SunnudagsMogginn - 14.02.2010, Blaðsíða 33

SunnudagsMogginn - 14.02.2010, Blaðsíða 33
14. febrúar 2010 33 selja þá til erlendra sjónvarpsstöðva. „Áhugi á útsend- ingum frá kvennaleikjum er enn sem komið er minni en frá karlaleikjunum,“ segir Geir. Íslensk fyrirtæki hafa stutt duglega við bakið á KSÍ á undanförnum misserum en Geir upplýsir að ekki sé lengur á vísan að róa í þeim efnum. „Við höfum verið að vinna í því að endurnýja okkar samstarfssamninga og það hefur aldrei verið jafn erfitt. Það er mikið hik á íslenskum fyr- irtækjum og við finnum að það er kreppa í íslensku við- skiptalífi. Það er því alveg ljóst að hefðum við ekki þennan trausta tekjugrunn erlendis yrðum við að draga saman í rekstri sambandsins.“ KSÍ var með sjö styrktaraðila en á þessum tímapunkti hefur samstarfssamningur verið endurnýjaður við þrjá, Icelandair og Coca Cola eru tveir þeirra en Geir segir ekki tímabært að upplýsa um þann þriðja strax. Sá aðili er þó fastur í hendi. „Við erum að vinna í því að fjölga styrkt- araðilum en staðan er augljóslega mun þrengri en áður.“ Geir segir brögð að því að fólk hafi ranghugmyndir um fjármál KSÍ, stjórnmálamenn hafi jafnvel gert því skóna að sambandið sé á framfæri hins opinbera. „Vangaveltur af því tagi eru svo langt frá veruleikanum að segja má að þær séu galnar. Beint ríkisframlag sem kom til okkar gegnum ÍSÍ á síðasta ári var 3,6 milljónir króna. Það er ekki hátt hlutfall þegar heildartekjurnar eru yfir 700 milljónir króna.“ KSÍ flutti í nýjar höfuðstöðvar á Laugardalsvelli árið 2007 og Geir segir fjármögnun vegna þess verkefnis endanlega hafa lokið á síðasta ári. „Það var mikill léttir að klára það mál. Gengisþróunin var okkur nefnilega ekki bara hagstæð. Tekið var 300 milljóna króna framkvæmdalán vegna þessa verkefnis sem hækkaði um helming. Okkur tókst hins veg- ar að borga það upp á síðasta ári og erum fyrir vikið ekki með neinar vaxtaberandi skuldbindingar á sambandinu. Það hefur ekki gerst í meira en áratug. Mín skoðun er sú að KSÍ eigi að einbeita sér að knattspyrnurekstri en það var óhjákvæmilegt að koma inn í þessa uppbyggingu og án er- lends fjármagns hefði hún aldrei átt sér stað. Eins og öllum er kunnugt kostaði þetta óæskileg átök fyrir okkur. En nú er þetta mál úr sögunni og knattspyrnusambandið á sitt heimili skuldlaust. Það er mikilvægt til lengri tíma litið.“ Laugardalsvöllur hefur fengið ærlega andlitslyftingu á umliðnum árum og tekur nú tíu þúsund áhorfendur í sæti. Geir segir sambandið dreyma um að loka vellinum til end- anna, losna við hlaupabrautina og fjölga sætum upp í fimmtán þúsund. „Við gerum okkur hins vegar fulla grein fyrir því að það er ekki raunhæft eins og sakir standa. Það verkefni bíður betri tíma.“ Framlög KSÍ til aðildarfélaga sinna hafa aldrei verið meiri en á árinu 2009. Geir segir dýrmætt að geta stutt við grasrótina enda sé víða hart í ári. „Það hefur aldrei verið markmið að þenja sambandið sjálft út, þvert á móti höfum við sett í forgang að styðja við aðildarfélögin, meðal ann- ars með því að taka á okkur aukinn kostnað vegna móta- halds hér heima. Á síðasta ári tók KSÍ til dæmis endanlega yfir allan kostnað við dómgæslu í meistaraflokki, sú við- bót ein og sér var þrjátíu milljónir króna. Fyrir utan bein framlög frá KSÍ runnu um 250 milljónir króna beint til fé- laganna í fyrra vegna skuldbindinga Sportfive og Knatt- spyrnusambands Evrópu.“ Þrátt fyrir góða afkomu segir Geir brýnt að vera á varð- bergi. Umhverfið sé ótraust, óvissa með gengismál og erf- iðleikar hjá íslenskum fyrirtækjum. „Það eru blikur á lofti og við verðum að halda vel á spöðunum.“ Ævintýrið um kvennalandsliðið Flaggskip KSÍ eru A-landslið karla og kvenna. Ólíkt hafa þau hafst að undanfarin misseri. „Það er alveg rétt,“ segir Geir. „Kvennalandsliðið hefur verið skrautfjöðrin í nokk- urn tíma. Það er frábært hvað tekist hefur að byggja kvennaknattspyrnuna upp á tiltölulega fáum árum. Að- ildarfélögin eiga þar mikið hrós skilið. Frábært starf á þeim vettvangi hefur skilað sér inn í landsliðin. Það var ekki bara A-landsliðið sem var í úrslitakeppni á Evr- ópumóti á síðasta ári heldur líka liðið skipað leikmönnum 19 ára og yngri. Gengi A-landsliðsins hefur verið mikið ævintýri og aukið vinsældir knattspyrnunnar um land allt.“ Mikið vatn hefur runnið til sjávar frá því ákveðið var á stjórnarfundi KSÍ 1987 að við gætum ekki sent A-landslið kvenna til keppni á stórmót vegna bágrar fjárhagsstöðu sambandsins. „Þetta myndi ekki nokkrum manni detta í hug í dag,“ segir Geir brosandi. Hann segir vel hafa gengið að fá konur til að þjálfa en verr að fá þær til að taka að sér dómgæslu. „Það er næsta verkefni. Í helstu deildum erlendis dæma konur nær ein- göngu kvennaleiki. Við sáum þetta líka á EM. Annað brýnt verkefni er að fjölga konum í stjórnunarstöðum í hreyf- ingunni. Sú tíð er liðin að knattspyrnuhreyfingin sé karla- veldi.“ A-landslið karla hefur um skeið staðið í skugga kvennanna og Geir viðurkennir að það hafi valdið von- brigðum, einkum í síðustu tveimur undankeppnum fyrir stórmót. „Ég veit ekki hvort það er einhver einhlít skýr- ing á því. Kjarni málsins er sá að við getum gert betur og ég er sannfærður um að leikmenn og þjálfari munu gefa allt sem þeir eiga í forkeppni EM sem hefst síðar á árinu.“ Ákveðið var að endurráða Ólaf Jóhannesson og Geir segir þá ákvörðun grundvallast á því mati að liðið hafi sýnt framfarir undir hans stjórn. „Við erum ánægðir með störf Ólafs. Auðvitað hefðum við viljað sjá fleiri stig en flestir eru sammála um að leikur liðsins hefur breyst til batnaðar í hans tíð og skemmtanagildið aukist. Hafandi sagt það gerir Ólafur sér fulla grein fyrir því að ætlast er til þess að liðið nái betri árangri. Hann er klár í það starf og nýtur til þess góðs stuðnings.“ Húsin eru að skila teknískari og betri leikmönnum Knattspyrnuhús hafa sprottið upp eins og gorkúlur hér á landi á síðustu árum og erfitt að fela sig lengur bak við að- stöðuleysi. Geir tekur undir það. „Við höfum velt þessu mikið fyrir okkur og fengum einmitt Willum Þór Þórsson til að meta það á ársþinginu hvort húsin hefðu skilað teknískari og betri leikmönnum. Mín tilfinning er sú að það sé reyndin. Veðurfar spilar auðvitað inn í þetta líka, það er ekki vandamál að spila utandyra á gervigrasvöllum eins og veðrið hefur verið í vetur. Árangur U-21 árs liðs karla staðfestir að framtíðin er björt. Við eigum marga unga og efnilega leikmenn.“ Áhyggjur Geirs snúa meira að þeirri staðreynd að heim- urinn hefur opnast svo gríðarlega á undanförnum árum að íslenskir sparkendur búa við mun meiri samkeppni en áð- ur, svo sem frá afrískum, suður-amerískum og austur- evrópskum leikmönnum, um að komast að hjá bestu fé- lögum heims. „Eiður Smári Guðjohnsen er eini leikmað- urinn í dálítið langan tíma sem hefur fest sig í sessi hjá þessum allra bestu félögum. Hermann Hreiðarsson hefur einnig átt glæsilegan feril í Englandi. Við þurfum fleiri menn af þessu tagi, menn sem eru að spila á hæsta stigi í heiminum. Það verður spennandi að sjá hvort ungu strák- arnir sem eru að koma upp núna ná að komast yfir þenn- an þröskuld.“ Formaður KSÍ lítur björtum augum til framtíðar. „Það er feikilega gott knattspyrnustarf unnið um land allt og börn og unglingar hafa tækifæri til að spila knattspyrnu nánast hvar sem er á landinu. En betur má ef duga skal og það er sorgleg þróun að fjármagn til ferðasjóðs íþrótta hafi verið skorið niður. Það er fátt sem ríkisvaldið ætti að styrkja frekar en samskipti íþróttafélaga. Búseta á ekki að koma í veg fyrir það að fólk geti tekið þátt í íþróttum.“ Kvennalandsliðið hefur gert garðinn frægan á síðustu árum. Morgunblaðið/Golli Ísland þarf fleiri leikmenn eins og Eið Smára Guðjohnsen. Morgunblaðið/ÞÖK Ríkissjónvarpið hefur um árabil sýnt beint frá heimaleikjum íslensku A-landsliðanna, karla og kvenna. Mikill nið- urskurður hefur átt sér stað hjá stofnuninni að undanförnu en Geir vonar að hann komi ekki niður á þessum útsend- ingum. „Ég hef alltaf litið á það sem réttlætismál að heimaleikir íslensku landsliðanna séu sýndir í opinni dagskrá í sjón- varpi. Leikirnir fara fram í Reykjavík og oft er uppselt á völl- inn. Það er því brýnt að sýna leikina beint í opinni dagskrá til að allur almenningur geti notið þeirra, óháð búsetu. Ég tel að Ríkissjónvarpinu bera meiri skylda til að sýna þessa leiki en að sýna beint frá lokakeppni HM eins og það mun gera í sumar. Frjálsir aðilar eiga að tryggja þær útsendingar. For- gangsröðunin má ekki skolast til. KSÍ hefur alltaf litið á Rík- issjónvarpið sem mikilvægan glugga fyrir íslenska knatt- spyrnu.“ Ríkissjónvarpið mikilvægur gluggi Knattspyrnusamband Íslands komst í fréttirnar á liðnu ári á kolröngum forsendum þegar upplýst var að starfsmaður sambandsins hafði sótt heim strípibúllu í útlöndum og tek- ið var út af greiðslukorti sambandsins. Geir Þorsteinsson dregur ekki fjöður yfir það að málið hafi reynst sambandinu afskaplega erfitt. Hann hefur starfað hjá sambandinu í meira en tvo áratugi, lengst af sem framkvæmdastjóri, en kveðst aldrei hafa lent í öðru eins. Málið var afgreitt hjá KSÍ fyrir fjórum árum og starfsmað- urinn endurgreiddi að fullu upphæðina sem tekin var út á kort sambandsins til kortafyrirtækisins. „KSÍ beið engan fjárhagslegan skaða af þessu máli. Það er algjört lyk- ilatriði. Við afgreiddum málið hér innanhúss og álitum það úr sögunni. Menn getur auðvitað greint á um það hvort sú afgreiðsla var rétt eða röng. Við erum ennþá að vinna okk- ur út úr þessu erfiða máli og þurfum að læra af því. Það er mikilvægt að KSÍ starfi í sátt og samlyndi við samfélagið og ofbjóði fólki ekki á neinn hátt.“ – Fannst þér umræðan ósanngjörn? „Umræðan fór langt og hún var miskunnarlaus gagnvart manni sem hafði tekið út sína refsingu. Ég geri mér hins vegar fulla grein fyrir því að KSÍ er stór og áberandi samtök í samfélaginu og má fyrir vikið búast við svona umfjöllun. Fólk má samt gæta sín á því að alhæfa ekki út frá mistök- um af þessu tagi, innan knattspyrnuhreyfingarinnar starfar upp til hópa duglegt og gott fólk sem á ekki skilið að verða fyrir óþægindum af þessum sökum.“ – Er ímynd sambandsins löskuð? „Þetta var ekki gott fyrir ímyndina og hugsanlega má segja að hún sé löskuð. Við erum enn að skoða hvort við brugðumst rétt við í þessu máli.“ – Eru menn ennþá að hnýta í ykkur? „Já, blessaður vertu. Formaðurinn hefur ekki farið var- hluta af því. Það er sama hvar ég kem í dag, það er alls- staðar vitnað til málsins á gamansaman hátt. Það er hins vegar engin illska í þessu. Innst inni veit fólk fyrir hvað knattspyrnusambandið stendur og að þar er unnið gott og heilbrigt starf.“ Strípibúllumálið afskaplega erfitt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.