Morgunblaðið - 08.12.2009, Qupperneq 1
125 ATHUGASEMDIR voru gerðar
við ástand flutningaskipsins M/V Si-
am Topaz þegar flokkunarfélag
skipsins skoðaði það eftir komu þess
til Grundartanga 23. nóvember.
Skipið var sett í farbann við hafn-
arríkiseftirlit á Grundartanga og
gerðar 13 athugasemdir við skipið,
m.a. við ársskoðanir þriggja skír-
teina. Þá var flokkunarfélagið kallað
til og gerði það ítarlega skoðun.
Siam Topaz er skráð á Bahama og
er rúmlega 15.833 brúttótonn. Út-
gerðin er í Mumbai á Indlandi. Gerð-
ar voru lagfæringar til bráðabirgða
á skipinu og var því leyft að sigla
beina leið til viðgerðar í Póllandi á
sunnudaginn var. gudni@mbl.is
Sett í farbann vegna
125 athugasemda
Grundartangahöfn Farbann sett á skip.
Þ R I Ð J U D A G U R 8. D E S E M B E R 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
327. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
«DAGLEGTLÍF
NÁTTÚRULEGT JÓLA-
SKRAUT Í AÐALDAL
«AFLISTUM
Í mexíkóskum kirkju-
görðum er lifandi fjör
6
Jólaföndur
Einhverjar
hugmynd
ir?
*Nánar um skilmála á flytjandi.is
PI
PAPAA
RR
\
TB
W
A
W
A
T
•••
SÍ
A
•
SÍ
A
•
9
8
81
91
8
á www.jolamjolk.is
Frábærir vinningar!
Taktu þátt í
skemmtilegum jólaleik
KARLAKÓRINN Fjallabræður tók þátt í heimssögulegum atburði í gær til
styrktar baráttu gegn alnæmi í Afríku. Sungu þeir bítlalagið All you need
is love samtímis öðru listafólki í 196 löndum. Var söngurinn fluttur út beint
á netinu og héðan frá Tjörninni, fuglunum til nokkurs ama.
HEIMSSÖNGUR FJALLABRÆÐRA FRÁ TJÖRNINNI
Morgunblaðið/RAX
LANDSVIRKJUN ætlar að
hækka verð á rafmagni til við-
skiptavina sinna um 4,4% um næstu
áramót. Fyrirtækið hækkaði síðast
gjaldskrá sína um 7,5% hinn 1. júlí
sl. Verðbreytingarnar taka mið af
verðbólgu á árinu. Orkuveita
Reykjavíkur hefur ákveðið að
hækka ekki verð á rafmagni eða
heitu vatni. Hins vegar verða breyt-
ingar á verði, að sögn forstjóra OR,
sem raktar eru m.a. til skattahækk-
ana stjórnvalda. »14
Verð á rafmagni hækkar
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
ÖNNUR umræða um Icesave-frumvarpið stóð
enn yfir um miðnætti í nótt en Guðbjartur Hann-
esson, formaður fjárlaganefndar, hafði þá fyrr um
kvöldið kynnt að komið yrði til móts við þá kröfu
stjórnarandstöðunnar að farið yrði yfir 16 atriði
sem varða samningana í fjárlaganefnd.
Ætlunin er að nefndin ljúki álitsgerð á umrædd-
um atriðum á milli 2. og 3. umræðu um frumvarpið
en Kristján Þór Júlíusson, þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins, kveðst aðspurður ekki viss um að henni
ljúki fyrir jól, í ljósi anna hjá nefndinni.
Hann segir niðurstöðuna byggjast á samkomu-
laginu við forseta Alþingis á föstudag. „Í fyrsta
lagi var þetta spurning um að fá lögfræðiálit frá
sérfræðingum í enskum lögum. Það verður unnið
af lögmannsstofunni Mishcon de Reya. Þar viljum
við að enskir sérfræðingar stofunnar skoði texta
samninganna og eins hvaða þýðingu það hafi að
ensk lög gildi um samningana en ekki íslensk. Síð-
an gerðum við kröfu um að það yrði fengið hlut-
lægt og óháð lögfræðiálit varðandi spurninguna
um stjórnarskrána að því er varðar framsal dóms-
valds og umfang ríkisábyrgðar.“
Vel verði farið yfir efnahagshliðina
„Þá gerðum við kröfu um að farið yrði yfir þessa
efnahagslegu þætti, greiðsluþolið, gengisáhætt-
una og ákvæðið sem kennt er við Ragnar H. Hall
lögfræðing og fleira. Því er komið í ákveðinn far-
veg, m.a. með aðkomu hugveitunnar Center for
European Policy Studies,“ segir Kristján og bætir
því við að nefndin vilji fá álit á áhættu þjóðarbús-
ins vegna lánasamninganna og nefnir þar Seðla-
bankann og Hagfræðistofnun Háskóla Íslands.
Titringur um afgreiðslu | 2
Gengur að kröfunum
Stjórnin gengur að skilyrðum stjórnarandstöðunnar um framhaldið á Icesave
Leitað álits hjá evrópskum sérfræðingum Óvíst hvort afgreiðsla næst fyrir jól
» Lagahliðin skoðuð ýtarlega
» Áhætta þjóðarbúsins metin
KONA, starfsmaður Alþingis,
slasaðist á baki, eftir að henni var
hent á ofn og lögreglumaður slas-
aðist á hálsi, fæti og hendi í átökum
sem spruttu af innrás nokkurra
mótmælenda í Alþingishúsið 8. des-
ember fyrir nákvæmlega ári. Kon-
an hefur gengist undir aðgerðir en
ekki náð bata og lögreglumaðurinn
hefur heldur ekki náð sér. Málin
eru fyrir dómi.
Þetta er meðal þess sem kemur
fram í grein eftir Gylfa Guðjónsson,
ökukennara og fyrrv. lögreglu-
mann, í aðsendri grein í dag, Lög-
reglan í herkví. Gylfi lýsir aðstæð-
um í þinghúsinu þennan dag.
[Lögreglumaðurinn] „fór síðan inn
á stigaganginn þar sem átökin áttu
sér stað, en frá honum lágu dyr að
þingsölum á 2. hæð og áhorfenda-
pöllum á 3. hæð. Honum tókst að
hefta för hópsins á annarri hæð
með eina kylfu og piparúða að
vopni. Starfsmenn þingsins voru
neðar í stiganum í vörn sinni; þeir
unnu ákveðna hetjudáð en þeir eru
ekki þjálfaðir til átaka.“ »19
Tvö mál fyrir dómi eftir
árás á þinghúsið fyrir ári