Morgunblaðið - 08.12.2009, Qupperneq 21
Minningar 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 2009
✝ Guðbjörg Auð-unsdóttir fæddist
í Svínhaga á Rang-
árvöllum 18. apríl
1920. Hún lést á
dvalarheimilinu
Lundi á Hellu 1. des-
ember síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru hjónin Auðunn
Jónsson frá Lága-
felli í A-Landeyjum,
f. 20.2. 1863, d. 1.7.
1923, og Jóhanna
Katrín Helgadóttir
frá Bakkakoti á
Rangárvöllum, f. 24.12. 1874, d.
14.2. 1956. Systkini hennar voru
13: Helgi, f. 1903, d. 1951, Magn-
ea Katrín, f. 1904, d. 1925, Guð-
jón Ólafur, f. 1906, d. 1996, Ás-
laug, f. 1907, lést á fyrsta
aldursári, Eiríkur, f. 1908, d.
1930, Ágúst, f. 1909, d. 2003,
Margrét Una, f.
1912, d. 1936, Ás-
laug, f. 1913, lést
ársgömul, Guð-
mundur, f. 1914, d.
2004, Guðni, f. 1915,
lést ársgamall, Ósk-
ar, f. 1916, d. 2006,
Ásgeir, f. 1918 og
hálfbróðir Tómas, f.
1897, dó ungur.
Guðbjörg flutti frá
Svínhaga 1952 til
Minni-Valla í Land-
sveit ásamt bræðrum
sínum Óskari, Ás-
geiri og móður sinni, Jóhönnu
Katrínu. Þar var hún húsfreyja til
ársins 2003 er systkinin brugðu
búi og fluttu á Hellu.
Útför Guðbjargar verður gerð
frá Skarðskirkju í dag, þriðjudag-
inn 8. desember, og hefst athöfn-
in klukkan 13.
Guðbjörg var fædd í Svínhaga á
Rangárvöllum í systkinahóp sem
taldi 8 pilta og 5 stúlkur, samtals 13
systkini. Það þætt dágóð fjölskylda í
dag. Svo einkennilega vildi til að að-
eins tveir bræður úr systkinahópn-
um kvæntust og stofnuðu heimili.
Annar þeirra var faðir minn, Guð-
mundur.
Guðbjörg flutti frá Svínhaga 1952
til Minni-Valla í Landsveit, ásamt
bræðrum sínum Óskari, Ásgeiri og
móður sinni, Jóhönnu Katrínu, og
var þar húsfreyja allt til ársins 2003
er þau systkini brugðu búi og fluttu á
Hellu. Ég man fyrst eftir mér á
Minni-Völlum og ömmu minni. Síðar,
þegar ég varð eldri, gerðist ég
„sumrungur“ á Minni-Völlum og var
það eftir andlát ömmu. Þá gekk Guð-
björg mér í móðurstað í sveitavist
minni. Konan var hæglát og blíð og
barngóð mjög.
Alla tíð sá Guðbjörg um heimilis-
hald fyrir þá bræður Óskar og Ás-
geir með miklum sóma. „Hótel-
stjóri“, sem eldar, þrífur, bakar,
prjónar peysur og sokka, stoppar í
sokka bætir buxur. „Buxur án bótar
eru ómögulegar buxur.“ Ávallt tilbú-
in, eins og góður skáti. Matur á
heimilinu var eldaðar á kolaeldavél,
rúgbrauð, flatkökur, kæfa, feitar
rúllupylsur, brenndar baunir í elda-
vélinni og síðan fékk maður að snúa
kaffikvörninni til að mala kaffið.
Sokka og peysur fékk ég alltaf hjá
Guðbjörgu. „Vantar þig ekki hreina
leista? Nú, þegar búið er að ganga
niður úr leistunum, kemur maður
með stroffið og þá er prjónaður nýr
sokkur.“ Öll mín ár sem „sumrung-
ur“ var ekkert rafmagn og sofið í
baðstofu. Ís sem Guðbjörg gerði var
allt öðruvísi en sá sem búinn er til í
dag. Það myndi auka íssöluna, hefðu
ísframleiðendur nútímans uppskrift-
ina. Guðbjörg hafði hænsni. Ég man
eftir þegar hún var að fara með
hafragraut, skyr og annan mat til að
fóðra hænsnin. Frá þeim komu egg
minni en í hraðverslunum núdagsins
en með rauða rauðu. Það voru al-
vöruegg. Og svo þjónaði hún þeim
bræðrum Óskar og Ásgeiri, alla sína
tíð.
Þegar ég kom með Rebekku dótt-
ur mína á Minni-Velli í fyrsta skipti
var Rebekka verulega skelkuð. Hún
var ekki vön skepnum, kindurnar og
heimilishundurinn var það sem hún
hræddist sérstaklega. Guðbjörg tók
hundinn afsíðis og sagði: „Ragnar,
þú þarft að fá kött, fugl eða einhver
dýr svo barnið verði ekki svona
hrætt við dýr.“ Auðvitað hlýddi ég
því og ég fékk hund fyrir Rebekku
og eftir það hef ég ekki orðið var við
að Rebekka væri hrædd við dýr.
Samkvæmt málvenju á Minni-Völl-
um þýddi „vökustaur“ það að fá sér
flatköku með kæfu síðla kvölds. Við-
kvæðið var: „Viltu ekki vökustaur,
væni minn?“ Það var vel þegið. Af
sínum höfðingsskap gáfu þau systk-
inin mér, Óskar, Ásgeir og Guð-
björg, land úr landi Minni-Valla fyrir
heimili mitt sem heitir nú Ósbotn.
Ég er þessu góða fólki ævinlega
þakklátur. Það reyndist mér vel alla
tíð.
Ragnar.
Guðbjörg AuðunsdóttirÓli Jósefsson
✝ Óli Jósefssonvar fæddur í
Sandvíkurseli,
Norðfjarðarhreppi,
4. júní 1924. Hann
lést 26. nóvember
síðastliðinn á
Landakoti.
Óli var sonur
hjónanna Sig-
urbjargar Halldórsdóttur f. 10.7. 1894 í
Gerði, Norðfjarðarhreppi, d. 19.11. 1961
og Jóseps Halldórssonar f. 30.8. 1896 á
Þuríðarstöðum, Eiðaþingá, d. 15.11.1990.
Systkini Óla eru: Árni f. 13.1. 1919, d.
22.5. 1996, Helga f. 13.3. 1920, d. 13.7.
1942, Gunnar f. 4.3. 1921, d. 11.11. 1997,
Laufey f. 20.5. 1935 og Rósa f. 20.5.
1935.
Eftirlifandi eiginkona Óla er Sigurveig
Jakobsdóttir f. 28.11. 1938.
Börn þeirra eru: 1) Bjarni f. 5.11.1969,
kvæntur Sif Ólafsdóttur f. 31.12. 1974,
synir þeirra eru Hákon og Kjartan. 2)
Rósa Björg f. 15.3. 1972, gift Bergsveini
Marelssyni f. 23.3.1970, börn þeirra eru
Jakob Óli og Fanney Birna. 3) Halldór f.
1.3. 1974, í sambúð með Elínu Þóru
Böðvarsdóttur f. 22.1. 1974, börn þeirra
eru Sara og Sævar. Óli ólst upp í Norð-
firði. Hann fluttist til Reykjavíkur og byrj-
uðu þau Sigurveig búskap sinn við
Kleppsveg og hafa þau búið þar síðan.
Óli stundaði sjómennsku á sínum
yngri árum. Eftir að hann fluttist til
Reykjavíkur starfaði hann lengst af hjá
trésmiðjunni Völundi en síðustu starfs-
árin starfaði hann hjá Kassagerð Reykja-
víkur.
Útför Óla fer fram frá Laugarneskirkju
þriðjudaginn 8. desember og hefst at-
höfnin kl. 13.
Meira: mbl.is/minningar
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is – smella á reitinn Senda efni
til Morgunblaðsins – þá birtist val-
kosturinn Minningargreinar ásamt
frekari upplýsingum.
Minningargreinar
✝
GEORG HERMANNSSON
frá Ysta-Mói,
Fljótum,
lést á Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar föstudaginn
4. desember.
Útförin fer fram frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn
12. desember kl. 13.00.
Jarðsett verður í Barðskirkjugarði sama dag.
Systkini og aðrir aðstandendur.
✝
Kær bróðir okkar,
KARL HREIÐAR MIKAELSSON,
Reynihvammi 2,
Hafnarfirði,
lést á St. Jósefsspítala sunnudaginn 29. nóvember.
Útför hans fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
miðvikudaginn 9. desember kl. 13.00.
Jónína Michaelsdóttir,
Laila Michaelsdóttir,
Ásta Michaelsdóttir,
Linda Rós Michaelsdóttir,
Dóra Jóhannesdóttir.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og bróðir,
PÉTUR H. ÓLAFSSON,
Lindargötu 61,
Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítala Landakoti laugar-
daginn 5. desember.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Hrefna Pétursdóttir,
Hugrún Pétursdóttir, Marteinn E. Geirsson,
Pétur K. Pétursson, Anna S. Einarsdóttir,
Ólína Björk Pétursdóttir,
afabörnin og systkini hins látna.✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
HARALDUR ÓLI VALDIMARSSON
kjötiðnaðarmeistari,
Lindasíðu 25,
Akureyri,
lést á Fjórðungssjúkrahúsi Akureyrar föstudaginn
4. desember.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Ólína Lilja Sigurjónsdóttir,
Ragnheiður Haraldsdóttir, Haukur Jóhannsson,
Þórunn Anna Haraldsdóttir, Örn Jóhannsson,
Erla Margrét Haraldsdóttir, Gunnlaugur Þráinsson,
afabörn og langafabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, amma og systir,
KATRÍN HLÍF FELIXDÓTTIR,
Víðihlíð,
Grindavík,
lést föstudaginn 13. nóvember.
Jarðsett var í kyrrþey.
Eðvarð F. Vilhjálmsson, Unnur Birna Þórhallsdóttir,
Róbert M. Vilhjálmsson,
barnabörn og systkini.
✝
Hjartkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og lang-
afi,
SIGVALDI EGILL JÓNSSON,
Jaðarsbraut 29,
Akranesi,
lést á dvalarheimilinu Höfða Akranesi miðviku-
daginn 25. nóvember.
Útförin hefur farið fram.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð,
hlýju og vináttu. Sérstakar þakkir til starfsfólks Höfða.
Ósk G. Halldórsdóttir,
Hilmar Sigvaldason,
Helga Dóra Sigvaldadóttir,
Áslaug Sigvaldadóttir,
Móeiður Sigvaldadóttir, Lárus Vilhjálmsson,
afa- og langafabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, tengdasonur, afi, langafi og bróðir,
ÞÓRARINN BJÖRNSSON
fyrrum bóndi
Sandfellshaga, Öxarfirði,
Ekrugötu 3,
Kópaskeri,
lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga þriðjudaginn
1. desember.
Útförin fer fram frá Skinnastaðarkirkju laugardaginn 12. desember
kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast
hans er bent á Félag eldri borgara í Öxarfjarðarhéraði, reikningur
nr. 1129-26-180, kt. 561105-1110.
Erla Dýrfjörð,
Sigurrós Þórarinsdóttir, Friðbjörn Þórðarson,
Margrét Þórarinsdóttir, Sigurður Oddsson,
Ólöf Þórarinsdóttir,
Björn Hólm Þórarinsson, Erna Þórunn Einisdóttir,
Anna Jóhanna Þórarinsdóttir, Ólafur Sævar Gunnarsson,
Sigþór Þórarinsson,
Rúnar Þórarinsson, Erna Stefánsdóttir,
Hólm Dýrfjörð,
barnabörn, barnabarnabörn
og systkini hins látna.
Minningar á mbl.is
Agnar Þór Hjartar
Höfundar: Birna Íris
og Margrét Hildur
Guðmundur B.
Garðarsson
Höfundur: Rúna Gerður
Stefánsdóttir
Ingibjörg Guðrún
Magnúsdóttir
Höfundur: Hervör Hólmjárn
og fjölskylda
María Gröndal
Höfundur: f.h. Sinawikklúbbs
Hafnarfjarðar, Hafdís
Ólafsdóttir formaður.
Óli Jósefsson
Höfundar: Hákon og Kjartan
Rósa Björg
Ólafía Jakobsdóttir
og fjölskylda Hörgslandi
Sigvaldi Egill
Jónsson
Höfundar: Tinna, Marín
og Bjarki og fjölskyldur
Sören
Sigurður Jökull
Stefánsson
Höfundur: Garðar Smári
Björgvinsson
Tryggva
Guðmundsdóttir
Söebech
Höfundur: Rannveig Björk
Heimisdóttir, Tryggvi Jóhann
Heimisson og Petra Sæunn
Heimisdóttir