Morgunblaðið - 08.12.2009, Page 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 2009
Áskriftarsjóður
ríkisverðbréfa
Góður ávöxtunarkostur – einnig í áskrift
Hafðu samband við
ráðgjafa okkar í
síma 460 4700 eða
kynntu þér málið
á www.iv.is
*Árleg meðalávöxtun frá 15.01.2001 til 31.10.2009. Ávöxtun í fortíð er ekki
ávísun á ávöxtun í framtíð.
Áskriftarsjóður ríkisverðbréfa er verðbréfasjóður skv. lögum nr. 30/2003
um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. Rekstrarfélag verðbréfasjóða ÍV
hf. er rekstrarfélag sjóðsins. Útboðslýsingu og nánari upplýsingar er hægt
að nálgast á heimasíðu www.iv.is. Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér
útboðslýsingu sjóðsins og þá sérstaklega umfjöllun um áhættuþætti.
Við öflum fyrir þig
9,8%
100%RÍKISTRYGGING
MEÐALÁVÖXTUN*
Strandgata 3 600 Akureyri I Sigtún 42 105 RVK
Sími: 460 4700 I www.iv.is I iv@iv.is
SIGRÚN Stef-
ánsdóttir, bæj-
arfulltrúi á Ak-
ureyri, gefur
kost á sér í 2.
sæti í prófkjöri
Samfylking-
arinnar sem
fram fer þann 30.
janúar nk.
Sigrún hefur
gegnt for-
mennsku í félagsmálaráði Akureyr-
arbæjar, verið varaforseti bæj-
arstjórnar og setið í bæjarráði og
skólanefnd á yfirstandandi kjör-
tímabili.
Býður sig í 2. sæti
Sigrún
Stefánsdóttir
RÆTT verður um nýjar leiðir í
jarðhitanýtingu á haustþingi Jarð-
hitafélags Íslands í húsi Orkuveitu
Reykjavíkur í dag. leitað er svara
við spurningum um hvernig staðið
er að þróun nýrra leiða í jarðhita-
nýtingu og hvar vaxtarbroddarnir
liggja. Þingið hefst kl. 13.
Leita nýrra leiða
HALLDÓR Blön-
dal, fyrrverandi
forseti Alþingis,
var kjörinn for-
maður Samtaka
eldri sjálfstæð-
ismanna á aðal-
fundi í seinustu
viku. Styrmir
Gunnarsson,
fyrrverandi ritstjóri, var kjörinn
varaformaður. Aðrir sem kjörnir
voru í stjórn eru Lilja Hallgríms-
dóttir, Sigríður Sveinsdóttir, Guð-
mundur Hallvarðsson, Einar Þor-
björnsson, Margrét S. Einarsdóttir,
Guðrún V. Haraldsdóttir og Sveinn
Scheving. Í ályktun er m.a. lýst
áhyggjum af frekari niðurskurði í
heilbrigðis- og velferðarkerfinu.
Telja samtökin „að löngu sé komið
að þolmörkum í sparnaði innan
heilbrigðiskerfisins,“ segir í álykt-
uninni. Mótmælt er skerðingum
sem draga úr lífsgæðum lífeyr-
isþega landsins. „Þar er m.a. ráðist
á helgasta rétt eldri borgara, sjálf-
an grunnlífeyrinn sem allir eiga að
fá, burt séð frá tekjum, sem aldrei
átti að skerða vegna greiðslna úr
lífeyrissjóðum.“
Kjörinn for-
maður SES
Á FIMMTUDAG nk. mun tónlist-
arhópurinn Pakkið halda styrkt-
artónleika í Ránni til styrktar ung-
um dreng í Reykjanesbæ sem berst
við krabbamein. Miðaverð er 1.000
kr. og einn heppinn tónleikagestur
mun eignast 2ja metra málverk eft-
ir Guðmund Rúnar Lúðvíksson.
Styrktartónleikar
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
ER hægt að ímynda sér betri afslöppun en að
sigla um Karíbahafið á risastóru skemmti-
ferðaskipi, borða góðan mat og njóta lífsins? Þá
gæti fólk til dæmis tekið sér far með stærsta
farþegaskipi sögunnar, Oasis of the Seas, sem er
225 þúsund brúttotonn og um 360 metrar að
lengd og alls eru farþegar og áhöfn rösklega
8.000 manns, sé fullskipað. Til samanburðar má
geta að Titanic var um 46 þúsund tonn.
Skipið var smíðað í Turku í Finnlandi fyrir
bandarískt skipafélag, Royal Caribbean Int-
ernational og var formlega gefið nafn í lok nóv-
ember. Reglulegar ferðir hófust síðan daginn
eftir. En áður var búið að fara í stuttar reynslu-
siglingar um Karíbahafið frá Fort Lauderdale í
Flórída með þúsundir gesta.
Meðal þeirra voru íslensk hjón, Jón Viðar
Finnsson, kúabóndi í Dalbæ í Hrunamanna-
hreppi og eiginkona hans, Arnfríður Jóhanns-
dóttir. Þau nutu þess að systir Jóns, Helga
Finnsdóttir, hefur hannað öll eldhúsin og barina
fyrir alls átta skip félagsins og þar á meðal Oas-
is en einnig væntanlegs systurskips þess, Allure
of the Seas. Helga bauð þeim í siglingu.
„Þetta er sjálft SKIPIÐ!“ segir Jón hlæjandi.
„Þegar það var síðast hérna í höfninni í Fort
Lauderdale var Carnival, skip frá keppinautum í
félagsins við hliðina á því og einu sinni þótti það
geysistórt en var samt frekar smátt við hliðina á
þessu.
Þetta er alger paradís fyrir fjölskyldufólk og
hefði verið gaman að hafa krakkana með. Ör-
yggið og eftirlitið er ótrúlegt, alls staðar mynda-
vélar og hægt að skilja farsímann og hvað sem
er eftir á bekkjunum. Enda aldrei neinu stolið.
Hérna er gokart fyrir börnin, brimbretti,
hægt að fara í klettaklifur, það eru tækjasalir og
körfuboltavellir. Svo er eftirlíking af Central
Park í New York uppi á áttunda þilfari, með
trjám og mörg þúsund jurtum. Þarna eru, held
ég, allar jurtir sem finnast í garðinum í New
York og nokkrir garðyrkjumeistarar sjá um að
halda þessu í lagi.
Það var bara siglt en hvergi komið við á eyj-
unum af því að þetta voru bara reynsluferðir,
allt of dýrt að leggja svona stóru að bryggju,
enginn gerir það að gamni sínu. En þarna var
allt frítt í þessum reynsluferðum, fólk borgaði
bara þjórfé ef það vildi. Stærsti veitingastað-
urinn tekur um 3.600 manns í sæti, þetta er æv-
intýri líkast, skemmtilega geggjað.“
Jón segir að skipið líði áfram og aldan finnist
varla nokkurn tíma. Vélarhljóð sé sömuleiðis
varla greinanlegt en stundum fannst örlítill titr-
ingur sem hann vissi ekki skýringuna á, ef til
vill voru menn að prófa eitthvað. Aflvélar skips-
ins eru samanlagt um 130 þúsund hestöfl.
„Þeir lentu í roki, meira en 20 metrum á sek-
úndu, á leiðinni hingað frá Finnlandi og menn
voru sammála um að skipið hafi staðið sig
gríðarlega vel. Í hvert skipti sem nýju skemmti-
ferðaskipi hefur verið siglt í fyrsta sinn yfir Atl-
antshafið hefur eitthvað komið fyrir, hlutir t.d.
brotnað af því að ekki var búið að ganga al-
mennilega fá öllu. En nú gerðist ekki neitt slíkt!
Kom ekki rispa á rúðu.
Þetta er 17 hæðir. Þegar verið var að prófa
það við Finnland til að fá haffærniskírteini
þurfti að halla því um 15 gráður og athuga við-
brögðin, reglurnar mæla fyrir um það. En þeir
gátu það ekki, sama hvernig þeir beygðu eða
hvað þeir reyndu, það hallaðist aldrei svo mik-
ið.“
„Þetta er ævintýri líkast“
Íslensk hjón fóru í reynslusiglingu um Karíbahafið á stærsta farþegaskipi sögunnar
Alls eru farþegar og áhöfn Oasis of the Seas rösklega 8.000 manns sé fullskipað
Íburður Jón Viðar Finnsson og Arnfríður Jóhannsdóttir, kúabændur í Dalbæ í Hrunamannahreppi,
um borð í glæsiskipinu Oasis of the Seas sem fór með þau í ferðalag um framandi slóðir.
ÚTLIT er fyrir að sjálfstæðismenn
bjóði fram sameiginlegan lista í
Sveitarfélaginu Garði í komandi
kosningum. Þeir hafa í raun ríflegan
meirihluta í bæjarstjórninni en eru
skiptir í meirihluta og minnihluta.
„Okkur sjálfstæðismönnum finnst
kominn tími til að taka okkur saman
í andlitinu og gleyma því um hvað við
vorum að rífast,“ segir Gunnar H.
Häsler, fyrrverandi formaður Sjálf-
stæðisfélagsins í Garði. Hann flutti
tillögu á aðalfundi félagsins á dög-
unum þar sem skorað var á sjálf-
stæðismennina í bæjarstjórninni að
vinna að sameiginlegu framboði í
bæjarstjórnarkosningunum í vor.
Fimm af sjö
Sjálfstæðismenn hafa ekki boðið
fram D-lista í Garði. Þar var lengi
boðinn fram H-listi sjálfstæðis-
manna og óháðra sem hafði meiri-
hluta í bæjarstjórn í áratugi. Það
samstarf gliðnaði fyrir rúmum ára-
tug með heiftarlegum persónulegum
deilum. Klofningsframboðið úr H-
listanum, F-listinn, náði meirihlut-
anum og hélt honum í átta ár. Við
síðustu kosningar fékk N-listinn –
nýir tímar meirihluta. Að honum
stendur fólk úr ýmsum áttum, meðal
annars H-listanum sem ekki bauð
fram. Oddný Harðardóttir var
óflokksbundinn forystumaður hóps-
ins og gegndi stöðu bæjastjóra þang-
að til hún var kosin á þing fyrir Sam-
fylkinguna í síðustu kosningum.
Fimm af sjö bæjarfulltrúum eru
flokksbundnir sjálfstæðismenn,
tveir af fjórum í meirihlutanum og
allir þrír fulltrúar minnihlutans.
Sama er að segja um Ásmund Frið-
riksson sem ráðinn var bæjarstjóri í
stað Oddnýjar. Þetta fólk var allt á
aðalfundi sjálfstæðisfélagsins og
þeir sem til máls tóku lýsti yfir
stuðningi við tillögu Gunnars. Tillag-
an var samþykkt samhljóða. Gunnar
segist ekki eiga von á öðru en núver-
andi meirihluti starfi út tímabilið.
helgi@mbl.is
Vilja grafa stríðsaxirnar
Skorað á sjálfstæðismenn í Garði að bjóða fram sameiginlegan lista í vor