Morgunblaðið - 08.12.2009, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 2009
www.feminin.is • feminin@feminin.is
Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
Flottur
jóla-
fatnaður
Str. 38-56
Nýtt kortatímabil
Í takt við tímann
kr.
pk.259
Passionata
pizza
2 tegundir
kr.
pk.166
Passionata
margarita p
izza
Nýtt!
Hæðasmára 4 · 201 Kópavogur
- Í sama húsi og Bílaapótek fyrir ofan Smáralind
Símar 555 7355 og 553 7355 - www.selena.is
Opið kl. 11-18 mánud.-laugard., kl. 13-17 sunnud.
Notaleg bómullar-
og modalnáttföt
Eddufelli 2, sími 557 1730
Bæjarlind 6, sími 554 7030
www.rita.is
Peysa
4 litir – Verð 11.900 kr.
Munið gjafakortin
Jólagjafir sem
hljóma betur
TI
LB
OÐ
x2
Geisladiskur
Fullt verð 2.499 kr.
499kr.
auk 1.000 punkta
Þriðjudaga kl. 12 frá Árbæjarlaug
Fimmtudaga kl. 14 frá Nauthóli
skráðu þig inn – drífðu þig út
www.fi.is
www.fi.is • fi@fi.is • Sími 568 2533
Hádegisgöngur
Ferðafélags íslands
ENGIN hætta var á að samskipti
Indriða H. Þorlákssonar, þáverandi
ráðuneytisstjóra fjármálaráðuneyt-
isins, og Marks Flanagan, formanns
sendinefndar Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins, um Icesave samningana
færu fram hjá skjalakerfi fjármála-
ráðuneytisins. Þetta kemur fram í
athugasemd ráðuneytisins frá í gær
vegna umfjöllunar um tölvupóstana.
Tilkynningin er birt á heimasíðu
fjármálaráðuneytisins.
Ráðuneytið segir að Indriði hafi
tilgreint einkanetfang sitt því hann
hafi verið á förum til Kaupmanna-
hafnar og talið að hann ætti auðveld-
ara aðgengi að væntanlegu svari
með þeim hætti. Skeytið til Mark
Flanagan var sent úr tölvupóstkerfi
stjórnarráðsins og svarskeytið barst
einnig þangað og eru skeytin vistuð
þar. Þá voru afrit af skeyti Indriða
og svari Flanagan send á embættis-
netföng fjármálaráðherra, formann
samninganefndarinnar auk starfs-
manns hennar.
Ráðuneytið bendir á að umrædd
tölvupóstsamskipti hafi verið að-
gengileg alþingismönnum frá því að
frumvarp um ábyrgð ríkissjóðs á
lánum vegna Icesave var lagt fram í
júní sl. Ekki hafi verið hægt að birta
þau á upplýsingasíðu stjórnvalda,
island.is, án samþykkis gagnaðila Ís-
lands í alþjóðasamskiptum.
Aðdragandi tölvupóstsamskipt-
anna er að ný samninganefnd um
Icesave hafði unnið að undirbúningi
fyrir viðræður við Breta og Hollend-
inga í nokkrar vikur. Fundur samn-
inganefndanna í Kaupmannahöfn
var til að ræða nýja nálgun að lausn á
deilunni sem var hagstæðari fyrir Ís-
land og hvernig koma mætti viðræð-
unum af stað.
Viðræður við AGS um endurskoð-
un á áætlun sjóðsins hafði farið fram
nokkru áður. Þar var m.a. rætt um
samningana við Breta og Hollend-
inga um Icesave. Því þótti rétt að
gera sendinefnd sjóðsins grein fyrir
stöðu málsins.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
formaður Framsóknarflokksins,
kvaðst í gær vera ósáttur við viðræð-
urnar við AGS á dögum minnihluta-
stjórnar Samfylkingar og VG sem
sat með stuðningi Framsóknar. „Það
er algjörlega úr samræmi við það
sem lofað var,“ sagði Sigmundur. Því
hafi verið heitið að ekkert yrði gert í
Icesave án samráðs við Framsókn-
arflokkinn. gudni@mbl.is
Samskiptin voru vistuð í
skjalakerfi ráðuneytisins
Alþingismenn
höfðu aðgang að
tölvupóstunum
Morgunblaðið/Eggert
Samskipti Wikileaks.org birti tölvupósta sem fóru milli Indriða H. Þorláks-
sonar, þáverandi ráðuneytisstjóra, sem hér sést og Mark Flanagan hjá AGS.
HÁTT í 31 þúsund manns höfðu í
gærkvöldi skráð sig á vef Inde-
fence-hópsins, þar sem skorað er á
Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Ís-
lands, að staðfesta ekki fyrirhuguð
lög um ríkisábyrgð vegna Icesave-
samninganna. Er þess jafnframt
krafist að málið verði borið undir
íslensku þjóðina í þjóðaratkvæða-
greiðslu. Hópurinn heldur einnig
úti vefsíðu á Facebook samskipta-
vefnum og þar hafa um 10 þúsund
manns skráð sig. Indefence telur
m.a. að með lögunum um Icesave sé
efnahagslegu sjálfstæði þjóð-
arinnar stefnt í hættu. Kynslóðir
framtíðarinnar verði skuldsettar
um langa framtíð og lífskjör þeirra
skerðist.
Sjá nánar www.indefence.is.
Um 31 þúsund
skora á for-
seta Íslands