SunnudagsMogginn - 14.02.2010, Qupperneq 51
14. febrúar 2010 51
Eyjólfur Einarsson.
Dagur og nótt. Eign listamannsins.
flæði og minningin um lýðveldisstofnunina á Þingvöllum
17. júní 1944, sem var mikill rigningardagur.
Vatnslitirnir eru nú orðnir hluti af meginstraumi
myndlistarinnar í landinu. Til dæmis hefur Hlíf Ásgríms-
dóttur skorið upp herör gegn viðteknum hugmyndum
um eðlisþætti vatnslitanna: innbyggðan innileika og
ljóðrænu þeirra, sem gerðu þá illa til stækkunar fallna.
Með því að nú fást stærri pappírsarkir en nokkru sinni
fyrr hefur Hlíf fengist við gerð feiknstórra vatns-
litamynda, upp undir 2 metra á breidd, þar sem hún „af-
byggir“ sitt nánasta umhverfi og skeytir það saman á
nýjan leik með frjálslegum hætti. Við þetta vegur mynd-
efnið salt á mörkum hins hlutlæga og hins huglæga …
Harpa Árnadóttir málar stórar myndir á striga með
vatnslitum, og eykur við þá með öðrum lífrænum lit-
arefnum. Í næstum einlita myndum hennar á sér stað
ákveðin viðræða við náttúruna, einkum og sér í lagi
óefniskennd fyrirbæri á borð við þoku, vind og birtu, en í
þessum myndum, rétt eins og í myndum margra andlega
sinnaðra listmálara frá Malevich til Rothko, leynast
einnig efasemdir um ágæti efnisheims og efnishyggju.
Vatnslitir leika einnig veigamikið hlutverk í hug-
myndafræði Huldu Stefánsdóttur, en koma sjaldan fyrir
einir og sér, heldur eru þeir hluti af ýmiss konar vatns-
og olíublönduðum litarefnum sem hún notar til sköp-
unar á innsetningum. Í þessum innsetningum, sem
stundum innihalda tugi mynda, á sér stað margskonar
samspil og víxlverkun litatóna, aðallega í gráskala og
hvítum skala, og áferðar undirstöðunnar (strigi, vatns-
litapappír, viður, ál, MDF, ljósmyndapappír, o.fl.), svo
og milli myndeininganna innbyrðis, svo ekki sé minnst á
sjálfa veggina þar sem einingarnar eru staðsettar. Öfugt
við Hörpu á Hulda ekkert vantalað hvorki við náttúru né
yfirnáttúru; hárfín verk hennar eru fagurfræðilegrar og
félagslegrar gerðar, snúast um beina og milliliðalausa
skynjun okkar á núinu, málverkið í núinu og hlutverk
listamannsins í núinu.“
Gunnlaugur Blön-
dal (1893-1962).
Frá Barcelona,
1954. Einkaeign.
Helgi Þorgils
Friðjónsson.
Gosbrunnur,
2008. Eign
listamannsins.
Karólína Lárus-
dóttir. Lýsis-
skömmtum, 2008.
Gallerí List.
Ásgrímur Jónsson
(1876-1958).
Kvöld við Skerja-
fjörð, 1950. Lista-
safn Íslands.