SunnudagsMogginn - 28.02.2010, Síða 8
8 28. febrúar 2010
Dawn heitin Brancheau á sundi með ónafngreindum háhyrningi í SeaWorld. Brancheau var síðhærð og hnýtti hadd sinn í tagl. Sá siður virðist hafa orðið henni að fjörtjóni.
Reuters
S
ædýragarðurinn SeaWorld í Orlando
ætlar ekki að tortíma háhyrningnum
Tilikum sem varð þjálfara sínum að
bana á sýningu síðastliðinn miðviku-
dag. „Hann verður hluti af fjölskyldu okkar
um ókomna framtíð,“ sagði Chuck Tompkins,
yfirþjálfari hjá SeaWorld, við sjónvarpsstöðina
CNN en bætti við að starfsreglur yrðu yf-
irfarnar til að tryggja að harmleikur af þessu
tagi endurtæki sig ekki.
Rannsókn á atburðinum stendur enn yfir en
svo virðist sem tagl þjálfarans, hinnar fertugu
Dawn Brancheau, hafi strokist við trýni dýrs-
ins með þeim afleiðingum að það missti stjórn
á sér. Á augabragði greip háhyrningurinn,
sem vegur tólf tonn, í hár Brancheau, frammi
fyrir stórum hópi áhorfenda, og steypti henni
í vatnið þar sem hún drukknaði.
Brancheau hafði þekkt og unnið með Til-
ikum, eða Tilly eins og dýrið er jafnan kallað í
SeaWorld-garðinum, í sextán ár. Þau höfðu
nýlokið við vel heppnaða æfingu og hún var
að knúsa dýrið og kjassa þegar allt fór á
versta veg. „Við héldum að þau væru að leika
sér,“ segir Wayne Gillespie, sem var á sýning-
unni ásamt börnum sínum. „Skyndilega var
hún komin á bólakaf með honum. Við veitt-
um því athygli að bægslagangurinn var meiri
en venjulega og vatn gekk yfir bakka laug-
arinnar. Einhver sneri sér að okkur og sagði:
Þið ættuð að halda fyrir augun á börnunum!“
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Tilikum
tengist mannsláti. Árið 1991 átti hann, ásamt
tveimur háhyrnum, þátt í dauða annars
þjálfara, Keltie Byrne, sem féll ofan í laug
þeirra í Sealand of the Pacific-garðinum í
Kanada. Átta árum síðar, þegar Tilikum var
kominn til Orlando, fannst óviðkomandi
maður látinn í tanki hans. Hann hafði brotist
inn í sædýragarðinn að næturlagi. Banamein
mannsins var ofkæling en tannaför voru á
líkinu.
Vegna stærðar Tilikums og forsögu er þjálf-
urum hans, 28 að tölu, harðbannað að synda
með honum í lauginni í SeaWorld.
Dauði Brancheau er vatn á myllu dýra-
verndarsinna sem eru andvígir því að stór
sædýr á borð við háhyrninga séu fönguð.
„Tilikum er fórnarlamb fjötra sinna; þeir hafa
gert hann vitstola,“ hefur breska dagblaðið
The Guardian eftir Russ Rector, fyrrverandi
höfrungaþjálfara í Bandaríkjunum. „Væri
hann hestur, hundur, björn, köttur eða fíll
hefði hann verið aflífaður eftir fyrsta vígið,
nú eru þau orðin þrjú.“
Naomi Rose, vísindamaður sem sérhæfir sig
í sjávarspendýrum, segir lausnina aftur á
móti ekki felast í því að deyða dýrið. „Það
sem gerðist var ekki Tilikum að kenna, ekk-
ert frekar en Dawn Brancheau. Vandinn ligg-
ur í því að nota þessar villtu skepnur sem
sýningagripi. Þetta slys lá í loftinu.“
Kvalafullur
dauðdagi
Íslenski háhyrningurinn
Tilikum enn í vígamóð
Vikuspegill
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Tilikum var hnepptur í fjötra um tveggja ára
aldurinn í landhelgi Íslands og telst því Íslend-
ingur. Síðan eru liðnir um þrír áratugir. Honum
var upprunalega haldið í sædýragarði í Kanada
en hefur verið í Orlando frá árinu 1992. Háhyrn-
ingar ná að hámarki 50-60 ára aldri en hyrn-
urnar geta orðið allt að níræðar.
Hávær umræða er uppi í Bandaríkjunum og
víðar þessa dagana um það hvort frelsa eigi
háhyrninga í sædýragörðum en fyrir tveimur
mánuðum dó annar háhyrningaþjálfari, Alexis
Martínez, í Loro Parque-dýragarðinum á Te-
nerife.
Ein tillagan sem komið hefur fram er að
senda Tilikum í kjölfar Keikós heim til Íslands.
Eins og menn muna var Keikó um skeið í að-
lögun í Klettsvík í Vestmannaeyjum áður en
honum var sleppt lausum. Hann spjaraði sig
um tíma en bar beinin einn og yfirgefinn í
norskum firði árið 2003.
Dýraverndunarsinnar gjalda varhug við hug-
myndinni, hafa efasemdir um að Tilikum myndi
spjara sig í villtu umhverfi eftir svona langan
tíma í haldi.
Líka má velta fyrir sér hvort íslensk stjórn-
völd kæri sig um að taka við meintum fjölda-
morðingja.
Verður Tilikum
sendur til Íslands?
Tilikum í essinu sínu í tankinum í SeaWorld, Orlando.
Reuters