Morgunblaðið - 08.12.2009, Qupperneq 10
GERÐ Landeyjahafnar hefur gengið vel og
framundan er að hefja dýpkun þessa mikla
hafnarmannvirkis. Dýpkunin er mikið verk
því fjarlægja þarf 195 þúsund rúmmetra af
efni af hafsbotni.
Tilboð hafa verið opnuð í verkið hjá Sigl-
ingastofnun og bárust alls 5 tilboð í það.
Lægsta tilboðið kom frá Björgun ehf og
hljóðaði það upp á rúmar 99 milljónir
króna. Hæsta tilboðið kom frá Hagtaki hf,
250 milljónir króna. Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á rúmar 133 milljónir.
Fyrsta áfanga verksins skal lokið fyrir 1. júlí 2010 og öðrum áfanga þess
á að vera lokið fyrir 1. október á næsta ári. Stefnt er að því að Herjólfur
hefji siglingar milli Eyja og Landeyjahafnar síðla næsta sumar. sisi@mbl.is
Björgun átti lægsta
tilboðið í dýpkun
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 2009
Jólahappdrætti
Krabbameinsfélagsins
Dregið 24. desember 2009
163 skattfrjálsir vinningar
að verðmæti
22.690.000 kr.
Það eru ekki kjörtímar fyrirútgáfu blaða og tímarita um
þessar mundir. Þótt þörf fyrir
öfluga útgáfustarfsemi sé brýn.
Mikill samdráttur hefur orðið á
auglýsingamarkaði svo sem
vænta mátti. Fyrirferðarmiklir
auglýsendur eru horfnir á braut.
Fjárhagur
þeirra sem eft-
ir lifa er
þrengri en áð-
ur og hverri
krónu þarf að
velta. Sama
gildir um ein-
staka kaup-
endur.
Þess vegna er fagnaðarefni, efekki fagnaðarundur hve
mörgum tekst með myndarskap
að halda úti áhugaverðum tíma-
ritum. Eitt slíkt er tímaritið
Þjóðmál undir ritstjórn Jakobs F.
Ásgeirssonar.
Ekki er vafi á að lykillinn aðvelgengni þess tímarits er að
ritstjóranum hefur tekist að fá
snjalla penna úr ólíkum áttum til
að birta þar efni. Og það efni
finna menn ekki svo auðveldlega
annars staðar hér á landi. Fram-
setningin er stundum allt að því
ögrandi og stjórnmálalegur rétt-
trúnaður flækist ekki fyrir
greinarhöfundum.
Tímarit af þessu tagi erusjaldnast gefin út í stóru upp-
lagi, en það segir ekki allt um
áhrif þeirra. Efnisvalið og efn-
istökin og þekking og leikni ein-
stakra höfunda skipta sköpum.
Nýjasta tölublað Þjóðmála erenginn eftirbátur annarra.
Efnið er fjölbreytt, höfundarnir
ólíkir og efnið er grípandi. Svo
ólíkir hinni losaralega upphróp-
unarumræðu sem er svo víða
stunduð eru höfundar Þjóðmála
og greinarnar þeirra aufúsugest-
ir, þegar Þjóðmál detta inn um
lúguna..
Þjóðmál
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík 2 léttskýjað Lúxemborg 6 þoka Algarve 18 skýjað
Bolungarvík 4 rigning Brussel 8 skýjað Madríd 10 alskýjað
Akureyri 4 alskýjað Dublin 5 skúrir Barcelona 16 léttskýjað
Egilsstaðir 6 rigning Glasgow 7 skýjað Mallorca 16 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 5 skúrir London 11 skúrir Róm 12 skýjað
Nuuk -3 skýjað París 10 skýjað Aþena 15 léttskýjað
Þórshöfn 8 léttskýjað Amsterdam 8 heiðskírt Winnipeg -19 léttskýjað
Ósló 0 þoka Hamborg 7 heiðskírt Montreal -2 alskýjað
Kaupmannahöfn 6 skýjað Berlín 7 heiðskírt New York 3 heiðskírt
Stokkhólmur 5 skýjað Vín 5 þoka Chicago -2 skýjað
Helsinki 3 skýjað Moskva -7 snjókoma Orlando 22 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
8. desember Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4.38 0,9 10.58 3,7 17.22 0,9 23.38 3,3 11:04 15:36
ÍSAFJÖRÐUR 0.38 1,7 6.44 0,5 12.55 2,0 19.34 0,4 11:45 15:05
SIGLUFJÖRÐUR 3.14 1,1 8.56 0,3 15.21 1,2 21.41 0,1 11:30 14:47
DJÚPIVOGUR 1.40 0,4 8.05 2,0 14.25 0,5 20.29 1,7 10:42 14:57
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á miðvikudag
Austan og síðan suðaustan 8-
13 m/s og rigning sunnan- og
austanlands, en skýjað og úr-
komulítið annars staðar. Hæg-
ari suðlæg átt undir kvöld og
léttir til norðaustanlands. Hiti 1
til 9 stig, hlýjast syðst.
Á fimmtudag
Suðaustanátt, 8-13 m/s vest-
ast, en annars hægari. Rigning
með köflum sunnan- og vest-
anlands, en annars víða bjart
veður. Hiti 1 til 8 stig, en sums
staðar vægt frost í innsveitum.
Á föstudag
Stíf suðaustanátt með tals-
verðri vætu, en úrkomulítið
norðaustan til. Milt veður.
Á laugardag
Lægir og léttir víða til. Kólnar
heldur og búast má við nætur-
frosti inn til landsins.
Á sunnudag
Suðaustlæg átt og vætusamt
sunnan- og vestanlands, en
þurrt norðaustan til.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Gengur í austan 13-20 með
rigningu sunnan til síðdegis, en
mun hægari og þurrt fyrir norð-
an. Hiti 0 til 8 stig, hlýjast suð-
austan til, en líkur á næt-
urfrosti inn til landsins.
VEGNA niðurskurðar á fjárveitingum til almenningssamganga
á næsta ári og hallareksturs hefur Vegagerðin tilkynnt breyt-
ingar, sem aðallega munu bitna á íbúum landsbyggðarinnar. Í
fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 2010 er gert ráð fyrir 1.350 millj-
ón króna framlagi. Spara á 130-140 milljónir króna, eða um 10%.
Fjárlagaliðirnir eru tvískiptir, annars vegar ferjur og sérleyfi
og hins vegar flug. Styrkirnir miðast við fjölda ferða fyrst og
fremst og því mun samdrátturinn hafa í för með sér fækkun
ferða.
Á sérleyfisleiðum áætlunarbifreiða verður fækkun á öllum
leiðum. Má sem dæmi nefna að á sérleiðinni Selfoss-Flúðir
verða 8 ferðir styrktar í viku hverri á næsta ári en voru 12 á
þessu ári og á leiðinni Akureyri-Raufarhöfn-Þórshöfn verða 3
ferðir í hverri viku í stað 5 núna.
Í fluginu er búið að ákveða fækkun um eina ferð á viku á
þremur leiðum en tvær eru enn í skoðun. Þá liggur fyrir að
hætt verður að styrkja áætlunarferðir til Vestmannaeyja 1.
ágúst á næsta ári, þegar Landeyjahöfn verður tekin í notkun.
Fækkun verður á tíðni ferjusiglinga í vetur. Þannig mun
ferðum Herjólfs fækka úr 14 í 12 frá janúar-apríl. Tilfinnanleg-
ust verður fækkun ferða hjá Grímseyjarferjunni Sæfara, en
ferðum fækkar úr þremur í tvær janúar-mars. Að sögn Garðars
Ólasonar oddvita í Grímsey er mikil óánægja með þessi áform
hjá eyjarskeggjum. Segir Garðar að þetta verði sérstaklega
bagalegt fyrir útgerðarmenn, sem senda afla í land með ferj-
unni. Hann kvaðst hafa sett sig í samband við samgönguráð-
herra og Vegagerðina með ósk um að þessi ákvörðun yrði end-
urskoðuð. sisi@mbl.is
Óánægja með fækkun ferða Sæfara
Sæfari Ferðum fækkar
úr þremur í tvær í vetur.