Morgunblaðið - 11.12.2009, Page 25
25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 2009
Hæ, ég er hér! Rauði krossinn fékk frísklega hjálp í gær þegar fjölmörg börn af frístundaheimilum í vesturbæ Reykjavíkur héldu jólamarkað í Frostaskjóli. Þar var hægt að kaupa jólaskraut og
ýmsa muni sem börnin höfðu sjálf föndrað og allur ágóði rennur til styrktar verkefna Rauða krossins í Malaví. Þar er rekið frístundaheimili fyrir börn sem eiga um sárt að binda vegna alnæmis.
Golli
RÚMUR áratugur
er liðinn frá því um-
ræður um nýtt hús
fyrir háskólaspítala
hófust fyrir alvöru
hérlendis, nokkru áð-
ur en spítalarnir í
Reykjavík voru sam-
einaðir í einn um
mitt ár 2000. Um 2-3
árum síðar var hinni
nýju spítalabyggingu
valinn staður á Grænuborgartúni, á
lóð Landspítalans við Hringbraut.
Í þessari grein ætlum við að rifja
upp á hverju sú ákvörðun var
byggð.
Háskólasjúkrahús
Meginverkefni heilbrigðisþjón-
ustu eru þríþætt, að sinna veiku
fólki, uppgötva nýja þekkingu með
rannsóknum og kenna og þjálfa
fólk til starfa. Þetta þríeina hlut-
verk endurspeglast ekki síst í til-
urð og tilvist háskólaspítala. Til
hvers eru þeir? Þeir eru miðstöð
þjónustu, kennslu og rannsókna í
heilbrigðisvísindum og segja má að
þeir sé að nokkru orðnir til að
sinna kennslu og rannsóknum. Há-
skólaspítalar eru alltaf tengdir við-
komandi háskóla, og geta þau
tengsl verið ærið mismunandi að
því er lýtur að stjórnum, allt frá
sameiginlegri stjórn til samvinnu
og samstarfs að sameiginlegum
markmiðum, ekki ósvipað því sem
við þekkjum hér. Landfræðileg
tengsl eru nær ætíð eitt af skil-
yrðum þessa samstarfs, skóli og
spítali eru á sömu torfu og sjaldn-
ast meira en steinkast á milli.
Læknalið og hluti annars klínísks
starfsliðs spítala er í föstum kenn-
arastöðum við háskóla og fólk er
ráðið með tilliti til kennslu- og
rannsóknagetu ekki síður en til
þjónustustarfa.
Hlutverk háskólasjúkrahúsa
Þar er sjúklingum sinnt, oftast
mjög vel, þau hafa með höndum
umsjón grunn- og framhaldsmennt-
unar heilbrigðistétta, vísinda- og
þróunarstörf eru snar þáttur í
starfseminni. Þar er yfirleitt sér-
hæfðustu heilbrigðisþjónustu
hverrar þjóðar sinnt og háskóla-
sjúkrahús eru oftast nær akker-
isfesta þjónustunnar, og er þar síst
verið að gera lítið úr framlagi ann-
arra. Þar er ákveðin hugsýn höfð
uppi sem lýtur að verklagi og
vinnuaðferðum, vinnan er hluti
kennslunnar og öfugt, kennslan er
hluti vinnunnar. Yfirleitt er sú
þjónusta sem háskólasjúkrahús
veita breið og víðfeðm, enda nauð-
synlegt vegna rannsókna- og
kennsluhlutverks, á þeim er flest-
um verkum sinnt, en ekki endilega
öllu umfangi verkanna. Háskóla-
sjúkrahús hafa gott af samkeppni
eins og flestir aðrir. Stöðug hvatn-
ing til umræðu og skoðanaskipta er
ennfremur einn af hornsteinum há-
skólasjúkrahúsa, þannig verða til
nýjar hugmyndir og þróun. Eins
og áður sagði eru háskólaspítalar
yfirleitt góð sjúkrahús sem draga
til sín gott starfsfólk. Tímaritið
„US World and News Report“
birtir árlega lista yfir bestu sjúkra-
hús í Bandaríkjunum. Þau eru
metin eftir orðstír, dánartölu, og
árangri á 16 sérsviðum. Á úrvals-
lista 2009 eru 21 sjúkrahús sem öll
eru háskólasjúkrahús.
Íslensk löggjöf
Hafa þessi sjónarmið ratað inn í
íslenska löggjöf um heilbrigð-
isþjónustu? Þeirri spurningu verð-
ur að svara játandi. Í nýlegum lög-
um um heilbrigðisþjónustu frá
2007 er háskólasjúkrahús skil-
greint á eftirfarandi hátt: „Sjúkra-
hús sem veitir þjónustu í nær öll-
um viðurkenndum sérgreinum
læknisfræði og hjúkrunarfræði,
með áherslu á rannsóknir, þróun
og kennslu. Sjúkrahúsið er í nánu
samstarfi við háskóla sem sinnir
kennslu og rannsóknum í lækn-
isfræði og flestum öðrum greinum
heilbrigðisvísinda, svo og eftir at-
vikum framhaldsskóla. Starfsmenn
sjúkrahússins, sem uppfylla til-
teknar hæfiskröfur háskóla, gegna
störfum bæði á sjúkrahúsinu og við
háskólann eða hafa önnur starfs-
tengsl við háskólann. Meðferð
sjúklinga, kennsla og rannsóknir
eru samþætt í daglegum störfum á
sjúkrahúsinu.“ Í lögunum er hlut-
verk Landspítalans sem háskóla-
spítala síðan skilgreint nánar með
tilliti til þessara sjónarmiða.
Staða Landspítalans
Hvernig er Landspítalinn séður
frá þessu sjónarhorni? Er hann há-
skólaspítali? Þeirri spurningu verð-
ur líka að svara játandi, heldur
betur. Hann er eins og flestir vita
stærsti vinnustaður landsins. Þar
vinna um 4.500 manns í um 3.900
stöðugildum, þangað leitar um
þriðjungur þjóðarinnar á hverju
ári, þar eru innlagnir tæplega
30.000 á ári, þar eru gerðar um
15.000 skurðaðgerðir og þar fæðast
um 3.400 nýir landsmenn árlega.
Loks eru þar um 1.100 nemar í
ýmsum greinum heilbrigðisvísinda
í klínísku námi á ári hverju. Skv.
upplýsingum frá Rannís birtust um
800 greinar eftir íslenska vís-
indamenn í erlendum ritrýndum
fagtímaritum á síðasta ári. Gríð-
arleg gróska hefur verið í vísinda-
rannsóknum hérlendis undanfarna
áratugi og hefur fjöldi birtra
greina í alþjóðlegum ritum næstum
tífaldast frá því um miðjan níunda
áratuginn. Um 45% allra greina
sem þar birtast eru af sviði heil-
brigðisvísinda og u.þ.b. 60% þeirra
koma frá sameiginlegum starfs-
mönnum Landspítala og Háskóla
Íslands eða verða til í samstarfi
þeirra. Þetta er e.t.v. ljósasta
dæmið um öfluga og farsæla sam-
vinnu þessara stofnana sem staðið
hefur og eflst áratugum saman.
Jafnframt er mikið samstarf við
aðrar innlendar rannsóknastofn-
anir, s.s. Íslenska erfðagreiningu,
Hjartavernd, Matís, Keldur o.fl.
Vaxandi samstarf er við erlenda
háskóla og rannsóknastofnanir og
mjög aukin sókn í alþjóðlega
styrki. Þetta samstarf sem borið er
uppi að miklu leyti af stofnunum
tveimur, Háskóla Íslands og Land-
spítalanum, er ein af forsendum
þess að vísindarannsóknir af al-
þjóðlegum gæðum þróist áfram
hérlendis.
Staðarval nýrrar
spítalabyggingar
Meginforsenda staðarvals nýrrar
spítalabyggingar við Hringbraut
var því nálægð spítalans við há-
skólann, stofnanirnar eru háðar
hvor annarri í faglegu tilliti og
verða ekki í sundur slitnar. Hluti
hinnar nýju byggingar mun hýsa
heilbrigðisdeildir háskólans, og
tengsl stofnananna verða vart end-
anlega innsigluð fyrr en af því
verður. Auk þess höfðu byggingar
sem fyrir eru á lóðinni áhrif, enda
munu þær nýtast áfram. Í þeirri
umræðu sem nú á sér stað og mun
verða um nýbyggingu spítalans er
nauðsynlegt að þeim sjónarmiðum
sem hér hafa verið tínd til sé hald-
ið til haga og gleymist ekki. Land-
spítalinn er og verður að vera
landspítali og háskólaspítali. Þróun
íslenskrar heilbrigðisþjónustu er að
hluta undir því komin.
Eftir Kristínu Ing-
ólfsdóttur og Sig-
urð Guðmundsson
»Meginforsenda
staðarvals nýrrar
spítalabyggingar við
Hringbraut var því
nálægð spítalans við
háskólann, stofn-
anirnar eru háðar
hvor annarri í faglegu
tilliti og verða ekki í
sundur slitnar. KristínIngólfsdóttir
Kristín Ingólfsdóttir er rektor HÍ og
Sigurður Guðmundsson er forseti
heilbrigðisvísindasviðs HÍ.
Landspítalinn – hvert er hlutverk
hans og hvar á hann að vera?
Sigurður
Guðmundsson