SunnudagsMogginn - 14.02.2010, Page 27

SunnudagsMogginn - 14.02.2010, Page 27
14. febrúar 2010 27 H ún er ólýsanleg – tilfinningin sem sérhver áhugamaður um knattspyrnu fær þegar hann gengur inn á völl liðs síns sem hann dáir og elskar. Nánast er um trúar- brögð að ræða þegar kemur að ást hans á íþróttinni. Hann tekur lið sitt fram yfir fjölskyldu, vinnu og skóla. Skap hans byggist á úrslitum helgarinnar. Rithöf- undurinn Nick Hornby orðaði þetta kannski best í bók sinni Fever Pitch er hann sagði að þegar hann væri staddur á vellinum liði honum eins og hann væri í miðju alheimsins. Allt annað gleymist. Mjög stór hluti Íslendinga hefur þennan gríðarlega áhuga á knattspyrnufélögum sem staðsett eru þúsundum kílómetra í burtu. Þrátt fyrir fjarlægðina leggja hundruð, ef ekki þúsundir, Íslendinga leið sína til Englands á ári hverju til að fylgjast með liði sínu spila. Oft er mikill kostnaður við ferðina, sérstaklega nú á tímum bágs efnahagsástands. En það stöðvar ekki þann sem virkilega elskar leikinn. Frekar færi ég í helgarferð til London að horfa á Arsenal spila en í vikureisu til Spánar, þó það kosti jafn mikið. Upp um klassa á fjórtán árum Síðan knattspyrnustjóri Arsenal, Arsène Wenger, kom til starfa árið 1996 hafa miklar breytingar orðið á rekstri félagsins, innan vallar sem utan. Árið 2006 flutti fé- lagið heimavöll sinn tvö hundruð metra frá karakterríkum og litlum velli sínum á Highbury yfir á gríðarstóran Emirates Stadium. Sá fyrri tók um 38.000 áhorf- endur í sæti, en sá síðarnefndi 60.000. Þessi skipting færði Arsenal upp um klassa. Nú er Arsenal ekki lengur annars flokks lið sem berst um Evrópusæti, held- ur setur félagið stefnuna á titil hvert tíma- bil – þó skortur hafi verið á þeim und- anfarin ár. Félagið fékk síðast silfurdollu árið 2005 þegar það krækti í FA bikarinn. Eftir allt, þá snýst fótbolti um að sigra leiki og vinna titla. En pressan á Arsène Wen- ger er lítil sem engin og starf hans eitt það öruggasta í Englandi. Hann nýtur gríð- arlegs trausts meðal stjórnarinnar. Slakt gengi undanfarna tvo leiki hefur orðið til þess að ekkert annað en sigur dugir gegn Rauða hernum frá Liverpool. Með sigri kemst Arsenal aftur í titilbaráttuna, en tapist leikurinn heltist það úr lestinni og hleypir næstu liðum nær sér. Það er því gríðarleg pressa á liðinu fyrir leikinn. Stemningin er mikilvæg Ég er á leið niður St. Thomas Road. Það er farið að snjóa úti – aftur! Það er búið að skrifa nokkur vel valin orð um Liverpool í nýfallinn snjóinn á bílrúðunum. Þegar ég geng fyrir hornið og niður götuna frægu, Drayton Park, sé ég sölubása með Arsen- al-varningi báðum megin við götuna. Við Arsenal-lestarstöðina er lögreglan að góma mann sem selur miða á leikinn á ólöglegan hátt. Svokallaðan svartamark- aðsbraskara. Mikið er um viðskipti af þessu tagi fyrir leiki, enda er þetta lifi- brauð sumra. Sérstaklega á stórum leikj- um sem þessum. Þegar ég geng enn lengra og upp tröppurnar hjá miðasölunni á leik- vanginum sé ég sjúkraflutningamenn bera eldri mann í burtu. Hann virðist hafa ver- ið fullspenntur fyrir leiknum. Þegar ég geng ennþá lengra sé ég ferlíkið í allri sinni dýrð. Ég get ekki beðið eftir leikn- um. Það eru enn þrír tímar þar til hann byrjar, svo ég ákveð að fara á alvöru Ars- enal-pöbb. Það er mikilvægt að drekka í sig stemninguna fyrir leiki, og það er hvergi hægt að gera það betur en á alvöru enskri krá. Og besta Arsenal-kráin sem ég veit um er Tollington, sem staðsett er á horni Tollington Road og Hornsey Road. Þetta er lítill og þægilegur staður sem Ars- enal-menn hittast á fyrir og eftir leiki. Þarna hitti ég nokkra góða vini mína sem flestir eru ársmiðahafar. Flestir þeirra hafa stutt Arsenal í gegnum súrt og sætt alla sína ævi og komið á alla heimaleiki og flesta útileiki síðan þeir muna eftir sér. Þeir eru ekki alveg sammála í spám um úrslit leiksins, en allir eru þeir sammála um eitt: harðfiskur er ekki þeirra tebolli. Þeir eru hrifnari af brennivíninu. Ég lít á úrið – klukkan er hálf átta. Leikurinn byrjar eftir korter. Við klárum úr glös- unum, kveðjumst og göngum af stað í átt að vellinum. Arsenal 1 – 0 Liverpool Það er allt lagt undir í baráttu Arsenal og Liverpool um þriðja sætið í ensku úrvals- deildinni. Fyrir leikinn er Arsenal fimm stigum á undan Liverpool, en með sigri gestanna eiga þeir góða möguleika á að krækja í sætið eftirsótta af Skyttunum. Stemningin er gríðarleg inni á vellinum og stuðningsmenn beggja liða skiptast á vel völdum orðum í suðausturhorni vallarins, þar sem þeir eru aðskildir með girðingu og röð af lögregluþjónum. Ég er svo heppinn að sitja við girðinguna og er því í þunga- miðju blendinnar stemningar milli stuðn- ingsmanna tveggja liða sem lengi hafa eldað grátt silfur saman. Þegar Liverpool- stuðningsmenn syngja lag svara stuðn- ingsmenn Arsenal með öðru lagi. Svona gengur þetta allan leikinn. Það er þekkt staðreynd að stuðningsmenn gestanna hafa löngum verið háværir, og í kvöld er engin undantekning á því. Hér verður ekki farið yfir gang leiksins, en eftir 72 mínútur skorar Arsenal fyrsta og eina mark leiksins. Það er Frakkinn Abou Diaby sem skorar glæsilegt skallamark og það verður allt vitlaust á vellinum. Fimm- tíu þúsund manns syngja saman ,,One nil to the Arsenal“. Hin tíu þúsundin eru þögul. Leikurinn er í járnum síðustu tutt- ugu mínúturnar. Á síðustu sekúndunum fellur fyrirliði Liverpool, Steven Gerrard, niður rétt utan vítateigs heimamanna. Dómarinn dæmir aukaspyrnu. Þetta er síðasta spyrna leiksins. Hjartað í mér ólm- ast af fullum krafti. Maginn herpist sam- an. Gæsahúð um allan líkamann. Gerrard skorar ekki. Allt verður vitlaust á vell- inum, gestirnir heimta vítaspyrnu, en fá ekki. Leiknum lýkur með einu marki Ars- enal gegn engu hjá Liverpool. Það er stórkostleg upplifun að fara á knattspyrnuleik í Englandi. Stuðning- urinn kemur frá hjartarótum heima- manna. Ást þeirra á eigin félagi smitar út frá sér. Smitast til þeirra sem heimsækja völlinn, smitast í gegnum sjónvarpið og smitast í gegnum fjölmiðlana. Íþróttin er falleg. Einhvern daginn mun ég flytja til London og eignast ársmiða. Ég finn það á mér þegar ég geng inn í flugvélina eftir vel heppnaða tveggja sólarhringa ferð til London. Harðfiskur er ekki þeirra tebolli Emirates-leikvangurinn hefur verið skreyttur með minningarbrotum úr sögu Arsenal. Stuðningsmenn Liverpool bíða átekta eftir að seinni hálfleikur hefjist. Arsenal lagði Liverpool í æsispennandi leik í ensku úrvalsdeildinni í vikunni. Stuðningurinn kemur frá hjartarótum áhorfenda í Englandi. Hilmar Sigurjónsson hilmarsig@mbl.is Tugir sölubása af þessu tagi eru í kringum Emirates-leikvanginn. Þessi er við lestarstöðina. Morgunblaðið/HilmarSig Gangarnir iða af lífi fyrir leik og í leikhléi og veitingar eru af ýmsu tagi.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.