Morgunblaðið - 08.12.2009, Side 12
UM 1.000 ökumenn voru stöðvaðir
á höfuðborgarsvæðinu frá fimmtu-
degi til laugardags vegna sérstaks
umferðareftirliti sem lögreglan
heldur nú úti í umdæminu.
Átta ökumenn reyndust ölvaðir
við stýrið og eiga þeir ökuleyfis-
sviptingu yfir höfði sér. Ellefu til
viðbótar var gert að hætta akstri
sökum þess að þeir höfðu neytt
áfengis en voru þó undir leyfilegum
mörkum. Lögreglan stöðvaði einn-
ig för ökumanns sem var undir
áhrifum fíkniefna. Eins voru teknir
allnokkrir öku-
menn sem höfðu
verið sviptir öku-
leyfi. Athygli
vakti hve margir
höfðu ekki öku-
skírteini með-
ferðis. Síðastliðið
fimmtudags-
kvöld voru um
200 ökumenn stöðvaðir og hafði um
fjórðungur þeirra skilið öku-
skírteinið eftir heima. Slíkt kæru-
leysi kostar viðkomandi 5.000 kr.
Margir gleymdu öku-
skírteininu heima
12 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 2009
LEGIÐ hefur fyrir allt frá andláti
Bobby Fischers í janúar 2008 að
krafa verður gerð í dánarbú skák-
meistarans fyrir hönd Jinky Young,
átta ára gamallar stúlku sem sögð
er dóttir Fischers og hinnar filipps-
eysku Marilyn Young.
Tekin voru lífsýni úr stúlkunni í
síðustu viku er þær mæðgur voru
staddar hér á landi. Undirbúningur
að málshöfðun þeirra er langt kom-
inn að sögn Þórðar Bogasonar, lög-
manns mæðgnanna. Gera má ráð
fyrir að DNA-rannsókn taki 2-3
mánuði, en greint var frá því í Rík-
issjónvarpinu um helgina að farið
yrði fram á að líkamsleifar Bobby
Fischers yrðu grafnar upp fyndist
hvergi annars staðar nothæft líf-
sýni úr Fischer fyrir DNA-próf.
„Það verður leitað allra leiða en
auðvitað vonast maður til að það
séu til lífsýni,“ segir Þórður og
ítrekar að barnsfaðernismál snúist
um rétt barns til að þekkja upp-
runa sinn.
Útkoma DNA-rannsóknarinnar
mun líka hafa afgerandi áhrif á all-
an málflutning. „Reynist svörunin
jákvæð er málið unnið,“ segir Þórð-
ur en samkvæmt íslenskum lögum
teljast börn skylduerfingjar og
væri réttur stúlkunnar til arfsins
því ótvíræður. annaei@mbl.is
Vonast til að
lífsýni muni finn-
ast úr Fischer
Gera má ráð fyrir að
DNA-rannsókn taki
tvo til þrjá mánuði
Morgunblaðið/RAX
Skákmeistarinn Miklar deilur hafa
verið um dánarbú Bobby Fischer.
ÞRÁTT fyrir að kominn sé jólamánuður var blíðvirðri í borginni í gær,
hægur vindur og nokkuð hlýtt miðað við árstíma. Margir nýttu góða veðrið
til útivistar sem endranær, börn jafnt sem fullorðnir. Vinsælt er að hjóla í
Laugardalnum og var þessi ungi maður á fleygiferð á hjólinu sínu er ljós-
myndari Morgunblaðsins varð á vegi hans. Að baki drengnum er brú en
engu er líkara en pilturinn hafi fengið vængi fyrir vikið.
Í dag er víða spáð rigningu síðdegis og nokkrum vindi. Það er því ljóst að
snjórinn, sem börnin þrá heitt, ætlar að láta bíða eitthvað eftir sér.
Blíðviðri í borginni
Morgunblaðið/Heiddi
Svífur stálvængjum
þöndum í Laugardalnum
FJÁRMÁLARÁÐHERRA og iðn-
aðarráðherra annars vegar og Sam-
tök atvinnulífsins og stórnotendur
raforku hins vegar undirrituðu í gær
sameiginlega yfirlýsingu um ráð-
stafanir til að mæta erfiðri stöðu rík-
issjóðs og stuðla að auknum fjárfest-
ingum í atvinnulífinu.
Samkvæmt samkomulaginu munu
stóriðjufyrirtækin greiða árlega fyr-
irfram samtals 1,2 milljarða króna á
árunum 2010, 2011 og 2012 upp í
væntanlega álagningu á tekjuskatti
og öðrum opinberum gjöldum á ár-
unum 2013-2018. Skiptist fyrirfram-
greiðslan milli aðila í hlutfalli við raf-
orkunotkun og er bundin við
uppgjörsmynt fyrirtækjanna sem í
hlut eiga.
Jafnframt kemur fram í yfirlýs-
ingunni að ríkisstjórnin muni leggja
fram í upphafi vorþings 2010 frum-
varp til laga um ívilnanir vegna fjár-
festinga á Íslandi.
Samið
við stór-
notendur
Greiða 3,6 milljarða
skatta fyrirfram
Samkomulag Margir pennar fóru á
loft í gær við undirskriftina.
YFIRMAÐUR rannsóknardeildar
lögreglu höfuðborgarsvæðisins,
Friðrik Smári Björgvinsson, segir
rannsókn á mansalsmáli miða vel.
Gæsluvarðhald yfir tveimur konum
sem grunaðar eru um milligöngu
vændis og mansal rennur út á föstu-
dag en að sögn Friðriks liggur ekki
fyrir hvort krafist verði framleng-
ingar.
Önnur kvennanna var í Héraðs-
dómi Reykjaness nýverið dæmd í
fangelsi fyrir hórmang, en hún rak
vændishús á nokkrum stöðum í
Reykjavík. andrikarl@mbl.is
Rannsókn
á mansali
miðar vel
Úrskurður úr DNA-rannsókn á
Jinky Young kann að hafa áhrif
á kröfu systursona Fischers í
dánarbúið. Mánuður er síðan
Héraðsdómur Reykjavíkur við-
urkenndi erfðarétt Myoko
Watai, eiginkonu Fischers, og
hafnaði kröfu bræðranna um að
dánarbúið yrði tekið til opin-
berra skipta og hefur sá dómur
verið kærður til Hæstaréttar.
Reynist stúlkan hins vegar dótt-
ir Fischers verður krafa bræðr-
anna að engu.
Áhrif á kröfu bræðranna
Faxafeni 5
S. 588 8477
Mjúkir pakkar !
Orginal heilsukoddi
Kr. 15.120,-
Te
m
pu
r 15 ár á Ísland
i
Te
m
pur 15 ár á
Ísl
an
d
i
STYRKTARFÉLAG fyrir kvenna-
deild Landspítalans var stofnað í
gærkvöldi í safnaðarheimili Háteigs-
kirkju. Tilgangur félagsins, er hlotið
hefur nafnið Líf, er að bæta aðbúnað
og þjónustu við konur og fjölskyldur
þeirra á meðgöngu, í fæðingu og
sængurlegu. Einnig ætlar félagið að
styrkja konur sem þurfa umönnun
vegna kvensjúkdóma og vinna líka
að líknar- og mannúðarmálum í
þágu fjölskyldna.
Verndari Lífs er Stefán Hilm-
arsson. Félagið er opið fyrir bæði
karla og konur. Árgjald er 3.000
krónur en þeim sem vilja styrkja Líf
með öðrum hætti er bent á vefinn
www.styrktarfelagidlif.is.
Líf hefur
verið stofnað
Morgunblaðið/Kristinn