SunnudagsMogginn - 28.02.2010, Blaðsíða 9
28. febrúar 2010 9
O
ft er flagð undir
fögru skinni, segir
máltækið. Það sann-
aðist enn og aftur í
vikunni þegar Alþjóðalögreglan
gaf út handtökuskipun á hendur
þrítugri nærfatafyrirsætu, Angie
Sanselmente Valencia, sem
grunuð er um að vera potturinn
og pannan í einum víðtækasta
eiturlyfjasmyglhring heims.
Valencia er grunuð um að
smygla kókaíni frá Suður-
Ameríku til Evrópu gegnum
Mexíkó og gerir lögregla því
skóna að hún fái aðeins gull-
fallegar fyrirsætur til að vinna
fyrir sig. Mögulega vegna þess að
tollverðir séu ólíklegir til að
þreifa á þeim.
Breska blaðið Daily Mail hefur
heimildir fyrir því að Valencia
borgi burðardýrum sínum ríflega
þrjú þúsund sterlingspund fyrir
skiptið og að eitt þeirra hafi farið
í loftið á sólarhringsfresti með
kókaín í fórum sínum.
Lögregla komst á snoðir um
málið þegar eitt burðardýranna,
21 árs gömul stúlka, var gripið
glóðvolgt með 55 kíló af kókaíni
á Ezeiza-flugvellinum í Buenos
Aires í desember síðastliðnum.
Fljótlega losnaði um málbeinið í
stúlkunni og í kjölfarið voru þrír
aðilar til viðbótar færðir í járn.
Að sögn argentínska dagblaðs-
ins La Nación gerði stúlkan enga
tilraun til að fela efnið í skjóðu
sinni enda hafði hún verið full-
vissuð um að enginn myndi
kássast upp á hana á flugvell-
inum.
Lögregla rannsakar nú hvort
Valencia eigi samstarfsmenn á
téðum flugvelli.
Valencia er hálfgerð huldu-
kona. Fyrir liggur að hún fæddist
í Kólumbíu og var kjörin „Kaffi-
drottning“ landsins árið 2000.
Talið er að hún hafi um tíma
slegið sér upp með mexíkóskum
eiturlyfjabarón sem þekktur er
undir nafninu „Ófreskjan“ í
undirheimunum þar syðra. Þau
ku hafa skilið um síðustu áramót,
þegar Valencia á að hafa ákveðið
að setja eigin smyglhring á lagg-
irnar. Heimildir herma að hún
stýri aðgerðum frá Argentínu en
Valencia fer, eðli málsins sam-
kvæmt, huldu höfði um þessar
mundir. Síðast spurðist til henn-
ar á hóteli í Buenos Aires. Með í
för þegar Valencia kom til Arg-
entínu var heittelskaður smá-
hundur og reyndi lögregla að
rekja slóðina gegnum heim-
ilisfangið sem skepnan var skráð
á. Það reyndist vera yfirgefin
vöruskemma.
Kræf kaffi-
drottning
Fyrirsæta grunuð
um kókaínsmygl
Vikuspegill
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
’
Lögregla komst
á snoðir um
málið þegar eitt
burðardýranna, 21
árs gömul stúlka, var
gripið glóðvolgt með
55 kíló af kókaíni.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
I
/
S
ÍA
/
A
C
TA
V
IS
9
0
9
0
9
0
Notkunarsvið: Omeprazol Actavis inniheldur ómeprazól sem hemur seytingu á magasýru. Omeprazol Actavis er
notað við tilfallandi brjóstsviða og súru bakflæði. Frábendingar: Ofnæmi fyrir innihaldsefnum, samtímis notkun lyfja
sem innihalda claritrómýcín hjá sjúklingum með skerta lifrarstarfsemi, samtímis notkun lyfja sem innihalda atazanavír.
Varúð: Gæta skal sérstakrar varúðar: Ef verulegt og óvænt þyngdartap verður, við endurtekin uppköst, ef erfiðleikar
eru við að kyngja, við blóðuppköst eða blóð í hægðum, ef lifrar- eða nýrnastarfsemi er skert. Börn og unglingar undir
18 ára aldri eiga ekki að nota lyfið nema að ráði læknis. Omeprazol Actavis inniheldur súkrósa.
Meðganga/brjóstagjöf: Leitið ráða hjá lækni áður en lyfið er notað. Akstur og notkun véla: Aukaverkanir, svo sem
þreyta, svimi og sjón- og heyrnartruflanir, geta komið fram og geta haft áhrif á hæfni til aksturs eða notkunar véla.
Aukaverkanir: Algengar aukaverkanir eru niðurgangur, hægðatregða, vindgangur, ógleði, uppköst, svefntruflanir,
sundl, höfuðverkur eða þreyta. Þessar aukaverkanir verða yfirleitt vægari við áframhaldandi meðferð.
Skammtastærðir: Fullorðnir: 1 sýruþolið hylki eftir þörfum. Ekki má nota meira en 20 mg á sólarhring. Ef einkennin
hverfa ekki eftir að Omeprazol Actavis hefur verið notað í 14 daga skal hafa samband við lækninn vegna þess að
einkennin gætu verið af öðrum orsökum. Gleypa á sýruþolnu hylkin með glasi af vökva. Sýruþolnu hylkin ætti að taka
fyrir máltíð (t.d. morgunmat eða kvöldmat) eða á fastandi maga. Hvorki má tyggja né mylja sýruþolnu hylkin. Lesið
vandlega leiðbeiningar sem fylgja lyfinu. Geymið lyfið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Janúar 2009.
Af litlum neista…
Omeprazol Actavis
- öflugt lyf við brjóstsviða og súru bakflæði
20 mg, 14 og 28 stk. – fáanlegt án lyfseðils í næsta apóteki