SunnudagsMogginn - 28.02.2010, Blaðsíða 8

SunnudagsMogginn - 28.02.2010, Blaðsíða 8
8 28. febrúar 2010 Dawn heitin Brancheau á sundi með ónafngreindum háhyrningi í SeaWorld. Brancheau var síðhærð og hnýtti hadd sinn í tagl. Sá siður virðist hafa orðið henni að fjörtjóni. Reuters S ædýragarðurinn SeaWorld í Orlando ætlar ekki að tortíma háhyrningnum Tilikum sem varð þjálfara sínum að bana á sýningu síðastliðinn miðviku- dag. „Hann verður hluti af fjölskyldu okkar um ókomna framtíð,“ sagði Chuck Tompkins, yfirþjálfari hjá SeaWorld, við sjónvarpsstöðina CNN en bætti við að starfsreglur yrðu yf- irfarnar til að tryggja að harmleikur af þessu tagi endurtæki sig ekki. Rannsókn á atburðinum stendur enn yfir en svo virðist sem tagl þjálfarans, hinnar fertugu Dawn Brancheau, hafi strokist við trýni dýrs- ins með þeim afleiðingum að það missti stjórn á sér. Á augabragði greip háhyrningurinn, sem vegur tólf tonn, í hár Brancheau, frammi fyrir stórum hópi áhorfenda, og steypti henni í vatnið þar sem hún drukknaði. Brancheau hafði þekkt og unnið með Til- ikum, eða Tilly eins og dýrið er jafnan kallað í SeaWorld-garðinum, í sextán ár. Þau höfðu nýlokið við vel heppnaða æfingu og hún var að knúsa dýrið og kjassa þegar allt fór á versta veg. „Við héldum að þau væru að leika sér,“ segir Wayne Gillespie, sem var á sýning- unni ásamt börnum sínum. „Skyndilega var hún komin á bólakaf með honum. Við veitt- um því athygli að bægslagangurinn var meiri en venjulega og vatn gekk yfir bakka laug- arinnar. Einhver sneri sér að okkur og sagði: Þið ættuð að halda fyrir augun á börnunum!“ Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Tilikum tengist mannsláti. Árið 1991 átti hann, ásamt tveimur háhyrnum, þátt í dauða annars þjálfara, Keltie Byrne, sem féll ofan í laug þeirra í Sealand of the Pacific-garðinum í Kanada. Átta árum síðar, þegar Tilikum var kominn til Orlando, fannst óviðkomandi maður látinn í tanki hans. Hann hafði brotist inn í sædýragarðinn að næturlagi. Banamein mannsins var ofkæling en tannaför voru á líkinu. Vegna stærðar Tilikums og forsögu er þjálf- urum hans, 28 að tölu, harðbannað að synda með honum í lauginni í SeaWorld. Dauði Brancheau er vatn á myllu dýra- verndarsinna sem eru andvígir því að stór sædýr á borð við háhyrninga séu fönguð. „Tilikum er fórnarlamb fjötra sinna; þeir hafa gert hann vitstola,“ hefur breska dagblaðið The Guardian eftir Russ Rector, fyrrverandi höfrungaþjálfara í Bandaríkjunum. „Væri hann hestur, hundur, björn, köttur eða fíll hefði hann verið aflífaður eftir fyrsta vígið, nú eru þau orðin þrjú.“ Naomi Rose, vísindamaður sem sérhæfir sig í sjávarspendýrum, segir lausnina aftur á móti ekki felast í því að deyða dýrið. „Það sem gerðist var ekki Tilikum að kenna, ekk- ert frekar en Dawn Brancheau. Vandinn ligg- ur í því að nota þessar villtu skepnur sem sýningagripi. Þetta slys lá í loftinu.“ Kvalafullur dauðdagi Íslenski háhyrningurinn Tilikum enn í vígamóð Vikuspegill Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Tilikum var hnepptur í fjötra um tveggja ára aldurinn í landhelgi Íslands og telst því Íslend- ingur. Síðan eru liðnir um þrír áratugir. Honum var upprunalega haldið í sædýragarði í Kanada en hefur verið í Orlando frá árinu 1992. Háhyrn- ingar ná að hámarki 50-60 ára aldri en hyrn- urnar geta orðið allt að níræðar. Hávær umræða er uppi í Bandaríkjunum og víðar þessa dagana um það hvort frelsa eigi háhyrninga í sædýragörðum en fyrir tveimur mánuðum dó annar háhyrningaþjálfari, Alexis Martínez, í Loro Parque-dýragarðinum á Te- nerife. Ein tillagan sem komið hefur fram er að senda Tilikum í kjölfar Keikós heim til Íslands. Eins og menn muna var Keikó um skeið í að- lögun í Klettsvík í Vestmannaeyjum áður en honum var sleppt lausum. Hann spjaraði sig um tíma en bar beinin einn og yfirgefinn í norskum firði árið 2003. Dýraverndunarsinnar gjalda varhug við hug- myndinni, hafa efasemdir um að Tilikum myndi spjara sig í villtu umhverfi eftir svona langan tíma í haldi. Líka má velta fyrir sér hvort íslensk stjórn- völd kæri sig um að taka við meintum fjölda- morðingja. Verður Tilikum sendur til Íslands? Tilikum í essinu sínu í tankinum í SeaWorld, Orlando. Reuters
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.