SunnudagsMogginn - 28.02.2010, Page 2
2 28. febrúar 2010
4-8 Vikuspeglar
Unglingar í Reykjanesbæ fá aðstoð eftir skóla, á Evrópa svar við
áhlaupinu? og Íslendingur drekkir þjálfara sínum.
12 Þjóðhetjur í Perú
Systkinin Daysi og Jorge Cori eru bæði heimsmeistarar í skák. Þau
tefla þessa dagana á Reykjavík-
urskákmótinu.
18 Hver fer heim
með Eddu?
Heiðursvottur Íslensku kvikmynda- og
sjónvarpsakademíunnar afhentur í
kvöld. Sæbjörn Valdimarsson spáir í
spilin.
28 Stórbrotnar náttúruhamfarir
Ragnar Axelsson heldur áfram að segja söguna bak við myndina. Nú
ber hann niður í Skeiðarárhlaupi árið 1996.
38 Hvíld mesta áskorunin
Inga Dagmar Karlsdóttir er mikill orkubolti og fjallagarpur.
Lesbók
48 Konur og kvensköp
Kristín Gunnlaugsdóttir leggur olíulitunum og saumar út í grófan
striga. Sýningu hennar í Grafíksafni Íslands lýkur um helgina.
52 Heimur húmanistans
Marglofuð sjálfsævisaga Stefans Zweig, Veröld sem var, kom út í ís-
lenskri þýðingu í kilju á dögunum.
54 Umsagnir
Jón B.K. Ransu gefur Hreini Friðfinnssyni fjórar stjörnur.
16
40
Efnisyfirlit
Forsíðumyndina tók Árni Sæberg af Maríu Sigrúnu Hilmarsdóttur.
Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudagsmoggans:
Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, Bergþóra Jónsdóttir, Helgi Snær Sigurðsson, Ingveldur Geirsdóttir,
Kolbrún Bergþórsdóttir, Kristján Jónsson, Orri Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir , Skapti Hallgrímsson, Ylfa Kristín K. Árnadóttir.
Augnablikið
Þ
að er gaman að syngja þegar fólk mætir,“
segir Emilíana Torrini, hógværðin upp-
máluð frammi fyrir fullum sal í Há-
skólabíói. Getur verið að hún sé feimin? Í
það minnsta er hógværðin feimnisleg. Og hún hlær
feimnislega. Er með lokuð augun í fyrsta laginu.
„My heart stopped beating.“
Engu að síður geislar röddin af sjálfsöryggi þegar
hún syngur:
„I laugh out loud. My life is a mess.“
Emilíana er allt nema gömul, en samt minnir hún
stundum á gamla konu þegar hún syngur. Þessar
gömlu sætu ljúfu brosandi konur – eins og ömmu
Þóru og Edith Piaf. Og hún syngur líka um kaffi
sem voru þeirra ær og kýr.
Sjálf sýpur Emilíana úr krús. „Nei, ég er ekki að
drekka Bavarian-bjór,“ segir hún. „Þetta er bara
eina kannan sem ég fann.“
Kannski sýpur hún mjólk. Segjum það bara.
Mjólkin mýkir raddböndin í ljúfsáru lagi með
dropa af trega.
„Today has been ok.“
Næsta lag er um ástina. „Ég er alltaf að skrifa um
ástina,“ segir hún brosandi og byrjar svo að fabú-
lera um þetta útbreidda og ágenga fyrirbæri,
hvernig rétta ástin skýtur upp kollinum á bandvit-
lausum tíma. „Stundum langar mig til að eiga mik-
ið af ástum!“ Og um það er lagið Sunny Road.
„If you blind me now I’m defeated.“
Annars er uppáhaldstími Emilíönu sumartíminn
eftir rigninguna. „Raki og klístur, kóka kóla með
klökum, ekkert sexí við það, maður er bara rauður
með úfið hár, flösku af víni, knúsar kærastann og
hlustar á Sepitura – upp á gamla tíma.“
„Nothing brings me down.“
Eitt lagið man Emilíana ekki eftir að hafa samið
og í öðru lagi steingleymir hún textanum, stoppar
hljómsveitina og hugsar sig um. Það vekur mikla
kátínu í salnum. „Ég var að syngja þetta í brúð-
kaupi í dag.“ segir hún undrandi á sjálfri sér. Svo
hlær hún bara og salurinn með. „Jæja, sjáum bara
til...“
Hljómsveitin byrjar. „Big jump...“
Það er klappað og hrópað af fögnuði. Engin
furða, því tónlistin, söngurinn og textarnir, allt er
þetta óaðfinnanlegt.
„When you say goodbye. My lungs ache filled
with water. Cause I will always love you.“
Betri tónlist er ekki til – bara öðruvísi.
pebl@mbl.is
Emilíana Torrini var engum lík í Háskólabíói um liðna helgi.
Morgunblaðið/Golli
Alltaf að skrifa um ástina
28. febrúar
Tónlistakonan Kristín Anna Valtýsdóttir, sem gengur undir listamanns-
nafninu Kría Brekkan, heldur tónleika í Listasafni Íslands kl. 21. Mun hún
flytja frumsamin lög á píanó og syngja með. Kristín, eða Kría, hefur búið í
New York undanfarin fjögur ár, þar sem hún hefur verið að gera tilraunir
með eigin tónlist og haldið tónleika reglulega. Auk píanósins hefur hún
unnið mikið með elektrónísk hljóðfæri og má lýsa lögum hennar sem
nokkurs konar annars heims vögguvísum.
Píanótónleikar Kríu Brekkan
Við mælum með…
28. febrúar
Leiklistin og hafið er yfirskrift sýn-
ingar Leikminjasafns Íslands í Vík-
inni, Grandagarði 8. Kl. 15 verður
boðið upp á fjölskyldusýningu þar
sem verður leikið, sungið og dans-
að að sjómannasið og munu ýmsir
söngvarar og listamenn taka þátt í
dagskránni.
28. febrúar
Á Kjarvalsstöðum
verður boðið upp á
fjölskyldusmiðju þar
sem hægt verður að skoða vatns-
litasýninguna Blæbrigði vatnssins
auk þess að búa til sitt eigið vatns-
litaverk. Hefst kl. 14.
3. mars
Konfúsíusarstofnunin Norðurljós
sýnir kvikmyndina Huozhe eftir
Zhang Yimou. Sýningin verður
haldin í stofu 132 í Öskju kl.
17.15 og aðgangur er ókeypis.
www.noatun.is
Nóatún
bestir
í kjöti
50%
afsláttur
HELGARSTE
IKÓDÝR
GRÍSASTEIK
AÐ HÆTTI DANA
KR./KG
998
BBESTIR
Í KJÖTI
ÚRKJÖTBOR
ÐI
ÚR
KJÖTBORÐI
1998