Morgunblaðið - 08.12.2009, Síða 25
Dagbók 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 2009
Sudoku
Frumstig
3 9 4
2 9 5 1 8
4 1 9 2
8
4
9 8 1
2 5 4
7 3 8
1 5 7 3
5 4
7 3 5
1 6 7
8 1 4
6 9 8
3 5
5 9 7
4 9 6 1
3 1
6
4 3 5
2 1
8
5 3 9 4
1 9 6
2 4 7
9
3 6 8 1 2
9 3 1 8 6 4 5 2 7
2 4 6 7 5 3 1 9 8
7 8 5 9 2 1 6 4 3
1 9 4 6 3 7 8 5 2
5 2 3 1 4 8 9 7 6
6 7 8 5 9 2 4 3 1
3 5 7 4 8 6 2 1 9
4 6 2 3 1 9 7 8 5
8 1 9 2 7 5 3 6 4
2 8 6 9 5 7 4 1 3
1 4 9 6 3 2 8 5 7
5 3 7 4 1 8 9 6 2
7 9 2 5 4 6 3 8 1
8 5 4 1 2 3 7 9 6
3 6 1 8 7 9 5 2 4
6 1 3 7 8 5 2 4 9
4 7 5 2 9 1 6 3 8
9 2 8 3 6 4 1 7 5
6 7 5 2 9 4 8 1 3
4 1 9 3 8 5 2 7 6
8 2 3 1 6 7 9 5 4
5 8 4 6 1 2 3 9 7
9 6 7 8 4 3 1 2 5
1 3 2 5 7 9 6 4 8
3 9 1 4 5 8 7 6 2
2 4 6 7 3 1 5 8 9
7 5 8 9 2 6 4 3 1
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er þriðjudagur 8. desember,
342. dagur ársins 2009
Orð dagsins: Og þótt þér elskið þá, sem yður
elska, hvaða þökk eigið þér fyrir það? Syndarar
elska þá líka, sem þá elska. (Lk. 6, 32.)
Áhöld eru um karlmennsku Vík-verja. Hann hefur ekki áhuga á
jólaljósum. Sú fötlun mun vera afar
fágæt meðal íslenskra karlmanna,
jafnvel einsdæmi. Það fullyrðir all-
tént spúsa Víkverja. Hún brá sér á
dögunum í Húsasmiðjuna til að
skoða útiseríur og þar varð víst ekki
þverfótað fyrir yfirspenntum körl-
um sem „drógu kerlingarnar á eftir
sér,“ eins og spúsan lýsti stemning-
unni. Það mun hafa verið dýrslegur
glampi í augum.
Það hefur verið sjón að sjá!
Síðan reykspóla karlarnir heim,
að sögn spúsu Víkverja, og hanga
fram eftir kvöldi í trjám og þak-
skeggjum til að koma seríunum fyr-
ir. Upplifa sig eflaust sem svar norð-
ursins við Tarsan apabróður.
Holdtekju karlmennskunnar.
x x x
Víkverji er með böggum hildareftir þessa áminningu. Fram að
þessu hefur hann álitið að karl-
mennska fælist í því að éta baulandi
nautasteikur, lyfta lóðum, horfa á
knattspyrnu og hlusta á Slayer. Það
dugar greinilega skammt þegar
áhugi á jólaljósum er ekki fyrir
hendi. Sá áhugi er hinn endanlegi
mælikvarði á pungstærð manna.
Þar sem Víkverja er annt um karl-
mennsku sína óð hann rymjandi út í
garð eitt kvöldið í síðustu viku til að
aðstoða spúsuna við að þekja trén
með jólaljósum. Þar sem sjálfsmatið
var á þessum tímapunkti lágt velti
hann fyrir sér að vera ber að ofan en
fyrst engir áhorfendur voru að
gjörningnum fór hann í gömlu góðu
dúnúlpuna. Hún er svo notaleg þeg-
ar stirnir á hjarnið.
x x x
Þar sem Víkverji er nýgræðingurí jólaljósaskreytingum réð
spúsan ferðinni en Víkverji liðsinnti
henni af kostgæfni og fylgdist
grannt með. Ekki er laust við að
egóið hafi risið lítið eitt við þetta en
betur má ef duga skal og fyrir næstu
jól er Víkverji staðráðinn í að hafa
umsjón með jólaljósunum sjálfur og
draga spúsu sína á eftir sér í Húsa-
smiðjunni – eins og sönnu karlmenni
sæmir. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 lengja, 8 sólar,
9 þegjandalegan, 10
málmur, 11 nabbinn, 13
hugsa um, 15 sárið á ós-
lægjunni, 18 brókarlalli,
21 fugl, 22 syllu, 23
skattur, 24 lyddan.
Lóðrétt | 2 rík, 3 yndi, 4
heitis, 5 snaginn, 6 kven-
fugl, 7 röska, 12 leðja, 14
reið, 15 sæti, 16 hæð-
irnar, 17 vondum, 18 lít-
inn, 19 kæri, 20 straum-
kastið.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 slagi, 4 senna, 7 orðan, 8 aldan, 9 agg, 11 torf,
13 ásar, 14 ráðin, 15 skrá,17 arfi, 20 enn, 22 ofnar, 23
ýldan, 24 maula, 25 alinn.
Lóðrétt: 1 skort, 2 arður, 3 iðna, 4 stag, 5 nadds, 6 ang-
ar, 10 góðan, 12 frá, 13 ána, 15 storm, 16 rennu, 18
ræddi, 19 innan, 20 erta, 21 nýta.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. Rf3 c5 2. e4 e6 3. c3 Rf6 4. e5 Rd5 5.
c4 Rc7 6. b3 Rc6 7. Bb2 Be7 8. Bd3 O-O
9. Ra3 f6 10. Db1 f5 11. O-O b6 12. Rb5
Rxb5 13. cxb5 Rb4 14. Bc4 Bb7 15. a3
Rd5 16. Re1 Rf4 17. f3 g5 18. g3 Rh3+
19. Kg2 g4 20. Be2 De8 21. d3 Dh5 22.
Bc1 Hf7 23. Be3 Haf8 24. Dd1 Hg7 25.
Kh1 f4 26. Bf2 Rxf2+ 27. Hxf2 fxg3 28.
Hg2 Hxf3 29. Kg1 gxh2+ 30. Hxh2
Hg3+ 31. Rg2
Staðan kom upp á alþjóðlegu móti
sem lauk fyrir skömmu í Belgrad í
Serbíu. Snorri G. Bergsson (2348)
hafði svart gegn Slavko Dedic (1975).
31… Dxh2+! 32. Kxh2 Hxg2+ 33. Kh1
Hxe2+ svartur hefði einnig mátað eftir
33…Hg5. 34. Kg1 Hg2+ 35. Kf1 Hf7+
36. Ke1 Bh4 mát. Alls tóku sex íslensk-
ir skákmenn þátt í mótinu og stóð Dag-
ur Arngrímsson (2375) sig best þeirra.
Svartur á leik og mátar í nokkrum
leikjum.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Tvímenningur.
Norður
♠ÁD73
♥G103
♦D108
♣Á53
Vestur Austur
♠1095 ♠G8
♥K95 ♥872
♦9754 ♦G62
♣K74 ♣DG982
Suður
♠K642
♥ÁD64
♦ÁK3
♣106
Suður spilar 3G.
Hvernig á norður að bregðast við
opnun makkers á grandi? Ekki minni
maður en Zia Mahmood hunsaði fjórlit-
inn í spaða og stökk beint í 3G. Og það
gerðu víst fleiri þegar spilið komu upp
nýlega í hinni virðulegu tvímennings-
keppni um Bláa borðann á haustleik-
unum í San Diego. Makker Zia var
hinn norski Boye Brogeland. Boye
fékk út ♠10 og ellefu slagi. Það gaf vel,
enda ekki meira að hafa í spaðasamn-
ingi. Hitti vestur hins vegar á lauf-
útspil verður sagnhafi að dúkka tvisvar
til að ná í tíu slagi. Sem er vafasöm
spilamennska í tvímenningi. Skárra er
að treysta á ♥K réttan og spila grimmt
upp á tólf slagi. Einn sagnhafi fór flatt
á 3G þrátt fyrir ♠10 út. Sá tók á ♠K
heima og austur lét gosann! Suður spil-
aði spaða um hæl og djúpsvínaði sjö-
unni. Óheppinn.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Sterk löngun til ferðalaga hefur
gert vart við sig. Vertu ekki upp á aðra
komin/n fjárhagslega. Mundu að það er
betra að þurfa ekki að þræta fyrir hlutina.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Ekki slaka á þótt vel gangi, haltu
þínu striki og láttu hlutina komast á skrið.
Gefðu þér góðan tíma og rasaðu ekki um
ráð fram.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Vinir sem hafa náð langt geta
verið býsna hvetjandi. Uppörvandi tjá-
skipti við einhvern í vinahópnum gætu
verið upphafið að löngu og frjósömu sam-
bandi.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Í vændum er skemmtilegur og líf-
legur tími. Slakaðu á og dekraðu við þig
því þú skiptir mestu máli í þínu lífi.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þér finnst engu líkara en þér sé hald-
ið í heljargreipum. Tækifæri til að lina
takið kemur samt, gríptu það. Gamall vin-
ur hefur samband.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Gáskafull manneskja færir þér
heppni í dag. Óvæntir endurfundir eru í
kortunum, grænn er þinn happalitur
þennan mánuðinn.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Eirðarleysi hrjáir einhvern vin þinn.
Þú getur gert heilmikið til að breyta því.
Notaðu hugmyndaflugið, það er svo frá-
bært hjá þér.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Farðu varlega, þegar þú
kemst að leyndarmáli um einn vinnu-
félaga þinn. Stutt ástarævintýri leiðir til
nýrri og betri tengsla, meira að segja áð-
ur en þér gefst ráðrúm til að sjá eftir því.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Fólk bregst furðulega við vel-
gengni þinni. Gerðu ráð fyrir einhverju
óvæntu og reyndu að fyrirbyggja slys.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú hefur mikla hæfileika til
þess að ná árangri í fjármálum. Reyndu
að kynnast nýjum vinnufélaga betur, þið
eigið meira sameiginlegt en þú heldur.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þetta er góður tími til að gera
alvarlegar skuldbindingar, sem varða
framtíðina. Vinur þinn biður þig um hjálp
sem þú efast um að þú getir veitt.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú hefur mikinn sjálfsaga og gerir
stundum of miklar kröfur til þín. Enginn
er fullkominn. Börn laðast að þér þessa
dagana.
Stjörnuspá
8. desember 1936
Listverslun var opnuð í Reykja-
vík og þótti það tíðindum sæta.
Þar voru seld verk margra af
þekktustu listamönnum bæj-
arins. „Það hefur skort hér að
til væri staður þar sem lista-
menn gætu sýnt verk sín og
menn fengið tækifæri til þess
að kaupa þau,“ sagði í Vísi.
8. desember 1944
Skútuöldin eftir Gils Guð-
mundsson kom út. „Í riti þessu
er samankominn geysimikill
fróðleikur um þilskipaútveg Ís-
lendinga og mikill fjöldi manna
kemur þar við sögu,“ sagði í Al-
þýðublaðinu.
8. desember 1967
Dýrin í Hálsaskógi, leikrit
Thorbjörns Egner, kom út á
hljómplötu. Síðar kom það á
snældu og loks á geisladisk.
8. desember 1971
Samkomulag var undirritað
milli Íslands og Kína um stjórn-
málasamband ríkjanna. Sendi-
ráð var opnað í Reykjavík árið
eftir.
8. desember 2007
Friðarstund var í Viðeyj-
arkirkju og síðan gengu um
hundrað manns með kyndla að
Friðarsúlunni þegar kveikt var
á henni í síðasta sinn á árinu. Á
þennan hátt var þess minnst að
27 ár voru síðan John Lennon
var myrtur.
8. desember 2008
Sjö voru handteknir eftir ólæti
í Alþingishúsinu. Morgunblaðið
sagði atvikið ekki eiga sér hlið-
stæðu.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
„Ég býð allavega fjölskyldunni í kaffi, en við bíð-
um aðeins með stórveisluna. Maðurinn min er ný-
orðinn fertugur þannig að við eigum eftir að halda
upp á það saman,“ segir Lísa Bjarnadóttir dýra-
læknir sem er fertug í dag. Aðeins tvær vikur eru
á milli afmæla Lísu og mannsins hennar svo það
liggur beint við að þau haldi upp á tímamótin sam-
an og verður það ekki í fyrsta skipti. „Við héldum
upp á 25 ára afmælið saman í Berlín á sínum tíma,
það var svona fjölþjóðlegt og rosalega gaman,“
segir Lísa sem lærði til dýralæknis í Þýskalandi.
Lísa á nú og rekur Dýraspítalann í Víðidal
ásamt fimm öðrum. Hún segir starfið skemmtilegt í alla staði. „Ég er
náttúrulega mikil dýramanneskja og það að vera í kringum dýr gefur
manni mikið. Þetta er oft á tíðum erfitt en að sama skapi oft þakklátt
og gefandi þegar vel gengur.“ Dýraáhuginn nær lengra en til loka
vinnudagsins því fjölskyldan öll er mikið hunda- og hestafólk, þau
eiga tvo hunda og ríða reglulega út saman auk þess sem þau skella sér
oft saman á snjósleða á veturna. Þegar útivistinni sleppir á Lísa sér
ýmis önnur áhugamál, hún sökkvir sér t.a.m. í bóklestur og spilar auk
þess tennis tvisvar í viku „með frábærum konum“. una@mbl.is
Lísa Bjarnadóttir dýralæknir er 40 ára
Mikið hunda- og hestafólk
Nýirborgarar
Reykjavík Fanney Brynja
fæddist 23. maí kl. 1.16.
Hún vó 3.120 g og var 49
cm löng. Foreldrar henn-
ar eru Bryndís Alfreðs-
dóttir og Styrmir Guð-
mundsson.
Akureyri Ingimar Eyberg
fæddist 7. maí kl. 21.53.
Hann vó 4.300 g og var 54
cm langur. Foreldrar
hans eru Inga Dóra Ingi-
marsdóttir og Ingólfur
Jón Geirsson.
Japan Katsuko og Leifi
Sigurðssyni fæddist dóttir
15. september. Hún vó
4.600 g og var 46 cm löng.