Morgunblaðið - 08.12.2009, Qupperneq 28
28 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 2009
Nú fá frændur vorir kærir á eyj-
unum átján að njóta hinnar ein-
stöku stemningar sem lék um bar-
inn goðsögulega Sirkus en hann
hefur verið endurreistur í Þórs-
höfn. Síða honum til heiðurs hefur
verið sett upp á Fésbókinni þar sem
kemur m.a. fram að hann er stað-
settur í Grím Kambans Gøtu 2. Það
er eitthvað skrítið við þetta …
Brjáluð Sirkus-
stemning í Færeyjum
Fólk
„Á PLÖTUNNI eru tíu ný íslensk popplög, sungin á ís-
lensku, sem væri hægt að lýsa sem melódísku millitempói.
Þetta var ákaflega skemmtilegt verkefni að vinna og ég
er virkilega ánægður með útkomuna,“ segir tónlistarmað-
urinn Sigurjón Brink um nýútkomna sólóplötu sína
sem ber nafnið Sjonni Brink. Þetta er fyrsta sóló-
plata Sigurjóns sem hefur þó gefið út nokkrar
plötur áður með hljómsveitum.
„Ég vann plötuna með Guðmundi Jóns-
syni úr Sálinni. Þegar ég söng lag eftir
hann í Laugardagslögunum fyrir tveim-
ur árum kom kveikjan að okkar sam-
starfi og við ákváðum að gera eina
plötu saman. Lögin eru eftir okkur báða
en hann samdi textana og pródúseraði
plötuna, var tónlistarstjóri verkefnisins,“
segir Sigurjón. Hann syngur og spilar á gítar á plötunni,
á trommur leikur Benedikt Brynleifsson, Birkir Kárason
er á bassa og Pálmi Sigurhjartarson á píanó. Sigurjón
gefur plötuna út sjálfur og er hún til sölu í Hagkaups-
verslununum.
„Ég kem svo til með að fylgja henni eftir með spila-
mennsku út um allt. Það er best að fylgjast með því hvar
ég verð á á Facebook-síðunni minni, www.facebook.com/
sjonnibrink.“
Sigurjón er með margt á döfinni og meðal annars fá
landsmenn að fylgjast með honum í Söngvakeppni Sjón-
varpsins eftir áramót.
„Ég ákvað að senda inn í keppnina eitt gamalt lag
frá mér og það komst inn svo ég verð með í ár með
eigið lag og flyt það sjálfur,“ segir Sigurjón að lokum.
ingveldur@mbl.is Svo virðist sem hinum geðþekka
Ástrala Ben Frost verði eigi vísað
úr landi ef rýnt er nægilega vel í
óskiljanlegt tæknital utanríkisráðu-
neytisins. Það er enda þjóðþrifamál
að halda þessum hæfileikaríka
manni innan lögsögunnar, en nýj-
asta verk hans, By the Throat, er að
„slá í gegn“ erlendis og hefur feng-
ið glimrandi dóma frá miðlum á
borð við NME, BBC, Wire, All Mus-
ic Guide, Drowned in Sound og
fleirum. Frost tjáir sig um plötuna í
eftirfarandi vefvarpi: www.the-
wire.co.uk/articles/3337.
Verður áfram
Frost á Fróni?
Þau DJ Kiki-Ow og DJ Curver eru
fræg fyrir næntíspartí sín á Nasa
um áramótin en nú ætla þau að
bregða eilítið út af vananum. Hald-
ið verður sérstakt Millennium-partí
þar sem tónlistin sem hljómaði um
árþúsundaskiptin, þ.e. árin 1999 –
2001 verður í forgrunni. Það er því
endanlega búið að kippa 2000-
vandanum í lag, og það með góðu
partíi!
Kiki-Ow og Curver
halda árþúsundapartí
MANNASIÐIR Gillz nefnist ný bók frá Agli
Einarssyni sem er kannski betur þekktur
undir nafninu Gillzenegger. Þetta er önnur
bók hans en fyrsta bókin, Bíblía fallega fólks-
ins, kom út 2006.
„Bókin fjallar um það sem þykja góðir
mannasiðir. Ég fór í mikla rannsóknarvinnu
fyrir bókina en fyrst og fremst á hún bara að
vera skemmtileg. Það eru alltaf sannleiks-
korn í hverjum kafla og góðar ráðleggingar
en fólk á líka að geta hlegið,“ segir Egill um
bókina.
Finnst þér skorta upp á mannasiði karl-
manna?
„Já, ég sjálfur á ákveðnum tímapunkti
kunni ekki mannasiði, en þegar ég fór að
kynna mér þá sá ég að það er ýmislegt sem
maður veit ekki og því fannst mér góð hug-
mynd að koma með mannasiðabók og skildi
ekki afhverju hún hafði ekki komið út fyrr,“
svarar Egill en bókin er ekki eingöngu fyrir
karlmenn. „Karlmenn eru markhópurinn en
stelpur sem hafa lesið hana segjast hafa oltið
um af hlátri, þannig að stelpur geta líka haft
gaman af henni.“
Egill segir menn leggja mismikla áherslu á
mannasiðina og t.d séu almennir borðsiðir
nokkuð sem margir kunni ekki. „Íslendingar
eru ekki dónalegir en það leynist alltaf einn
og einn inn á milli sem er úti á þekju, ég vil
meina að allir geti bætt sig og því er þessi bók
nauðsynleg. Það er löngu sannað að fólk sem
kann mannasiði nær lengra í vinnu, námi og
einkalífi, það er bara þannig.“
Kápan á Mannasiðir Gillz er einkar
skemmtileg og einföld í anda níunda áratug-
arins. „Við vildum hafa hana nokkuð einfalda
og kynþokkafulla, það var gaman að fara í
smóking og rósin setur svo lokapunktinn á
þetta,“ segir Egill og hlær. Hann starfar sem
einkaþjálfari í Sporthúsinu og segir það
henta vel að vera rithöfundur og einkaþjálf-
ari. „Mesta törnin í bókunum er í desember
og þá er akkúrat minnst að gera í þjálf-
uninni.“ ingveldur@mbl.is
Kápumyndin Einföld og kynþokkafull að
sögn hins herralega Egils Einarssonar.
Fólk sem kann mannasiði nær
lengra í lífinu segir Gillz
Egill Einarsson, Gillzenegger, sendir frá sér skemmtilega mannasiðabók
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
ÞAÐ hefði mátt ætla að þeir félagar
Davíð Þór Jónsson og bræðurnir
Ómar og Óskar Guðjónssynir væru
nýkomnir af fjöllum er blaðamaður
hittir á þá í anddyri nýjustu Morg-
unblaðshallarinnar í Hádegismóum.
Tríóið er vel skóað og úlpað og litríkt
nokkuð og freistandi að varpa sér í
hnyttnar myndlíkingar, úr því að
annar kaffibollinn er farinn að
„kikka“ inn. Úlpurnar skærlituðu
eru auðvitað vel til fundið tákn um
græsku þá og gáska sem jafnan leik-
ur um þessa menn; og þeir eru vænt-
anlega nýkomnir úr einhverri tón-
listarlegri „fjallaferð“, þar sem
eitthvað spennandi hefur uppgötv-
ast? Það stendur heima, því að Davíð
slengir fyrstu plötu ADHD á borðið.
„Við vorum að líma umslagið sam-
an í nótt,“ segir hann stoltur, og það
er fjörugt blik í augunum. „Þannig
að við drifum okkur bara hingað
uppeftir með afurðina!“
Innilegt
ADHD var stofnuð fyrir tveimur
árum síðan í tengslum við Djass- og
blúshátíðina á Höfn í Hornafirði.
Fjórði meðlimurinn, Magnús
Trygvason Elíassen, er fjarri góðu
gamni þennan morguninn.
„Meðlimir sveitarinnar eru ann-
ars svo uppteknir við önnur verkefni
að ég held að við höfum náð alls
fimmtán æfingum frá upphafi,“ seg-
ir Davíð. Bræðurnir kinka kolli og
Óskar segir:
„Svo náðum við loksins fimm dög-
um saman í ágúst og gátum þá tekið
plötuna upp. Við tókum þetta upp í
stofunni heima hjá mér og Davíð
hljóðblandaði.“
Sjö lögum var rúllað inn á band og
er útkoman ekki á þá lund sem búast
hefði mátt við, sé tillit tekið til
hljómsveitarnafns og hreinlega þess
mannskaps sem að tónlistinni stend-
ur. Tónlistin er minimalísk, hæg-
streym og ljúf …yfir henni fegurð
og nokkurs konar helgi. Hún er inni-
leg og maður finnur að þessir aðilar
eiga í tónlistarlegu fjarskynj-
unarsambandi.
„Við höfum starfað svo mikið sam-
an að sú útkoma var kannski fyr-
irsjáanleg,“ segir Ómar. „Þetta er
lagrænt og mjög fókuserað. Heil-
steypt og einlægt finnst mér. Sam-
spilið var mjög náið og það er visst
næmi sem stýrir framvindunni, enda
þekkjum við innviði hvor annars út í
gegn.“
Allir innviðir út í gegn
ADHD gefur út sína fyrstu plötu Hefur æft fimmtán sinnum frá stofnun
Samspili meðlima má lýsa sem tónlistarlegu fjarskynjunarsambandi
Morgunblaðið/Golli
Englar ADHD hefur sig til flugs ... í óeiginlegri merkingu.
Orkan og ástríðan gagnvart hinni æðstu list er með öllu óslökkvandi hjá
þessum mönnum og leitin að einhverju nýju og spennandi í tónmálinu
hefur oft stýrt hinum ólíkum verkefnum sem þeir hafa fengist við. Davíð,
Óskar og Ómar eru vissulega með „hefðbundna“ skala á tæru og gott
betur en það en þeir hafa jafnframt leikið sér að því að fara fram af
hengiflugi þess mögulega í nútímadjassi og nefna má Rask, hina æv-
intýralegu sólóplötu Davíðs frá 2002 og plötu sem Óskar tók upp árinu á
undan ásamt fleirum undir hljómsveitarnafninu Dýrin í Hálsaskógi. Davíð
gaf þá út plötu ásamt Helga Svavari Helgasyni, kölluðu þeir sig Helmus
und Dalli og var útkoman stórkostlega grilluð …og eru það meðmæli.
Með öllu óslökkvandi …
Sjonni með sólóplötu og lag í Söngvakeppninni
Sjonni Brink
Syngur
eigið lag í
Evróvisjón.