SunnudagsMogginn - 28.02.2010, Page 16

SunnudagsMogginn - 28.02.2010, Page 16
16 28. febrúar 2010 V ikan hefur liðið frekar hægt,“ segir Hrafnhildur Ósk Skúla- dóttir, stórskytta úr Val, hlæjandi, þegar tveir sólar- hringar eru í úrslitaleikinn gegn Fram í Eimskipsbikarnum í Laugardalshöllinni í dag, laugardag, kl. 13:30. „Spennan er að verða ansi mikil. Ég er búin að vera með hugann við leikinn alla vikuna.“ Hrafnhildur er margreynd, lék meðal annars um sex ára skeið sem atvinnu- maður í Danmörku, en segir fiðringinn aldrei fara úr maganum fyrir stórleiki af þessu tagi. Undirbúningur Valsliðsins hefur verið með hefðbundnu sniði í vikunni enda margar „hjátrúarkerlingar“ í liðinu. „Við eigum venjulega frí á miðviku- dögum en Stefán Arnarsson þjálfari spurði hvort til greina kæmi að sleppa honum að þessu sinni. Okkur fannst það ómögulegt, við erum svo hjátrúar- fullar,“ segir Hrafnhildur og hlær. Hún viðurkennir að hún sé slæm í þessum efnum en fullyrðir að Brynja Steinsen sé ennþá verri. Oft er fjör á æfingum í Vodafone- höllinni en samtals eiga stelpurnar í Valsliðinu ellefu börn sem þær taka gjarnan með sér á æfingar. „Við erum Það eru jafnan fagnaðarfundir þegar Hrafnhildur Ósk sækir dóttur sína, Alexöndru Ósk, á leikskólann Kirkjuból. Sú stutta er tveggja ára og unir hag sínum vel á leikskólanum. Morgunblaðið/Árni Sæberg Vikan hefur liðið hægt Viktoría Dís, 9 ára, Viktor Jónmundsson, Hrafnhildur og Alexandra Ósk taka lagið heima. Hrafnhildur á æfingu í Vodafone-höllinni. Hrafnhildur Ósk ásamt nemendum sínum í 3. bekk HS í Hofsstaðaskóla í Garðabæ. Bak við tjöldin Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.