Morgunblaðið - 08.12.2009, Blaðsíða 2
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Garðabær Engin gróðasjónarmið, segir bæjarstjóri.
Eftir Ágúst Inga Jónsson
aij@mbl.is
GARÐABÆR útvegar kalt vatn fyrir íbúa á Álftanesi og
var tonnið af vatninu selt á yfir 18 krónur í síðasta mán-
uði. Þetta sama vatn kaupa Garðbæingar af Vatnsveitu
Kópavogs á rúmlega fimm krónur tonnið.
Ekki eru gerðar takmarkanir á magni á umsömdu
verði fram til ársins 2018. Garðbæingar áætla að í ár út-
vegi þeir Álftnesingum 330 þúsund tonn. Þeir greiða
Kópavogi um 1,6 milljónir fyrir þetta vatn í ár, en selja
það aftur á tæplega sex milljónir. Áætla má að vatns-
viðskiptin skili Garðbæingum ríflega fjórum milljónum
króna í bæjarkassann í ár.
Stofnkranar Kópavogs og Álftaness eru ekki sam-
tengdir þannig að vatnið er flutt í veitukerfi Garðbæinga
og afhent í tengibrunni við Presthól skammt sunnan
Álftanesvegar og Garðaholtsvegar. Orkuveita Reykja-
víkur hefur yfirtekið Vatnsveitu Álftaness og er sam-
kvæmt því greiðandi vatnsins. Gunnar Einarsson, bæjar-
stjóri í Garðabæ, segir að viðskiptin byggist á gömlum
samningum. Annars vegar við Bessastaðahrepp frá 1995
og hins vegar við Vatnsveitu Kópavogs vorið 2006. Í báð-
um tilvikum er miðað við byggingarvísitölu. Garðabær
hafi aflétt vatnsvernd á byggingarsvæði í Kópavogi og
vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar á Kjóavöllum og mið-
að hafi verið við verð sem Garðabær fékk hjá eigin vatns-
veitu. „Það eru engin gróðasjónarmið að baki þessum
viðskiptum og það hefur ekki verið óskað eftir endur-
skoðun á samningum,“ sagði Gunnar.
Vatnið margfaldast í verði
Garðabær kaupir vatn á 5 kr.
og selur Álftnesingum á 18 kr.
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 2009
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjóri Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri,
ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport-
@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
Heimilistæki, stór og
smá, ljós og símar í
miklu úrvali.
Líttu inn og gerðu
góð kaup. Við tökum
vel á móti þér.
A
T
A
R
N
A
Sjáið jólatilboðin á
www.sminor.is
fyrir
Titringur um afgreiðslu
Stjórnarandstaðan segir ágreining hafa risið upp hjá
Samfylkingunni um næstu skrefin í Icesave-málinu
Eftir Baldur Arnarson
og Jón Pétur Jónsson
„ÞETTA eru orðin innanflokksátök milli þá
væntanlega [Guðbjarts Hannessonar] formanns
fjárlaganefndar og [Ástu Ragnheiðar Jóhannes-
dóttur], forseta Alþingis, um hver hafi umboð til
að semja við stjórnarandstöðuna um lyktir máls-
ins,“ sagði Höskuldur Þórhallsson, þingmaður
Framsóknarflokksins, um ágreining hjá Samfylk-
ingunni um hvernig komið skyldi til móts við kröf-
ur stjórnarandstöðunnar í Icesave-málinu áður en
fallist var á þær á ellefta tímanum í gærkvöldi.
„Ég tel þetta einfaldlega vera innanflokksmál
og svo vaknar sá grunur að stjórnarmeirihlutinn
telji að hann hafi samið af sér í málinu og að þeir
séu núna með einum eða öðrum hætti að reyna að
hlaupast frá því samkomulagi sem náðist hér fyrir
helgi.“
Hlaupast undan merkjum
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður
Sjálfstæðisflokksins, tók í sama streng.
„Það er greinilegt að hluti stjórnarmeirihlutans
telur að stjórnarmeirihlutinn hafi samið af sér við
okkur í stjórnarandstöðunni, þegar við vildum ein-
faldlega framfylgja okkar kröfu.“
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra vísaði því á
bug að ágreiningur væri um málið innan Samfylk-
ingarinnar. Ljúka þyrfti málinu sem fyrst.
„ÞETTA var ákveðið strax í haust í
samráði við varaþingmann minn,
Arndísi Soffíu Sigurðardóttur. Bæði
er ég að flytja og skipta um húsnæði
og svo hefur verið mikið vinnuálag á
þinginu þannig að ég hef ekki getað
sinnt verkefnum sem ég er með á
lögfræðiskrifstofu minni,“ segir Atli
Gíslason, þingmaður Vinstri
grænna, um ástæður þess að hann
fari nú í leyfi frá þingstörfum.
Inntur eftir því hvort hann sé þar
með að víkja sér undan því að greiða
atkvæði um Icesave-frumvarpið vís-
ar Atli því á bug. Hann hafi búist við
að greiða atkvæði um það í október.
Reglubundið verkefni
Þá bendir Atli á að hann hafi sinnt
ársuppgjöri á lögfræðistofunni fyrir
áramótin 2007 og 2008 og að því sé
um reglubundið verkefni að ræða.
Spurður um svigrúm þingmanna
til að fara í leyfi segir Helgi Bernód-
usson, skrifstofustjóri Alþingis, ekki
spurt um einkaástæður þingmanna
fyrir því að óska þess.
„Það er ákvæði í 53. grein þing-
skaparlaga um það að þingmönnum
er skylt að sækja þingfundi nema
nauðsyn banni. Og ef þeir geta það
ekki taka þeir inn varamann. […]
En ég legg áherslu á það þetta
mat er fyrst og fremst í höndum
þingmanna sjálfra.“
Hefur ekki gert upp hug sinn
Arndís Soffía, varamaður Atla á
þingi, kveðst aðspurð ekki hafa gert
upp hug sinn í Icesave-málinu.
„Ég hef nú ekki verið að gefa út
einhverja sérstaka yfirlýsingu um
það. Ég er enn þá að viða að mér
gögnum […] Ég hef talið hingað til
að þetta væri illskásti kosturinn í
stöðunni en eins og ég segi er ég að
fara yfir gögn, þ.e.a.s. sem hafa ein-
ungis verið opin fyrir þingmenn
hingað til, og bara reyna að viða að
mér sem mestum upplýsingum. Það
er staðan í dag.“ baldura@mbl.is
Ekki að
forðast
Icesave
Atli
Gíslason
Atli Gíslason í leyfi
Arndís Soffía
Sigurðardóttir
STÓRBLAÐIÐ New York Times birti í gær um-
fjöllun um Ragnar Axelsson (RAX), ljósmyndara
Morgunblaðsins, og Grænlandsmyndir hans.
Blaðið segir að myndir RAX fangi öfgafullar
andstæður, baðaðar í kynngimagnaðri hvítri
heimskautabirtu. Greinin birtist í blaðhlutanum
Lens og er einnig á forsíðu ferðahluta blaðsins á
vefnum (travel.nyt.com).
Blaðakonan Miki Meek rekur ferðir Ragnars
um hinar dreifðu byggðir Grænlands og hvernig
hann hefur skráð mörg þúsund ára gamlar veiði-
hefðir grænlenskra veiðimanna í myndum.
Skyggnusýning með myndunum var á hinni
virtu LOOK3 ljósmyndahátíð í Charlottesville í
Virginíu í Bandaríkjunum í júní síðastliðnum.
New York Times fjallar um Grænlandsmyndir Ragnars Axelssonar
Kynngimögnuð heimskautabirta
Ljósmynd/Sveinn M. Sveinsson
„Á fundi fjárlaganefndar átti að taka fjár-
aukalög en þeir hjá ráðuneytinu mættu ekki
út af þessu Wikileaks-máli. Það lék víst allt á
reiðiskjálfi í fjármálaráðuneytinu,“ segir Þór
Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, um titring-
inn sem birting tölvupósta Indriða H. Þorláks-
sonar og starfsmanns AGS olli í ráðuneytinu.
Aðspurður hvort hann hefði orðið var við
ágreining innan Samfylkingarinnar um fram-
hald Icesave-málsins sagði Þór að það væri
„greinilegt“ að Ásta Ragnheiður Jóhannes-
dóttir þingforseti hefði verið „ósátt við fram-
göngu Guðbjarts Hannessonar“, formanns
fjárlaganefndar, í málinu. | 9
Ráðuneyti á reiðiskjálfi