Morgunblaðið - 08.12.2009, Síða 15
Fréttir 15VIÐSKIPTI | ATVINNULÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 2009
Nokia og PC-tölvur.
Örugg tenging
– Örnámskeið fyrir starfsfólk
fyrirtækja 9. desember –
Fyrirtækjaþjónusta Hátækni býður
upp á röð örnámskeiða í vetur. Næsta
námskeið – Nokia og PC-tölvur. Örugg
tenging – verður haldið í verslun Hátækni
miðvikudaginn 9. desember kl. 12. Kenndir
verða tengimöguleikar milli Nokia og
PC-tölvu. Farið verður yfir afritun gagna
og tengiliða og meðhöndlun tónlistar og
stafræns efnis með forritum sem hægt er
að hlaða frítt niður af vef Nokia.
Skráning á www.hataekni.is/ornamskeid.
Takmarkaður fjöldi þátttakenda.
Námskeiðið er ókeypis.PI
PA
R
\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
91
75
7
MP Sjóðir hf. hefur útvistað hluta af verkefnum sínum til MP Banka hf. á grundvelli 18. gr. laga nr. 30/2003 um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. MP Sjóðir hf. er fjármálafyrirtæki með starfsleyfi
sem rekstrarfélag verðbréfa- og fjárfestingarsjóða skv. 7. tölul. og b-lið 6. tölul. 1. mgr. 3.gr. og 1.-3. tölul. 1.mgr. 27. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Starfsleyfið tekur til reksturs verðbréfa-
og fjárfestingarsjóða og annarra sjóða um sameiginlega fjárfestingu skv. 7. tölul. 1.mgr. 3.gr. laga nr. 161/2002 og til eignastýringar, fjárfestingarráðgjafar og vörslu og stjórnunar fjármálagerninga
í sameiginlegri fjárfestingu skv. 1.-3. tölul. 27. gr. laga nr. 161/2002. Nánari upplýsingar um verðbréfasjóði og fagfjárfestasjóði MP Sjóða hf. má finna á www.mp.is/mp-sjodir. Vinsamlega hafið í huga
að ávöxtun í fortíð er ekki ávísun á ávöxtun í framtíð.
Kynntu þér Ríkisskuldabréfasjóð MP
á www.mp.is, í síma 540 3200 eða hjá
viðskiptastjórum í Skipholti 50d eða
Borgartúni 26.
Eignasamsetning
Ríkisskuldabréfasjóðs MP
30.11.2009
ÖRUGGARI
STAÐUR FYRIR
PENINGANA ÞÍNA
Hversu stór hluti af þínum sparnaði er í ríkistryggðum bréfum?
Við bjóðum þér einfalda leið til að tryggja fjármunina þína með
kaupum í Ríkisskuldabréfasjóði MP.
10,2% ávöxtun sl.12 mánuði
85%
verðtryggð
ríkisskuldabréf
Íbúðabréf 72%
Húsbréf 13%
Ríkisbréf 8%
Innlán 7%
JÓN FINNBOGASON, sparisjóðs-
stjóri Byrs, segir að vonir standi
til þess að niðurstöður varðandi
eiginfjárframlag frá íslenska rík-
inu liggi fyrir innan fárra vikna.
Komi ríkið ekki með eiginfjár-
framlag inn í bankann sé ljóst að
hann þurfi að leita annarra leiða
til þess að styrkja eiginfjárgrunn
sinn. Samkvæmt lögum um fjár-
málafyrirtæki má hlutfallið ekki
fara niður fyrir 8%. Jón segir enn-
fremur að samstarf sjóðsins við
Fjármálaeftirlitið og fjár-
málaráðuneytið hafi verið gott.
Sem kunnugt er sótti Byr um ell-
efu milljarða eiginfjárframlag frá
ríkinu síðasta vetur vegna erf-
iðrar fjárhagsstöðu. Samkvæmt
lögum sem voru sett í kjölfar
bankahrunsins hafa stjórnvöld
heimild til þess að leggja spari-
sjóðunum sem nemur fimmtungi
af efnahagsreikningi þeirra eins
og hann var árið 2007.
Aðspurður hvort mögulegt eig-
infjárframlag ríkisins muni leiða
til þess að stofnfé annarra þurrk-
ist út segir Jón ekkert liggja fyrir
í þeim efnum
Málefni þeirra sparisjóða sem
eru illa staddir hafa veið í ólestri
að undanförnu. Á sama tíma hefur
ríkisstjórnin lagt fyrir Alþingi
nýtt frumvarp um hámark á inni-
stæðutryggingum í bankakerfin.
Aðspurður telur Jón að það hefði
líklega verið betra að klára mál-
efni sparisjóðanna áður en það var
lagt fram. Hinsvegar ítrekar hann
þá skoðun að óvissan ætti að skýr-
ast á næstu vikum.
ornarnar@mbl.is
Aðkoma ríkisins að Byr
ætti að skýrast á næstu vikum
Óljóst hvort
stofnfé annarra
þurrkast út
Blásið á móti Töluverður mótvindur hefur verið í rekstri Byrs.
ÍSLANDSBANKI hagnaðist um 2.366 milljónir króna á
síðustu tveimur og hálfum mánuði ársins 2008, en í gær
var birt uppgjör fyrir þessa fyrstu mánuði í rekstri bank-
ans. Hreinar vaxtatekjur voru 13,8 milljarðar króna og
hreinar þjónustutekjur 1,6 milljörðum króna. Rekstr-
artekjur námu 6,76 milljörðum króna og rekstrargjöld
tæplega 4,1 milljarði.
Framlag bankans á afskriftarreikning útlána nam 47
milljörðum króna á tímabilinu. Þar af nam framlag
vegna afskrifta fyrirtækjalána 1,4 milljörðum króna, en
vegna afskrifta til viðskiptavina 45,6 milljörðum króna.
Útlán Íslandsbanka námu 513 milljörðum króna í lok
tímabilsins, en innlán voru 493 milljarðar. Innlán voru því, sem hlutfall af
útlánum, rúmlega 96%. CAD-eiginfjárhlutfall Íslandsbanka í lok ársins
2008 var 10,36%. ivarpall@mbl.is
Íslandsbanki hagnaðist
um tæplega 2,4 milljarða
Innlán voru 493
milljarðar.
ast, en verðlag hefur hækkað um
helming.
Þegar horft er á M1, sem saman-
stendur af veltiinnlánum í lána-
stofnunum og seðlum og mynt, sést
að peningamagnið hefur rúmlega tí-
faldast síðan í september 2003, á
meðan verðlag hefur hækkað um
rúm 50%.
Víðasta skilgreining peninga-
magns, M3, sjöfaldast á tímabilinu,
en verðlag sem fyrr segir hækkað
um rúman helming.
Almennt má álykta sem svo, að
aukið peningamagn hljóti að koma
fram í verðbólgu á endanum, þar
sem fleiri krónur séu ávísun á svip-
uð eða sömu verðmæti. Þannig rýr-
ist kaupmáttur hverrar krónu og
verð á vöru og þjónustu hækkar,
mælt í rýrari krónum.
Þó ber að hafa í huga að töluvert
flökt er á peningamagnsstærðum,
sér í lagi grunnfé, þótt ofangreindar
breytingar sýni þróunina til langs
tíma. Til dæmis má nefna að nýj-
ustu tölur um grunnfé, fyrir októ-
ber og nóvember 2009, gefa til
kynna að það hafi nærri helmingast
og sé nú 85,5 milljarðar króna.
r
800
700
600
500
400
300
200
100
0
600
500
400
300
200
100
0
Sept. ‘03 Sept. ‘09
M3 peningamagn og verðlag sept. 2003 = 100
Sept. ‘03 Sept. ‘09
Grunnfé og verðlag sept. 2003 = 100
Verðlag
Verðlag
M3 peningamagn
Grunnfé
100/100
100/100
724,1
153,4
153,4
508,9
am úr verðlagi