SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 28.02.2010, Qupperneq 12

SunnudagsMogginn - 28.02.2010, Qupperneq 12
12 28. febrúar 2010 T veir heimsmeistarar í skák rölta á móti mér eftir brúnni yfir í Ráð- húsið, á leið til annars mótsdags í MP Reykjavík Open. Þetta eru Daysi og Jorge Cori, 16 og 14 ára systkini frá Perú. Faðir þeirra, Jorge Cori eldri, er í fylgd með börnum sínum og þau heilsa öll blaðamanni með kossi og faðmlagi að suður- amerískum sið. „Er ísinn traustur?“ er það fyrsta sem Jorge Cori eldri spyr blaðamann og svo lýsir hann áhyggjum sínum af velferð fólksins sem hann sá hlaupa á honum í gærkvöldi. Eftir að hafa fullvissað hann um að ekki sé vitað til að nokkur hafi drukknað í Tjörninni náum við ljósmyndarinn að plata þau út á ísinn er umlykur Ráðhúsið og þau fíflast afslöppuð í snjónum, þótt ekki séu nema um 45 mín- útur þar til skákir dagsins hefj- ast. Snjórinn frábær Daysi Cori er eini alþjóðlegi kvenstórmeistari í skák í Perú og yngst allra kvenna í Suður- Ameríku til að bera þann titil. Jorge Cori er hins vegar yngsti alþjóðlegi stórmeistari í heimi og var yngstur Ameríkubúa að ná þeim áfanga aðeins 14 ára og tveggja mánaða. Í nóvember í fyrra náðu systkinin bæði þeim merka áfanga að vinna heims- meistaratitla í skák í sínum ald- ursflokkum á heimsmeist- aramóti unglinga í Tyrklandi. „Okkur brá svolítið í dag þegar við komum út í hríðina og allan þennan snjó og vind- urinn ýtti og togaði í okkur. En mér finnst snjórinn frábær,“ segir Daysi og litli bróðir henn- ar samsinnir því. Þau koma frá borginni Villa Salvador, sem er við Lima, höf- uðborg Perú, þar sem allt annað loftslag ríkir. „Við erum að koma frá því að keppa á skák- mótum á Frakklandi og Spáni og förum svo aftur til Spánar þegar þessu móti lýkur. Það er skólafrí í Perú núna og við not- um það til að keppa og safna ELO-stigum.“ Ég spyr þau hvernig líf skák- meistara sé. „Bara venjulegt, nema maður þarf að æfa sig að- eins meira,“ segir Jorge og fliss- ar. Skákin færir gleði Börnin eru orðin þjóðhetjur í heimalandi sínu Perú og ég spyr þau hvort heimsmeistaratitl- arnir hafi breytt lífi þeirra. „Jú, þetta hefur fært mikla gleði og hamingju í fjölskyldu okkar og svo þekkir fólk okkur á götum úti, vill taka ljósmyndir og fá eiginhandaráritanir. Við þurf- um að leggja tímanlega af stað þegar við förum í bíó og svo- leiðis.“ Jorge Cori eldri segir mér að þau séu af efnalitlu fólki komin. Hann er sjálfur verkamaður og konan hans skólaliði í grunn- skóla. Þau hafi alla tíð þurft að reiða sig á styrki og aðstoð skáksambandsins í Perú, borg- aryfirvalda í Villa Salvador og Daysi Cori er eini alþjóðlegi kvenstórmeistari í skák í Perú og yngst allra kvenna í Suður-Ameríku til að bera þann titil. Jorge Cori er hins vegar yngsti alþjóðlegi stórmeistari í heimi. Það er ekki á hverjum degi sem tveir heimsmeistarar í skák koma frá sama landinu, hvað þá úr sömu fjölskyld- unni. Enda eru Cori-systkinin, sem tefla þessa dagana á Reykjavíkurskák- mótinu, þjóðhetjur í sínu heimalandi. Daysi er 16 ára og Jorge 14 ára, en hann er jafnframt yngsti stórmeistari í heiminum. Steinunn Þórhallsdóttir Heimsins yngstu stórmeistarar Nafn Þjóð Ár Mán Dagar Hvenær 1 Sergey Karjakin UKR 12 7 0 2002 2 Parimarjan Negi IND 13 3 22 2006 3 Magnus Carlsen NOR 13 3 27 2004 4 Bu Xiangzhi CHN 13 10 13 1999 5 Teimour Radjabov AZE 14 0 14 2001 6 Ruslan Ponomaryov UKR 14 0 17 1997 7 Wesley So PHI 14 1 28 2007 8 Etienne Bacrot FRA 14 2 0 1997 9 Jorge Cori PER 14 2 0 2009 10 Maxime Vachier-Lagrave FRA 14 4 0 2005 11 Peter Leko HUN 14 4 22 1994 12 Hou Yifan CHN 14 6 2 2008 13 Anish Giri RUS 14 7 2 2009 14 Yuri Kuzubov UKR 14 7 12 2004 15 Nguyen Ngoc Truong Son VIE 14 10 0 2004 16 Ray Robson USA 14 11 16 2009 17 Fabiano Caruana ITA 14 11 20 2007 18 Koneru Humpy IND 15 1 27 2002 19 Hikaru Nakamura USA 15 2 19 2003 20 Pentala Harikrishna IND 15 3 5 2001 21 Judit Polgar HUN 15 4 28 1991 22 Alejandro Ramirez CRI 15 5 14 2003 23 Bobby Fischer USA 15 6 1 1958 ’ Jú, þetta hefur fært mikla gleði og hamingju í fjölskyldu okkar og svo þekkir fólk okkur á götum úti, vill taka ljósmyndir og fá eig- inhandaráritanir. Við þurfum að leggja tímanlega af stað þegar við förum í bíó og svoleiðis.“ Undrabörnin frá Perú

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.