SunnudagsMogginn - 28.02.2010, Page 12
12 28. febrúar 2010
T
veir heimsmeistarar í
skák rölta á móti mér
eftir brúnni yfir í Ráð-
húsið, á leið til annars
mótsdags í MP Reykjavík Open.
Þetta eru Daysi og Jorge Cori, 16
og 14 ára systkini frá Perú. Faðir
þeirra, Jorge Cori eldri, er í
fylgd með börnum sínum og
þau heilsa öll blaðamanni með
kossi og faðmlagi að suður-
amerískum sið.
„Er ísinn traustur?“ er það
fyrsta sem Jorge Cori eldri spyr
blaðamann og svo lýsir hann
áhyggjum sínum af velferð
fólksins sem hann sá hlaupa á
honum í gærkvöldi. Eftir að
hafa fullvissað hann um að ekki
sé vitað til að nokkur hafi
drukknað í Tjörninni náum við
ljósmyndarinn að plata þau út á
ísinn er umlykur Ráðhúsið og
þau fíflast afslöppuð í snjónum,
þótt ekki séu nema um 45 mín-
útur þar til skákir dagsins hefj-
ast.
Snjórinn frábær
Daysi Cori er eini alþjóðlegi
kvenstórmeistari í skák í Perú
og yngst allra kvenna í Suður-
Ameríku til að bera þann titil.
Jorge Cori er hins vegar yngsti
alþjóðlegi stórmeistari í heimi
og var yngstur Ameríkubúa að
ná þeim áfanga aðeins 14 ára og
tveggja mánaða. Í nóvember í
fyrra náðu systkinin bæði þeim
merka áfanga að vinna heims-
meistaratitla í skák í sínum ald-
ursflokkum á heimsmeist-
aramóti unglinga í Tyrklandi.
„Okkur brá svolítið í dag
þegar við komum út í hríðina
og allan þennan snjó og vind-
urinn ýtti og togaði í okkur. En
mér finnst snjórinn frábær,“
segir Daysi og litli bróðir henn-
ar samsinnir því.
Þau koma frá borginni Villa
Salvador, sem er við Lima, höf-
uðborg Perú, þar sem allt annað
loftslag ríkir. „Við erum að
koma frá því að keppa á skák-
mótum á Frakklandi og Spáni
og förum svo aftur til Spánar
þegar þessu móti lýkur. Það er
skólafrí í Perú núna og við not-
um það til að keppa og safna
ELO-stigum.“
Ég spyr þau hvernig líf skák-
meistara sé. „Bara venjulegt,
nema maður þarf að æfa sig að-
eins meira,“ segir Jorge og fliss-
ar.
Skákin færir gleði
Börnin eru orðin þjóðhetjur í
heimalandi sínu Perú og ég spyr
þau hvort heimsmeistaratitl-
arnir hafi breytt lífi þeirra. „Jú,
þetta hefur fært mikla gleði og
hamingju í fjölskyldu okkar og
svo þekkir fólk okkur á götum
úti, vill taka ljósmyndir og fá
eiginhandaráritanir. Við þurf-
um að leggja tímanlega af stað
þegar við förum í bíó og svo-
leiðis.“
Jorge Cori eldri segir mér að
þau séu af efnalitlu fólki komin.
Hann er sjálfur verkamaður og
konan hans skólaliði í grunn-
skóla. Þau hafi alla tíð þurft að
reiða sig á styrki og aðstoð
skáksambandsins í Perú, borg-
aryfirvalda í Villa Salvador og
Daysi Cori er eini alþjóðlegi kvenstórmeistari í skák í Perú og yngst allra kvenna í Suður-Ameríku til að bera þann titil. Jorge Cori er hins vegar yngsti alþjóðlegi stórmeistari í heimi.
Það er ekki á hverjum degi sem tveir
heimsmeistarar í skák koma frá sama
landinu, hvað þá úr sömu fjölskyld-
unni. Enda eru Cori-systkinin, sem
tefla þessa dagana á Reykjavíkurskák-
mótinu, þjóðhetjur í sínu heimalandi.
Daysi er 16 ára og Jorge 14 ára, en
hann er jafnframt yngsti stórmeistari í
heiminum.
Steinunn Þórhallsdóttir
Heimsins yngstu
stórmeistarar
Nafn Þjóð Ár Mán Dagar Hvenær
1 Sergey Karjakin UKR 12 7 0 2002
2 Parimarjan Negi IND 13 3 22 2006
3 Magnus Carlsen NOR 13 3 27 2004
4 Bu Xiangzhi CHN 13 10 13 1999
5 Teimour Radjabov AZE 14 0 14 2001
6 Ruslan Ponomaryov UKR 14 0 17 1997
7 Wesley So PHI 14 1 28 2007
8 Etienne Bacrot FRA 14 2 0 1997
9 Jorge Cori PER 14 2 0 2009
10 Maxime Vachier-Lagrave FRA 14 4 0 2005
11 Peter Leko HUN 14 4 22 1994
12 Hou Yifan CHN 14 6 2 2008
13 Anish Giri RUS 14 7 2 2009
14 Yuri Kuzubov UKR 14 7 12 2004
15 Nguyen Ngoc Truong Son VIE 14 10 0 2004
16 Ray Robson USA 14 11 16 2009
17 Fabiano Caruana ITA 14 11 20 2007
18 Koneru Humpy IND 15 1 27 2002
19 Hikaru Nakamura USA 15 2 19 2003
20 Pentala Harikrishna IND 15 3 5 2001
21 Judit Polgar HUN 15 4 28 1991
22 Alejandro Ramirez CRI 15 5 14 2003
23 Bobby Fischer USA 15 6 1 1958
’
Jú, þetta hefur
fært mikla gleði
og hamingju í
fjölskyldu okkar og
svo þekkir fólk okkur
á götum úti, vill taka
ljósmyndir og fá eig-
inhandaráritanir. Við
þurfum að leggja
tímanlega af stað
þegar við förum í bíó
og svoleiðis.“
Undrabörnin frá Perú