SunnudagsMogginn - 14.02.2010, Blaðsíða 38
38 14. febrúar 2010
Erfitt var að keyra hjólastólana á svæðinu við Jökulsárlón.
F
riðrik Ásmundsson Brekkan hef-
ur starfað sem sjálfstæður far-
arstjóri hér heima og erlendis ár-
um saman. Hann hefur farið tugi
ferða með útlendinga um Ísland en ferðin í
fyrrasumar stendur upp úr að hans sögn
vegna þess hve ferðalangarnir voru þakk-
látir og hve gríðarleg ánægja þeirra var
með land og þjóð. Þrátt fyrir það segir
hann aðgengi fyrir fatlaða víða mjög
ábótavant en einfalt sé að bæta úr. Mjög
oft þurfi ekki mikla peninga heldur hug-
myndaflug – og að drífa í hlutunum!
Upplifðu landið eins og aðrir
Friðrik segir að áhersla hafi verið lögð á að
sýna hinum erlendu gestum mikla um-
hyggju og hann og aðrir sem að málinu
komu voru staðráðnir í því frá upphafi að
þrátt fyrir að fólkið væri bundið við hjóla-
stól skyldi það fá tækifæri til þess að upp-
lifa landið með nákvæmlega sama hætti og
þeir sem stundum eru kallaðir „venjulegir
ferðamenn“ eins og Friðrik orðar það.
Fararstjórinn hefur áður farið með hóp
fatlaðra um Ísland en ekki svona marga í
einu og kveðst hafa verið nokkuð
áhyggjufullur áður en lagt var í hann, enda
vinnan miklu meiri en venjulega. En allir
hafi lagst á eitt við að gera dvöl hinna er-
lendu gesta sem ánægjulegasta. Aðstoð-
armenn sem voru með hverjum ferða-
manni hafi staðið sig frábærlega, einnig
sérstakur hópstjóri og bílstjórinn frá Hóp-
bílum sem er sérhæfður í því að aka fötl-
uðum.
Handtökin eru fleiri en venjulega þegar
lyfta þarf fólki í sjö hjólastólum upp í bíl að
morgni og nokkrum sinnum niður og upp
í aftur yfir daginn. Friðriki taldist til að
þetta væri samtals 91 skipti á hefð-
bundnum degi; 637 skipti yfir vikuna sem
ferðin stóð. Enginn hefði þó vílað þetta
fyrir sér.
Fyrir þremur áratugum var sérstakt ár
fatlaðra, þá var víða tekið til hendinni en
síðan þá segir Friðrik allt of lítið hafa
breyst og víða sé pottur brotinn. Hann
segir til dæmis grátlegt að horfa upp á að-
stæður sums staðar við helstu „perlur“ Ís-
lands.
Flest stór hótel eru með að minnsta
kosti tvö eða þrjú góð herbergi, þar sem
góð aðstaða er fyrir fólk í hjólastólum,
segir hann, en víða annars staðar skorti
töluvert á. Honum verður þó frekar tíð-
rætt um mun einfaldari hluti en þessa;
sáraeinfalda þætti, og kennir athug-
unarleysi um að ekki hafi verið bætt úr.
Aðstaða innandyra sé jafnvel mjög góð
fyrir fólk í hjólastólum en erfitt sé að
komast af bílastæði og inn í hótelið.
„Stundum kom maður að gistiheimili úti á
landi sem var mjög vel útbúið fyrir fatlaða
en frá bílastæði að húsinu voru jafnvel 20
metrar þar sem fara þurfti með hjólastól-
ana yfir möl. Þar hefði dugað að leggja
nokkrar gangstéttarhellur sem maður sá
jafnvel liggja ónotaðar annars staðar í
bænum. Það þarf ekki alltaf aukafjárveit-
ingu eða nefnd heldur bara að hafa augun
opin og nýta það sem til er. Þeir liggja
víða, fjársjóðirnir.“
Fossarnir
„Hápunktur ferðarinnar hjá þessu fólki frá
Ísrael var að sjá fossana; það var stundum
erfitt að slíta það frá þeim því fólkinu
fannst svo mikið til koma að sjá allt þetta
ferska, fína vatn. Þetta fólk, sem kemur
frá landi þar sem liggur við að stríð sé um
vatnið, naut þessa virkilega og var í raun
gáttað. Þau sáu hve stórkostlegt landið er,
en við metum það ekki alltaf sjálf.“
Túristar sem koma til Íslands leita að
einlægni og einfaldleika, segir hann.
Margir telji Ísland sérstakt. „Fólkið vill
ekki trúa því að við séum að verða eins og
allir hinir.“
Hópurinn skoðaði m.a. Jökulsárlón,
Þarf ekki nefnd, bara
að drífa í hlutunum
Friðrik Ásmundsson Brekkan fór í ferðalag um Ísland í fyrrasumar með
nokkrum fötluðum Ísraelsmönnum sem allir voru í hjólastól. Hann segir að
víða sé hægt að bæta mjög aðgengi fyrir fatlaða með sáralitlum tilkostnaði.
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Við Geysi, perlu sem Friðriki þykir þurfa að hugsa betur um.Við Gullfoss þar sem aðstæður eru oft slæmar, að sögn Friðriks.
Ísraelsku ferðamennirnir ásamt aðstoðarmönnum sínum við Skógarfoss í fyrrasumar. Þeim fannst fossarnir hér á landi yndislegir. Möl eins og þessa má nánast kalla ófæru fyrir fólk í hjóla
Ferðalög