Morgunblaðið - 08.12.2009, Side 26
26 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 2009
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
Æ,
NEI
ÉG VIL EKKI VERA
LIFANDI „PIÑATA“
NO HABLO
ISLANDÉS,
SEÑOR
MÉR ÞYKIR
ÞAÐ LEITT,
EN ÉG ER
HÆTTUR
HAFNABOLTA-
SÁLFRÆÐI
MÉR ÞYKIR ERFITT AÐ VERA
Í LIÐI SEM TAPAR ALLTAF...
ÞAÐ ER NIÐURDREPANDI.
ÉG VERÐ AÐ FÁ AÐ VINNA
VIÐ OG VIÐ, ÓLÍKT ÞÉR
ÉG HELD AÐ ÞÚ FÁIR
EITTHVAÐ ÚT ÚR ÞVÍ
AÐ TAPA ALLTAF
„ÉG ER
FARINN!“
ÉG SAGÐI PABBA
ÞÍNUM AÐ MAMMA MÍN
VÆRI Á LEIÐINNI
OG HVAÐ
SAGÐI
HANN?
HÉRNA Í MEÐFERÐINNI
ER FÓLK MEÐ ALLS
KONAR VANDAMÁL
JÁ, ÞETTA
ER ANSI
SORGLEGT
ÞEIR DRÁPU KENNY!
ÉG ER AÐ SEGJA
ÞÉR ÞAÐ! ÞEIR
DRÁPU HANN! ÞEIR
DRÁPU KENNY!
SUMIR ERU MEÐ ALLS
KONAR SAMSÆRIS-
KENNINGAR
KENNY G?
ÉG FÓR OG NÁÐI Í
SENDINGU VIKUNNAR
FRÁ BÓNDANUM
FLOTT! ÞAÐ BESTA VIÐ AÐ FÁ
ALLTAF FERSKT GRÆNMETI
Í HVERRI VIKU ER AÐ
ÞAÐ HVETUR MIG TIL
AÐ ELDA OFTAR
SAMT SÉR
EKKI HÖGG
Á VATNI
ÍSSKÁPURINN
ER ANSI
FULLUR
HÉRNA ER SMÁ FLJÓTANDI
KÖFNUNAREFNI!
Æ, NEI!
ÞAÐ GERIR
VEFINN MINN
BROTHÆTTAN
NÚNA BRÝT ÉG HANN
EINS OG GRÝLUKERTI!
ÉG BJÓST
EKKI VIÐ
ÞESSU
Eru þetta
mannréttindi?
MEÐ mér vinnur full-
orðin kona sem vildi
senda barnabörnum
sínum sem búsett eru í
Bandaríkjunum, 25$
hvoru, samtals 50$.
Þegar hún hugðist
kaupa gjaldeyri í banka,
var hún beðin um að
framvísa flugfarseðli.
Konan brást hvumsa
við, hún væri ekki á leið
úr landi en vildi aðeins
gleðja barnabörn sín
um jólin með þessu
smáræði. Nei, því mið-
ur, var svarið, þú getur ekki keypt
gjaldeyri nema þú sért á leið úr landi.
Við hjónin erum nýlega komin heim
frá útlöndum og máttum fyrir brott-
för kaupa gjaldeyri að andvirði
500.000 krónur hvort, sem við not-
færðum okkur ekki nema að hluta til.
Einnig hefðum við getað bruðlað með
gjaldeyri með kreditkortunum, án
þess að nokkur skipti sér af. Því er
mér spurn, á endalaust að refsa þeim
er síst skyldi. Er ekki verið að hengja
bakara fyrir smið? Hvernig væri að
stjórnvöld veittu fólki leyfi til að
kaupa slíkt lítilræði af gjaldeyri án
málalenginga? Eru það ekki mann-
réttindi?
EMH.
Mataraðstoð
NÚ, þegar margir í þjóðfélaginu eiga
ekki fyrir mat út mánuðinn, langar
mig til að koma eftirfar-
andi hugmynd á fram-
færi og ég er viss um að
margir geta notað hana
vilji þeir hjálpa til. Ég
þekki fjölskyldu sem
þarf að lifa á lægstu
tekjum/bótum og oft
hefur verið erfitt á því
heimili. Í fyrrahaust
sagði móðirin mér að
hún hefði þurft að fá
mataraðstoð hjá Fjöl-
skylduhjálpinni. Það
voru henni þung spor.
Síðan þá, yfirleitt þegar
vika er eftir að mán-
uðinum, fer ég í verslun
og set í poka mat sem
ég veit að dugir vel til mánaðamóta.
Ég skora á þá sem eru aflögufærir,
og það eru margir, að létta undir með
fólki á þessum síðustu og verstu.
Yoka.
Snúum sorg í gleði?
RAGNA vill koma þeirri hugmynd á
framfæri vegna skrifa Sigrúnar
Reynisdóttur í Velvakanda 5. desem-
ber sl. að Sigrún bjóði nokkrum bóta-
þegum í mat til sín um jólin. En Sig-
rún fjallaði um þá sem þurfa að lifa af
115 þúsund króna bótum á mánuði og
að hún væri að hugsa um að sleppa
því að halda jólin, hún gæti ekki hugs-
að sér að sitja yfir kræsingum á með-
an aðrir liðu skort.
Ást er…
… að gefa henni óvænta
afmælisgjöf.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Opin Vinnustofa kl. 9-
16.30, vatnsleikfimi Í Vesturbæjarlaug
kl. 10.50, postulín kl. 13, lestrarhópur
kl. 14.
Árskógar 4 | Bað kl. 8.15-16, handa-
vinna og smíði/útskurður kl. 9-16.30,
leikfimi kl. 9, boccia 9.45.
Bólstaðarhlíð 43 | Myndvefnaður, línu-
dans kl. 13.30, handavinna, böðun.
Dalbraut 18-20 | Opin vinnustofa kl. 9-
12, félagsvist og framsögn kl. 14.
Dalbraut 27 | Opin handavinnustofa kl.
8-16, video kl. 14.
Digraneskirkja | Leikfimi ÍAK kl. 11,
jólafundur kl. 12.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Skák
kl. 13, félagsvist kl. 20.
Félagsheimilið Gjábakki | Leikfimi
9.05 og 9.55, gler- og postulín 9.30,
jóga 10.50, alkort 13.30 og aðventugleði
Glóðar kl. 20; tónlist í umsjón Jan Kjell
Seljeseth og Helga Jónssonar veitt við-
urkenning, Sveinn Kristjánsson og Elín
Ebba Ásmundsd. flytja erindi, veitingar.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Vefn-
aður kl. 9, jóga og myndlist kl. 9.30,
ganga kl. 10. Hátíðardagskrá kl. 14, kór
Snælandsskóla syngur, Vilborg Davíðs-
dóttir les úr bók sinni og Jónas Þórir pí-
anóleikari og Jónas Þ. Dagbjartsson
fiðluleikari leika nokkur lög. Jóga kl. 18.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Vatnsleikfimi kl. 9.40, trésmíði, gler og
leir kl. 9. Leshringur kl. 10.30, búta-
saumur, trésmíði, línudans, opið hús í
kirkjunni og karlaleikfimi kl. 13, botsía
kl. 14, Bónusrúta frá Jónshúsi kl. 14.45.
Félagsstarf Gerðubergi | Leikfimi í ÍR
heimilinu, vinnustofur kl. 9-16.30, m.a.
gler og perlusaumur, stafaganga kl.
10.30. Á morgun kl. 10.15 kemur Álf-
heiður Ingadóttir heilbrigðisráðh. í
heimsókn.
Furugerði, félagsstarf | Basar kl. 15-
17.
Grafarvogskirkja | Opið hús kl. 13.30.
Helgistund, spilað og spjallað. Veitingar.
Hraunsel | Rabb kl. 9, myndmennt og
qi-gong kl. 10, leikfimi kl. 11.30, bolta-
leikfimi og brids kl. 12, myndmennt og
gler kl. 13, vatnsleikfimi kl. 14.10.
Hvassaleiti 56-58 | Bútasaumur kl. 9,
lífsorkuleikfimi kl. 9 og 10, myndlist kl.
13, helgistund kl. 14, stólaleikfimi kl. 15.
Böðun fyrir hádegi.
Íþróttafélagið Glóð | Línudans í Kópa-
vogsskóla – framhald kl. 14.30 og byrj-
endur kl. 16.15.
Korpúlfar Grafarvogi | Aðventufundur
á morgun kl. 13.30 á Korpúlfsstöðum.
Laugarból, Íþr.hús Ármann/Þróttur
Laugardal | Leikfimi kl. 11.
Vesturgata 7 | Aðstoð v/böðun kl. 9-
12, enska kl. 10.15, handavinna kl. 9.15-
16, matur, spurt og spjallað, leshópur,
bútasaumur og spilað kl. 13, veitingar.
Óskar Pétursson syngur kl. 14.30. Veit-
ingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja,
bútasaumur, morgunstund, leikfimi,
gler, upplestur, handavinna, félagsvist
kl. 14.
Pétur Stefánsson fylgist meðþjóðfélaginu í mánaskininu:
Þó máninn glotti fullur og fagur,
fólksins batnar ekkert hagur.
Að afla bjargar og brauðs er slagur
því bankarnir þeir lána ei neitt.
Aðstoð lítil er hér veitt.
Horfinn á braut er bjartur dagur,
bíður oss nóttin þekka.
Á svona stundu dýrðlegt er að drekka.
Hólmfríður Bjartmarsdóttir eða
Fía á Sandi tekur í svipaðan streng:
Þó vor æska endist skammt
og ellin verði brekka
er um að gera að ærslast samt
og eiga nóg að drekka.
Og Kristján Gaukur Kristjánsson
tekur að sér að túlka boðskapinn:
Aldrei þó að áfengið mig ölvað hafi
á því telst samt enginn vafi
að mann hressir berjasafi.
Sigrún Haraldsdóttir orti á hag-
yrðingakvöldi Iðunnar:
Í hljóði hefur Hlöðver mjög þráð
að hlotnist sér örlítil náð
og að frúin hans þegi,
flytji eða deyi
því hún er svo helvíti bráð.
Hjálmar Jónsson færði Halldóri
Blöndal bók sína Hjartslátt og hann
þakkaði fyrir sig með vísu:
Í bókina gægðist Gabríel
gramdist prestsins villa:
„Kersknisvísur kann hann vel
en kristnu fræðin illa.“
Vísnahorn pebl@mbl.is
Af æsku, elli og brekku