SunnudagsMogginn - 28.02.2010, Síða 10
10 28. febrúar 2010
É
g held að það sé ekkert til sem misbýður okkur
blaðamönnum meira en þegar við stöndum við-
mælendur okkar að lygum. Okkar starf snýst um
það að afla upplýsinga, helst glænýrra upplýsinga,
skrifa svo fréttir úr upplýsingunum, vegna þess að við erum
að þjóna lesendum okkar, áheyrendum eða áhorfendum, allt
eftir því hjá hverskonar fréttamiðli við vinnum. Ég held að
við blaðamenn eigum það allir sammerkt að sá sem einu sinni
hefur orðið uppvís að ósannindum hefur glatað traustinu
með öllu.
Að þessu sögðu finnst mér ég mega til með að rifja upp
ákveðinn fréttaflutning okkar hér í Morgunblaðinu af mál-
efnum tryggingafélagsins Sjóvár og bótasjóði þess, frá því í
októberlok árið 2008, eða fyrir réttum 16 mánuðum.
Ekki finnst mér síst nauðsynlegt að rifja upp og setja í sam-
hengi svör þáverandi forstjóra Sjóvár, Þórs Sigfússonar, á
þessum tíma hér í Morgunblaðinu við spurningum sem ég
bar upp við hann. Þór var þegar þetta var ekki bara forstjóri
Sjóvár, heldur var hann formaður Samtaka atvinnulífsins og
aukinheldur var hann hvorki meira né minna en stjórn-
arformaður Árvakurs hf., útgáfufélags Morgunblaðsins.
Hinn 27. október 2008 birtist frétt í Morgunblaðinu undir
fyrirsögninni „Bótasjóðir stóðust storminn“ og í þeirri frétt
gerðu forstjórar tryggingafélaganna grein fyrir því hversu
mikilli snilld þeir og félögin sem þeir stýrðu hefðu beitt er
fjárfestingastefnu félaganna var breytt.
Þessi frétt í Morgunblaðinu varð aftur til þess að ég fékk
ábendingar um að eitthvað færi nú á milli mála sannleiksgildi
frásagna forstjóra tryggingafélaganna og var Þór Sigfússon
sérstaklega tilgreindur í þeim efnum. Mér var sagt að Fjár-
málaeftirlitið væri með þrjú stærstu tryggingafélögin (TM,
Sjóvá og VÍS) til nákvæmrar skoðunar vegna þess að ekki
þætti tryggt að bótasjóðir félaganna stæðu jafntraustum fót-
um og forstjórar félaganna hefðu sagt að þeir gerðu og því var
haldið fram við mig að það vantaði a.m.k. 15 milljarða króna í
bótasjóð Sjóvár.
Vitanlega fór ég á stúfana og kannaði sannleiksgildi þessara
merku ábendinga og eftir svolítið japl, jaml og fuður fékk ég
það staðfest hjá FME að félögin og bótasjóðir þeirra væru til
rannsóknar hjá FME, einkum Sjóvá og bótasjóðir hennar. Í
þeirri staðfestingu fékkst jafnframt upplýst að FME teldi að
aðsteðjandi vandi tryggingafélaganna væri tilkominn vegna
fjárfestingarstefnu þeirra og að þau hefðu lent í erfiðleikum
vegna tengsla við önnur fjármálafyrirtæki og fjárfestingar
þeirra.
Ég skrifaði forsíðufrétt um þetta sem birtist sem fimm
dálka frétt efst á forsíðu Morgunblaðsins hinn 30. október
2008 undir fyrirsögninni: „FME skoðar tryggingafélögin“ og
í undirfyrirsögn sagði: „Eðlilegt þegar fjármálamarkaður
verður fyrir jafnmiklu áfalli og nú að FME sé í nánu samstarfi
við okkur,“ segir forstjóri Sjóvár. FME kannar hve mikið fé
vantar í bótasjóði tryggingafélaganna.“
Raunar eru ummæli forstjórans á forsíðu Morgunblaðsins
fyrir 16 mánuðum með ólíkindum þegar hann segir: „Við
teljum að félagið eigi ágætar eignir á móti tjónaskuld. Við er-
um einnig dótturfélag sænska fjármála- og tryggingafyr-
irtækisins Moderna í Svíþjóð en það félag stendur traustum
fótum. Við erum þess vegna með góðan bakhjarl.“
Forstjórinn, stjórnarformaður útgáfufélags þess fjölmiðils
sem hann var að tala við, og formaður Samtaka atvinnulífs-
ins, var ekkert að víla fyrir sér hagræðingu á sannleikanum á
forsíðu Morgunblaðsins. Forstjórinn sem hafði nákvæmlega
átta mánuðum áður undirritað lánasamninga frá Sjóvá til
Milestone, upp á samtals 15,7 milljarða króna, sem nam 1,5
földu eigin fé Sjóvár í árslok 2007, lét eins og allt væri í
himnalagi og það væri bara gott mál að FME væri í „nánu
samstarfi við okkur“.
Þegar ég horfði á hið ágæta Kastljós nú fyrr í vikunni, þar
sem farið var yfir vitnisburð þessa sama Þórs Sigfússonar í yf-
irheyrslum hjá sérstökum saksóknara frá því í fyrrasumar,
rifjaðist þessi frétt upp fyrir mér og mér fannst eiginlega
borðleggjandi að rifja hana upp fyrir ykkur einnig, lesendur
góðir.
Að ljúga með
bros á vör
Agnes segir
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
7:00 „Vakna við óendanlega
fagurt hjal Matthíasar unga
sonar míns. Hann hjalar og
talar oft í góða stund áður en
við förum á fætur á morgnana.
Þetta eru fegurstu hljóð sem
ég get hugsað mér.“
8:45 „Skunda í Kramhúsið
og stunda þar mjög svo góða
pilates-taichi-styrkingar-
teygjuleikfimi. Kramhúsið er
einfaldlega frábær staður enda
fer ég alltaf aftur þangað.“
9:45 „Dett inn á Kaffitár í
Bankastræti og geri síðustu
ráðstafanir vegna blaða-
mannafundar í Kaupmanna-
höfn vegna opnunar sýningar
okkar Íslensk samtímahönnun
í Dansk Design Center á föstu-
daginn.“
10:00 „Hitti Greip, verk-
efnastjóra HönnunarMars, á
vikulegum fundi okkar á
Kaffitári. Við förum yfir nokk-
ur mál, vinnum mikið og
hlæjum líka mikið.“
11:30 „Kem á skrifstofuna
eftir langa en góða og mark-
vissa yfirsetu á þessu stóra
verkefni. Tek stöðuna á blaða-
mannafundinum. Hann gekk
vel.“
12:00 „Stjórn Hönn-
unarMars kemur í létt hádeg-
isspjall með okkur Greipi í
Hönnunarmiðstöðinni í Von-
arstræti 4.“
13:00 „Nýr fjölmiðla-
fulltrúi HönnunarMars, Björg,
mætir og setur sig inn í verk-
efnið. Ég sest niður með henni
stutta stund. Þess á milli vinn
ég við tölvuna. Það er mikið
að gera þessa dagana og í
mörg horn að líta. Síminn
hringir stanslaust og póst-
urinn hleðst upp.“
14:30 „Fundur um komu
erlendra gesta á Hönn-
unarMars. Soffía, sem sér um
þau mál, og Greipur setja mig
inn í málin og við vinnum
fram eftir degi í boðsbréfum
og að stilla saman strengi.
Áhuginn að utan er
töluverður og yfirsýnin þarf
að vera góð.“
15:30 „Símtal vegna þátt-
töku iðnaðarráðherra í opnun
sýningarinnar okkar í DDC.
Það er mikilvægt að stjórn-
sýslan og ráðamenn sýni í
verki áherslur sínar í fram-
gangi íslenskrar hönnunar. Því
er þátttaka
ráðherrans okkur mjög dýr-
mæt.
Restin af deginum á skrif-
stofunni fer í að skrifa bréf til
erlendra gesta á Hönn-
unarMars ásamt því að vinna
efni Hönnunarmiðstöðv-
arinnar í dagskrárbækling
HönnunarMars 2010.“
17:30 „Kem heim og hitti
syni mína tvo sem passa hvor
annan. Annar 18 ára en hinn
aðeins 14 mánaða. Tveir út-
verðir lífs míns sem ég dáist
stöðugt að.“
19:00 „Snæði góðan mat í
faðmi fjölskyldunnar sem eig-
inmaður minn framreiðir af
mikilli snilld.“
20:00 „Les alla ritröðina
um Dúa og finn oftast eitthvað
til að brosa yfir við hvern
lestur. Það er mjög mikilvægt
að barnabækur séu vel skrif-
aðar og myndskreyttar. Ekki
síst vegna sálarheillar for-
eldra.“
21:00 „Tek vinnutörn.
Skrifa texta og fer yfir og
svara pósti sem setið hefur á
hakanum og hanna smáverk
sem þarf að gera fyrir mið-
stöðina.“
23:00 „Komið nóg af þess-
um annars ágæta degi. Ég fer
snemma í rúmið og les bók og
svíf svo sæl inn í svefninn –
eða þannig sko :)“
Dagur í lífi Höllu Helgadóttur,
framkvæmdastjóra Hönnunarmiðstöðvar Íslands
Halla Helgadóttir les gjarnan alla ritröðina um Dúa og finnur oftast eitthvað til að brosa yfir við hvern lestur.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vaknar við
fegurstu hljóðin
Lítil indversk stúlka fær andlits-
málningu í tilefni af Holi, sem einn-
ig er nefnd hátíð litanna.
Þá lifnar yfir veröldinni!
Myndin var tekin í barnaskóla í
indversku borginni Siliguri á föstu-
daginn var, en Holi-hátíðarhöldin
hefjast um allt Indland þegar byrjar
að vora. Reuters
Veröldin
Hátíð litanna