SunnudagsMogginn - 14.02.2010, Síða 55
14. febrúar 2010 55
Ó
perukórinn var í banastuði á
fimmtudagskvöldið. Hann
kom fram með Sinfóníu-
hljómsveit Íslands, og aðalrétt-
urinn á matseðlinum var hin safaríka
kantata eftir Carl Orff, Carmina Burana.
Texti verksins er samansafn ljóða fyrr-
verandi munka sem hafa fengið nóg af
klausturlífinu, halda út í heim til að njóta
lífsins. Gæfuhjólið, forsjónin, er þekktasti
kafli tónlistarinnar, upphafið og endirinn
sem rammar inn gleði og ógæfu, græðgi,
ást og dauða. Lífsgleðin er allsráðandi í
tónlistinni, og þegar lokakaflinn hefst á
maður að fá gæsahúð. Gæsahúðin er á
vissan hátt mælikvarðinn á gæði flutn-
ingsins.
Hvað mig varðar fékk ég gæsahúð og
svei mér ef ég fékk ekki tár í augun líka.
Óperukórinn var tær, þéttur og kraftmik-
ill, söngurinn var í góðu jafnvægi, bæði
innbyrðis og líka í rétta sambandinu við
hljómsveitina. Sömu sögu er að segja um
Gradualekór Langholtskirkju, hann söng
sérlega fallega, af yndisþokka sem var
ekki af þessum heimi.
Hljómsveitin var í ágætu formi, slag-
verksleikararnir voru með allt sitt á
hreinu, pottþéttir í rytma og hæfilega
sterkir. Píanóleikararnir tveir voru einnig
flottir og sömuleiðis allir aðrir hljóðfæra-
leikarar.
Einsöngvararnir stóðu sig með prýði,
þau Hallveig Rúnarsdóttir, Mark Tucker
og Jón Svavar Jósefsson. Tucker var frá-
bær svanur sem verið var að steikja á
teini, skrækur og skerandi án þess að það
færi út í öfgar. Söngur Hallveigar var
notalega barnslegur og hreinn og Jón
Svavar var framúrskarandi í hlutverki
sínu. Hann var allt í senn, ástríðufullur,
nánast tryllingslegur, en líka viðkvæmur
og blíður. Það var einhver undiralda í
söng hans, illskilgreinanleg – en hún
hæfði tónlistinni fullkomlega.
Rumon Gamba stjórnaði (þótt kórunum
hafi í raun verið stjórnað af Garðari Cortes
og Jóni Stefánssyni). Hann hélt öllu í rétta
gírnum, en var að vísu stundum í hraðari
kantinum, sem kom á köflum niður á
stígandinni. Fínlegri blæbrigði voru ekki
alltaf nægilega vel mótuð, og ýmsar
dramatískar þagnir í tónlistinni nutu sín
ekki sem skyldi. Þrátt fyrir það var loka-
kaflinn merkilega áhrifamikill.
Tvö önnur smærri verk voru á dag-
skránni, Bolero eftir Ravel og Dansar frá
Polovetsíu eftir Borodin. Boleroið er ótta-
leg klisja (hundleiðinleg), en Sinfónían
flutti hana af glæsimennsku. Dansarnir
eftir Borodin voru skemmtilegri, þar söng
Óperukórinn af sjaldheyrðu listfengi, ein-
staklega fallega, bæði mjúkt en líka af
upphafningu sem kom vel út.
Forsjón, drottning heimsins
TÓNLIST
Sinfóníutónleikar
bbbbn
Háskólabíó
Carmina Burana eftir Orff, einnig verk eftir Ravel
og Borodin. Flytjendur: Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands, Óperukórinn (Garðar Cortes stjórnaði) og
Gradualekór Langholtskirkju (Jón Stefánsson
stjórnaði). Einsöngvarar: Mark Tucker, Hallveig
Rúnarsdóttir og Jón Svavar Jósefsson. Stjórn-
andi: Rumon Gamba. Fimmtudagur 11. febrúar.
Rumon Gamba stjórnaði Sinfóníuhljómsveitinni og „hélt öllu í rétta gírnum.“
Jónas Sen
Morgunblaðið/Ásdís
Það er ekki tekið út með sældinni
að vera bóksali í Bretlandi.
Skömmu fyrir áramót lokaði Bor-
ders-bókakeðjan verslunum sínum
á Englandi og ekkert lát er á lok-
unum; samkvæmt tölum frá Bók-
salasambandi Bretlands var ríflega
100 bókaverslunum lokað 2009 og
bókabúðum hefur því fækkað um
tæpan þriðjung á síðasta áratug.
Skýringar á þessum samdrætti
eru nokkrar að því kemur fram í
breska blaðinu The Guardian; að-
allega er um að kenna samkeppni
frá Netinu, aukinni bóksölu í stór-
mörkuðum og ekki síst kreppunni
sem Bretar hafa fengið að kenna á
öðrum fremur.
Sjón sem þessi verður æ sjaldséð-
ari í breskum verslunum.
Reuters
Kreppir að í
bóksölu
Ferðalangar til Þýska-
lands taka kannski ein-
hverjir eftir því að meðal
vinsælustu glæpasagna-
höfunda þar í landi er
enski höfundurinn Simon
Beckett, en í heimalandi
höfundarins, Englandi,
þekkja fáir á honum haus
eða sporð. Beckett hefur
þó verið lengi að, sendi fyrstu bókina frá sér
fyrir fimmtán árum en það var ekki fyrr en
hann fór að skrifa bækur um réttarmeina-
fræðinginn David Hunter fyrir fjórum árum
að hann sló rækilega í gegn í Þýskalandi,
svo rækilega reyndar að bækur hans seljast
metsölu þar í landi. Dæmi um það er síð-
asta bók hans, Whispers of the Dead, sem
kom út síðastliðið haust og seldist í
300.000 eintökum þar í landi í fyrstu útgáfu-
viku, en 200.000 eintök fóru til í vikunni í
nálægum löndum, aðallega í Póllandi.
Í viðtali breska blaðsins The Times við
Beckett kemur fram að hann var búinn að
gera margar tilraunir til að skrifa skáldsögur
við litlar undirtektir útgefenda og flæktist því
úr einni vinnu í aðra á milli þess sem hann
gerði atlögur að skáldsögum sem enginn
vildi gefa út. Á endanum tókst honum að
koma út bók þegar hann var kominn á fer-
tugsaldur, en sú bók og næstu bækur á eftir
seldust ekki nema miðlungi vel og á end-
anum gafst hann upp á skrifunum og gerðist
blaðamaður í lausamennsku. Þá var það að
Beckett fór til Bandaríkjanna 2003 sem
blaðamaður og komst í tæri við rannsókn-
arverkefni í réttarmeinafræði í Knoxville í
Tennessee þar sem ríflega 1.000 lík eru
grafin á ýmsa vegu, til að fylgjast með rotn-
un þeirra. Þetta varð honum innblástur að
fyrstu David Hunter-bókinni og síðan bóka-
röð, en Whispers of the Dead var þriðja bók-
in í röðinni. Þess má og geta að til stendur
að gera sjónvarpsþætti upp úr bókunum og
þá taka landar Becketts kannski við sér.
Hver er Simon
Beckett?
Simon Beckett
LISTASAFN ÍSLANDS
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Ævispor
Útsaumsverk Guðrúnar Guðmundsdóttur
Endurfundir
Fornleifasýning fyrir alla fjölskylduna
Fyrir ári
Segja þessir hlutir söguna?
Opið alla daga nema mánudaga 11-17
Aðgangur ókeypis fyrir börn
www.thjodminjasafn.is - s. 530 2200
Söfnin í landinu
16. janúar - 28. febrúar
Endalokin - Ragnar Kjartansson
Ljósbrot - Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir
Opið 12-17, fimmtudaga 12-21,
lokað þriðjudaga
www.hafnarborg.is
sími 585 5790
Aðgangur ókeypis
í samstarfi við Listasafn Íslands
ÍSLENSK MYNDLIST
hundrað ár í hnotskurn
kaffistofa – leskró
barnahorn
OPIÐ: Fim.–sun. kl. 12-18
AÐGANGUR ÓKEYPIS
www.listasafnarnesinga.is
HveragerðiCARNEGIE ART AWARD 2010
8.1. - 21.2. 2010
SUNNUDAGSLEIÐSÖGN 14. febr. kl. 14
LEYNDARDÓMAR MÁLVERKA - VISTARVERUR
Fjölskylduleiðsögn - Kristín Arngrímsdóttir myndlistarmaður mun fara með
börnin um sýninguna og spjalla við þau um nokkur leyndardómsfull verk.
SAFNBÚÐ Úrval af listaverkabókum, listaverkakortum, plakötum,
íslenskum listmunum og gjafavöru.
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600
OPIÐ daglega kl. 11-17, lokað mánudaga
Allir velkomnir! ÓKEYPIS AÐGANGUR www.listasafn.is
Listasafn: Björn Birnir
Afleiddar ómælisvíddir
Bíósalur: Verk úr safneign
Listasafns Reykjanesbæjar
Bátasafn: 100 bátalíkön
Byggðasafn: Völlurinn
Opið virka daga 11.00-17.00
helgar 13.00-17.00
Aðgangur ókeypis
reykjanesbaer.is/listasafn
VÍKINGAHEIMAR
Skipið Íslendingur og
sögusýning
- Söguleg skemmtun
VÍKINGABRAUT 1
- REYKJANESBÆ
Opið alla daga
frá 11:00 til 18:00
Sími 422 2000
www.vikingaheimar.com
info@vikingaheimar.com