Morgunblaðið - 11.12.2009, Qupperneq 23
Daglegt líf 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 2009
NEMENDUR í námskeiðum rýmis og
flatar við myndlistardeild Listahá-
skólans munu í dag kl. 14 flytja hnit-
miðaðar myndbyggingar með að-
stoða ýmissa verkfæra, hreyfingar og
hljóðs eða tilfallandi tækja í tónlist-
arhorni hasarrýmisins Havarí viðA-
usturstræti 6. Uppákoman er loka-
hnykkur nemenda á veigamikilli
vinnu haustsins og sækir innblástur
til tilrauna framsækinna evrópskra
listamanna á fyrstu áratugum 20.ald-
arinnar.
Einnig munu nemendur á fyrsta og
þriðja ári í myndlistardeild LHÍ sýna í
dag afrakstur undanfarinna vikna í
húsnæði skólans í Laugarnesi. Þar
má sjá fjölbreytt verk eftir nýgræð-
inga og lengra komna. Sýningin er
opin milli klukkan 17 og 19.
Í dag
Hnitmiðaðar
myndbyggingar
KIMI RECORDS heldur á morgun
árlegan útgáfu- og jólafögnuð sinn
á Sódóma. Þar munu stíga á svið
fimm kyngimagnaðar (og rafmagn-
aðar) hljómsveitir sem allar hafa
gefið út plötu hjá Kima á árinu:
Sudden Weather Change, Retrön,
Morðingjarnir, Kimono og Me, The
Slumbering Napoleon. Aðeins
1.000 kr. kostar inn á tónleikana
og verða plötur sveitanna sem og
annar varningur til sölu fyrir lítinn
pening.
Í tilefni af þessum tónleikum,
frábæru útgáfuári og degi íslenskr-
ar tónlistar ætlar Kimi Records að
gefa áhugasömum jólasafnskífu á
rafrænu formi. Hún nefnist Jóla-
steik Kimi Records 2009 og inni-
heldur 2 lög frá þeim hljómsveitum
sem gáfu út plötu hjá Kimi Re-
cords á árinu. Skífuna má nálgast í
vefbúð Kimi Records (www.kim-
irecords.net og http://kimi.gra-
pewire.net/) frá og með degi ís-
lenskrar tónlistar og verður þar
fáanleg í nokkra daga.
Á morgun
Útgáfu- og
jólafögnuður
á Sódómu
Flottir Sudden Weather Change.
BÍÓSAGA BANDARÍKJANNA er mikill
fengur fyrir hina fjölmörgu unnendur
og aðdáendur Hollywood-kvikmynda.
Höfundurinn, Jón-
as Knútsson, kvik-
myndagerð-
armaður og
latínuþýðandi, var
mörg ár að vinna
að bók sem er
stútfull af fróð-
leik. Fjallað er um
þróun kvikmynda
og helstu stefnur,
félagsleg og fag-
urfræðileg áhrif kvikmynda og vit-
anlega er sagt frá leikstjórum og
kvikmyndastjörnum. Bókin er skrifuð
af þekkingu og innsæi og krydduð
með húmor. Auk þess er hún fallega
og skemmtilega upp sett og hana
prýða yfir 600 ljósmyndir. Þetta er
bók sem hægt er að fletta nær enda-
laust og gleyma sér í. Einkar eiguleg
og lesvæn bók fyrir alla kvikmynda-
aðdáendur. kolbrun@mbl.is
Bókin
Fróðleg bók
um Hollywood
Saga Hollywood
FORELDRAR vita ekki alltaf hvað
börn þeirra og unglingar aðhafast á
netinu en samkvæmt nýrri íslenskri
könnun eru 77% barna og unglinga
fyrst og fremst að leika sér þegar
þeir setjast við tölvuna. Foreldrarnir
vanmeta þann mikla áhuga á tölvu-
leikjum sem börnin hafa en þó eru
þeir meðvitaðri um leikjaáhugann nú
en í fyrri könnunum á sambærilegu
efni. Enn meiri munur kemur í ljós
þegar spjallforritið MSN er annars
vegar. Áhugavert er að sjá að börnin
eyða meiri tíma á netinu við heima-
nám en foreldrarnir telja.
Rúmur helmingur barna, eða 55%,
spilar tölvuleiki á netinu að jafnaði í
minna en klukkustund þegar þau
spila en 31% eyðir um 1 til 2 klukku-
stundum í tölvuleiki á netinu þegar
spilað er.
Þekking foreldra á þeim leikjum
sem börn spila á netinu hefur aukist
lítillega frá síðustu könnun og tölu-
vert frá upphafi. Því virðist vera um
jákvæða þróun að ræða í þeim efn-
um.
Flest börn spila ein þegar þau eru í
leikjum á netinu, eða 66,4%. Um
26% spila leiki með fjölskyldu og vin-
um í sama herbergi en 24,2% með
fjölskyldu og vinum á netinu.
Könnunin var gerð meðal 9-15 ára
barna á þessu ári í samstarfi Heimilis
og skóla, Capacent Gallups og Lýð-
heilsustöðvar.
Samskipti við vinina og tölvuleikir á toppnum
Hvað gera börnin á Internetinu?
Hvað gera börn á netinu?
Spila tölvuleiki
MSN
Vafra á facebook
Hleðniður tónlist
Vinnheimaverkefni
Vafra áMySpace
Ná í upplýsingar,aðrar
en fyrir skólaverkefni
Sendi og fæ tölvupóst
77,0%
66,4%
58,8%
41,4%
40,1%
32,5%
32,4%
25,4%
Hvað telja foreldrar að börn
sín geri á netinu?
Spila tölvuleiki
MSN/Skype
Heimanám
Skoðaeinkaheimasíður/
Facebook/Myspace
Spjallrásir
Samskipti/tala við vini
Spila tónlist
Annað
5,3%
11,5%
9,6%
65,9%
29,7%
28,6%
14,4%
45,2%
SKREYTUM HÚS
MEÐ MILLJÓNUM
Sexfaldur Lottópottur stefnir í 60 milljónir.
Leyfðu þér smá jóla-Lottó!
60
milljónir