Morgunblaðið - 08.12.2009, Page 11
Fréttir 11INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 2009
Morgunblaðið birtir fram til jóla upplýsingar um einhverja þeirra
viðburða sem eru á dagskrá vítt og breitt um landið.
16 dagar til jóla
Á FIMMTUDAG nk. kl. 20 verður
aðventusamkoma haldin fyrir
syrgjendur í Grensáskirkju. Hún
er opin öllum aldurshópum.
Þessi samvera er sérlega hugs-
uð til að styðja fólk í þessum að-
stæðum.
Sungnir verða aðventu- og jóla-
sálmar, lesið úr ritningunni og
flutt hugleiðing. Hamrahlíðarkór-
inn mun syngja undir stjórn Þor-
gerðar Ingólfsdóttur, Björg Þór-
hallsdóttir syngur einsöng og
organisti er Árni Arinbjarnarson.
Í lokin verður hægt að tendra
ljós til minningar um látinn ást-
vin.
Þá verður boðið upp á léttar
veitingar. Samveruna leiða Rósa
Kristjánsdóttir, djákni og sr.
Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir.
Sigrún Lillie Magnúsdóttir hjúkr-
unarfræðingur les ritningarlestur
og sr. Guðlaug Helga flytur hug-
vekju. Túlkað verður á táknmáli.
Aðventusamvera
fyrir syrgjendur
SJÁLFSTÆÐISKONUR um land
allt hafa tekið höndum saman og
efna til söfnunar fyrir Mæðra-
styrksnefndir um allt land. Allur
ágóði söfnuninnar rennur óskiptur
til Mæðrastyrksnefndar í Reykja-
vík, Kópavogi, Hafnarfirði, á Akra-
nesi og á Akureyri.
Einstaklingar og fyrirtæki geta
lagt söfnuninni lið með því að
kaupa stuðningskort hjá fjölmörg-
um verslunum vítt og breitt um
landið. Jafnframt er hægt að leggja
inn á söfnunarreikning Mæðra-
styrksnefndar á vef söfnunarinnar,
www.xd.is/
tokuhond-
umsaman.
Aldrei hafa
eins margir leit-
að á náðir
Mæðrastyrks-
nefndar eins og
undanfarnar vik-
ur og hefur fjöld-
inn sem sótt hef-
ur um aðstoð þrefaldast á
síðastliðnu ári. Búist er við því að
rúmlega fjögur þúsund fjölskyldur
muni óska eftir aðstoð um jólin.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Í gang Söfnuninni var hleypt af stokkunum í gær hjá Mæðrastyrksnefnd.
Taka höndum saman fyrir Mæðrastyrksnefnd
Stuðningskortið
JÓLAMARKAÐUR verður opinn
allar helgar í aðventunni í gamla
Hagkaupshúsinu við Garðatorg.
Lista- og handverksfólk mun selja
þar afurðir sínar. Þar verður líka
stjörnumarkaður, auk þess sem
Hjálparsveit skáta í Garðabæ verð-
ur þar með jólatrésölu. Markaður-
inn verður opinn laugardaga kl.
11:00-17:00, og sunnudaga kl.
13:00-17:00.
Jólamarkaður
í Garðabæ
TÖLUVERÐUR mannfjöldi, einkum
börn, varð vitni að því síðdegis á
laugardag að nokkrir jólasveinar
heimsóttu jarðböðin í Mývatnssveit,
en að sögn er það hefð meðal þeirra
að gera sér eina ferð í jarðböðin fyrir
hver jól. Jólasveininn Stúfur var að
sögn nokkuð ósáttur við vatnið og fór
ekki út í, en reyndi að stjórna fjölda-
söng á meðan félagar hans afklæddu
sig og fór í prjónabrækur áður en
þeir skelltu sér í lónið.
Um 150 manns voru með þeim í lóninu, aðallega börn og unglingar, en
ekki fer sögum af því að foreldrar barnanna hafi reynt að forða þeim burt.
Annað fólk hélt sig til hlés en fylgdist með uppákomunni úr fjarlægð.
Jólasveinar brugðu sér í jarðböðin
Óvæntir gestir Jólasveinarnir fóru í
prjónabrækur og skelltu sér í lónið.
Á FIMMTUDAG nk. kl. 20 verða
jólatónleikar í Víðistaðarkirkju til
styrktar Fjölskylduhjálp Íslands.
Fram koma Dísella, Esther Jökuls-
dóttir, Soffía Karlsdóttir, Guðbjörg
Magnúsdóttir, Guðrún Árný Karls-
dóttir og Margrét Árnadóttir.
Miðaverð er 1.000 kr. og rennur all-
ur ágóði til Fjölskylduhjálparinnar.
Styrktartónleikar
fyrir Fjölskylduhjálp
KVENNAKÓRINN
Léttsveit Reykja-
víkur heldur að-
ventutónleika 8. og
12. desember í Bú-
staðakirkju. Tón-
leikarnir bera yf-
irskriftina „Jólasól
heims um ból“.
Einsöngvari á tón-
leikunum verður
Kristján Jóhanns-
son. Að vanda
verður bassaleik-
arinn Tómas R.
Einarsson með í för en einnig Hjörleifur Valsson fiðluleikari. Undirleik-
ari er Aðalheiður Þorsteinsdóttir og stjórnandi kórsins er Jóhanna V.
Þórhallsdóttir.
Morgunblaðið/Kristinn
„Jólasól heims um ból“ í Bústaðakirkju
Eftir Sigtrygg Sigtryggsson
sisi@mbl.is
FÉLAG íslenskra flugumferð-
arstjóra (FÍF) lýsti í gær yfir
áhyggjum af afleiðingum atgerv-
isflótta sem félagið segir að brostinn
sé á í atvinnugreininni.
„Á skömmum tíma hafa 9 af alls
64 flugumferðarstjórum, sem starfa
dagsdaglega við flugumferðarstjórn
hérlendis, sagt upp störfum og hald-
ið utan til starfa,“ segir í tilkynningu
frá félaginu. Þar kemur einnig fram
að þessir menn séu með 12 ára
starfsaldur að jafnaði.
Fleiri að kanna málið
Ennfremur segir að enn fleiri úr
þessum hópi kanni málið eða hafi nú
þegar sótt um starf við flugumferð-
arstjórn erlendis. Fastlega megi því
gera ráð fyrir að enn fleiri flug-
umferðarstjórar flytjist af landi
brott á næstu mánuðum.
„Það segir sína sögu um ástæður
atgervisflóttans að hæst launuðu
flugumferðarstjórarnir á Íslandi ná
ekki byrjunarlaunum starfssystkina
sinna annars staðar á Norð-
urlöndum. Þá eru dæmi um að ís-
lenskir flugumferðarstjórar fjórfaldi
útborguð laun sín með því að ráða
sig í vinnu erlendis,“ segir í tilkynn-
ingunni.
Íslenskir flugumferðarstjórar
starfa hjá tveimur fyrirtækjum,
Flugstoðum ohf. og Keflavík-
urflugvelli ohf. Til stendur að sam-
eina þessi félög í einu félagi.
Hjördís Guðmundsdóttir, upplýs-
ingafulltrúi Flugstoða, kannast ekki
við tölur FÍF um starfandi flug-
umferðarstjóra. Hún segir að milli
70 og 80 flugumferðarstjórar séu
starfandi hjá fyrirtækinu um allt
land og ein uppsögn hafi borist á
þessu ári. Hún segir að hjá Flug-
stoðum séu menn meðvitaðir um það
að flugumferðarstjórar kunni að
leita vinnu erlendis, þar sem betri
kjör séu í boði. „Við teljum ekkert
óeðlilegt við það að fólk hugsi sér til
hreyfings enda er það ekki æviráðið
hjá okkur,“ segir Hjördís.
Nýtt fólk verður þjálfað
Hún segir að ef fleiri flugumferð-
arstjórar segi upp störfum verði því
mætt með því að þjálfa fólk í þess
stað. Bendir Hjördís á að Flugstoðir
séu sífellt að þjálfa nýtt fólk og
þannig hafi 8 nýnemar komið til fyr-
irtækisins á þessu ári.
Á Keflavíkurflugvelli starfar 31
flugumferðarstjóri. Að sögn Frið-
þórs Eydal upplýsingafulltrúa hafa
þrír þeirra sagt upp störfum og er
verið er að þjálfa þrjá nýja menn í
þeirra stað. Þá er einn flugumferð-
arstjóri í launalausu leyfi.
Flugumferðarstjórar
óttast atgervisflótta
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
SAMKVÆMT könnun sem unnin
var fyrir Félag íslenskra stórkaup-
manna (FÍS) og VR þá ætla 85%
landsmanna að draga úr kaupum á
dagvöru vegna boðara skattbreyt-
inga. Kynna á þessa könnun á opn-
um morgunverðarfundi þessara fé-
lagasamtaka í dag um skattamál og
breytta neysluhegðun á sam-
dráttartímum. Fer fundurinn fram
á Grand hóteli.
Sama könnun sýndi að 35%
þjóðarinnar hafa orðið vör við
meira heimabrugg og smygl á
áfengi í kjölfar efnahagshrunsins.
Enn fleiri í aldurshópnum 16-24 ára
sögðust hafa orðið varir við brugg-
ið, eða 55%. Varðandi innkaupin
sögðust 16% ætla að draga mikið úr
þeim, 33% ætla að draga nokkuð úr
þeim og 36% reikna með að inn-
kaupin minnki lítillega.
85% ætla að draga
úr innkaupum
AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi starfar á vegum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti-
sins og veitir styrki til rannsókna- og þróunarverkefna sem auka verðmæti sjávarfangs.
AVS rannsóknasjóður í
sjávarútvegi
auglýsir eftir umsóknum
AVS sjóðurinn leggur áherslu á
styttri verkefni og munu umsóknir
þar sem verkefni eru til skemmri
tíma en 12-18 mánaða að öllu jöfnu
njóta forgangs. Lögð verður mikil
áhersla á verkefni sem skila
verðmætum og störfum fyrir
íslenskan sjávarútveg
Átaksverkefni
• Vinna að vöruþróun og nýsköpun
• Flytja inn nýja þekkingu eða fyrirtæki
• Ráða mastersnema eða doktorsnema
AVS sjóðurinn er tilbúinn til að greiða allt að 50% af
kostnaði átaksverkefna, en hámarksstyrkir eru 6-8 m.kr.
Lögð er áhersla á stutt og hnitmiðuð verkefni sem
geta skapað mikil verðmæti á stuttum tíma.
Sjóðurinn er opinn fyrir öllum hugmyndum sem
auka verðmæti sjávarfangs.
Framhaldsverkefni
Með stuðningi AVS sjóðsins eru allmörg 2-3 ára
verkefni í gangi og mun sjóðurinn styðja þau áfram
ef framvinda rannsókna er í samræmi við fyrirheit
og kröfur sjóðsins.
Skilafrestur umsókna er til
mánudagsins 1. febrúar 2010 fyrir
kl. 17:00
Upplýsingar og leiðbeiningar fyrir
umsækjendur ásamt eyðublaði er að finna á
www.avs.is
AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi • Pósthólf 1188 • 121 Reykjavík • Sími 422-5102 • www.avs.is
Ríkisendurskoðun er sjálfstæð eftirlitsstofnun sem starfar á vegum Alþingis. Meginhlutverk hennar er að
endurskoða ríkisreikning og reikninga ríkisaðila, hafa eftirlit með og stuðla að umbótum á fjármálastjórn
ríkisins og nýtingu almannafjár. Megingildi hennar eru óhæði, hlutlægni, hæfni og trúverðugleiki.
Forráðamenn stjórnmálasamtaka
og frambjóðendur
á vegum þeirrra athugið
Frestur til að skila Ríkisendurskoðun upplýsingum um
móttekin fjárframlög fyrri ára er til 10. desember nk.
Allar nánari upplýsingar og eyðublöð er að finna
á heimasíðu stofnunarinnar, www.rikisend.is.