SunnudagsMogginn - 28.02.2010, Blaðsíða 16
16 28. febrúar 2010
V
ikan hefur liðið frekar hægt,“
segir Hrafnhildur Ósk Skúla-
dóttir, stórskytta úr Val,
hlæjandi, þegar tveir sólar-
hringar eru í úrslitaleikinn gegn Fram í
Eimskipsbikarnum í Laugardalshöllinni
í dag, laugardag, kl. 13:30. „Spennan er
að verða ansi mikil. Ég er búin að vera
með hugann við leikinn alla vikuna.“
Hrafnhildur er margreynd, lék meðal
annars um sex ára skeið sem atvinnu-
maður í Danmörku, en segir fiðringinn
aldrei fara úr maganum fyrir stórleiki af
þessu tagi.
Undirbúningur Valsliðsins hefur verið
með hefðbundnu sniði í vikunni enda
margar „hjátrúarkerlingar“ í liðinu.
„Við eigum venjulega frí á miðviku-
dögum en Stefán Arnarsson þjálfari
spurði hvort til greina kæmi að sleppa
honum að þessu sinni. Okkur fannst
það ómögulegt, við erum svo hjátrúar-
fullar,“ segir Hrafnhildur og hlær. Hún
viðurkennir að hún sé slæm í þessum
efnum en fullyrðir að Brynja Steinsen sé
ennþá verri.
Oft er fjör á æfingum í Vodafone-
höllinni en samtals eiga stelpurnar í
Valsliðinu ellefu börn sem þær taka
gjarnan með sér á æfingar. „Við erum
Það eru jafnan fagnaðarfundir þegar Hrafnhildur Ósk sækir dóttur sína, Alexöndru Ósk, á leikskólann Kirkjuból. Sú stutta er tveggja ára og unir hag sínum vel á leikskólanum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vikan hefur
liðið hægt
Viktoría Dís, 9 ára, Viktor Jónmundsson, Hrafnhildur og Alexandra Ósk taka lagið heima.
Hrafnhildur á æfingu í Vodafone-höllinni. Hrafnhildur Ósk ásamt nemendum sínum í 3. bekk HS í Hofsstaðaskóla í Garðabæ.
Bak við tjöldin
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is