Morgunblaðið - 11.12.2009, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 2009
ÍSLENSK þjóð
stendur á tímamótum.
Eftir mikla „uppgangs-
tíma“ blasir við mikið
og vaxandi atvinnu-
leysi, fjárþrot heimila,
fyrirtækja og ríkisjóðs.
Gjaldþrotum fjölgar og
fjölskyldur missa heim-
ili sín. Landflótti er
hafinn og á eftir að
aukast.
Nokkrir tugir eða hundruð gráð-
ugra einstaklinga hafa notað Ísland á
siðlausan hátt til að auðgast sjálfir og
um leið grafið undan eigin þjóð. Þeir
hafa í raun gert hana gjaldþrota og
með framferði sínu svipt hana því
góða orði sem Ísland og íslendingar
höfðu á sér um víða veröld. Ólöglegir
viðskiptahættir, svik og þjófnaður í
stórum stíl er smám saman að koma í
ljós. Allt hefur þetta viðgengist í skjóli
stjórnmála- og embættismanna sem
með vanrækslu eða ásetningi bera
mikla ábyrgð á þeirri stöðu sem þjóð-
in er nú í. – Almenningur er reiður.
Sú bjartsýni og von sem heyrist
víða um land og lýsir sér í nýjum
sprotafyrirtækjum og hugmyndum
um endurreisn atvinnulífs, er ekki
stjórnvöldum að þakka. Hún kemur
frá einstaklingum og hópum sem
neita að leggja árar í bát og gefast
upp. Hún er staðfesting þess að ís-
lenska þjóðin er sérstök. Frá henni
sjálfri munu lausnir koma – milliliða-
laust.
Þingið
Alþingi Íslendinga, ásamt rík-
istjórn á hverjum tíma, hefur ekki
staðið sig sem skyldi. Þar liggur stór
hluti ábyrgðarinnar. Einkavæðing og
frjálshyggja hóf för sína þar, þá för
sem nú hefur endað með skipbroti.
Bankarnir voru seldir völdum aðilum
án þess að setja um leið lög sem
tryggðu að kaupendurnir tækju við
allri ábyrgð á rekstri þeirra. Eign-
arhaldi og tekjumöguleikum ríkisins
var þannig sleppt en ábyrgðin hvíldi
áfram á herðum ríkisins, þ.e. þjóð-
arinnar, eins og nú hefur biturlega
komið í ljós. Eftirlitsstofnanir sinntu
ekki virku aðhaldi og eftirliti – slök-
uðu frekar á því ef eitthvað var. Vitað
er að ákveðnir einstaklingar vöruðu
við yfirvofandi kreppu en á þá var
ekki hlustað.
Þegar hrunið svo kom stóðu stjórn-
völd uppi ráðalaus. Þegar þau voru
innt eftir viðbrögðum var því svarað
að málið væri á viðkvæmu stigi og
ekki rétt að ræða það opinberlega. Þó
kom þar, að formaður annars stjórn-
arflokkanna a.m.k. taldi að sá hluti
vandans sem sneri að erlendum bönk-
um og stjórnvöldum (Icesave) skyldi
leystur á pólitískum vettvangi en ekki
réttarfarslegum. Því runnu út frestir
til málarekstrar.
Pólitískar lausnir hafa ekki reynst
auðfundnar, nema með
afarkostum. Auk þess
fjölgar þeim sérfræð-
ingum sífellt sem telja
að glatað fé erlendra
sparifjáreigenda sé ekki
á ábyrgð íslenska rík-
isins. „Vinaþjóðir“ okk-
ar í Evrópu settu stein í
götu okkar hjá Alþjóða-
gjaldeyrissjóðnum og
ein þeirra beitti hryðju-
verkalögum gegn Ís-
landi.
Annar stjórnarflokk-
anna knúði fram stjórnarslit og
myndaði stjórn með öðrum eftir
kosningar. Aðaláhugamál hinnar
nýju stjórnar var að vísa seðla-
bankastjóra úr starfi og sækja um að-
ild að Evrópusambandinu – ESB,
hvað sem það kostaði. Það samþykkti
Alþingi með naumum meirihluta eftir
að sumir þingmenn höfðu verið beitt-
ir slíkum þrýstingi að tár runnu um
hvarma þegar lengst gekk. Um leið
samþykkti þingið að spyrja þjóðina
ekki hvort hún vildi sækja um aðild
að ESB og jafnframt að ef „samn-
ingar“ um aðild næðust skyldu þeir
bornir undir þjóðina – en niðurstaðan
yrði ekki bindandi heldur réði Alþingi
því alfarið hvort Ísland yrði innlimað í
ESB.
Síðan hrunið varð er nú liðið á ann-
að ár. Stjórnvöld hafa ítrekað sagst
ætla að „slá skjaldborg um íslensk
heimili og halda hjólum atvinnulífsins
gangandi“. Það hefur ekki verið gert
svo dugi. Um 4000 manns hafa þegar
flutt úr landi og fyrirtæki draga sam-
an seglin eða fara í gjaldþrot. Á sama
tíma hafa stjórnvöld eytt ómældum
tíma og fé í umsókn að ESB; kostnað
við látlaus ferðalög, þýðingar og
samninganefndir. Stjórnvöld vilja
með lögum, byggðum á vafasömum
forsendum, binda okkur skuldabagga
hinna umdeildu Icesave reikninga –
allt til að liðka fyrir og flýta innlimun
Íslands í ESB. Svo er hluta þing-
manna fyrir að þakka að það hefur
ekki enn gerst – en að því mun koma.
Offors, frekja og hroki, svo og
leynimakk og ósannindi hafa ein-
kennt framgöngu núverandi stjórn-
valda. Spurt er: Er stjórnin vanhæf?
Forsetinn
Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands
er hornsteinn stjórnarhátta okkar. Í
henni er lagt fyrir að lög frá Alþingi
öðlist gildi við undirritun forseta Ís-
lands. Forsetanum er hins vegar gef-
ið vald til að hafna lögum og skal þá
vísa þeim til þjóðaratkvæðagreiðslu.
Hr. Ólafur Ragnar Grímsson hef-
ur, einn forseta, synjað lögum sam-
þykkis með tilvísan til grunnstoða
lýðræðisins og gjár milli þings og
þjóðar. Ennfremur samþykkti hann
fyrir nokkrum mánuðum lög um
greiðslu Icesave með þeirri at-
hugasemd að þeim fylgdu nauðsyn-
legir fyrirvarar. Nú, þegar þessir fyr-
irvarar hafa að mestu verið
fjarlægðir – að kröfu viðsemjenda,
væntir þjóðin þess að fá að greiða at-
kvæði um hin nýju lög.
Með ákvörðun um það stígur hinn
þjóðkjörni forseti vor á þann stall
sem þjóðin vill sjá hann á – samein-
ingartákn, hafinn yfir allt annað en að
tryggja framgang réttlætis og lýð-
ræðis í sinni tærustu mynd.
Forseti, þing og þjóð
Eftir Baldur
Ágústsson » Þannig stígur forseti
vor á stall sem sam-
einingartákn, hafinn yf-
ir allt annað en að
tryggja framgang rétt-
lætis og lýðræðis í sinni
tærustu mynd.
Baldur Ágústsson
Höf. er fv. forstjóri og frambjóðandi í
forsetakosningum 2004 – www.lands-
menn.is – baldur@landsmenn.is.
Listhúsinu Laugardal, 581 2233 • Baldursnesi 6, Akureyri, 461 1150
Opið virka daga kl. 10.00 - 18.00 – laugardaga 12.00 - 16.00
Fyrst og fremst í heilsudýnum
6 mán.
vaxtalausar greiðslur
Verð nú: 199.900
Verð áður: 229.900
Queen 153x203 cm
Verð nú: 149.900
Verð áður: 189.900
Queen 153x203 cm
ÞÓR
Sofðu vel um jólin
JÓLATILBOÐ
Verð nú: 129.900
Verð áður: 164.900
Queen 153x203 cm
SAGA
www.noatun.is
GRÍSAHNAKKA-
SNEIÐAR
KR./KG849
Við gerum
meira
fyrir þig
50%
afsláttur
1698
BBESTIR
Í KJÖTI
ÚRKJÖTBOR
ÐI
ÚR
KJÖTBORÐI
Mennta- og menningarmálaráðuneytið með Vísinda- og tækniráði og Rannsóknastofu
um háskóla stendur fyrir málfundum veturinn 2009 - 2010 um framtíð háskóla og
rannsókna. Markmiðið er að vinna að sameiginlegum skilningi á aðstæðum háskóla
og rannsóknastofnana í samfélagi okkar og móta sýn um uppbyggingu
og samstarf menntunar og rannsókna í landinu.
Hlutverk háskóla
Fundarstjóri Berglind Rós Magnúsdóttir
Dagskrá:
Ávarp
Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra
Þekking til verðmæta, tengsl háskóla og atvinnulífs
Svava Bjarnadóttir, Mannviti hf.
Þekkingarsköpun innan háskóla; til hvers og fyrir hverja?
Magnús Karl Magnússon, Háskóla Íslands
Um skoðanafrelsi og sjálfstæði háskólanema
Aðalheiður Ámundadóttir, Háskólanum á Akureyri
Háskólar í samfélaginu og samfélag háskólanna
Jón Ólafsson, Háskólanum á Bifröst
Pallborðsumræður
Boðið verður upp á léttar veitingar.
Næstu málfundir verða 15. og 22. janúar 2010.
Mennta- og menningarmálaráðuneytið
Föstudaginn 11. desember kl. 13 - 16 í Norræna húsinu
Málfundir...
...um háskólamál og rannsóknir