SunnudagsMogginn - 28.02.2010, Side 9

SunnudagsMogginn - 28.02.2010, Side 9
28. febrúar 2010 9 O ft er flagð undir fögru skinni, segir máltækið. Það sann- aðist enn og aftur í vikunni þegar Alþjóðalögreglan gaf út handtökuskipun á hendur þrítugri nærfatafyrirsætu, Angie Sanselmente Valencia, sem grunuð er um að vera potturinn og pannan í einum víðtækasta eiturlyfjasmyglhring heims. Valencia er grunuð um að smygla kókaíni frá Suður- Ameríku til Evrópu gegnum Mexíkó og gerir lögregla því skóna að hún fái aðeins gull- fallegar fyrirsætur til að vinna fyrir sig. Mögulega vegna þess að tollverðir séu ólíklegir til að þreifa á þeim. Breska blaðið Daily Mail hefur heimildir fyrir því að Valencia borgi burðardýrum sínum ríflega þrjú þúsund sterlingspund fyrir skiptið og að eitt þeirra hafi farið í loftið á sólarhringsfresti með kókaín í fórum sínum. Lögregla komst á snoðir um málið þegar eitt burðardýranna, 21 árs gömul stúlka, var gripið glóðvolgt með 55 kíló af kókaíni á Ezeiza-flugvellinum í Buenos Aires í desember síðastliðnum. Fljótlega losnaði um málbeinið í stúlkunni og í kjölfarið voru þrír aðilar til viðbótar færðir í járn. Að sögn argentínska dagblaðs- ins La Nación gerði stúlkan enga tilraun til að fela efnið í skjóðu sinni enda hafði hún verið full- vissuð um að enginn myndi kássast upp á hana á flugvell- inum. Lögregla rannsakar nú hvort Valencia eigi samstarfsmenn á téðum flugvelli. Valencia er hálfgerð huldu- kona. Fyrir liggur að hún fæddist í Kólumbíu og var kjörin „Kaffi- drottning“ landsins árið 2000. Talið er að hún hafi um tíma slegið sér upp með mexíkóskum eiturlyfjabarón sem þekktur er undir nafninu „Ófreskjan“ í undirheimunum þar syðra. Þau ku hafa skilið um síðustu áramót, þegar Valencia á að hafa ákveðið að setja eigin smyglhring á lagg- irnar. Heimildir herma að hún stýri aðgerðum frá Argentínu en Valencia fer, eðli málsins sam- kvæmt, huldu höfði um þessar mundir. Síðast spurðist til henn- ar á hóteli í Buenos Aires. Með í för þegar Valencia kom til Arg- entínu var heittelskaður smá- hundur og reyndi lögregla að rekja slóðina gegnum heim- ilisfangið sem skepnan var skráð á. Það reyndist vera yfirgefin vöruskemma. Kræf kaffi- drottning Fyrirsæta grunuð um kókaínsmygl Vikuspegill Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is ’ Lögregla komst á snoðir um málið þegar eitt burðardýranna, 21 árs gömul stúlka, var gripið glóðvolgt með 55 kíló af kókaíni. H V ÍT A H Ú S I / S ÍA / A C TA V IS 9 0 9 0 9 0 Notkunarsvið: Omeprazol Actavis inniheldur ómeprazól sem hemur seytingu á magasýru. Omeprazol Actavis er notað við tilfallandi brjóstsviða og súru bakflæði. Frábendingar: Ofnæmi fyrir innihaldsefnum, samtímis notkun lyfja sem innihalda claritrómýcín hjá sjúklingum með skerta lifrarstarfsemi, samtímis notkun lyfja sem innihalda atazanavír. Varúð: Gæta skal sérstakrar varúðar: Ef verulegt og óvænt þyngdartap verður, við endurtekin uppköst, ef erfiðleikar eru við að kyngja, við blóðuppköst eða blóð í hægðum, ef lifrar- eða nýrnastarfsemi er skert. Börn og unglingar undir 18 ára aldri eiga ekki að nota lyfið nema að ráði læknis. Omeprazol Actavis inniheldur súkrósa. Meðganga/brjóstagjöf: Leitið ráða hjá lækni áður en lyfið er notað. Akstur og notkun véla: Aukaverkanir, svo sem þreyta, svimi og sjón- og heyrnartruflanir, geta komið fram og geta haft áhrif á hæfni til aksturs eða notkunar véla. Aukaverkanir: Algengar aukaverkanir eru niðurgangur, hægðatregða, vindgangur, ógleði, uppköst, svefntruflanir, sundl, höfuðverkur eða þreyta. Þessar aukaverkanir verða yfirleitt vægari við áframhaldandi meðferð. Skammtastærðir: Fullorðnir: 1 sýruþolið hylki eftir þörfum. Ekki má nota meira en 20 mg á sólarhring. Ef einkennin hverfa ekki eftir að Omeprazol Actavis hefur verið notað í 14 daga skal hafa samband við lækninn vegna þess að einkennin gætu verið af öðrum orsökum. Gleypa á sýruþolnu hylkin með glasi af vökva. Sýruþolnu hylkin ætti að taka fyrir máltíð (t.d. morgunmat eða kvöldmat) eða á fastandi maga. Hvorki má tyggja né mylja sýruþolnu hylkin. Lesið vandlega leiðbeiningar sem fylgja lyfinu. Geymið lyfið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Janúar 2009. Af litlum neista… Omeprazol Actavis - öflugt lyf við brjóstsviða og súru bakflæði 20 mg, 14 og 28 stk. – fáanlegt án lyfseðils í næsta apóteki

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.