Morgunblaðið - 11.12.2009, Síða 8
LÖGREGLAN á
höfuðborgarsvæð-
inu stöðvaði
kannabisræktun í
iðnaðarhúsnæði í
Hafnarfirði í
fyrradag. Við hús-
leit þar var lagt
hald á 2,4 kg af
maríjúana og 210
kannabisplöntur.
Um var að ræða
svokallaða vatnsræktun en plönturn-
ar voru flestar mjög stórar og í fullum
blóma, að sögn lögreglu. Áður höfðu
fundist rúmlega 100 grömm af marí-
júana í íbúð í austurborg Reykjavíkur
en málin tengjast. Karl á fimmtugs-
aldri, sem var handtekinn á síð-
artalda staðnum, hefur játað aðild að
þeim báðum.
Alls 2,5 kg af marijúana
Fyrr í vikunni stöðvaði lögreglan
kannabisræktun í tveimur íbúðum í
sama húsi í vesturbæ Reykjavíkur.
Þar fundust 110 kannabisplöntur og
voru þær á lokastigi ræktunar. Grun-
ur leikur á að sami aðili sé ábyrgur
fyrir ræktun þessara kannabispl-
antna en rannsókn málsins er ekki
lokið. Alls hefur lögreglan því lagt
hald á 2,5 kg af maríjúana og 320
kannabisplöntur.
Sem fyrr hvetur lögreglan fólk til
að hafa samband með ábendingar í
fíkniefnasímann, 800-5005.
Hald lagt
á 2,4 kg af
maríjúana
Kannabis Fjöldi
plantna tekinn.
UMHYGGJUSÖM móðir að sinna
værðarlegu barni sínu þar sem það
liggur í vagninum er svo sem ekk-
ert óvenjuleg sjón. Hitt er kannski
óvenjulegra að þau, ásamt hátt í 30
öðrum mæðrum og börnum, gæddu
sér á kræsingum af jólahlaðborði á
Hótel Loftleiðum í gær. Öll fæddust
börnin í september síðastliðnum.
Fengu að fara með mömmu á jólahlaðborð
Morgunblaðið/Heiddi
30 mæður og börn borðuðu saman
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 2009
„EF heimsmark-
aðsverð þróast
með sama hætti
gæti bensínverð
lækkað frekar
næstu daga,“ seg-
ir Ingvi Júlíus
Ingvason, rekstr-
arstjóri hjá Skelj-
ungi.
Stjórnendur
Orkunnar, dótt-
urfélags Skeljungs, riðu á vaðið í
gærmorgun og lækkuðu lítraverð á
bensíni um 1,50 kr. og á dísilolíu um
eina krónu. Bensínlítrinn hjá
Orkunni kostar nú 184,5 kr. og lítr-
inn af dísilolíu er á 181,2 kr. Aðrir
fylgdu fordæmi Orkunnar, sem
heldur þó forskoti sem það olíufélag
sem lægsta verðið hefur. Ýmsar
kenningar eru uppi um ástæður
lækkandi olíuverðs nú, segir Run-
ólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri
FÍB. Borið hefur á minni eftirspurn
sem fljótt sér stað í verðlækkunum.
Þá munu birgðir af bensíni víða vera
að aukast, t.d. í Bandaríkjunum og
þá sígur verðið niður. sbs@mbl.is
Frekari lækkun
bensínverðs líkleg
Bensínverð Nokk-
ur lækkun í gær.
Hanna Birna á
opnum fundi
Laugardagur 12. desember kl. 10.30
Forgangsraðað í þágu barna og
velferðar - án skattahækkana
Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, fer yfir fjárhagsáætlun
Reykjavíkurborgar fyrir árið 2010 sem nú er til umræðu í
borgarstjórn Reykjavíkur.
Fundurinn verður í Valhöll, Háaleitisbraut 1, laugardaginn 12.
desember og hefst klukkan 10.30.
Boðið verður upp á kaffiveitingar og barnapössun á meðan
fundinum stendur. Allir velkomnir!
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
MIKILL árangur hefur náðst á því
rúma ári sem innleiðing Olweusar-
áætlunarinnar gegn einelti hefur
staðið yfir í leikskólanum Eyrarskjóli
á Ísafirði, að sögn leikskólastjóra.
Leikskólinn er sem stendur sá eini á
landinu sem starfar eftir áætluninni
en næsta haust bætast aðrir leikskól-
ar Ísafjarðarbæjar í hópinn.
„Börnin eru meðvitaðri og passa
sig að vera góðir vinir,“ segir Jóna
Lind Karlsdóttir leikskólastjóri. Hún
segir vinnuna fyrirbyggjandi og
reynt sé að virkja þann hóp sem
stendur hjá og aðhefst ekkert þegar
einelti á sér stað. Áætlunin er hluti af
daglegu starfi leikskólans og sýna
þau börn úr Eyrarskjóli sem hófu
nám í grunnskóla í haust þess augljós
merki, að mati kennara þeirra.
Óhrædd að segja frá
„Við hittum kennara í fyrsta bekk
en þeir komu hingað til að kynna sér
hvernig áætlunin fer fram á leikskól-
anum. Þeir merkja það frekar hjá
börnum sem komu frá Eyrarskjóli að
þau eru óhrædd við að segja frá og
upplifa sig ekki sem klöguskjóður.
Það er viðhorfið, að líta ekki svo á að
þau séu að klaga heldur greina frá í
þeim tilgangi að hjálpa einhverjum
sem ekki líður vel.“
Eitt af markmiðum áætlunarinnar
er að börnin „útskrifist“ úr leikskóla
með alla vega einn góðan vin, þannig
að þau hafi stuðning við upphaf skóla-
göngunnar.
Skólayfirvöld í bænum eru hæst-
ánægð með árangurinn sem sést best
á því að næsta haust munu Jóna Lind
og Íris Ingþórsdóttir aðstoðarleik-
skólastjóri hefja innleiðingu
Olweusaráætlunarinnar í hinum
fimm leikskólum Ísafjarðarbæjar.
Þær eru úskrifaðir verkefnastjórar
áætlunarinnar eftir nám á vegum
framkvæmdastjóra verkefnisins,
Þorláks Helgasonar. Þorlákur segir
sjálfur að með þessu sé verið að
brjóta blað á heimsvísu.
„Börnin eru meðvitaðri og
passa sig að vera góðir vinir“
Olweusaráætlunin gegn einelti innleidd í leikskóla á Ísafirði
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
„RÍKISSTJÓRNIN er að kasta ís-
molum inn í hagkerfið. Þessar tillög-
ur munu seinka batanum og ýta und-
ir atvinnuleysi.“ Þetta sagði Bjarni
Benediktsson, formaður Sjálfstæðis-
flokksins, á fundi í Valhöll í gær þeg-
ar hann lýsti áhrifum af skattatillög-
um ríkisstjórnarinnar.
Bjarni sagði að það væri enginn
ágreiningur milli Sjálfstæðisflokks-
ins og ríkisstjórnarinnar um að það
yrði að takast á við fjárlagahallann
og að það þyrfti að fara blandaða leið
niðurskurðar og tekjuöflunar. Sjálf-
stæðisflokkurinn vildi hins vegar
ekki fara þá skattahækkunarleið
sem ríkisstjórnin vildi fara heldur
fara í aðgerðir sem stuðla að auknum
tekjum ríkissjóðs og skattleggja sér-
eignasparnaðinn.
Bjarni sagði að í tíð fyrri ríkis-
stjórnar hefði verið sett í lög að per-
sónufrádráttur ætti að hækka í sam-
ræmi við verðlag. Til viðbótar hefði
ríkisstjórnin á síðasta ári samþykkt,
sem innlegg í lausn á kjaradeilu á
vinnumarkaði, að hækka persónu-
frádrátt um 7.000 kr. í þremur
áföngum. Fyrsti áfanginn væri kom-
inn til framkvæmda. Bjarni sagði að
nú hefði ríkisstjórnin ákveðið að fella
niður annan áfangann, en léti þriðja
áfanga, 2.000 kr. hækkun, koma til
framkvæmda á næsta ári. Síðan léti
ríkisstjórnin eins og þetta væri
hennar framlag, en minntist ekkert á
að búið hefði verið að ákveða þessa
hækkun með lögum.
Bjarni sagði að eitt helsta verkefni
stjórnvalda á þessu ári hefði verið að
takast á við skuldavanda heimilanna.
Ríkisstjórnin hefði brugðist bæði
seint og illa við þessum vanda. Nú
væri hún hins vegar að hækka skuld-
ir heimilanna með skattahækkunum,
auk þess sem hún væri að skerða
ráðstöfunartekjur þeirra.
Bjarni sagði að áhrif skattahækk-
unar á atvinnulífið væri ekki síður al-
varleg. Með hækkun skatta lækkuðu
tekjur fyrirtækjanna. Þetta kæmi til
með að ýta undir samdrátt í efna-
hagslífinu og stuðla að auknu at-
vinnuleysi.
„Meiriháttar klúður“
Tryggvi Þór Herbertsson alþing-
ismaður, sem sæti á í efnahags- og
skattanefnd, sagði að margir hefðu
komið á fund nefndarinnar í gær.
„Það er vægast sagt þungur tónn í
mönnum.“
Tryggvi sagði að menn gætu haft
mismunandi afstöðu til þess hvort
þörf væri á að hækka skatta. „Annað
mál er hins vegar að taka skattkerfið
og leggja það í rúst. Það stangast
hvað á annars horn. Þarna er að eiga
sér stað meiriháttar klúður.“
Skattahækkun seinkar batanum
Formaður Sjálfstæðisflokksins gagnrýnir harðlega skattahækkunartillögur ríkisstjórnarinnar
„Það stangast hvað á annars horn“ segir þingmaður flokksins í efnahags- og skattanefnd
Bjarni
Benediktsson
Tryggvi Þór
Herbertsson
Sjálfstæðisflokkurinn hefur lát-
ið reikna út nokkur dæmi um
áhrif tillagna stjórnvalda um
skattahækkanir á fjölskyldur.
Niðurstaðan er sú að ein-
staklingur með 250 þúsund í
mánaðartekjur þarf að greiða
60 þúsund króna meira í tekju-
skatt á ári og 38 þúsund meira í
neysluskatta. Í dæminu er
reiknað með að maðurinn skuldi
10 milljónir í húsnæðislán og 1,9
milljónir í bílalán. Þessi lán
koma til með að hækka um 214
þúsund á næsta ári vegna þess
að skattarnir hækka verðlag.
Skattar hækka
HÆTT hefur verið við að halda
próflokaskemmtun á veitingahús-
inu Glóðinni í Keflavík nk. laug-
ardag. Skemmtunin sem auglýst
var á Facebook sem „flottasta,
sveittasta og kynþokkafyllsta partí
fyrr og síðar“ var gagnrýnd. Lög-
reglan og útideild Reykjanesbæjar
munu fylgjast með samkomuhaldi á
laugardagskvöldið, að sögn Hjör-
dísar Árnadóttur félagsmálastjóra.
Hætt við skemmtun