SunnudagsMogginn - 14.02.2010, Síða 6
6 14. febrúar 2010
Nýkjörinn forseti Króatíu, Ivo Josipovic, kvartar
undan því að eiga of marga vini á Facebook. Há-
marksfjöldi vina er fimm þúsund, en forsetans bíða
sjö þúsund vinabeiðnir, sem hann getur ekki sam-
þykkt. Í Frakklandi fóru í upphafi mánaðarins tveir
blaðamenn í einangrun þar sem þeir áttu aðeins að
hafa aðgang að fyrirbærunum Facebook og Twitter.
Tilgangurinn var að komast að því hver heimsmynd
þeirra væri að einangrun lokinni ef þeir hefðu ekki
aðgang að hefðbundnari fjölmiðlum.
Vinsældir samskiptasíðna aukast áfram
Samkvæmt nýrri könnun Pew-stofnunarinnar halda
vinsældir samskiptasíðna áfram að aukast meðal
ungs fólks í Bandaríkjunum, en það virðist vera að
verða úrelt að blogga. Í könnuninni kom fram að
aðeins 14% táninga blogguðu árið 2009, en 28%
gerðu það árið 2006. Fjöldi táninga, sem sögðust
skrifa ummæli við blogg, minnkaði úr 76% í 52% á
sama tíma. Hlutfall bloggara minnkaði líka í aldurs-
hópnum 18 til 29 ára úr 24% árið 2007 í 15%
2009.
Notkun samskiptasíðna jókst meðal táninga.
Kváðust 73% aðspurðra á þeim aldri í könnuninni
vera skráðir á samskiptasíðu. Samskiptasíðan
MySpace naut meiri vinsælda hjá hinum yngri, en
Facebook hjá þeim eldri. Haft er eftir einum af höf-
undum könnunarinnar að svo virðist sem ungt fólk
vilji frekar setja stutt skilaboð inn á netið og end-
urnýja þau reglulega, en að blogga í löngu máli.
Heimsmyndin í gegnum Facebook
Bloggarar tjá sig jafnharðan um John McCain í kosn-
ingunum 2008. Áhuginn á að blogga fer dvínandi.
Reuters
F
jögur hundruð milljónir manna eru
skráðar á Facebook. „Það er ánægju-
legt að sjá að eftir því sem Facebook
hefur vaxið fjölgar því fólki um allan
heim, sem notar þjónustuna til að deila upplýs-
ingum um stóra og smáa atburði og halda
tengslum við alla, sem þeim þykir vænt um,“
sagði Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook,
þegar hann fagnaði sex ára afmæli sam-
skiptasíðunnar í byrjun febrúar.
Zuckerman hefur verið líkt við Bill Gates,
stofnanda Microsoft. Báðir flosnuðu þeir upp úr
námi í Harvard til að fara í viðskipti. Hvorugur
byggir velgengni sína á sérlega frumlegri hug-
mynd. Þegar IBM bað Gates að útvega stýriforrit
fyrir nýja einkatölvu keypti hann fyrirtæki og
gaf því nýtt nafn. Zuckerberg notaði hugmyndir
að samskiptasíðum á borð við Friendster og
MySpace þegar hann bjó Facebook til.
Saga Facebook er hins vegar mjög athygl-
isverð og hún er rakin í grein Charles Petersen í
nýjasta tölublaði tímaritsins The New York Re-
view of Books. Í upphafi var þessi félagsvefur
miðaður við mjög afmarkaðan hóp, nemendur í
Harvard-háskóla í Cambridge í Massachusetts.
Harvard er úrvalsskóli þar sem nemendur eru
allir með mjög svipaðan bakgrunn og koma úr
efstu þrepum þjóðfélagsstigans. Samskiptasíðan
Facebook var opin öllum nemendum skólans og
allt, sem notendur skráðu á síðurnar, var öðrum
notendum sýnilegt. Engin ástæða var til að setja
girðingar, að hafa verið veitt innganga í Harvard
var nægileg sía. Nafnið er meira að segja ekki
frumlegra en svo að hefð er fyrir því í banda-
rískum háskólum að gefa út bækur með mynd-
um af nemendum og kalla þær facebook. Við-
mótið var hugsað eins og herbergi á heimavist,
sem hægt væri að raða inn í að vild, en einnig
þurfti að svara ákveðnum spurningum, meðal
annars um sambönd, til dæmis: Leita að: vin-
áttu; sambandi; stefnumótum; „leik af handa-
hófi“; „hverju sem býðst“; eða öllu þessu. Slík-
ur leikaraskapur hvarf hins vegar þegar síðan
varð útbreiddari og farið var að gerilsneyða
hana.
Facebook breiddist brátt út til annarra há-
skóla, en aðeins þeirra hæst skrifuðu, Princeton
og Stanford. Veggir voru á milli skólanna, en
engir innan þeirra. Snobbið í kringum Facebook
hafði haft sitt aðdráttarafl, það að sumir – flestir
– fengju ekki að vera með.
Allt breyttist hins vegar þegar berast fóru
vinabeiðnir að utan frá fólki, sem ekki var í
neinum þessara skóla. Það er eitt að hitta gaml-
an kunningja á förnum vegi og humma fram af
sér hugmyndir um að endurnýja kynnin, en á
Facebook voru bara tveir kostir, já eða nei.
Helsti keppinautur Facebook var MySpace. Til
að komast inn á Facebook þurfti netfang frá há-
skóla. MySpace var fyrir alla hina. Tekið var til
þess að mikill stéttamunur væri á notendum
þessara samskiptasíðna. Þessi munur hélt áfram
að skipta máli eftir að Facebook var opnað öll-
um. Facebook hefur verið líkt við vel skipulagt
úthverfi, en á MySpace ríkti meiri glundroði líkt
og í stórborginni.
MySpace heillaði fjölmiðlafurstann Rupert
Murdoch og árið 2005 borgaði hann 580 millj-
ónir dollara fyrir samskiptasíðuna. Facebook
gekk hins vegar mun betur og fór fram úr MyS-
pace í upphafi árs 2009. Ein af ástæðunum var
sú að Facebook höfðaði meira til foreldra, en
MySpace, þótt börn þeirra notuðu frekar síð-
arnefndu síðuna.
Eitt dæmi um muninn á því hvernig litið er á
þessar samskiptasíður er að í hermenn í banda-
ríska hernum mega nota Facebook þrátt fyrir
áhyggjur af öryggismálum, en er bannað að
nota MySpace. Engu að síður er MySpace mun
vinsælli síða hjá 18 ára hermönnum, en Facebo-
ok. Í þessum efnum ráða yfirmennirnir úrslit-
um.
Ýmis vandamál hafa komið upp á Facebook í
áranna rás, sérstaklega í kringum aðgengi að
persónulegum upplýsingum og þekktar eru
sögur um starfsumsóknir, sem var hafnað vegna
þess að tilvonandi vinnuveitandi sá upplýsingar
um umsækjandann á Facebook, eða starfs-
manninum, sem sagðist vera veikur heima og
skrifaði síðan um það fyrir allra augum á Fa-
cebook að hann hefði farið í verslunarferð. Hin-
ir ýmsu hnökrar hafa hins vegar ekki staðið
vinsældum síðunnar fyrir þrifum.
Snobb-
síðan sem
sigraði
Var aðeins
ætluð Harvard
en er nú vinsæl-
asta samskipta-
síða heims
Alysaa Ravasio, háskólanemi í Los Angeles, sýnir samskiptasíðuna sína á Facebook. Hún sneri baki við MySpace um leið og
hún skráði sig á Facebook og hefur þegar misst áhuga á Twitter. En hversu lengi getur Facebook reitt sig á tryggð hennar?
ReutersVikuspegill
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Hvernig
vinátta?
„Við höfum breytt
[vinum okkar] í
ósundurgreinanlegan
massa, nokkurs kon-
ar áhorfendur eða
andlitslausan al-
menning. Við ávörp-
um ekki hóp, heldur
ský … Vinátta er með
öðrum orðum að
breytast úr sambandi
í tilfinningu.“
William Deresiewicz,
gagnrýnandi Face-
book
www.noatun.is
BARA AÐ
FYRIR 4-6 INNIHELDUR
RÓFUR, KAR
TÖFLUR,
BEIKON, BA
UNIR OG VA
TN
SJÓÐA KJÖ
TIÐ
TILBÚIN
BAUNASÚPA
TIL UPPHITUNAR
KR./2L
1998
Við gerum
meira
fyrir þig