SunnudagsMogginn - 14.02.2010, Qupperneq 42
42 14. febrúar 2010
B
úið er að tilkynna óskarstil-
nefningarnar, að venju þekkj-
um við lítið til erlendu mynd-
anna 5 sem keppa.
Við stöndum illa að vígi þegar kemur
að þessum merka flokki, allir þekkja yf-
irgnæfandi markaðsstöðu Hollywood-
kvikmyndaveranna sem ráða örugglega
yfir vel 90% myndaúrvalsins hér sem
víðast annars staðar. Það opnast að vísu
þessir ómissandi hátíðagluggar sem
bæta úr skák en leysa ekki vandann. Til
þess þarf ekkert minna en kvikmynda-
hús sem sinnir eingöngu erlendum
myndum öðrum en bandarískum, eða
a.m.k. einn sal í fjölsalabíói.
2009 var engin undantekning, því
kunnum við lítil skil á verkunum fimm
sem eru tilnefnd í ár sem besta erlenda
mynd ársins og því ekki úr vegi að
kynna þær lesendum því enga þeirra
hefur rekið á fjörur bíóanna í borginni.
Þetta eru Ajami (2009) (Israel); Das
weisse Band – Eine deutsche Kinder-
geschichte (2009) (Þýskaland); El sec-
reto de sus ojos (2009) (Argentina); Un
prophète (2009) (Frakkland) og La teta
asustada (2009) (Perú). Að vísu kynnti
ég þýsku myndina, Hvíta borðann, hér
á síðunni fyrir skömmu, hinar eru lok-
uð bók.
Ajami. Leikstjórn og handrit: Scandar
Copti og Yaron Shani. Virðist ein-
staklega áhugavert spennudrama sem
gerist í níðfátæku úthverfi Jaffa-borgar í
Ísrael. Það er vafasamur staður þar sem
ofbeldi getur blossað upp af minnsta til-
efni. Það er nóg af því í myndinni sem
segir fimm sögur úr hverfinu sem byggt
er kristnum, gyðingum og múslimum
hlið við hlið. Myndin hefst á því er
arabagengi myrðir rangan pilt af gyð-
ingaættum og fjallar síðan um eft-
irhreyturnar sem varpa ljósi á kynþát-
taátökin og trúarbragðastríðið í
hnotskurn. Hún sýnir einnig hvers
vegna þessum trúarhópum er fyr-
irmunað að búa saman í sátt og sam-
lyndi.
El Secreto de Sus Ojos (Leyndarmál
augna þeirra). Leikstjóri: Juan José
Campanella. Hann er kunnur fyrir
myndir sínar um roskna Argentínubúa á
ofanverðri síðustu öld, líkt og Son
brúðarinnar – El Hijo de la Novia,
(2001), sem fjallaði um sjúkdóma og
vandamál ellinnar. Campanella er enn á
svipuðum slóðum en nýja myndin þykir
einkar áhugaverð blanda gamans og al-
vöru með stjórnmálakreppu 6. áratug-
arins í bakgrunni. Í hina röndina fjallar
hún um morð á eldri konu og leiðir
áhorfendur fram og til baka um tímabil
sem spannar 30 ár. Aðalpersónuna,
Benjaamin, roskinn starfsmann við
dómskerfið, leikur Ríkardo Darin sem
margir þekkja úr Nine Queens. Benjam-
in ákveður að skrifa sögu konu sem var
naugað og drepin árið 1975, og fjandinn
er laus.
Un prophète (Málsvari). Leikstjóri:
Jacques Audiard. Malik El Djebena
(Tahar Rahim), sem er af norðurafrísku
bergi brotinn, er dæmdur í sex ára
fangelsi. Hann er aðeins 19 ára,
ómenntaður, hvorki læs né skrifandi.
Þegar hann kemur inn fyrir múrana
virðist hann veikburða og brothættari
en samfangar hans. Malik er tekinn
undir verndarvæng Korsíkugengisins
sem ræður innan veggja og fær hann til
að taka að sér ýmis „verkefni.“ Þau
herða piltinn sem vex í áliti hjá foringja
gengisins. En Malik er hugaður og klár
og leggur sín eigin plön í einrúmi.
La teta asustad (Mjólk sorgarinnar)
Leikstjóri: Claudia Llosa. Fausta (Magaly
Solier), er þjáð af veikindum sem hún
hefur drukkið í sig með móðurmjólk-
inni og ganga undir nafninu „Sorg-
armjólk.“ Sjúkdómurinn er þó ekki til-
kominn vegna sýkla eða sýkingar, hann
er ástand sem þær konur eina líða fyrir
sem var nauðgað eða misþyrmt á annan
hátt á tímum hryðjuverka stríðsátak-
anna sem ríktu í landinu. Fausta er
engu síður lifandi áminning um djöf-
ulskap þeirrar ógnaraldar.
Das weisse Band – Eine deutsche
Kindergeschichte (Hvíti borðinn). Leik-
stjóri: Michael Haneke. Myndin, sem
reynir að grafast fyrir um ástæður þess
að landið varð nasismanum auðveld
bráð, var rækilega kynnt hér á síðunni
fyrir skömmu.
Ísraelska kvikmyndin Ajami virðist einstaklega áhugavert spennudrama.
Hverjar bítast um bestu
erlendu mynd ársins?
Sæbjörn Valdimarsson saebjorn@heimsnet.is
UNDANFARNA mánudaga hefur breski
gleðigjafinn og þúsundþjalasmiðurinn
Stephen Fry, gert sér lítið fyrir og bjargað
þeim frá sínum hefðbundnu leiðindum.
Þetta afrekar hinn bráðskemmtilegi, stóri
og skarpi Fry með sjónvarpsþáttunum
Stephen Fry in America. Þeir verða 6
talsins og komið að þeim fjórða nk.
mánudag. Líkt og starfsbróðir hans,
Michael Palin, fer Fry sínar eigin leiðir í
þáttunum, skoðar þau Bandaríki sem
hafa heillað hann frá barnæsku og liggur
ekki á því sem honum mislíkar. Fry kann
einkar vel að meta fjölbreytnina sem
Ameríka býður upp á og fer ekki hefð-
bundnar leiðir á yfirreið sinni um ríkin
50 (hann er kominn að Klettafjöllunum á
vesturleið). Sýnir okkur vissulega þekkta
staði en ekkert síður þá látlausari, sem
fara almennt fram hjá „fræðingunum“.
Hann bregður sér niður í kolanámur,
veiðir gegnum ís, kíkir inn á rómaðar
blúsbúlur, siglir um Mississippi-móðu í
kjölfar Stikilsberja-Finns, ekur um Chi-
cago með engan annan en meistara
Buddy Guy sér við hlið í enska leigubíln-
um sem er aðalfararskjóti hans um víð-
áttur Norður-Ameríku. Og þá er aðeins
fátt eitt talið.
Annars hefur Fry mörgum hlutverkum
að gegna í listaheiminum, sjónvarpið
sýnir aðeins einn lítinn þátt af sköp-
unargleði þessa sífrjóa húmorista, leik-
ara, rithöfundar, lífsnautnamanns, það
eru fá svið sem eru honum óviðkomandi.
Ég mæli eindregið með sjálfsævisögum
hans (Moab is My Washpot og hin óborg-
anlega Making History), sem eru ekki
síður fyndnar og notalegar aflestrar en
minningar Davids Niven og Michaels
Caine.
Fry hefur leikið talsvert á sviði og af
kvikmyndunum sem hann hefur komið
fram í ber Wilde af þeim öllum. Þá er
hann eftirsóttur upplesari inn á hljóð-
bækur, las t.d. allar bækurnar um
galdrastrákinn Harry Potter. Fry er rösk-
lega fimmtugur og hefur búið með Daniel
Cohen síðustu 15 árin.
Það hefur frést af nýjum sjónvarps-
þáttum, einar tvær bækur eru í smíðum
og hann er eftirsóttur á sviði, jafnt sem
uppistandari og dramatískur leikari og
einar 7 myndir eru á leiðinni. Engin furða
þó að landar hans kalli Fry „þjóð-
argersemi.“
saebjorn@heimsnet.is
Kvikmyndafréttir
Hinn fjölhæfi Stephen Fry
Bjargvætturinn góði Stephen Fry.
Sunnudagur 14.02. Stöð 2 BÍÓ kl. 22:10
Áhrifamikil kvikmyndagerð metsölubók-
arinnar Flugdrekahlauparans, eftir afganska
höfundinn Khaled Mosseini. Segir af brott-
fluttum Afgana sem er í góðri stöðu í New
York þegar fortíðin kallar á hann og minnir á
hver hann er og hvaðan hann kemur. Ádeila,
spennumynd og vel gerð saga af fjarlægri
veröld sem skilar sér ásættanlega á tjaldið.
Bókin var stormandi metsölubók hér sem
annarsstaðar. Leikstjóri: Marc Forster. Aðal-
leikarar: Khalid Abdalla; Atossa Leoni; Sa-
yed Jafar Masihullah Gharibza. bbbm
Flugdrekahlaup-
arinn – The Kite
Runner
Laugardagur 13.02. RUV kl. 21.15. Banda-
rísk bíómynd frá 2007. 16 ára stúlka sem
verður ófrísk tekur óvenjulega ákvörðun um
ófætt barn sitt. Leikin af Page sem á ríkan
þátt í þessum listræna og efnahagslega sig-
urvegara, hún er leikkona af guðs náð,
sama má segja um handritshöfundinn
Diablo Cody (fékk Óskarinn.) Vandi Page í
framtíðinni verður fólginn í að fá hlutverk við
hæfi. Þessarar sérstæðu og hæfileikaríku
leikkonu, sem minnir á Audrey Hepburn og
Noomi Rapace. Cera vinnur á þegar líða tek-
ur á myndina og J.K. Simmons, sem faðir
Juno, er óvæntur senuþjófur líkt og í Thank
You for Smoking. Garner, Bateman og Jan-
ney fylla vel út í myndina sem sannarlega
lýsir upp bíótilveruna. Leikstjóri er Jason
Reitman. Aðalleikarar: Ellen Page, Michael
Cera, Jennifer Garner, Jason Bateman og
J.K. Simmons. bbbbm
Myndir vikunnar í sjónvarpi
Juno
Kvikmyndir