SunnudagsMogginn - 28.02.2010, Blaðsíða 2

SunnudagsMogginn - 28.02.2010, Blaðsíða 2
2 28. febrúar 2010 4-8 Vikuspeglar Unglingar í Reykjanesbæ fá aðstoð eftir skóla, á Evrópa svar við áhlaupinu? og Íslendingur drekkir þjálfara sínum. 12 Þjóðhetjur í Perú Systkinin Daysi og Jorge Cori eru bæði heimsmeistarar í skák. Þau tefla þessa dagana á Reykjavík- urskákmótinu. 18 Hver fer heim með Eddu? Heiðursvottur Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar afhentur í kvöld. Sæbjörn Valdimarsson spáir í spilin. 28 Stórbrotnar náttúruhamfarir Ragnar Axelsson heldur áfram að segja söguna bak við myndina. Nú ber hann niður í Skeiðarárhlaupi árið 1996. 38 Hvíld mesta áskorunin Inga Dagmar Karlsdóttir er mikill orkubolti og fjallagarpur. Lesbók 48 Konur og kvensköp Kristín Gunnlaugsdóttir leggur olíulitunum og saumar út í grófan striga. Sýningu hennar í Grafíksafni Íslands lýkur um helgina. 52 Heimur húmanistans Marglofuð sjálfsævisaga Stefans Zweig, Veröld sem var, kom út í ís- lenskri þýðingu í kilju á dögunum. 54 Umsagnir Jón B.K. Ransu gefur Hreini Friðfinnssyni fjórar stjörnur. 16 40 Efnisyfirlit Forsíðumyndina tók Árni Sæberg af Maríu Sigrúnu Hilmarsdóttur. Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudagsmoggans: Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, Bergþóra Jónsdóttir, Helgi Snær Sigurðsson, Ingveldur Geirsdóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir, Kristján Jónsson, Orri Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir , Skapti Hallgrímsson, Ylfa Kristín K. Árnadóttir. Augnablikið Þ að er gaman að syngja þegar fólk mætir,“ segir Emilíana Torrini, hógværðin upp- máluð frammi fyrir fullum sal í Há- skólabíói. Getur verið að hún sé feimin? Í það minnsta er hógværðin feimnisleg. Og hún hlær feimnislega. Er með lokuð augun í fyrsta laginu. „My heart stopped beating.“ Engu að síður geislar röddin af sjálfsöryggi þegar hún syngur: „I laugh out loud. My life is a mess.“ Emilíana er allt nema gömul, en samt minnir hún stundum á gamla konu þegar hún syngur. Þessar gömlu sætu ljúfu brosandi konur – eins og ömmu Þóru og Edith Piaf. Og hún syngur líka um kaffi sem voru þeirra ær og kýr. Sjálf sýpur Emilíana úr krús. „Nei, ég er ekki að drekka Bavarian-bjór,“ segir hún. „Þetta er bara eina kannan sem ég fann.“ Kannski sýpur hún mjólk. Segjum það bara. Mjólkin mýkir raddböndin í ljúfsáru lagi með dropa af trega. „Today has been ok.“ Næsta lag er um ástina. „Ég er alltaf að skrifa um ástina,“ segir hún brosandi og byrjar svo að fabú- lera um þetta útbreidda og ágenga fyrirbæri, hvernig rétta ástin skýtur upp kollinum á bandvit- lausum tíma. „Stundum langar mig til að eiga mik- ið af ástum!“ Og um það er lagið Sunny Road. „If you blind me now I’m defeated.“ Annars er uppáhaldstími Emilíönu sumartíminn eftir rigninguna. „Raki og klístur, kóka kóla með klökum, ekkert sexí við það, maður er bara rauður með úfið hár, flösku af víni, knúsar kærastann og hlustar á Sepitura – upp á gamla tíma.“ „Nothing brings me down.“ Eitt lagið man Emilíana ekki eftir að hafa samið og í öðru lagi steingleymir hún textanum, stoppar hljómsveitina og hugsar sig um. Það vekur mikla kátínu í salnum. „Ég var að syngja þetta í brúð- kaupi í dag.“ segir hún undrandi á sjálfri sér. Svo hlær hún bara og salurinn með. „Jæja, sjáum bara til...“ Hljómsveitin byrjar. „Big jump...“ Það er klappað og hrópað af fögnuði. Engin furða, því tónlistin, söngurinn og textarnir, allt er þetta óaðfinnanlegt. „When you say goodbye. My lungs ache filled with water. Cause I will always love you.“ Betri tónlist er ekki til – bara öðruvísi. pebl@mbl.is Emilíana Torrini var engum lík í Háskólabíói um liðna helgi. Morgunblaðið/Golli Alltaf að skrifa um ástina 28. febrúar Tónlistakonan Kristín Anna Valtýsdóttir, sem gengur undir listamanns- nafninu Kría Brekkan, heldur tónleika í Listasafni Íslands kl. 21. Mun hún flytja frumsamin lög á píanó og syngja með. Kristín, eða Kría, hefur búið í New York undanfarin fjögur ár, þar sem hún hefur verið að gera tilraunir með eigin tónlist og haldið tónleika reglulega. Auk píanósins hefur hún unnið mikið með elektrónísk hljóðfæri og má lýsa lögum hennar sem nokkurs konar annars heims vögguvísum. Píanótónleikar Kríu Brekkan Við mælum með… 28. febrúar Leiklistin og hafið er yfirskrift sýn- ingar Leikminjasafns Íslands í Vík- inni, Grandagarði 8. Kl. 15 verður boðið upp á fjölskyldusýningu þar sem verður leikið, sungið og dans- að að sjómannasið og munu ýmsir söngvarar og listamenn taka þátt í dagskránni. 28. febrúar Á Kjarvalsstöðum verður boðið upp á fjölskyldusmiðju þar sem hægt verður að skoða vatns- litasýninguna Blæbrigði vatnssins auk þess að búa til sitt eigið vatns- litaverk. Hefst kl. 14. 3. mars Konfúsíusarstofnunin Norðurljós sýnir kvikmyndina Huozhe eftir Zhang Yimou. Sýningin verður haldin í stofu 132 í Öskju kl. 17.15 og aðgangur er ókeypis. www.noatun.is Nóatún bestir í kjöti 50% afsláttur HELGARSTE IKÓDÝR GRÍSASTEIK AÐ HÆTTI DANA KR./KG 998 BBESTIR Í KJÖTI ÚRKJÖTBOR ÐI ÚR KJÖTBORÐI 1998
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.