SunnudagsMogginn - 14.02.2010, Page 2
2 14. febrúar 2010
4-6 Vikuspeglar
Valentínusardagurinn, snobbsíðan sem sigraði og meistari McQueen
fallinn frá.
24 Saknar ekki stjórnmálanna
Margrét Frímannsdóttir hefur gegnt embætti forstöðumanns fangels-
isins á Litla-Hrauni í tvö ár.
28 Þú átt glóðaraugað skuldlaust!
Ragnar Axelsson rifjar upp söguna á bak við björgun skipverja á Haf-
rúnu ÍS-400 árið 1983.
32 Stoltur af síðasta rekstrarári
Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, segir sparkárið 2009 hafa verið
gott en gengisþróunin hefur m.a. verið sambandinu hagstæð.
34 Götubarn sem
betlaði og rændi
Rætt við Friedu Darvel sem átti erfitt líf í
Höfðaborg í Suður-Afríku en syngur nú í
gospelkórum í Svíþjóð og heimsækir Ísland.
36 Kirkjan alltof
miðstýrð
Dr. Gunnar Kristjánsson á Reynivöllum vill að þjóðkirkjan taki upp lýð-
ræðislegri vinnubrögð.
Lesbók
50 Vatnslitir á Íslandi
Sýningin Blæbrigði vatnsins var opnuð á Kjarvalsstöðum á föstudags-
kvöldið. Þar eru 160 verk eftir 60 listamenn.
52 Ævintýraleg endurreisn
Skáldverk Irene Nemirovsky eru nú endurútgefin víða um heim.
54 List í hverju spori
Umsögn um sýningu á útsaumsverkum Guðrúnar Guðmundsdóttur í
Bogasal Þjóðminjasafnsins.
27
Efnisyfirlit
Forsíðumyndina tók RAX af Jóni Þór Birgissyni.
Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudagsmoggans:
Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, Helgi Snær Sigurðsson, Hólmfríður Gísladóttir, Ingveldur Geirsdóttir,
Kolbrún Bergþórsdóttir, Kristján Jónsson, Orri Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir , Skapti Hallgrímsson, Ylfa Kristín K. Árnadóttir.
Augnablikið
I
came from Alabama,“ syngur Árni Johnsen
og spilar á banjó, eins og segir í laginu sjálfu.
„Komdu niður, ég ætla að sýna þér svolít-
ið,“ kallar Sigtryggur Sigtryggsson frétta-
stjóri í hitt eyrað, einn mesti keppnismaður á Fróni
og þótt víðar væri leitað.
Hann teymir blaðamann á eftir sér um rangala
kjallarans að húsbóndaherberginu, þar sem Árni
geymir verkfærin, skjalaskápana, ótrúlegustu gripi
héðan og þaðan – og forláta snókerborð! Þar hafa
þeir marga hildi háð, Sigtryggur, Árni og Ágúst
Ingi Jónsson, einkum þann tíma sem allir voru
fréttastjórar á Morgunblaðinu.
Vandfundið er gestrisnara fólk en í Rituhólum.
Því fá allir að kynnast, sem koma á heimili Árna og
Halldóru. Þetta kvöld eru það fáeinir vinir og fé-
lagar skáldsins og ritstjórans Matthíasar Johann-
essens af Morgunblaðinu, sem Árni hefur smalað
saman vegna stórafmælis hans á dögunum. Ekki
eru talin árin. „Minnstu ekki á það,“ segir Matt-
hías.
Hann er líkur sjálfum sér, í lopapeysu, hæglátur í
fasi, hlýr í viðmóti, persónulegur í tali. „Þú lítur
vel út,“ segir hann við Ragnar Axelsson ljósmynd-
ara, sem þjóðin þekkir sem RAX. „Þú hefur full-
orðnast. Mér fannst þú alltaf svo mikið krútt.“
RAX verður orðlaus. Ekki oft sem það kemur
fyrir. Þegar hann jafnar sig, segir hann: „Höfum
söguna þannig, að ég hafi sagt: Ég er það ennþá!“
Svo hlær hann.
Matur er á borð borinn. Kjötsúpan kjarngóð og
bragðmikil. Kókið freyðir upp úr glasi Freysteins
Jóhannssonar þegar blaðamaður hellir í það.
„Það er alveg greinilegt að þú vinnur ekki á bar,“
segir hann brosandi. „Þú ferð hinumegin.“
Fuglar og skútur svífa í loftinu, en kisan Ása
teygir úr sér á gólfinu. Hún fannst í öskutunnu.
Ekkert er hefðbundið á þessu heimili. Árni er í
miðri sögu af því, er hann lenti í krapa með svelli
undir á Suðurlandsveginum fyrir tæpum tveim
vikum og missti stjórn á bílnum, sem kastaðist
fjörutíu metra og fór fimm veltur.
Hann sakaði ekki. „Ég er í lófa Guðs,“ segir hann
og brosir.
„En þú breikkaðir Suðurlandsveginn,“ segir
Þórir Þorsteinsson, sem er fjallstór og kallar ekki
allt ömmu sína. Vegir eru breikkaðir, svo hann
komist leiðar sinnar.
Ritstjórarnir Matthías og Styrmir Gunnarsson
sitja hlið við hlið, eins og þeir eru vanir. Sumt
breytist aldrei. Sigtryggur fær ekkert næði til að
gæða sér á súpunni, því hann er stöðugt að tína upp
fréttamola sem hrjóta af vörum þeirra og hringja í
Ágúst Inga, sem er á vaktinni. Samræðurnar inn-
blásnar, til dæmis um manninn sem gekk alltaf út á
sokkunum og hélt á skónum, þá sagðist hann vera
fljótari að hátta sig þegar heim kæmi.
Árni Matthíasson sker afmæliskökuna. „Til heilla
Matthíasi,“ stendur á kökunni. Matthías þakkar
fyrir sig, en vill ekki heyra minnst á afmæli. Þetta
eru bara félagar og vinir að gera sér glaðan dag.
„Komdu Pétur,“ hvíslar Sigtryggur. Og við læð-
umst niður í snóker.
pebl@mbl.is
Sögumaðurinn Matthías Johannessen í essinu sínu; félagsskapurinn verður ekki betri.
Morgunblaðið/RAX
Var svo mikið krútt
17. febrúar
Næstkomandi miðvikudag og fimmtudag verða haldnir Deep Purple-
heiðurstónleikar á Sódómu Reykjavík. Á tónleikunum koma fram Eiríkur
Hauksson, Ingólfur Sigurðsson, Vignir Stefánsson, Jóhann Ásmundsson
og Sigurgeir Sigmundsson. Uppistaðan í prógramminu verður af Deep
Purple in Rock en einnig lög sem David Coverdale gerði ódauðleg með
sveitinni, t.d. Mistreated og Stormbringer. Tónleikarnir hefjast kl. 20.30.
Deep Purple-heiðurstónleikar
Við mælum með…
14. febrúar
Í dag verður haldið
fjölskyldunámskeið í
gerð öskupoka og
bolluvanda. Nám-
skeiðið er haldið í
samvinnu við Heimilisiðnaðarfélag
Íslands og verður í Gerðubergi kl.
14-16 og í Borgarbókasafninu
Grófarhúsi kl. 15-16.30. Krakkar á
öllum aldri velkomnir og þátttaka
er ókeypis.
19. febrúar
Öll helstu ein- og
samsöngsatriði óp-
erunnar Aidu eftir
Verdi verða flutt á
sviðsettum tónleikum
í Íslensku óperunni kl. 20. Á tón-
leikunum koma fram Elín Ósk Ósk-
arsdóttir sópran, Jóhann Friðgeir
Valdimarsson tenór og Hörn
Hrafnsdóttir mezzósópran. Með-
leikari er Antonía Hevesi, píanó-
leikari við Íslensku óperuna.