Morgunblaðið - 08.12.2009, Qupperneq 27
Menning 27FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 2009
Morgunblaðið/RAX
Niflungahringurinn eftir Wagner Uppfærsla Listahátíðar í Reykjavík 1994 var samvinnuverkefni
Þjóðleikhússins, Íslensku óperunnar, Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Wagnerhátíðarinnar í Bayruth.
Selma segir að með íslenska Niflungahringnum
séum við með mjög gott efni í höndunum.
„Hringinn ætti að setja upp á hverju ári á Ís-
landi og laða að ferðamenn. Wagnerfélagið
beitti sér fyrir rannsóknum Árna Björnssonar
sem komu út í bókinni Wagner og Völsungar ár-
ið 2000. Við létum þýða hana bæði á ensku og
þýsku. Ég sendi Lepage bókina, og fékk svar
frá aðstoðarkonu hans sem sagði hann óskap-
lega þakklátan fyrir hana.“
Frelsaði Wagner frá hefðinni
Selma segir þessar tengingar Niflungahrings-
ins við Ísland stórmál fyrir landið og mikla land-
kynningu. „Við þurfum að notfæra okkur þetta
til kynningar á landinu. Efnið sem Wagner sótti
hingað í Niflungahringinn er stærsta framlag
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
AF 44 uppfærslum á Niflungahringnum sem
hann hefur séð, er uppfærslan á Íslandi sumarið
1994 ein sú allra besta. Þetta segir óperusér-
fræðingurinn og höfundar bókarinnar Opera
101, Freds Plotkins, í samtali við New York
Times. Og Plotkin er sérfræðingur í verkum
tónskáldsins, Richards Wagners.
Hringurinn annar á Íslandi
Annar Wagner-sérfræðingur, leikstjórinn Ro-
bert Lepage, sem nú hefur verið ráðinn til Met-
ropolitanóperunnar í New York til að setja Nifl-
ungahringinn upp eftir að síðasta uppfærsla
hefur verið á sviðinu í 23 ár, segir í viðtali við
Wall Street Journal, að hann muni sækja inn-
blástur í nýju uppsetninguna til Íslands.
„Landafræði og jarðfræði heilla mig og ég fer
þangað oft [ til Íslands]... Wagner notaði ís-
lensku fornkvæðin og hafnaði þar með grískum
og ítölskum goðsögnum til að skapa tengsl við
þær germönsku og norrænar rætur. Ísland er
önnur pláneta, heimur í eigin heimi. Landið er
suðupottur; gríðarleg jökulhella yfir heitum
jarðsprungum. [...] Þegar maður hugsar um
Niflungahringinn á Íslandi, þá er hann ekki það
sama og hann er annars staðar,“ segir Lepage.
Afkomandinn átti hugmyndina
Selma Guðmundsdóttir formaður Wagner-
félagsins á Íslandi segir að íslenska útgáfan á
Niflungahringnum í leikstjórn Þórhildar Þor-
leifsdóttur, í styttri útgáfu virðist enn vekja um-
tal þótt 15 ár séu liðin frá uppfærslunni. „Það
þótti mjög merkilegt þá, að uppástungan að
þessari styttu gerð verksins skyldi koma frá
Wolfgang Wagner í Bayreuth. Því hefði enginn
trúað. Hann kom hingað og lagði blessun sína
yfir þetta. Krítíkin í erlendum blöðum um sýn-
inguna í Þjóðleikhúsinu var líka ofboðslega lof-
samleg, bæði í þýskum blöðum, norrænum blöð-
um og í stóru óperublöðunum.“
Wagner hátíðin í Bayreuth laðar að sér þús-
undir gesta ár hvert alls staðar að úr heiminum.
Íslands til tónlistarsögunnar. Wagner sagði
sjálfur að hann hefði aldrei skrifað óperu um
Siegfried ef hann hefði bara þekkt hann úr Nifl-
ungaljóðinu þýska. Sú staðreynd að söguefnið
eins og það varðveittist á Íslandi var óbundið
bæði stað og tíma var mjög mikilvægt og frá-
sagnir Snorra-Eddu úr goðafræðinni höfðu
hreinlega ekki varðveist annars staðar. En þetta
voru ekki bara áhrif á efnistökin, heldur líka
tónmálið. Hann losnaði úr klafa þess reglu-
bundna ljóðmáls sem var alfarið ríkjandi í
Þýskalandi á þeim tíma þar sem allt var rytm-
ískt. Tónskáld fóru ósjálfrátt í fastan farveg
þegar þau sömdu við þau. Það frelsaði Wagner
að finna þessi ljóð sem eru líkari talmáli og í
óreglulegri hrynjandi. Þetta var það sem hann
vildi gera.“
Tengsl Íslands og Niflungahrings Wagners ætti að nýta til landkynningar
Framlag til tónlistarsögunnar
MYND Egils Helgasonar
sjónvarpsmanns um Ólaf
Ólafsson kristniboða verður
sýnd í Öskju – nátt-
úrufræðahúsi Háskóla Ís-
lands í dag kl. 17.15. Ólafur
var kristniboði í Kína um 14
ára skeið á árunum 1921 til
1937. Hann ferðaðist víða í
hinu nýstofnaða en óstöð-
uga kínverska lýðveldi en
dvaldi einkum í fylkjunum Henan og Hubei
inni í miðju landi á róstusömum tímum í land-
inu. Egill kynnir þessa mynd um afa sinn
stuttlega áður en hún verður sýnd, en sýning-
artími er 40 mínútur.
Kvikmyndir
Ólafur kristniboði
í Öskju í dag
Egill Helgason
ÞRÁNDUR Þórarinsson
listmálari er með einkasýn-
ingu á Hverfisgötu 18a þar
sem áður var 101 gallerí.
Þrándur tók bílpróf í fyrra
og hugðist láta gamlan
draum rætast, ferðast um
landið og mála merkisstaði.
En draumurinn endaði þar
sem hann hófst, á vinnu-
stofu listamannsins í mið-
borginni, þar sem hann
málaði 12 olíumálverk upp úr Áföngum, ferða-
kvæði Jóns Helgasonar frá 1939. Þrándur sýn-
ir fleiri málverk þar sem viðfangsefni eru m.a.
Tyrkaránið, Manntalið 1703, og Geysir.
Myndlist
Þrándur sýnir
Áfanga og fleira
Þrándur
Þórarinsson
„EF vel gengur,
þá vill maður
reyna að byggja
það upp, og það
var þörf á kór
fyrir stúlkur á
þessum aldri,“
segir Eyþór Ingi
Jónsson kantor í
Akureyrar-
kirkju, en annað
kvöld kl. 20 hefur nýr kór, Ísold,
upp raustina í Akureyrarkirkju.
Við kirkjuna starfa auk Kórs
Akureyrarkirkju, Kammerkórinn
Hymnodia, tveir barnakórar og
Stúlknakór Akureyrarkirkju sem
skipaður er stúlkum á aldrinum 13
- 19 ára. Í Ísold eru 33 ungar kon-
ur á aldrinum 17 - 25 ára.
„Stúlknakórsstarfið hefur verið
mjög öflugt og sterku árgangarnir
í þeim kór eru núna 18 - 19 ára.
Þær eru ekki allar tilbúnar til að
fara í kirkjukórinn. Þessar stelpur
missir maður úr kórastarfi og söng
ef maður býr ekki til vettvang fyr-
ir þær,“ segir Eyþór.
Ísold hefur ekki starfað nema í
rúma tvo mánuði, en vakti mikla
athygli fyrir söng sinn á degi ís-
lenskrar tungu í nóvember, þar
sem hann kom fram við afhend-
ingu verðlauna Jónasar Hallgríms-
sonar.
„Við verðum með klassískt pró-
gram á tónleikunum annað kvöld,
jólalög sem allir þekkja. Einsöngur
og hljóðfæraleikur er í höndum
stelpnanna sjálfra.“ begga@mbl.is
Ísold mætir þörf
Nýr kór, Ísold, tekur til starfa við Akureyrar-
kirkju og heldur jólatónleika annað kvöld
Eyþór Ingi Jónsson
ÍTALSKA lögreglan hefur gert
upptæk 19 málverk af heimili
ítalska kaupsýslumannsins Calisto
Tanzi.
Tanzi stofnaði á sínum tíma
mjólkurbúið Parmalat, en var
dæmdur fyrir margháttuð fjársvik
og stórfellt skjalafals í tengslum við
gjaldþrot fyrirtækisins árið 2003.
Tanzi hafði þráfaldlega neitað
því að eiga málverk eftir Picasso,
Degas og Vincent van Gogh og
fleiri mestu meistara myndlistar-
innar í gjaldþrota búi sínu.
Eftir að lögreglan fékk vísbend-
ingar um að verið væri að reyna að
selja eitt verkanna voru símar
Tanzis hleraðir og þótti þá sannað
að hann væri raunverulegur eig-
andi þeirra. Málverkunum hafði
hann komið fyrir á heimilum vina
og vandamanna en verðmæti þeirra
er talið að meira en nítján millj-
arðar króna.
Málverkið sem Tanzi reyndi að
selja var eftir Monet, málað í Pour-
ville og átti það að kosta um tvo
milljarða króna.
Tanzi var í fyrra dæmdur til tíu
ára fangelsisvistar, en áfrýjaði
dómnum og beið þess nú að mál
hans yrði tekið upp að nýju. Þá eru
enn í gangi málaferli gegn honum
vegna fjársvika í Parmalat.
Gengið að
listaverkasafni
fjársvikara
Tanzi Fær að líkindum þyngri dóm nú.
ALLIANCE Française og
Bókaútgáfan Opna bjóða til
bókarkynningar að
Tryggvagötu 8 kl. 20 í
kvöld, í tilefni af endur-
útgáfu og endurritun El-
ínar Pálmadóttur á bók
sinni Fransí Biskví –
franskir fiskimenn við Ís-
landsstrendur. Elín segir
frá bók sinni og heim-
ildaöflun en bókin hlaut mikið lof á Íslandi og
var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverð-
launanna þegar hún var fyrst gefin út.
Frönsku sjómennirnir eru fyrir löngu orðnir
þjóðsagnapersónur í báðum löndunum.
Bókmenntir
Fransí Biskví
kynnt í kvöld
Elín Pálmadóttir
HÁTÍÐ í Bæ nefnast jóla-
tónleikar sem haldnir verða
annað kvöld, miðvikudags-
kvöld, í Iðu, íþróttahúsi
Fjölbrautaskóla Suður-
lands á Selfossi og hefjast
klukkan 20.00.
Á tónleikunum verða fjöl-
breytileg jólalög leikin, en
flytjendur eru Eldri barna-
kór og Unglingakór Sel-
fosskirkju, Páll Óskar og
Monika, Herdís Rútsdóttir, Diddú, Karlakór
Selfoss, Egill Ólafsson og Ragnheiður Blöndal.
Þá má búast við óvæntum gestum. Kynnir á
tónleikunum verður Guðni Ágústsson.
Tónlist
Jólatónleikar
á Selfossi
Diddú verður
meðal flytjenda.
Fjölskylduhjálp Íslands
Neyðarkall
frá Fjölskylduhjálp Íslands
Hátt í 16000 einstaklingar eru nú án atvinnu auk þeirra þúsunda, sem
minna mega sín í þjóðfélaginu. Stór hópur þessa fólks reiðir sig á að-
stoð Fjölskylduhjálparinnar nú um hátíðirnar.
Tökum höndum saman og leggjum okkar að mörkum til að allir geti
haldið gleðileg jól.
Tekið er á móti matföngum að Eskihlíð 2-
4 í Reykjavík þriðjudaga kl. 9-13, miðviku-
daga kl. 9-18 og fimmtudaga kl. 9-13. Símar
Fjölskylduhjálparinnar eru 551 3360 og 892
9603. Einnig er tekið á móti framlögum á
reikningi Fjölskylduhjálpar Íslands bnr.
101-26-66090, kt. 660903-2590. Netfang:
fjolskylduhjalp@simnet.is