SunnudagsMogginn - 14.02.2010, Blaðsíða 32
32 14. febrúar 2010
A
lbert Guðmundsson hangir í lausu lofti fyrir
utan höfuðstöðvar Knattspyrnusambands Ís-
lands (KSÍ) þetta miðdegi og bíður þess að
verða settur á stall sinn. Hópur manna stendur
undir honum, einbeitingin skín úr andlitunum. Vandað
skal til verks enda löngu tímabært að minning þessa risa í
íslenskri knattspyrnusögu og fyrrverandi formanns KSÍ
sé heiðruð með viðeigandi hætti. Styttan verður afhjúpuð
við formlega athöfn í tengslum við ársþing KSÍ nú um
helgina.
Inni í höfuðstöðvunum er núverandi formaður sam-
bandsins, Geir Þorsteinsson, að undirbúa ársþingið.
Hljóðið í honum er gott enda var sparkárið 2009 að flestu
leyti vel heppnað. „Það var metfjöldi landsleikja,“ segir
Geir, „það hefur aldrei meira fjármagni verið varið til ís-
lenskra félagsliða, það hafa aldrei fleiri tekið þátt í
fræðslustarfi sambandsins og aldrei verið sendir fleiri
þjálfarar á námskeið erlendis. Það er ótrúlegur uppgangur
á öllum sviðum.“
Formaðurinn er stoltur af síðasta rekstrarári, það sé
mjög gott að skila 50 milljóna króna hagnaði við þau erf-
iðu skilyrði sem verið hafa í þjóðfélaginu. „Það sýnir það
að við höfum undirbúið okkar fjármál vel,“ segir Geir.
Hann viðurkennir að veik staða krónunnar vinni með
sambandinu en meirihluti tekna þess kemur frá útlönd-
um. „Á móti kemur að kostnaður okkar hefur aukist,
enda er stór hluti af honum erlendis, en á heildina litið
hefur gengisþróunin verið okkur hagstæð.“
Stærsti þátturinn í tekjuöflun KSÍ eru sjónvarpssamn-
ingar við þýska fyrirtækið Sportfive, sem hefur einkarétt
á sýningu á leikjum landsliða Íslands og frá mótum hér
heima. „Við höfum gert skuldbindandi samning við það
fyrirtæki út árið 2015 sem er að okkar mati mjög hag-
stæður.“
Þýskt fyrirtæki á sýningarréttinn
Þegar samningurinn við Sportfive var undirritaður gerðu
menn ráð fyrir því að 90 til 100 krónur fengjust fyrir evr-
una. Hún er 176 krónur í dag.
Spurður hvort þýskt fyrirtæki hafi mikinn áhuga á að
sýna frá keppni hér innanlands svarar Geir því til að áhugi
Sportfive hverfist fyrst og síðast um heimaleiki A-
landsliðs karla. „Við höfum hins vegar gert þá kröfu að
þeir keyptu líka réttinn á mótum hér innanlands og höf-
um með þeim hætti aukið tekjur aðildarfélaga, eins und-
arlega og það kann að hljóma,“ segir Geir en íslenskar
sjónvarpsstöðvar verða að semja um útsendingarrétt við
Sportfive. Allar tekjur af útsendingum frá mótum hér
heima renna beint til aðildarfélaga KSÍ.
Ekki er í gildi samskonar samningur um sýningarrétt á
heimaleikjum A-landsliðs kvenna en Sportfive hefur for-
kaupsrétt á þeim leikjum telji fyrirtækið möguleika á að
Ótrúlegur uppgangur
á öllum sviðum
Geir Þorsteinsson: „Við erum að vinna í því að fjölga styrktaraðilum en staðan er augljóslega mun þrengri en áður.“
Morgunblaðið/ RAX
Geir Þorsteinsson, formaður
Knattspyrnusambands Íslands,
er hæstánægður með síðasta
sparkár. Rekstur sambandsins
skilaði góðum hagnaði í erfiðu
árferði, m.a. vegna veikrar
stöðu krónunnar, og aldrei
voru fleiri landsleikir leiknir.
A-landslið kvenna var áfram
skrautfjöðrin en formaðurinn
er sannfærður um að karlarnir
muni senn rísa úr öskustónni.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is