SunnudagsMogginn - 28.02.2010, Page 10

SunnudagsMogginn - 28.02.2010, Page 10
10 28. febrúar 2010 É g held að það sé ekkert til sem misbýður okkur blaðamönnum meira en þegar við stöndum við- mælendur okkar að lygum. Okkar starf snýst um það að afla upplýsinga, helst glænýrra upplýsinga, skrifa svo fréttir úr upplýsingunum, vegna þess að við erum að þjóna lesendum okkar, áheyrendum eða áhorfendum, allt eftir því hjá hverskonar fréttamiðli við vinnum. Ég held að við blaðamenn eigum það allir sammerkt að sá sem einu sinni hefur orðið uppvís að ósannindum hefur glatað traustinu með öllu. Að þessu sögðu finnst mér ég mega til með að rifja upp ákveðinn fréttaflutning okkar hér í Morgunblaðinu af mál- efnum tryggingafélagsins Sjóvár og bótasjóði þess, frá því í októberlok árið 2008, eða fyrir réttum 16 mánuðum. Ekki finnst mér síst nauðsynlegt að rifja upp og setja í sam- hengi svör þáverandi forstjóra Sjóvár, Þórs Sigfússonar, á þessum tíma hér í Morgunblaðinu við spurningum sem ég bar upp við hann. Þór var þegar þetta var ekki bara forstjóri Sjóvár, heldur var hann formaður Samtaka atvinnulífsins og aukinheldur var hann hvorki meira né minna en stjórn- arformaður Árvakurs hf., útgáfufélags Morgunblaðsins. Hinn 27. október 2008 birtist frétt í Morgunblaðinu undir fyrirsögninni „Bótasjóðir stóðust storminn“ og í þeirri frétt gerðu forstjórar tryggingafélaganna grein fyrir því hversu mikilli snilld þeir og félögin sem þeir stýrðu hefðu beitt er fjárfestingastefnu félaganna var breytt. Þessi frétt í Morgunblaðinu varð aftur til þess að ég fékk ábendingar um að eitthvað færi nú á milli mála sannleiksgildi frásagna forstjóra tryggingafélaganna og var Þór Sigfússon sérstaklega tilgreindur í þeim efnum. Mér var sagt að Fjár- málaeftirlitið væri með þrjú stærstu tryggingafélögin (TM, Sjóvá og VÍS) til nákvæmrar skoðunar vegna þess að ekki þætti tryggt að bótasjóðir félaganna stæðu jafntraustum fót- um og forstjórar félaganna hefðu sagt að þeir gerðu og því var haldið fram við mig að það vantaði a.m.k. 15 milljarða króna í bótasjóð Sjóvár. Vitanlega fór ég á stúfana og kannaði sannleiksgildi þessara merku ábendinga og eftir svolítið japl, jaml og fuður fékk ég það staðfest hjá FME að félögin og bótasjóðir þeirra væru til rannsóknar hjá FME, einkum Sjóvá og bótasjóðir hennar. Í þeirri staðfestingu fékkst jafnframt upplýst að FME teldi að aðsteðjandi vandi tryggingafélaganna væri tilkominn vegna fjárfestingarstefnu þeirra og að þau hefðu lent í erfiðleikum vegna tengsla við önnur fjármálafyrirtæki og fjárfestingar þeirra. Ég skrifaði forsíðufrétt um þetta sem birtist sem fimm dálka frétt efst á forsíðu Morgunblaðsins hinn 30. október 2008 undir fyrirsögninni: „FME skoðar tryggingafélögin“ og í undirfyrirsögn sagði: „Eðlilegt þegar fjármálamarkaður verður fyrir jafnmiklu áfalli og nú að FME sé í nánu samstarfi við okkur,“ segir forstjóri Sjóvár. FME kannar hve mikið fé vantar í bótasjóði tryggingafélaganna.“ Raunar eru ummæli forstjórans á forsíðu Morgunblaðsins fyrir 16 mánuðum með ólíkindum þegar hann segir: „Við teljum að félagið eigi ágætar eignir á móti tjónaskuld. Við er- um einnig dótturfélag sænska fjármála- og tryggingafyr- irtækisins Moderna í Svíþjóð en það félag stendur traustum fótum. Við erum þess vegna með góðan bakhjarl.“ Forstjórinn, stjórnarformaður útgáfufélags þess fjölmiðils sem hann var að tala við, og formaður Samtaka atvinnulífs- ins, var ekkert að víla fyrir sér hagræðingu á sannleikanum á forsíðu Morgunblaðsins. Forstjórinn sem hafði nákvæmlega átta mánuðum áður undirritað lánasamninga frá Sjóvá til Milestone, upp á samtals 15,7 milljarða króna, sem nam 1,5 földu eigin fé Sjóvár í árslok 2007, lét eins og allt væri í himnalagi og það væri bara gott mál að FME væri í „nánu samstarfi við okkur“. Þegar ég horfði á hið ágæta Kastljós nú fyrr í vikunni, þar sem farið var yfir vitnisburð þessa sama Þórs Sigfússonar í yf- irheyrslum hjá sérstökum saksóknara frá því í fyrrasumar, rifjaðist þessi frétt upp fyrir mér og mér fannst eiginlega borðleggjandi að rifja hana upp fyrir ykkur einnig, lesendur góðir. Að ljúga með bros á vör Agnes segir Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is 7:00 „Vakna við óendanlega fagurt hjal Matthíasar unga sonar míns. Hann hjalar og talar oft í góða stund áður en við förum á fætur á morgnana. Þetta eru fegurstu hljóð sem ég get hugsað mér.“ 8:45 „Skunda í Kramhúsið og stunda þar mjög svo góða pilates-taichi-styrkingar- teygjuleikfimi. Kramhúsið er einfaldlega frábær staður enda fer ég alltaf aftur þangað.“ 9:45 „Dett inn á Kaffitár í Bankastræti og geri síðustu ráðstafanir vegna blaða- mannafundar í Kaupmanna- höfn vegna opnunar sýningar okkar Íslensk samtímahönnun í Dansk Design Center á föstu- daginn.“ 10:00 „Hitti Greip, verk- efnastjóra HönnunarMars, á vikulegum fundi okkar á Kaffitári. Við förum yfir nokk- ur mál, vinnum mikið og hlæjum líka mikið.“ 11:30 „Kem á skrifstofuna eftir langa en góða og mark- vissa yfirsetu á þessu stóra verkefni. Tek stöðuna á blaða- mannafundinum. Hann gekk vel.“ 12:00 „Stjórn Hönn- unarMars kemur í létt hádeg- isspjall með okkur Greipi í Hönnunarmiðstöðinni í Von- arstræti 4.“ 13:00 „Nýr fjölmiðla- fulltrúi HönnunarMars, Björg, mætir og setur sig inn í verk- efnið. Ég sest niður með henni stutta stund. Þess á milli vinn ég við tölvuna. Það er mikið að gera þessa dagana og í mörg horn að líta. Síminn hringir stanslaust og póst- urinn hleðst upp.“ 14:30 „Fundur um komu erlendra gesta á Hönn- unarMars. Soffía, sem sér um þau mál, og Greipur setja mig inn í málin og við vinnum fram eftir degi í boðsbréfum og að stilla saman strengi. Áhuginn að utan er töluverður og yfirsýnin þarf að vera góð.“ 15:30 „Símtal vegna þátt- töku iðnaðarráðherra í opnun sýningarinnar okkar í DDC. Það er mikilvægt að stjórn- sýslan og ráðamenn sýni í verki áherslur sínar í fram- gangi íslenskrar hönnunar. Því er þátttaka ráðherrans okkur mjög dýr- mæt. Restin af deginum á skrif- stofunni fer í að skrifa bréf til erlendra gesta á Hönn- unarMars ásamt því að vinna efni Hönnunarmiðstöðv- arinnar í dagskrárbækling HönnunarMars 2010.“ 17:30 „Kem heim og hitti syni mína tvo sem passa hvor annan. Annar 18 ára en hinn aðeins 14 mánaða. Tveir út- verðir lífs míns sem ég dáist stöðugt að.“ 19:00 „Snæði góðan mat í faðmi fjölskyldunnar sem eig- inmaður minn framreiðir af mikilli snilld.“ 20:00 „Les alla ritröðina um Dúa og finn oftast eitthvað til að brosa yfir við hvern lestur. Það er mjög mikilvægt að barnabækur séu vel skrif- aðar og myndskreyttar. Ekki síst vegna sálarheillar for- eldra.“ 21:00 „Tek vinnutörn. Skrifa texta og fer yfir og svara pósti sem setið hefur á hakanum og hanna smáverk sem þarf að gera fyrir mið- stöðina.“ 23:00 „Komið nóg af þess- um annars ágæta degi. Ég fer snemma í rúmið og les bók og svíf svo sæl inn í svefninn – eða þannig sko :)“ Dagur í lífi Höllu Helgadóttur, framkvæmdastjóra Hönnunarmiðstöðvar Íslands Halla Helgadóttir les gjarnan alla ritröðina um Dúa og finnur oftast eitthvað til að brosa yfir við hvern lestur. Morgunblaðið/Árni Sæberg Vaknar við fegurstu hljóðin Lítil indversk stúlka fær andlits- málningu í tilefni af Holi, sem einn- ig er nefnd hátíð litanna. Þá lifnar yfir veröldinni! Myndin var tekin í barnaskóla í indversku borginni Siliguri á föstu- daginn var, en Holi-hátíðarhöldin hefjast um allt Indland þegar byrjar að vora. Reuters Veröldin Hátíð litanna

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.