Morgunblaðið - 08.12.2009, Blaðsíða 17
Daglegt líf 17ÚR BÆJARLÍFINU
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 2009
www.noatun.is
ÓDÝRT
GRILLAÐUR
KJÚKLINGUR
KR./STK.998
MEÐ HEIM!
HEITT
Ódýrt og
gott í
Nóatúni
ALLRA
GRÆNAR BAUNIR
KR./STK.
99
EURO WASH
ÞVOTTAEFNI, 3 KG
KR./PK.
569
BREIÐHOLTSB.
SÓLKJARNA OG
SPELT RÚGBRAUÐ
KR./STK.
199
F
ÚRFISKBOR
ÐI
ÚR
FISKBORÐI
ERSKIR
Í FISKI
ÝSUFLÖK
ROÐ- OG BEINLAUS
KR./KG1198
80 ára afmæli Neskaupstaðar var
fagnað með undarlegum hætti.
Óvænt fengu bæjarbúar og starfs-
fólk sveitarfélagsins fregnir af því
að bæjarskrifstofunum í Neskaup-
stað skyldi lokað með hraði og
starfssemin flutt á Reyðarfjörð.
Mikil ólga hefur verið í bænum
vegna þessa og telja íbúar að með
aðgerðum sé vegið að samfélaginu,
enda 11 störf sem hverfa úr
byggðakjarnanum. Það jafngildir
um 1500 störfum á höfuðborgar-
svæðinu.
Gjörningnum var mótmælt á vel
sóttum íbúafundi sl. föstudag og
mátti greina mikla samkennd íbúa
Neskaupstaðar. Guðmundi Gísla-
syni forseta bæjarstjórnar var af-
hentur undirskriftarlisti ríflega 500
íbúa sem mótmæltu flutningnum.
Ennþá á eftir að staðfesta ákvörð-
un bæjarráðs í bæjarstjórn, en
málið verður til afgreiðslu á bæjar-
stjórnarfundi um miðjan desember.
Má búast við fjölmenni á fund-
inum.
Á sama tíma og yfirvöld í Fjarða-
byggð stefna að miðstýringu og
lokun vinnustaða í úthverfum í
skjóli hagræðingar gagnrýna þau
ríkið harðlega fyrir að gera slíkt
hið sama. Ályktanir þess efnis að
sjálfsagt og augljóst sé að hluta af
starfsemi Hafró megi sinna frá
Fjarðabyggð verða heldur bitlaus-
ar.
Engin samúð er með Norðfirð-
ingum í byggðakjörnum Fjarða-
byggðar sunnan skarðs, enda hafa
þeir sumir hverjir orðið fyrir
barðinu á viðlíka aðgerðum undan-
farin ár. Miðstýringarstefna í fjöl-
kjarna sveitarfélagi hefur klárlega
ekki eflt samstöðu eða stuðlað að
andlegri sameiningu byggðakjarn-
anna.
Abbababb segja Norðfirðingar og
menningarlífið blómstrar. Um
helgina settu nemendur í 9. bekk
Nesskóla og foreldrar þeirra upp
NESKAUPSTAÐUR
Kristín Ágústsdóttir
Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir
Aflið tryggt öllum stundum Sigfús
Guðlaugsson Rafveitu Reyðarfjarð-
ar og Tómas Zoëga, rafvirki hjá
FSN, í nýrri varaaflsstöð sem FSN
fékk að gjöf á dögunum.
söngleikinn Abbababb við frábærar
undirtektir. Verkið er liður í fjár-
öflun fyrir ferðalag 9. bekkjar í
vor. Samleikur kynslóðanna small
saman og virtu allir skemmta sér
hið besta: foreldrar, börn og áhorf-
endur. Ekki er langt síðan sýn-
ingum á rokkveislu BRJÁN lauk
og framundan eru tónleikar með
nemendum Tónskólans. Af nægu
er að taka í menningarlífinu.
Samgöngur og Norðfjarðargöng
eru íbúum ofarlega í huga og enn
er haldið í vonina um að göngin
verði að veruleika í nálægri fram-
tíð. Olísframboðið svokallaða í Nes-
kaupstað hefur nú látið til sín taka
og að þeirra frumkvæði er efnt til
borgarafundar um Norðfjarðar-
göng í Kirkju- og menningar-
miðstöðinni á Eskifirði hinn 14.
desember n.k. Markmiðið er að
þétta raðir íbúa og annarra hags-
munaaðila og gefa skýr skilaboð
um mikilvægi Norðfjarðarganga.
Búist er við ráðherra samgöngu-
mála, vegamálastjóra og þing-
mönnum kjördæmisins á fundinn.
Samkennd var stemmningin á
Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaup-
stað fyrir skemmstu þar sem tekið
var á móti höfðinglegum gjöfum
frá íbúum og samtökum. Lyfja-
blöndunarskápur, magaspeglunar-
tæki, berkjuspeglunartæki og vara-
aflssstöð koma sér einstaklega vel
fyrir sjúkrahúsið. Með þessum
gjöfum eykst enn á þann tækja-
búnað FSN sem keyptur er fyrir
gjafafé. Á síðustu árum hefur
sjúkrahúsið fengið gjafir að and-
virði um 80 milljóna króna. Óhætt
er að taka undir orð ónefnds lækn-
is sem sagði að án þessara gjafa
væri sjúkrahúsið líklegast enn á
steinöld.
Eftir Atla Vigfússon
Þingeyjarsveit | „Ég nota alfarið efni
úr náttúrunni í skreytingar og þess
vegna finnst mér mjög gaman að fá
þetta tækifæri til að föndra með
börnunum sem eru að nota eini o.fl.
sem finnst hér í nánasta umhverfi.
Þannig jólaskraut þarf ekki að kosta
mikið en er oft mjög fallegt.“ Þetta
segir Bryndís Ívarsdóttir ferðaþjón-
ustubóndi á Staðarhóli í Aðaldal en
hún kom á árlegan föndurdag í
Hafralækjarskóla með syni sínum
Hermanni Hólmgeirssyni nú í vik-
unni. Þau höfðu bæði mikla ánægju
af því að skapa skreytingar fyrir jól-
in og þetta var góð tilbreyting í
skólastarfinu.
Skógarskreytingarnar
vinsælar
Þennan dag var skólanum skipt
upp í föndurstöðvar og gátu nem-
endur og foreldrar valið sér við-
fangsefni eftir áhugasviði. Margir
saumuðu jólakort, klipptu filt, papp-
ír eða gerðu jólastjörnur og bökuðu
piparkökur. Í einni vinnustofunni
var unnið einungis með efni úr Aðal-
dalshrauni og var einir og greinar
aðalefniviðurinn. Einirinn er mjög
víða í hrauninu og af nógu að taka
enda hefur hann lengi verið notaður
sem skraut á jólum í sveitinni.
„Mjög skemmtilegur dagur og
gaman að gera þetta með mömmu,“
sagði Hermann sem auk þess spilaði
jólalög á trompet í kaffihlénu fyrir
starfsfólk og gesti, en hann er í tón-
listarnámi eins og margir aðrir nem-
endur skólans.
Bryndís sagði að þau notuðu mest
alaskavíðibúta sem uppistöðu og
með eininum notuðu þau sortulyng
og köngla af furu og greni sem
finnst víða í görðum í dalnum. Það
eina sem væri keypt væru litlar
rauðar kúlur sem gæfu skemmti-
legan lit, þær væru ódýrar og fal-
legar.
„Ég myndi vilja hafa fleiri svona
daga í skólanum þar sem foreldrar
taka þátt í því að skapa eitthvað með
börnunum. Þetta er mikil hvatning
og þar sem fleiri koma saman þar
koma fram fleiri hugmyndir.“
Svo var líka gaman fyrir Her-
mann að fara með skreytingarnar
heim til þess að hafa fallegt heima-
gert skraut hjá fjölskyldunni um jól-
in og geta sýnt gestum það sem
hann hefði gert í skólanum án mikils
kostnaðar.
Einir er fallegt jólaskraut
Jólaskreytingar úr
náttúrunni þurfa
ekki að kosta mikið
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Mæðgin Bryndís Ívarsdóttir ásamt syni sínum Hermanni Hólmgeirssyni með skreytingu úr eini, alalskavíði og lyngi.
Í HNOTSKURN
»Aðaldalshraun er birkivaxið en í skógarbotninum
er að finna mikið af eini,
sortulyngi o.fl. lyngtegundum.
»Einir var oft notaður tilþess að gera góða lykt í hí-
býlum manna á jólum. Var
hann klipptur niður í greinar
og þær brenndar á eldavélinni
til þess að fá keiminn um hús-
ið.
»Á mörgum bæjum var ein-ir notaður til þess að búa
til jólatré.
DÖNSKU neytendasamtökin
(Forbrugerrådet) settu fyrr í þess-
um mánuði í gang herferð gegn
hormónalíkjandi efnum í snyrti-
vörum, með það að markmiði að
bannað verði að nota slík efni í
vörur af þessu tagi. Herferðin
hófst 6. nóvember, en þá sendu
samtökin út hvatningu til neyt-
enda til að láta vita ef snyrtivör-
urnar þeirra innihéldu eitthvert af
þeim 17 efnum sem samtökin til-
greindu á heimasíðu sinni, og öll
eiga það sameiginlegt að hafa
hugsanlega hormónalík áhrif.
Fyrstu tvær vikurnar bárust rúm-
lega 700 ábendingar frá neyt-
endum, og úr þeim hafa samtökin
unnið lista yfir 575 mismunandi
snyrtivörur sem innihalda a.m.k.
eitt af þessum 17 efnum. Herferð-
inni er hvergi nærri lokið, en nýj-
ustu útgáfu listans er jafnan að
finna á heimasíðu samtakanna.
Hægt er að leita að einstökum
vöruheitum og framleiðendum í
listanum.
Herferð
gegn horm-
ónalíkjandi
efnum