Morgunblaðið - 08.12.2009, Blaðsíða 23
góðra ferða þangað með henni.
Eins er ofarlega í huga okkar
systkina ættarmót sem haldið var
sumarið 2007 fyrir austan. Þar
hittust niðjar Sólveigar Unadóttur
og Þorvaldar Bjarnarsonar á Þor-
valdseyri í björtu og fallegu veðri,
rifjuðu upp liðna tíð og áttu frá-
bæran dag saman.
Þegar við rifjum upp árin okkar
með Þóru koma margar skemmti-
legar minningar í hugann. Eitt
skiptið fóru Helga og Þóra á
gömludansakvöld og hittu þar fyrir
Ágúst Pálsson, Landeying, og
dönsuðu við hann til skiptis allt
kvöldið! Þær Þóra hafa oft rifjað
þetta upp og hlegið saman. Eins er
minnisstæð ferð Þóru og Erlu vin-
konu hennar vestur til Ísafjarðar
fyrir aldarfjórðungi. Höfðu þær
fengið landsfrægan pólitíkus að
vestan til að leiðsegja sér og þær
heimsóttu helstu höfuðból fjórð-
ungsins. Höfðu þær því líflega og
skemmtilega ferðasögu að segja
okkur þegar þær komu á Ísafjörð!
Þóra var einstaklega góður vinur
sem gott sem var að leita til. Hún
var traust og vönduð manneskja og
hélt mikla tryggð við okkur systk-
inin alla tíð. Gott var að vita af
góðu sambandi Þóru við dætur sín-
ar, tengdasyni og fjölskyldur
þeirra.
Nú verða ekki fleiri heimsóknir
til Þóru á Aflagranda eða kaffi-
spjall með henni í eldhúskróknum
á Nesvegi. Við söknum góðrar
frænku og þökkum af alhug sam-
fylgdina öll árin.
Legg ég nú bæði líf og önd,
ljúfi Jesús, í þína hönd,
síðast þegar ég sofna fer
sitji Guðs englar yfir mér.
(Hallgrímur Pétursson)
Guð blessi minningu Þóru Þor-
bjarnardóttur.
Helga og Björn Friðriksbörn.
Þóra frænka er fallin frá. Hún
var samofin lífi okkar systkinanna
frá því að við munum eftir okkur,
en Þóra og Guðjón faðir okkar
voru bræðrabörn. Við þau eldri
minnumst sunnudagsheimsókn-
anna á Birkimelinn þar sem Bína
og Þorbjörn, foreldrar Þóru,
bjuggu ásamt henni, Vali eigin-
manni hennar og dætrunum þrem-
ur. Við minnumst einnig heim-
sókna Þóru og Vals til foreldra
okkar, auk annarra fjölskyldusam-
skipta.
Þóra var glæsileg og háttprúð
kona og hlátur hennar var svo
skemmtilegur. Hún var viðræðu-
góð og naut þess að vera meðal
fólks enda geislaði af henni velvild
og glaðværð. Ætíð fylgdist Þóra
vel með okkur systkinunum og
vissi hvað við vorum að gera. Eftir
að við eignuðumst börn vissi hún
líka deili á þeim.
Til marks um hversu mikils met-
in Þóra var hjá okkur má nefna að
þegar eldri systurnar fengu í jóla-
gjöf fyrir margt löngu stórar og
fallegar brúður með hrokkið hár
var strax ákveðið að sú dökkhærða
skyldi heita Þóra og sú ljóshærða
Dísa (eftir „Dísu í flöskunni“).
Fyrir tveimur árum var haldið
veglegt ættarmót austur undir
Eyjafjöllum. Þar var yndislegt að
sjá hversu vel Þóra frænka naut
sín í þessum stóra fjölskylduhópi.
Lagt hafði verið kapp á að halda
mótið meðan núverandi eldri kyn-
slóðar nyti við. Fyrir þátttakend-
urna var þetta ómetanleg helgi þar
sem kynni voru endurnýjuð og
ungir sem aldnir skemmtu sér
saman.
Við viljum þakka Þóru frænku
fyrir samfylgdina og þá alúð og
ræktarsemi sem hún sýndi okkur
og þá sérstaklega Ástu móður okk-
ar, sem mun sakna samskiptanna
og vináttunnar við hana. Þær voru
ófáar rútuferðirnar sem þær fóru
saman víða um Evrópu.
Innilegar samúðarkveðjur til
Ástu Báru, Kristínar, Þórhildar og
fjölskyldna þeirra. Einnig til Ástu
systur Þóru.
Guðlaug Birna, Stefán
Karl, Ásta Jóna, Sigurjón
Þór, Sigurður Þorsteinn og
Karólína Rósa.
Afmæli 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 2009
Í dag verður Dýr-
mundur Ólafsson,
fyrrverandi póst-
fulltrúi, 95 ára. Hann
var fæddur hinn 8.
desember 1914 á
Stóruborg Þver-
árhreppi í Víðidal, V-
Húnavatnssýslu. Þar
bjó hann til 10 ára
aldurs ásamt for-
eldrum sínum þeim
Ólafi Dýrmundssyni
og Guðrúnu Stef-
ánsdóttur. Síðan
flutti fjölskyldan að
Sigríðarstöðum í
Þverárhreppi, V-Hún. Systkini
Dýrmundar eru Signý sem er lát-
in, Margrét Ingunn, búsett í
Reykjavík, og Stefán Haukur, bú-
settur á Ísafirði. Dýrmundur gekk
í barnaskóla í sinni sveit og stund-
aði síðar nám í Reykjaskóla í
Hrútafirði. Dýrmundur byrjaði
snemma að vinna ýmis störf,
þ.á m. sveitastörf, vegavinnu o.fl.
Hann fluttist til Reykjavíkur í
stríðsbyrjun í atvinnuleit og vann
fyrst í vegavinnu hjá hernum um
tíma. Síðan réð hann sig sem lög-
reglumann í Reykja-
vík. Starfaði hann þar
í fimm ár. Síðan fékk
hann vinnu á Pósthús-
inu í Reykjavík og
varð seinna póst-
fulltrúi og gegndi því
starfi lengst af. Dýr-
mundur er afar hag-
mæltur og hafa birst
mörg ljóð og frásagnir
eftir hann í Húnvetn-
ingi, riti Húnvetninga-
félagsins í Reykjavík
og fleiri ritum. Dýr-
mundur er ættfróður
og má rekja ættir
hans í flesta landshluta. Hér kem-
ur vísa sem hann orti um sinn
uppruna.
Birtist í mér Borgfirðingur
býsna mikill Skagfirðingur
þolanlegur Þingeyingur
þó er ég mestur Húnvetningur.
Dýrmundur er félagslyndur og
söngelskur, var lengi í kór Hú-
vetningafélagsins í Reykjavík og
seinna í Skagfirsku söngsveitinni.
Einnig er hann félagi til margra
ára í Framsóknarflokknum í
Reykjavík og er nú heiðursfélagi.
þar. Hann kvæntist 4. september
1943 Guðrúnu Sveinbjörnsdóttur
frá Hnausum í Þingi, A-Hún. Þau
eiga 4 börn, þau eru: Doktor Ólaf-
ur R. Dýrmundsson, Lands-
ráðunautur í lífrænum búskap og
landnýtingu hjá Bændasamtökum
Íslands. Maki Svanfríður Ósk-
arsdóttir, bókasafnsfræðingur og
Íslenskufræðingur MA, vinnur
sem skjalastjóri. Þau eiga fjögur
börn. Kristín J. Dýrmundsdóttir
sjúkraliði. Maki Bjarni O.V. Þór-
oddsson byggingatæknifræðingur.
Þau eiga fjögur börn. Sveinbjörn
Kr. Dýrmundsson grunnskóla-
kennari, maki María Guðbrands-
dóttir myndmenntakennari. Þau
eiga fjögur börn. Gylfi Dýrmunds-
son, rannsóknarlögreglumaður,
grunnskólakennari og heyrnafræð-
ingur. Maki Anna Sigríður Guðna-
dóttir, bókasafns- og upplýsinga-
fræðingur. Þau eiga fjögur börn.
Barnabörnin eru 16 og barna-
barnabörnin 22. Dýrmundur býr
nú á Hrafnistu í Hafnarfirði ásamt
eiginkonu sinni.
Bjarni O.V.
Þóroddsson.
Dýrmundur Ólafsson
✝
Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu okkur samúð
og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengda-
föður, afa, langafa og langalangafa,
GUÐMUNDAR Í. ÁGÚSTSSONAR
útgerðarmanns og skipstjóra,
Vogum,
Vatnsleysuströnd.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkrunar-
heimilisins Víðihlíðar í Grindavík fyrir góða umönnun.
Þórunn Guðmundsdóttir, John Hill,
Lilja Guðmundsdóttir, Jón Ögmundur Þormóðsson,
Andrés Ágúst Guðmundsson, Sædís Guðmundsdóttir,
Þórður Guðmundsson, María Gunnarsdóttir,
Guðrún Guðmundsdóttir,
afabörn, langafabörn og langalangafabörn.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir mín, dóttir okkar og
systir,
ELVA DÖGG PEDERSEN,
Mosarima 12,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju miðviku-
daginn 9. desember kl. 13.00.
Haukur Sigurðsson,
Alexander Hauksson,
Palle Skals Pedersen,
Sæunn Elfa Pedersen,
Daníel Thor Skals Pedersen,
Arnór Ingi Ingvarsson.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns,
föður okkar og tengdaföður,
HALLDÓRS EINARSSONAR
ljósmyndara og hljóðfæraleikara.
Steinþóra Þórisdóttir,
Halldóra Halldórsdóttir Adler, Jeremy Adler,
Anna Birna Halldórsdóttir.
✝
Hjartans þakkir til allra þeirra sem umluktu okkur
með hlýju og samúð við andlát
STEFÁNS JAKOBS HJALTASONAR,
Auðbrekku,
Húsavík.
Sérstakar þakkir til Heilbrigðisstofnunar Húsavíkur
fyrir hlýja og góða umönnun.
María Halldóra Þorsteinsdóttir,
Linda Stefánsdóttir, Árni Geir Þórmarsson,
María Kristbjörg Árnadóttir, Magnús Ingi Gunnarsson,
Þórmar Árnason.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, stjúpfaðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
JÓHANNES J. BJÖRNSSON,
Byggðavegi 90,
Akureyri,
lést fimmtudaginn 3. desember.
Fyrir hönd aðstandenda,
Dagný Sigurgeirsdóttir.
✝
Minn kæri bróðir og frændi,
BIRGIR SIGURÐUR KRISTINSSON
prentari,
lést á dvalarheimilinu Eir sunnudaginn
22. nóvember.
Útförin hefur farið fram.
Guðlaugur Grétar Kristinsson,
Grétar Már Guðlaugsson.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir, dóttir, tengdamóðir
og amma,
LAUFEY EINARSDÓTTIR,
lést sunnudaginn 6. desember.
Útför verður auglýst síðar.
Hannes Ólafsson,
Sigríður Benediktsdóttir,
Hjalti Þór Hannesson, Kristín Guðmundsdóttir,
Ómar Örn Hannesson,
Sigríður Harpa Hannesdóttir, Halldór Sveinsson
og barnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, dóttir, amma og
systir,
SÓLVEIG TRAUSTADÓTTIR,
lést á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja mánu-
daginn 30. nóvember.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju miðviku-
daginn 9. desember kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim
sem vildu minnast hennar er bent á Krabbameinsfélag Íslands.
Magnús Þór Jónsson, Helga Lind Hjartardóttir,
Drífa Þöll Arnardóttir, Gunnlaugur Erlendsson,
Örn Arnarson, Harpa Sif Þráinsdóttir,
Lucinda Hulda Fonseca,
Trausti Magnússon, Hulda Jónsdóttir,
barnabörn og systkini.
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is – smella á reitinn Senda efni
til Morgunblaðsins – þá birtist val-
kosturinn Minningargreinar ásamt
frekari upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Greinar, sem berast eftir að útför
hefur farið fram, eftir tiltekinn skila-
frests eða ef útförin hefur verið gerð
í kyrrþey, eru birtar á vefnum,
www.mbl.is/minningar. Æviágrip
með þeim greinum verður birt í
blaðinu og vísað í greinar á vefnum.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að
senda lengri grein.
Minningargreinar