Morgunblaðið - 08.12.2009, Page 32
– meira fyrir áskrifendur
Fáðu þér áskrift á
mbl.is/askriftPöntunartími auglýsinga er fyrir klukkan 16.00
föstudaginn 18. desember 2009.
Nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir
í síma 569 1105, kata@mbl.is
Í þessu blaði verða kynntir fullt af þeim mögu-
leikum sem í boði eru fyrir þá sem stefna á
heilsuátak og bættan lífstíl í byrjun ársins 2010.
Heilsa og
lífsstíll
Morgunblaðið gefur út
glæsilegt sérblað um
heilsu og lífstíl mánudaginn
4. janúar 2010.
Meðal efnis verður:
Hreyfing og líkamsrækt.
Hvað þarf að hafa í ræktina.
Vinsælar æfingar.
Heilsusamlegar uppskriftir.
Andleg vellíðan.
Bætt heilsa.
Ráð næringarráðgjafa.
Umfjöllun um fitness.
Jurtir og heilsa.
Hollir safar.
Ný og spennandi námskeið
á líkamsræktarstöðvum.
Skaðsemi reykinga.
Ásamt fullt af
fróðleiksmolum og
spennandi viðtölum.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 2009
Leikstjórinn og handritshöf-undurinn Mike Judgehefur gert a.m.k. eina,klassíska háðsádeilu, Of-
fice Space (́99), þar
sem hann dró upp
kostulega lýsingu á
niðurlægingu með-
aljónsins sem lætur
allt yfir sig ganga í
borulegum skrif-
borðskróknum sín-
um. Í sjónvarpi
hefur hann slegið í
gegn með þátt-
unum um Beavis
and Butt-Head
(þeir hafa verið
kvikmyndaðir með
fínum árangri), og
hann á hugmyndina að King of the
Hill, báðar þáttaraðirnar eru teikn-
aðar.
Aðdáendur Office Space hafa
beðið í ofvæni í áratug eftir því að
Judge sýni kómíska snilli á nýjan
leik, en ekki haft erindi sem erfiði.
Idiocracy (́06), átti sín augnablik
sem dugðu ekki til að lyfta bráð-
snjallri hugmynd upp fyrir með-
allagið. Extract tekst engu betur að
fást við forheimsku mannskepn-
unnar þrátt fyrir ágæt tilþrif svona
hist og her. Bateman leikur Joel,
fyrrum blók sem datt í lukkupott-
inn, hóf framleiðslu á þykkni sam-
kvæmt uppskrift sem hann hirti af
móður sinni. Verksmiðjan, sem
hann stýrir ásamt félaga sínum
Brian (Simmons úr KISS), er
skólabókardæmi um hvernig á ekki
að reka fyrirtæki. Starfsfólkið er
sljótt, hyskið og blóðlatt og misnot-
ar góðmennsku Joels fram í fing-
urgóma.
Joel er einnig hafður að fífli
heima fyrir, konan vill ekki þýðast
hann og þegar Cindy (Kunis),
snoppufríð gála, fer að daðra við
hann í vinnunni ákveður hann í
samráði við besta vin sinn, bareig-
andann Dean (Affleck), að koma
eiginkonunni út í framhjáhald svo
hann geti notið Cindyar án þess að
samviskan nagi hann. Ráðinn er
karlhóran Brad (Milligan), sem nýt-
ur þess vafasama heiðurs að státa
af lægstu greindarvísitölunni af
persónum Extract, og er það þó
nokkurt afrek út af fyrir sig.
Þannig fer hún af stað, nýjasta
skopmyndin hans Judge og hljómar
alls ekki illa, reyndar mun betur en
árangurinn reynist vera. Judge
fæst við sömu meinsemdir þjóð-
félagsins og áður; misnotaða góð-
mennsku, óheilindi og ómennsku og
forheimska mannsskepnunnar jafn-
an í fyrirrúmi. Hliðarsaga af hugs-
anlegri yfirtöku verksmiðjunnar er
markvissust, einkum hvað snertir
starfsfólkið, sem hugsar sér gott til
glóðarinnar, með fávísina eina að
leiðarljósi. Samtakaleysi og al-
mennt skilningsleysi á flestu öðru
en ímynduðum betri hag vinnu-
félaganna reynist bitlaust vopn og
er kaldhæðin sýn á græðgi lít-
ilmagnans. Hún endurspeglast ekki
síður í fáránlegu ráðabruggi Cindy-
ar er hún hyggst gera sér eistnatap
eins starfsmannsins að féþúfu.
Bateman er traustur, Simmons
að verða ómissandi í óvenjulegum
jaðarhlutverkum sem fáir manna
betur en hann. Aðrir helstu leik-
arar myndarinnar standa fyrir sínu,
ekki síst Affleck og Kunis (sem er
að leggja kvikmyndaheiminn undir
sig um sinn), það sem vantar er
hressilegra skop sem kveikir í
áhorfandanum, gerir meira en að
kreista fram eitt og eitt bros.
Svekkjandi því Judge er oft og
mörgum sinnum við það að takast
ætlunarverkið.
saebjorn@heimsnet.is
Reyndu aftur
Laugarásbíó
Extract bbmnn
Leikstjóri: Mike Judge . Aðalleikarar:
Jason Bateman, Mila Kunis, Kristen
Wiig, J. K. Simmons, David Koechner,
Clifton Collins Jr., Gene Simmons, Dust-
in Milligan, Ben Affleck. 107 mín.
Bandaríkin. 2009.
Sæbjörn
Valdimarsson
KVIKMYND
Extract Bateman og Kunis í hlutverkum sínum.
Jason Bateman er í miklu uppá-
haldi hjá mörgum bíógestinum,
sem hafa séð þennan frábæra
gamanleikara vera að smásækja
í sig veðrið frá því hann skaut
upp kollinum í myndum á borð
við Dodgeball og Smoking Aces,
eftir gott gengi í sjónvarpi.
Hann var eftirminnilegur í Juno
og State of Play og hann hefur
sannarlega hæfileika til að láta
að sér kveða í framtíðinni – ef
hann fær tækifæri til að halda
það út.
Bateman á betra skilið
RAPPARINN 50 Cent vill vinna með skosku söngkonunni
Susan Boyle. Bandaríski tónlistarmaðurinn er mikill aðdá-
andi Boyle, sem vakti fyrst athygli í raunveruleikaþætt-
inum Britain’s Got Talent og sendi nýverið frá sér plötuna
I Dreamed A Dream, og vill syngja með henni dúett.
„Hún er með frábæra rödd og saman fengjum við
alla til að dansa. Ég leitast alltaf við að gera eitthvað
nýtt og hún er svöl, svo ég mun biðja einhvern um að
tala við hana,“ segir 50 Cent í viðtali við Britain’s
Daily Mirror.
Hann segir Boyle vera sjóðheita um þessar mundir
og er viss um að saman myndu þau slá í gegn.
50 Cent er ekki eini frægi aðdáandi Boyle. Tónlist-
armaðurinn Seal hefur stutt söngkonuna og segir
hana sannan listamann.
„Hún syngur því það er hennar leið til að tjá
sig, ef hún myndi ekki gera það yrði hún
veik. Þetta er hennar leið til útrásar,“ segir
Seal.
50 Cent og
Boyle Yrðu
líklega góð
saman.
Vill syngja dúett með Boyle
HHH
„HRÖÐ, SPENNANDI... OG SNARKLIKKUÐ
MYND FRÁ A-Ö... EKTA AFÞREYINGAR-
BÍÓ!”
T.V - KVIKMYNDIR.IS
HHH
„ÓSVIKINN GEIMHROLLUR SEM SVER
SIG Í HEFÐINA, MINNIR EINKUM Á ALIEN-MYNDIRNAR.“
„GÓÐ SKEMMTUN OG DÁLÍTIÐ GEGGJUÐ.“
S.V. - MBL
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK
LET’S BE HONEST, KILLING IS
THIS FILM’S BUSINESS...AND
BUSINESS IS GOOD.
CHRIS NASHAWATY / ENTERTAINMENT WEEKLY
“ROARING ACTION.”
KYLE SMITH / NEW YORK POSTHÖRKU HASARMYND
FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU
OKKUR MATRIX ÞRÍLEIKINN
EINHVER FLOTTUSTU BARDAGAATRIÐI
SEM SÉST HAFA Í LAAANGAN TÍMA!
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
SÝND Í ÁLFABAKKA, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
GERRARD BUTLER OG JAMIE
FOXX Í EINHVERRI MÖGNUÐUSTU
HASARMYND Á ÞESSU ÁRI!
FRÁ LEIKSTJÓRA THE ITALIAN JOB
/ KRINGLUNNI
NINJA ASSASSIN kl.8 -10:40 16
THE TWILIGHT NEW MOON kl.6 -8-9-10:10 12 DIGITAL
A CHRISTMAS CAROL m. ísl. tali kl.5:503D 7 3D-DIGITAL
A CHRISTMAS CAROL m. ensku tali kl.5:503D ótextuð 7 3D-DIGITAL
/ ÁLFABAKKA
NINJAASSASSIN kl. 5:50-8-10:10 16 DIGITAL ACHRISTMASCAROLm.enskutali kl.8-10:10 7
NINJAASSASSIN kl. 8 - 10:10 LÚXUS PANDORUM kl.8-10:20 16
THETWILIGHT2NEWMOON kl.5:20-8-10:10-10:40 12 LAW ABIDING CITIZEN kl. 8 16
THETWILIGHT2NEWMOON kl. 5:20 LÚXUS COUPLES RETREAT kl. 5:50 12
ACHRISTMASCAROLm.enskutali kl. 5:503D ótextuð 7 3D DIGITAL
ACHRISTMASCAROLm.ísl.tali kl. 5:50 7
GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR, VIP OG 3D MYNDIR