fjöður hjá torveldum? (7)
4. Fá íbúprófen og jagast síðan yfir lofti. (8)
6. Við orku óþekkts kemur samúð. (7)
7. Næstum því ókei með lík þrátt fyrir að þau séu
svipuð. (7)
8. Eru nú merar öðruvísi í svona runu? (9)
9. Dönskukennarar án endans fá sætmetið. (8)
15. Bendir á vitranir (5)
17. Prófi nakinn að finna aldin. (8)
20. Taka kind ekki mikið en frekar án deilna. (10)
21. Tindinn torg. (11)
22. Hross sem var kyrrt? (10)
23. Sumarbúðirnar án Arnars snúast ekki um inni-
hald. (7)
24. Leysi úr hjálp. (6)
27. Veltandi og dillar nú einhvern veginn. (8)
28. Skrjáf og ergjan gera ákafann. (8)
32. Næ ég egna einhvern en hlýða samt. (5)
Verðlaun eru veitt fyrir rétta
lausn krossgátunnar. Senda
skal þátttökuseðilinn með nafni
og heimilisfangi ásamt úrlausn-
inni í umslagi merktu: Krossgáta
Morgunblaðsins, Hádegismóum
2, 110 Reykjavík. Frestur til að
skila úrlausn krossgátu 6. des-
ember rennur út næsta föstu-
dag. Nafn vinningshafans birtist sunnudaginn 13.
desember. Heppinn þátttakandi hlýtur bók í vinning.
Vinningshafi krossgátunnar 29. nóvember sl. er
Regína Vigfúsdóttir. Hún hlýtur í verðlaun bókina
Mannlaus veröld eftir Alan Weisman. JPV gefur út.
Krossgátuverðlaun
Friðrik Ólafsson er liðsstjóri
„Reynslunnar“ sem þessa dag-
ana etur kappi við úrvalslið
kvenna í Marianske Lazne í
Tékklandi, smábæ sem er róm-
aður fyrir heilsulindir. Friðrik
er að þessu sinni í hlutverki
liðsstjóra en Viktor Kortsnoj,
Vlastimil Hort, Robert Hubner
og Jan Timman heyja keppni á
fjórum borðum gegn indversku
skákdrottningunni Humpy Ko-
neru, Katerinu Lahno frá Úkra-
ínu og tékknesku skákkonunni
Jönu Jackovu og Önnu Muzyc-
huku frá Slóvakíu. Heið-
ursgestur er fyrrverandi heims-
meistari, Boris Spasskí.
Hinir nafntoguðu jaxlar af
gamla skólanum eiga við
ramman reip að draga; eftir
fimm umferðir af átta höfðu
konurnar náð öruggri forystu:
11½ : 8½.
Margvísleg vopnaviðskipti
hafa átt sér stað millum sex-
menninganna um áratuga
skeið. Sumir hafa háð fleiri en
eitt einvígi sín í milli. Þar ber
hæst tvö mögnuð einvígi sem
Spasskí og Kortsnoj háðu með
tíu ára millibili en sigurveg-
arinn vann sér þá inn rétt til
skora á heimsmeistarann.
Spasskí vann í Kænugarði árið
1968 6½ : 3½ en í Belgrad í árs-
byrjun 1978 snerist dæmið við
og Kortsnoj vann 10½ : 7½.
16 ára Filippseyingur sló út
Ivantsjúk og Kamsky
Fyrir daga Anand og kínversku
skákbyltingarinnar voru Fil-
ippseyingar herraþjóðin á
skáksviðinu í Asíu. Eftir mikinn
uppgang á áttunda áratug síð-
ustu aldar var eins og einhver
stöðnun tæki við og lítil end-
urnýjun átti sér þar til nú að 16
ára Filippseyingur Wesley So
kveður sér hljóðs á heimsbik-
armóti FIDE sem stendur yfir í
Khanty Mansiysk í Siberíu. Slær
úr keppni tvo af sigurstrangleg-
ustu keppendunum, þá Vasilí
Ivantsjúk og Gata Kamsky. Ekki
vakti minni athygli hvernig
nýjar reglur FIDE um mætingu
urðu Kínverjunum Wang Yue og
Li Chao að fótakefli í 3. umferð;
rétt fyrir umferð virðist Wang
Yue hafa „slakað jurt“ til landa
síns Li Chao en þar sem þeir
stóðu í hvíldarherberginu og
svældu hvor sína rettuna var
skáklukkan sett í gang. Engin
viðvera þýðir tap: þeir féllu
báðir úr keppni.
Yfir 130 skákmenn hófu
keppni á heimsbikarmótinu
sem fram fer með útsláttarfyr-
irkomulagi. Gaman var að sjá
Judit Polgar mætta til leiks. Hún
sigraði Rúmenann í Nisipeanu í
2. umferð 4½ : 3½. Svo mætti
hún Boris Gelfand. Fyrri kapp-
skákinni af tveimur tapaði hún
svo ekkert nema sigur dugði.
Baráttukraftur hennar í þess-
ari mikilvægu skák er athygl-
isverður. Kraftmiklir leikir eru
19. g4 og 21. Rf5 en 21. Hxf7
virðist sterkara með hugmynd-
inni 21. … Rxd2 22. Rf5! Gelfand
er með dágóð færi en flækjurnar
eiga illa við hann og þegar hann
opnar allt upp á gátt með 27. f5
lifna biskuparnir við, 32. Hg6 er
skemmtilegur lokahnykkur.
Heimsbikarmót FIDE:
Judit Polgar – Boris Gelfand
Vínartafl
1. e4 e5 2. Bc4 Rf6 3. d3 c6 4.
De2 Be7 5. Rf3 0-0 6. Bb3 d6 7.
0-0 Rbd7 8. c3 a5 9. a4 b5 10.
Bc2 Ba6 11. axb5 cxb5 12. Rbd2
Dc7 13. d4 a4 14. Bd3 Hfb8 15.
Rh4 g6 16. f4 exf4 17. Rdf3 Rh5
18. Bd2 Rb6 19. g4 fxg3 20. Rg5
Rc4 21. Rf5 Bxg5 22. Bxg5 f6 23.
Bh4 gxh2+ 24. Dxh2 Hf8 25. Be2
gxf5 26. Bxh5 fxe4 27. Df4 f5?
28. Kh1! Kh8 29. Hg1 Hf7 30.
Bxf7 Dxf7 31. Dh6 Hf8
32. Hg6 – og svartur gafst
upp.
Eftir þetta var gripið til skáka
með styttri umhugsunartíma og
þar varð Ísraelsmaðurinn hlut-
skarpari. Lokatölur urðu 3½ :
1½ .
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
Friðrik liðsstjóri gömlu meistaranna
Skák
Nafn
Heimilisfang
Póstfang