Morgunblaðið - 08.12.2009, Page 30
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 2009
En hvað segir fjölskylda þínum þetta?“ er vanalega þaðfyrsta sem mexíkósku vinir
mínir spyrja þegar talið berst að
búsetu minni hér í landi tequila og
tacos. „Sakna þau þín ekki? Saknar
þú þeirra ekki?“ spyrja þeir, og ég
í framhaldinu reyni að útskýra að
fjölskylduböndin séu á öðrum nót-
um hjá veðurbörðum afkomendum
víkinga. Ískaldur lúteranisminn, fé-
lagsleg einangrun í torfbæjum í
fleiri-fleiri ættliði, og sögur af gall-
hörðum víkingahnökkum sem
reyndust þeim verstir sem þeir
unnu mest – allt hafi þetta lagst á
eitt til að gera tengslin innan ís-
lensku fjölskyldunnar lausari en
hjá rammkaþólskum og blóðheitum
latínó-þjóðum eins og Mexíkóum.
„Við erum landkönnuðir og erum
því vön að vera fjarri ástvinum,“
segi ég en um leið hvarflar að mér
að Ingólfur, Hrafna-Flóki og allir
hinir hafi kannski bara verið svona
antisósjal að segja skilið við vini og
ættingja í norsku fjörðunum.
Ég bæti svo við að það sé vel
þekkt í vestrænum háskólum að
skiptinemar frá Rómönsku-
Ameríku láta varla líða dag án þess
að hringja heim til mömmu. „Ég
sendi minni kannski skeyti á Face-
book, svona einu sinni í mánuði.“
En munurinn á krafti fjölskyldu-bandanna milli Íslands og
Mexíkó varð mér ekki að fullu ljós
fyrr en á dauðradeginum, eins og
þýða mætti Dia de los muertos. Ef
ég skil þjóðfræðina rétt þá er þetta
samheiti yfir hátíðahöld 1. og 2.
nóvembers, allraheilagramessu og
allrasálnamessu. Hrekkjavaka, 31.
október, læðist svo með.
Af trúarlegum hátíðum eiga kaþ-
ólikkarnir heilan haug, en dauðra-
dagurinn er sú hátíð sem mörgum
þykir hvað vænst um, enda fjöl-
skylduhátíð. Raunar er dauðradag-
urinn meiri fjölskylduhátíð en ís-
lensku jólin, því hátíðin nær bæði
til fjölskyldumeðlima þessa heims
og annars.
Fyrir Íslending er það nánastsláandi upplifun að heimsækja
Dolores-kirkjugarðinn í Mexíkó-
borg á þessum degi. Þessi stærsti
kirkjugarður landsins iðar af lífi.
Og það er ekki drungi eða sorg yfir
gestunum, heldur fjör og gleði.
Börnin, litlir púkar og vampírur,
hlaupa hlæjandi á milli leiðanna og
grafhýsanna í hrekkjavökubúning-
unum sínum eða háma í sig súkku-
laðihauskúpur. Við innganginn að
kirkjugarðinum standa langar rað-
ir af básum með blóm, skraut og
dýrindis götumat til sölu. Þegar
inn er komið tekur á móti manni
dúndrandi diskótónlist úr hátöl-
urum. Sjálfur Michael Jackson
heitinn á fóninum.
Á Íslandi er það látið duga íflestum fjölskyldum að reyta
burt mesta arfann á vorin og hola
niður eins og einu stormkerti á að-
fangadag við leiði allrakærustu
ástvina. Í Mexíkó er haldin veisla,
og leiðið er veisluborðið! Gestrisn-
ina skortir heldur ekki, og þar sem
ég staldraði við eitt augnablik til
að virða fyrir mér hátíðarstemn-
inguna hjá heilu stórfjölskyldunum
var mér óðara boðið að setjast nið-
ur, bragða á kræsingunum og innli-
mast um stund í ættina.
Sennilega slær enginn við Cam-arillo fjölskyldunni, sem ég
rambaði fram á. Eða öllu heldur að
ég gekk á hljóðið því konurnar í
fjölskyldunni höfðu leigt Mariachi-
band til að syngja nokkur lög á
meðan þær skreyttu leiði feðra,
bræðra og eiginmanna sinna. Hátt
og lágt var skreytt, með út-
klipptum draugum og graskerum,
og hlýleg orðsending rituð með
rauðgulum blöðum flauelsblómsins
á sjálfa gröfina. Amman, ættmóð-
irin, kveikti í vindli og hellti ko-
níaki í glas, og lagði við einn leg-
steininn – þó ekki án þess að púa
vindilinn hressilega fyrir sjálfa sig,
og fá sér einn sopa með.
Sem ég fylgdist með þessu öllusaman rann upp fyrir mér
hvað vinir mínir voru að fara með
spurningum sínum. Um leið hugs-
aði ég með sjálfum mér hvað það
væri nú gaman ef íslensku kirkju-
garðarnir væru svona lifandi, fullir
af fjöri og fjölskylduböndum þó
ekki væri nema einu sinni á ári.
Hvenær heyrðist síðast tónlist eða
hvenær fyllti ilmurinn af góðum
mat vitin í íslenskum kirkjugarði?
Mikið þykir manni það leiðinlegt
hlutskipti, eftir að hafa kynnst
Camarillo fjölskyldunni, að vera
jarðsettur í steindauðum og köld-
um reit á Íslandi, þar sem stemn-
ingin er svo leiðinleg að jafnvel
hundar eru bannaðir og skoppandi
litlar kanínur fá ekki að vera í
friði. Nei, jarðið mig þá frekar í
Mexíkó.
Jarðið mig í Mexíkó
Morgunblaðið/Ásgeir Ingvarsson
Gleði Hátíðahöldin kringum
dauðradaginn eru lífleg og hafa
blandast grímubúninga- og
barnahátíðinni sem ameríska
hrekkjavakan er.
»Hvenær heyrðist síð-ast tónlist eða hve-
nær fyllti ilmurinn af
góðum mat vitin í ís-
lenskum kirkjugarði?
AF LISTUM
Eftir Ásgeir Ingvarsson
Fjölskylduhátíð Camarillo-fjölskyldan stillir sér upp eftir að hafa varið
drjúgum tíma í skreytingar. Síðan voru bornir fram dýrindis réttir og
drykkir og snætt í félagsskap látinna ástvina.
„2012 er Hollywood-rússíbani
eins og þeir gerast skemmtileg-
astir! Orð frá því ekki lýst hvað
stórslysasenurnar eru öflugar.”
T.V. - Kvikmyndir.is
Stórslysamynd eins og
þær gerast bestar.
V.J.V - FBL
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI, REGNBOGANUM OG BORGARBÍÓI
FRÁ LEIKSTJÓRA INDEPENDENCE DAY OG THE DAY AFTER TOMORROW
STÆRSTA FRUMSÝNING ÁRSINS!
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG REGNBOGANUMSÝND Í SMÁRABÍÓISÝND Í SMÁRA OG REGNBOGANUM
HHHH
„Gómsæt, yndisleg og
bráðfyndin mynd sem hin
frábæra Meryl Streep á skilið
sinn þriðja Óskar fyrir.”
EMPIRE
Sími 462 3500
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
Sími 551 9000 Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
Whatever Works kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i.7 ára
A Serious Man kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i.12 ára
2012 kl. 5:45 - 9 B.i.10 ára
Desember kl. 6 - 8 B.i.10 ára
Stúlkan sem lék sér að eldinum kl. 10 B.i.16 ára
2012 kl. 6 - 9 B.i.10 ára
Love Happens kl. 8 LEYFÐ
Paranormal Activity kl. 10 B.i.16 ára
9 kl. 6 B.i.10 ára
Julie and Julia kl. 5:20 - 8 - 10:35 LEYFÐ
2012 kl. 6 - 9:15 B.i.10 ára
Zombieland kl. 6 B.i.16 ára
Stúlkan sem lék sér að eldinum kl. 6 - 9 B.i.16 ára
Paranormal Activity kl. 8 - 10 B.i.16 ára
SÝND Í BORGARBÍÓI SÝND HÁSKÓLABÍÓI SÝND Í REGNBOGANUM SÝND Í BORGARBÍÓI OG SMÁRABÍÓI
ÍSLENSKT TAL
600 kr.
600 kr.
600 kr.
600 kr.
600 kr.
600 kr.
700 kr.
HHH
„Hugguleg og
frábærlega leikin...
Fullkomin afþreying
handa konum á
öllum aldri.”
T.V. - Kvikmyndir.is
Þú færð 5%
endurgreitt
í Háskólabíó
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og HáATH. ÞRIÐJUDAGSTILBOÐIÐ GILDIR EKKI Í BORGARBÍÓI, LÚXUS, 3-D MYNDIR OG ÍSLENSKAR MYNDIR