Morgunblaðið - 11.12.2009, Qupperneq 14
14 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 2009
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
MIKLIR möguleikar felast í íslenska
hestinum og þjónustu sem honum
tengist, að mati nefndar sem kannaði
markaðssetningu íslenska hestsins
erlendis.
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra, fylgdi skýrslu
nefndarinnar úr hlaði í gær. Hann
sagði mikilvægi íslenska hestsins
ljósara nú en nokkru sinni fyrr. Því til
sönnunar nefndi Jón mikilvægi hests-
ins við að styrkja ímynd þjóðarinnar,
bæði inn á við og út á við, í markaðs-
setningu og við öflun gjaldeyris hvort
heldur með sölu hesta eða í ferða-
þjónustu. „Þarna eigum við meiri
sóknarfæri en í mörgum öðrum
greinum,“ sagði Jón.
Ásta Möller, formaður nefndar-
innar, kynnti helstu niðurstöður og
tillögur nefndarinnar.
Einungis um þriðjungur íslenskra
hesta er á Íslandi, um 80 þúsund
hestar, en 150-160 þúsund í útlönd-
um. Íslenskir hestar eru m.a. orðnir
útflutningsvara frá Þýskalandi. Því
er talið mikilvægt að kynna hesta
sem hér eru fæddir, uppaldir og tamd-
ir sem upprunalega gæðavöru.
Mikilvægt er að efla fræðslu um
hesta og hestamennsku á öllum skóla-
stigum.
Íslenski hesturinn hefur tengt tugi
þúsunda manna í útlöndum við Ísland.
Hestamannafélög um íslenska hestinn
eru um 450 á heimsvísu og í þeim eru
um 60 þúsund félagsmenn. Af þeim
starfa 47 félög hér á landi með um 11
þúsund félagsmenn. Í þessu felast
mikil tækifæri til markaðssetningar
Íslands sem áfangastaðar. Talið er að
margir vilji fá að kynnast hestinum í
hans náttúrulegu heimkynnum og ís-
lenskri náttúru um leið. Vetrarferðir
eru einnig ónýttur möguleiki, bæði
með útreiðum og heimsóknum í ís-
lensk hesthús. Þá eru hestasýningar
fyrir ferðamenn nær óplægður akur.
Ein hugmyndin er að fá hesta-
íþróttir á íslenskum hestum viður-
kenndar sem ólympíska íþrótt. Þar er
einkum horft til keppni í tölti og gæð-
ingaskeiði.
Þá hefur íslenski hesturinn reynst
mjög gjaldeyrisskapandi. Þannig er
nú útflutningsverðmæti lífhrossa og
hrossakjöts farið að jafnast á við
heildarútflutningsverðmæti sauðfjár-
afurða.
Miklir möguleikar
Íslenski hesturinn er lykill að markaðssókn á mörgum svið-
um erlendis og hér innanlands, samkvæmt nýrri skýrslu
Morgunblaðið/Ómar
Landkynning Íslenski hesturinn hefur tengt fjölda útlendinga við Ísland. Þetta fólk hefur ekki einungis tekið ást-
fóstri við hestinn heldur einnig landið. Talið er að þau tengsl megi nýta til markaðssetningar í ferðaþjónustu.
Útflutningur landbúnaðarafurða
1.200
1.000
800
600
400
200
0
Fo
b
ve
rð
ím
ill
jó
nu
m
kr
.
Heimild: Hagstofa Íslands
Lífhross
Hrossakjöt
Afurðir sauðfjár
1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008
EKKI verður annað sagt en að mæt-
ing aðalmanna í menningar- og
ferðamálaráði Reykjavíkurborgar
hafi verið til fyrirmyndar á þessu
kjörtímabili. 19 af 23 aðalmönnum
mættu á yfir 70% funda og 14 þeirra
mættu á a.m.k. 80% fundanna. Sóley
Tómasdóttir mætti á alla átta fund-
ina sem boðað var til er hún sat í
stjórn og Kjartan Magnússon á 34 af
36 fundum. Lestina rekur hins vegar
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson sem
mætti á þrjá af átta fundum.
Morgunblaðið hefur undanfarið
óskað eftir upplýsingum um mæt-
ingu aðalmanna á fundi hinna ýmsu
ráða borgarinnar. Misvel hefur
gengið að fá þessar tölur, en þær
verða áfram birtar í blaðinu næstu
daga. annaei@mbl.is, kjon@mbl.is
Fundarseta í menningar- og ferðamálaráði
Sóley Tómasdóttir
Kjartan Magnússon
Áslaug Friðriksdóttir
Brynjar Fransson
Dofri Hermannsson
Sif Sigfúsdóttir
Þorbjörg H. Vigfúsdóttir
Jakob Hrafnsson
Stefán Jón Hafstein
Oddný Sturludóttir
Guðrún Ásmundsdóttir
Guðrún Erla Geirsdóttir
Jakob Frímann Magnússon
Kristín Þorleifsdóttir
Hermann Valsson
Guðmundur H. Björnsson
Margrét Sverrisdóttir
Marta Guðjónsdóttir
Jóhannes Bárðarson
Helga Kristín Auðunsdóttir
Árni Þór Sigurðsson
Júlíus Vífill Ingvarsson
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
8 af 8
34 af 36
28 af 30
28 af 30
41 af 45
20 af 22
13 af 15
26 af 30
12 af 14
12 af 14
21 af 25
65 af 81
8 af 10
4 af 5
17 af 22
21 af 28
6 af 8
24 af 33
24 af 36
10 af 15
15 af 26
15 af 28
3 af 8
Fundir menningar- og ferðamálaráðs á tímabilinu júní 2006 til desember 2009 voru 81
talsins og skiptast á fjögur tímabil. Ekki hafa sömu aðalmenn setið í stjórn allt kjörtímabilið
og tekur prósentureikningur mið af mætingu þeirra þann tíma sem þeir sátu í stjórninni.
Flokkur Fundarmæting Hlutfall
100%
94%
93%
93%
91%
91%
87%
87%
86%
86%
84%
80%
80%
80%
77%
75%
75%
73%
67%
67%
58%
54%
38%
Flestir með yfir 70%
STJÓRN Samorku, samtaka orku-
og veitufyrirtækja, hefur sent frá sér
ályktun þar sem mótmælt er þeirri
ákvörðun ríkisstjórnarinnar að
leggja nýja skatta á raforku og heitt
vatn. Þessir skattar muni draga úr
lífsgæðum landsmanna og sam-
keppnishæfni íslensks atvinnulífs,
auk þess að draga úr gegnsæi verð-
lagningar á raforku og heitu vatni.
„Aldrei hafa áður verið lagðir
beinir skattar á raforku eða heitt
vatn hér á landi. Frumvarpið vísar til
„umhverfis- og auðlindaskatta“, en
fjallar um hvorugt, heldur er þetta
einfaldlega skattur á orkunotkun
landsmanna, til tekjuöflunar í ríkis-
sjóð,“ segir í ályktun stjórnar Sam-
orku.
Ennfremur lýsa samtökin áhyggj-
um af því að þessir nýju skattar verði
enn hækkaðir þegar fram í sækir.
Hafna orkusköttum
www.hotelhvolsvollur.is | Sími: 487 8050 | info@hotelhvolsvollur.is
Hótel Hvolsvöllur
19. desember verður jólaborðablús. Eftir borðhald verða blústónleikar
með: Davíð Þór, Ásgeiri Óskars, Jóni Ólafs og Halldóri Braga.
Jólahlaðborð, tónleikar og gisting. Verð: 10.900 kr. á mann.
Jólahlaðborð og blús
Lifandi dinner tónlist
og dansleikur á eftir!