Morgunblaðið - 08.12.2009, Side 36
ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 342. DAGUR ÁRSINS 2009
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
FÓLK Í FRÉTTUM»
! " #
$ $
!
%& '!& ! (
)*+,-.
*/*,)+
))0,-*
*-,123
*),0/3
)2,1+*
)*/,.3
),+2)
).0,--
)3*,.*
456
4 2" 5 *//.
)*+,23
*/*,0*
))0,20
*-,01
*),02*
)2,13+
)*),+*
),+21
).2,/+
)3+,-+
*+1,-1+
%
78 )*-,/2
*/+,))
))2,)
*-,2**
*),2+0
)2,0+-
)*),00
),+2.
).2,0*
)3+,.-
Heitast 8°C | Kaldast 0°C
Austan 13-20 m/s
með rigningu sunnan
til, en mun hægari og
þurrt fyrir norðan.
Hlýjast suðaustan til. »10
Blóðsugur og
bardagafjáðir tróna
á toppi listans sem
tekur yfir mest sóttu
ræmur kvikmynda-
húsanna. »31
KVIKMYNDIR»
Öfgarnar
virka vel
TÓNLIST»
Björgvin hringdi inn
jólin. » 33
Íslendingar ættu
að gera sér far um
að hnykkja á ríkum
tengslum Nifl-
ungahrings Wagn-
ers við landið. »27
TÓNLIST»
Wagner
og Ísland
MANNASIÐIR»
Gillz gerir það ekki
endasleppt. »28
BÆKUR»
Margrét fær góða dóma
fyrir Aþenu. »29
Menning
VEÐUR»
1. Andlát: Pétur H. Ólafsson
2. Búið að bera kennsl á lík
3. Líkfundur í Hafnarfirði
4. Meintum ástkonum Tigers fjölgar
Íslenska krónan veiktist um 0,2%
»MEST LESIÐ Á mbl.is
Rúnar Hart-
mannsson heitir
maður sem hefur
ráðist í það þrek-
virki að smíða
styttu af Hr. Rokk
sjálfum, Rúnari
Júlíussyni. Stytt-
an er klár og til stendur að afhenda
hana Poppminjasafninu til eignar og
varðveislu eftir áramót. Til að dekka
kostnað hefur höfundurinn hleypt af
stað söfnunarátaki og fá styrktar-
aðilar ritað nafn sitt í bók sem fylgja
mun styttunni. Hún verður annars
til sýnis á veitingastaðnum Ránni í
Keflavík á meðan á söfnun stendur.
Allar nánari upplýsingar má nálgast
á Fésbókinni góðu.
TÓNLIST
Safnað fyrir styttu
af Rúnari Júlíussyni
Það eru engir
aukvisar sem skipa
sveitina ADHD,
sem stofnsett var
fyrir rúmum tveim-
ur árum. Um er að
ræða bræðurna
Óskar og Ómar
Guðjónssyni, Davíð Þór Jónsson
og trymbilinn Magnús Tryggvason
Elíassen. Sveitin gaf út frumburð
sinn í síðustu viku, sjö laga plötu, sem
einkennist af því nána samstarfi sem
þeir félagar hafa verið í um árabil.
TÓNLIST
Djasssveitin ADHD snarar
út einu stykki breiðskífu
Á meðan Gunn-
laugur Júlíusson
ofurhlaupari hljóp
100 km á bretti í
Laugum til styrkt-
ar Grensási drakk
hann yfir tíu lítra; 4
lítra af vatni, 3 lítra
af kóki, 1 lítra af sprite, 2 lítra af
djús í próteindrykknum og ½ lítra af
malti. „Það segir sig sjálft að það er
gríðarlegt álag á líkamann að renna
þessu vökvamagni í gegnum sig eða
sem svarar 1 lítra á klukkutíma. Út-
skolun á steinefnum er eftir því. Eft-
ir hlaupið var ég heldur léttari en
þegar ég lagði af stað,“ segir Gunn-
laugur á bloggsíðu sinni.
STYRKTARHLAUP
Gunnlaugur drakk lítra fyrir
hvern hlaupinn klukkutíma
BANDARÍSKI körfuboltamaðurinn
Sean Burton, sem leikur með liði
Snæfells úr Stykkishólmi, skráði nafn
sitt í tölfræðisögu Körfuknattleiks-
sambandsins í fyrrakvöld. Burton
skoraði 16 þriggja stiga körfur í
130:75 sigri gegn Hamri í bikar-
keppninni. Burton, sem hefur dvalið
hér á landi í rétt rúmlega mánuð, hef-
ur nú þegar skipað sér í hóp með eft-
irminnilegustu „stórskyttum“ sem
leikið hafa hér á landi. Franc Booker,
sem lék með ÍR og Val á árunum
1991-1994, skoraði tvívegis 15 þriggja
stiga körfur í fyrstu leikjum sínum
hér á landi. Damon Johnson er vel
þekkt stærð í íslenskum körfubolta
en hann lét að sér kveða með Keflavík
í nokkur ár og lék eitt tímabil með ÍA.
Johnson skoraði 14 þriggja stiga körf-
ur úr aðeins 17 tilraunum gegn KFÍ á
Ísafirði hinn 15. janúar 1999, Johnson
skoraði alls 61 stig í umræddum leik.
Páll Axel Vilbergsson, leikmaður
Grindavíkur, er sá íslenski leikmaður
sem skorað hefur flestar þriggja stiga
körfur í einum leik eða 12 stykki fyrir
Grindavík gegn Val árið 1999.
seth@mbl.is
Burton og Booker | Íþróttir
Stórskytta Snæfells
Bandaríski leikmaðurinn Sean Burton
skráði nafn sitt í sögubækur KKÍ
Morgunblaðið/Ómar
Skytta Sean Burton, Snæfelli,
skoraði 16 þriggja stiga körfur.
Í HNOTSKURN
»Sean Burton skoraði 16þriggja stiga körfur gegn
Hamri í fyrrakvöld og er það
óstaðfest met á Íslandi.
»Franc Booker skoraði tví-vegis 15 þriggja stiga körf-
ur snemma árs 1991 með liði ÍR.
EIN af niður-
stöðunum í dokt-
orsritgerð Gyðu
Margrétar Pét-
ursdóttur í kynja-
fræði er sú að
karlar búa al-
mennt við meira
frjálsræði í störf-
um sínum en kon-
ur og þeir eiga
auðveldara með
að stjórna vinnutíma sínum. Þeir
eiga sem sagt auðveldara með að
skreppa. Fæstir karlar nota þó
þennan sveigjanleika til að sinna
börnum og fjölskyldum. Þess í stað
lenda þær skyldur á konum.
Með börn í frístundir
Gyða Margrét bendir á að karlar
séu almennt með hærri laun og þetta
misræmi skili sér inn á heimilin,
konur sinni bæði börnum og heim-
ilisstörfum í meira mæli en karlar.
„Konur reyna svo oft að sinna ein-
hvers konar frístundum á meðan
þær eru að hugsa um börnin. Þær
tala gjarnan um að þær fari út að
ganga með börnin en karlarnir geta
frekar sinnt sínum áhugamálum án
þess að þurfa sinna börnum um leið.
Þeir virðast líka hafa meiri frítíma
heima hjá sér,“ segir hún. | 6
Léttara
fyrir karla
að skreppa
Margrét Gyða
Pétursdóttir
Kynjamisrétti á
vinnustað og heimili
ÞORLÁKSMESSUSKATAN er nú
fullverkuð og bíður þess að gleðja
bragðlauka landsmanna – og jafn-
vel kalla fram tár hjá unnendum
stækustu skötunnar.
„Við verkum skötuna sjálfir, eins
og við höfum gert undanfarin
fimmtán ár,“ sagði Geir Vilhjálms-
son fisksali í Hafbergi. Hann sagði
að þeir byrjuðu að safna skötu í jan-
úar og frysta. Skötunni er safnað
allt þar til kominn er tími til að
hefja verkunina. Í Hafbergi eru
verkuð 3,5-4 tonn nú líkt og í fyrra.
Fyrst er skatan látin kæsast þar
til hún þykir orðin hæfilega sterk
og þá er hún léttsöltuð. Skatan er
svo útvötnuð og seld tilbúin í pott-
inn. Einnig er boðið upp á eitur-
sterka kæsta tindabikkju.
Geir sagði að fólk úti á landi væri
þegar byrjað að kaupa skötu fyrir
Þorláksmessu en á höfuðborgar-
svæðinu birgðu flestir sig upp af
skötu frá 20.-22. desember. En
hvernig vill fólk hafa skötuna?
„Flestir vilja fá hana vel kæsta og
ákveðinn hópur vill alveg „extra
mikið“ kæsta skötu. Svo er alltaf
lítið kæst skata fyrir byrjendur í
boði,“ sagði Geir. En borðar hann
skötu? „Já, ég borða skötu einu
sinni á ári og er vanur að gera það
eftir jól.“ gudni@mbl.is
Verkun Þorláksmessuskötunnar er nú langt komin
Skötuilm-
urinn er
engu líkur
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ilmur Vilhjálmur Hafberg fisksali dró djúpt andann og naut skötuilmsins. Í
fiskbúðinni Hafbergi voru nú verkuð 3,5-4 tonn af skötu líkt og í fyrra.
„ÞEIR lentu í roki, meira en 20 metr-
um á sekúndu á leiðinni hingað frá
Finnlandi og menn voru sammála um
að skipið hefði staðið sig mjög vel,“
segir Jón Viðar Finnsson, kúabóndi á
Suðurlandi. Hann var, ásamt Arnfríði
Jóhannsdóttur, eiginkonu sinni, með-
al þúsunda gesta sem fóru í reynslu-
siglingu um Karíbahafið á stærsta
farþegaskipi sögunnar, Oasis of the
Seas, sem er 225 þúsund brúttótonn.
Systir Jóns Viðars, Helga, hannaði
öll eldhús og bari fyrir alls átta skip
skipafélagsins Royal Caribbean Int-
ernational. | 8
Njóta lífsins Arnfríður og Jón Við-
ar um borð í Oasis of the Seas.
Til reynslu um
Karíbahafið